Morgunblaðið - 23.02.2002, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 25
EURO
NCAP
SRX 700 1.000.000,-
SX 700 R 1.000.000,-
V-Max 700 DX 1.020.000,-
Venture 500 800.000,-
Yamaha árgerð 2001
Frábært verð!
Skútuvogur 12a, 104 R.vík • Sími 594 6000
BANDARÍSK herþyrla hrapaði í sjó-
inn við Filippseyjar í gær eftir að hafa
flutt bandaríska sérsveitarmenn til
æfinga með filippseyskum hermönn-
um. Í gær var búið að finna lík þriggja
manna en sjö var enn saknað.
Vitni segja, að þyrlan hafi virst
vera logandi er hún lenti í sjónum en
þá varð mikil sprenging í henni. Að
öðru leyti er ekkert vitað um ástæðu
slyssins og talið er útilokað, að skotið
hafi verið á hana. Nokkuð hvasst var,
dálítil rigning og skyggni slæmt en
þyrlan var vel búin siglingatækjum.
Bandarískir hermenn eru um þess-
ar mundir að þjálfa filippseyska her-
menn í baráttunni við skæruliða og
hryðjuverkamenn.
Þyrluslys á Filippseyjum
10 menn taldir af
Apo-ey. AP.
KÓLUMBÍSKI stjórnarherinn hóf í
gær sókn inn á svæði það í suðurhluta
landsins, sem verið hefur á valdi
vinstrisinnaðra skæruliða FARC-
hreyfingarinnar í rúm þrjú ár. Borg-
arastyrjöldin í landinu hefur staðið yf-
ir í þrjá áratugi og tugþúsundir
manna hafa fallið, þar á meðal fjöldi
óbreyttra borgara.
Aðgerðir þessar fylgja þeirri
ákvörðun Andres Pastrana, forseta
Kólumbíu, að rifta friðarviðræðum
við skæruliða.
Rúmlega 200 hermenn voru fluttir í
þyrlum inn á griðasvæðið, sem mark-
að var síðla árs 1998 sem liður í frið-
arviðræðum stjórnvalda og skæru-
liða. Hermennirnir náðu í gær til
stærsta bæjarins þar sem nefnist San
Vicente de Caguan (sjá meðfylgjandi
kort).
Skæruliðar með 16.000
manna lið undir vopnum
Bærinn var myrkvaður og hermdu
fréttir að skæruliðar hefðu rofið raf-
strauminn.
Stjórnvöld kunngjörðu í gær að alls
yrði 13.000 hermönnum beitt í sókn-
inni gegn skæruliðum. Lentu þrjár
liðsflutningavélar í bænum Florencia
og var það upphaf tangarsóknar inn á
griðasvæðið sem er á stærð við Sviss.
Talið er að um 100.000 manns búi á
griðasvæðinu en skæruliðar, sem
fjármagna stríð sitt með fíkniefnavið-
skiptum og mannránum, munu hafa
þar um 16.000 menn undir vopnum.
Herinn í Kólumbíu
blæs til sóknar
San Vicente de Caguan. AP, AFP.
Baráttan við skæruliðahreyfinguna FARC
Árás gerð á
griðasvæðið frá
1998 með þyrlum
og þúsundum
hermanna
!
" #" $%! & #
!
'( # "
) #" "
*
+,,'
0
.
1
2
.
"
3#(&. 1-' 2 45-6 7 2 8
9
:
; 2 <
% $&& 2
1 !=
2
2 2 > ? 8
5 ? !"#$%!&#
!"
#$
-./012
345$
6 7 9 :
;38
% (&&
>
>
<
= @
? ?
>
1