Morgunblaðið - 23.02.2002, Page 25

Morgunblaðið - 23.02.2002, Page 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 25 EURO NCAP SRX 700 1.000.000,- SX 700 R 1.000.000,- V-Max 700 DX 1.020.000,- Venture 500 800.000,- Yamaha árgerð 2001 Frábært verð! Skútuvogur 12a, 104 R.vík • Sími 594 6000 BANDARÍSK herþyrla hrapaði í sjó- inn við Filippseyjar í gær eftir að hafa flutt bandaríska sérsveitarmenn til æfinga með filippseyskum hermönn- um. Í gær var búið að finna lík þriggja manna en sjö var enn saknað. Vitni segja, að þyrlan hafi virst vera logandi er hún lenti í sjónum en þá varð mikil sprenging í henni. Að öðru leyti er ekkert vitað um ástæðu slyssins og talið er útilokað, að skotið hafi verið á hana. Nokkuð hvasst var, dálítil rigning og skyggni slæmt en þyrlan var vel búin siglingatækjum. Bandarískir hermenn eru um þess- ar mundir að þjálfa filippseyska her- menn í baráttunni við skæruliða og hryðjuverkamenn. Þyrluslys á Filippseyjum 10 menn taldir af Apo-ey. AP. KÓLUMBÍSKI stjórnarherinn hóf í gær sókn inn á svæði það í suðurhluta landsins, sem verið hefur á valdi vinstrisinnaðra skæruliða FARC- hreyfingarinnar í rúm þrjú ár. Borg- arastyrjöldin í landinu hefur staðið yf- ir í þrjá áratugi og tugþúsundir manna hafa fallið, þar á meðal fjöldi óbreyttra borgara. Aðgerðir þessar fylgja þeirri ákvörðun Andres Pastrana, forseta Kólumbíu, að rifta friðarviðræðum við skæruliða. Rúmlega 200 hermenn voru fluttir í þyrlum inn á griðasvæðið, sem mark- að var síðla árs 1998 sem liður í frið- arviðræðum stjórnvalda og skæru- liða. Hermennirnir náðu í gær til stærsta bæjarins þar sem nefnist San Vicente de Caguan (sjá meðfylgjandi kort). Skæruliðar með 16.000 manna lið undir vopnum Bærinn var myrkvaður og hermdu fréttir að skæruliðar hefðu rofið raf- strauminn. Stjórnvöld kunngjörðu í gær að alls yrði 13.000 hermönnum beitt í sókn- inni gegn skæruliðum. Lentu þrjár liðsflutningavélar í bænum Florencia og var það upphaf tangarsóknar inn á griðasvæðið sem er á stærð við Sviss. Talið er að um 100.000 manns búi á griðasvæðinu en skæruliðar, sem fjármagna stríð sitt með fíkniefnavið- skiptum og mannránum, munu hafa þar um 16.000 menn undir vopnum. Herinn í Kólumbíu blæs til sóknar San Vicente de Caguan. AP, AFP. Baráttan við skæruliðahreyfinguna FARC Árás gerð á griðasvæðið frá 1998 með þyrlum og þúsundum hermanna               ! "  #" $%! &   #      !   '(   # " )  #"   "  *         +,,' 0     .      1  2  .    "   3#(&. 1-' 2 45-6 7    2 8    9 :  ; 2 < % $&&   2    1  !=  2      2 2   >   ?  8    5 ?  !"#$%!&#     !" #$ -./012 345$ 6 7   9 : ;38   % (&&      >          >   <    = @ ? ?  >   1 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.