Morgunblaðið - 23.02.2002, Qupperneq 31
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2002 31
MENNTUN
Starfsmenntaáætlun ESB
Hinn
18. janúar
sl. rann út
umsókn-
arfrestur í
Leonardo
da Vinci starfsmenntaáætlunina. Að
þessu sinni hlutu 22 mannaskipta-
verkefni styrki. Skiptist það á milli 7
mannaskiptaverkefna og 15 starfs-
mannaskiptaverkefna, samtals fyrir
rúmlega 200 manns. Styrkirnir nema
frá 77.500 krónum fyrir einn mann í
eina viku til 9,6 milljóna fyrir 90 ung-
menni til 3–6 mánaða starfsþjálf-
unar.
Fimm aðilar sendu inn for-
umsóknir um tilraunaverkefni og fá
allir leyfi til að halda áfram og senda
lokaumsóknir, en úrslit úr þeim ráð-
ast í sumar. Næsti umsóknarfrestur
í Leonardó er í haust og verður nánar
auglýstur síðar.
Erlend fyrirtæki í leit …
Á hverju ári
berst Euro Info-
skrifstofunni
fjöldi fyrirspurna
frá erlendum fyr-
irtækjum í leit að
samstarfsaðilum
á Íslandi. Dagana 27. febrúar til 1.
mars n.k. verða hér á landi fulltrúar
úkraínskra fyrirtækja með það að
markmiði að koma á viðskiptum milli
Íslands og Úkraínu.
Miðvikudaginn 27. febrúar kl. 10
verður haldinn fundur að Hallveig-
arstíg 1 þar sem fulltrúar frá Úkraínu
munu kynna fyrir íslenskum fyr-
irtækjum menningarheim, efnahags-
ástand og viðskiptaumhverfi í Úkra-
ínu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Útflutningsráði í síma 511 4000
eða með tölvupósti, utflutn-
ingsrad@utflutningsrad.is.
Lífvísindi, háskólar
og iðnfyrirtæki
„Fellows
for Ind-
ustry“ er
fjölþjóðlegt
samstarf,
styrkt af Evrópusambandinu, sem
hjálpar áhugasömum ungum vís-
indamönnum að komast í störf hjá
stofnunum og fyrirtækjum á sviði
heilbrigðis- og endurhæfingartækni í
öðrum Evrópulöndum. Styrkir Evr-
ópusambandsins til slíkra starfa
geta varað allt að tveimur árum.
Markmið „Fellows for Industry“ er
að stuðla að samstarfi milli háskóla
og iðnaðar. Fyrirtæki fá beinan að-
gang að nýjustu rannsóknanið-
urstöðum en vísindamenn fá tæki-
færi til að auka hagnýta þekkingu
sína með því að starfa í iðnfyr-
irtækjum. Evrópusambandið greiðir
laun starfsmanna sem þannig skipta
um starfsvettvang.
Einn þáttur verkefnisins „Fellows
for Industry“ er samstarfsmiðlun á
vefnum til að greiða fyrir umsóknum
um styrki fyrir lokafresti Marie Curie
áætlunar Evrópusambandsins, 13.
mars og 10. apríl næstkomandi. Á
tímabilinu 18. febrúar til 8. mars
verða birtar á vefslóðinni
www.bit.ac.at/ffi/ nýjustu upplýs-
ingar um fyrirtæki, stofnanir og há-
skóla sem hafa áhuga á hýsa unga
sérfræðinga. Áhugasamir ungir vís-
indamenn eiga þá kost á að komast í
samband við viðeigandi „gestgjafa.“
Á vefslóðinni www.bit.ac.at/
fellows_for_industry.htm er nú þegar
tilbúið safn yfir 250 stofnanir, há-
skóla og fyrirtæki í 13 löndum sem
vilja taka á móti styrkþegum.
Nánari upplýsingar veitir Ragn-
heiður Héðinsdóttir, ragnheid-
ur@si.is.
Styrkjaáætlun ESB
Hinn 25. febr-
úar flytur lands-
skrifstofa UFE í
nýtt húsnæði
ásamt allri starfs-
semi Hins húss-
ins. Nýtt aðsetur
landsskrifstof-
unnar er í Póst-
hússtræti 3–5, 101 Reykjavík. Laug-
ardaginn 2. mars kl. 16–22 verður
opið hús hjá landsskrifstofunni og
eru allir velkomnir. Ný heimasíða
UFE verður opnuð sama dag á slóð-
inni: www.ufe.is. Ungt fólk og æsku-
lýðssamtök eru hvött til að kynna sér
möguleika áætlunarinnar.
Kennarar: Comeníus
Sókrates/
Comeníus
styrkir:
Kennara
á leik-, grunn-
og framhaldsskólastigi til að sækja
endurmenntunarnámskeið í þátttö-
kulandi Sókratesar í 1–4 vikur.
Evrópsk samstarfsverkefni og
skólaþróunarverkefni leik-, grunn- og
framhaldsskóla. Verkefni byggjast á
þriggja landa samstarfi að lágmarki.
Leit að samstarfsaðila: http://
partbase.eupro.se/
Tungumálaverkefni er byggjast
á nemendaskiptum hópa 14 ára og
eldri, tveggja vikna gagnkvæmar
heimsóknir.
Tungumálakennarar í grunn- og
framhaldsskólum og í fullorð-
insfræðslustofnunum geta sótt um
að fá evrópska aðstoðarkennara frá
e-u ESB landi í 3–8 mánuði.
Sókrates/Grundtvig styrkir kenn-
ara í fullorðinsfræðslu og fullorð-
insfræðslustofnanir:
Endurmenntun kennara í þátttö-
kulandi Sókratesar. Námskeið 1–4
vikur.
Samstarfsverkefni fullorð-
insfræðslustofnana, a.m.k. 3 þátt-
tökulönd taki þátt.
Umsóknarfrestur er til 1. mars.
Umsóknareyðublöð eru á slóðinni:
www.ask.hi.is/eydublod.
Upplýsingar hjá Landsskrifstofu
Sókratesar/Alþjóðaskrifstofu há-
skólastigsins í síma 525 5813 eða
með tölvuósti, rz@hi.is.
Rannsóknasamstarf
Þátt-
taka ís-
lenskra
aðila í
evrópsku rannsóknasamstarfi:
Íslendingar eru fullgildir aðilar að
rannsóknaáætlunum Evrópusam-
bandsins og hafa íslenskir vís-
indamenn tekið virkan þátt í evr-
ópsku rannsóknastarfi frá 1994.
Rannsóknaáætlanirnar eru endurnýj-
aðar á fjögurra ára fresti og er gert
ráð fyrir að sú næsta, sem er sú
sjötta, hefjist í lok ársins 2002 og
standi til 2006. Eins og fyrri áætlanir
felur hún í sér samvinnu um rann-
sóknir og tækniþróun og litið er á
áætlunina sem lið í að byggja upp
Evrópu sem eitt vísindasvæði. Gert
er ráð fyrir 8 rannsóknasviðum sem
samstaða er um að njóti forgangs:
1. Erfða- og líftækni á heilbrigð-
issviði.
2. Tækni upplýsingasamfélags-
ins.
3. Örtækni og ný framleiðslu- og
efnistækni.
4. Flug- og geimtækni.
5. Gæði og öryggi matvæla.
6. Sjálfbær þróun, hnattrænar
breytingar og vistkerfi.
7. Tengsl almennra borgara og
stjórnvalda í þekkingarsamfélaginu.
8. Ný rannsóknasvið, rannsóknir
til stuðnings sameiginlegri stefnu
ESB, litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum og alþjóðlegri samvinnu.
Auk þessa er gert ráð fyrir sér-
stakri stoðáætlun sem styrkir ný-
sköpun, þjálfun og flæði vísinda-
manna milli landa, uppbyggingu á
innviðum rannsóknasamfélagsins
og tengsl vísinda og samfélags. Þá
verður stuðlað að gagnkvæmri opn-
un á rannsóknaáætlunum einstakra
landa.
Af þessu tilefni verða vísinda-
fulltrúi menntamálaráðuneytisins í
Brussel, Ágúst Hjörtur Ingþórsson og
forstöðumaður alþjóðasviðs RANN-
ÍS, Hjördís Hendriksdóttir, til viðtals
dagana 4. og 8. mars fyrir þá aðila
sem vilja fræðast um 6. rann-
sóknaáætlunina og ræða mögleika á
þátttöku. Hægt er að panta viðtals-
tíma á skrifstofu RANNÍS í síma
515 5800 eða með tölvupósti rann-
is@rannis.is.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
HVE öruggur er bíllinn þinn? Ör-
yggi í umferðinni skiptir okkur
miklu máli. Áreiðanlegar og saman-
burðarhæfar upplýsingar um örygg-
isbúnað bifreiða geta gegnt lykil-
hlutverki þegar valinn er bíll.
Samkvæmt lögum verða allar nýjar
bifreiðar að standast ákveðnar lág-
markskröfur um öryggisbúnað áður
en þær fara á markað. Lögin tryggja
því aðeins lágmarksöryggi.
Evrópsku NCAP-öryggisprófun-
inni var komið á fót árið 1997. Að
henni standa helstu stofnanir og
samtök á sviði umferðaröryggismála
og neytendaverndar innan Evrópu-
sambandsins, en markmið hennar er
að hvetja bifreiðaframleiðendur til
að gera betur en lágmarkskröfur
segja til um í öryggismálum. Jafn-
framt veita öryggisprófanir NCAP
bifreiðakaupendum óvilhallar upp-
lýsingar um öryggisbúnað einstakra
bifreiðagerða- og tegunda, sem eru
staðlaðar og því samanburðarhæfar.
Verið er að samhæfa
öryggisstaðlana
Þegar gerðar eru NCAP-prófanir
á bifreiðum þá tíðkast að setja á svið
raunverulega árekstra.
Síðan 1996 og fram til ársins 2000
hafa 64 tegundir af bifreiðum verið
prófaðar á þann hátt og árangurinn
birtur opinberlega. Prófaður er
árekstur framan á bifreiðar og á
hliðar þeirra. Einnig er öryggi veg-
farenda kannað. Síðan eru byggðir
upp ákveðnir staðlar og notast við
stjörnugjöf til að lýsa þeim.
Bíll sem hefur 3–4 stjörnur er 30%
öruggari en 2 stjörnu bíll eða bíll
sem hefur ekki NCAP-staðalinn.
Að sögn Runólfs Ólafssonar,
framkvæmdastjóra FÍB, tryggir
NCAP-staðallinn mesta öryggi bif-
reiða í Evrópu. Annar staðall gildir í
Bandaríkjunum en verið er að reyna
að samhæfa þessa staðla. Þannig að
hægt sé að mæla nákvæmlega sömu
hlutina. Þessar tvær prófanir segir
hann bestu og ýtarlegustu prófanir
sem hægt er að fá um öryggi bifreiða
í heiminum.
Kaupendur spyrji um staðalinn
Runólfur segir einnig að framleið-
endur taki mikið mark á þessari
prófun. Dæmi séu um það að fram-
leiðendur hafi breytt að einhverju
leyti framleiðslulínunni eftir það.
Hann segir að það hafi einnig komið
fyrir að framleiðendur kynni NCAP-
öryggisprófunina, sérstaklega ef bíll
hefur komið vel út úr henni en leggi
síður áherslu á hana ef öryggisatrið-
in eru ekki í lagi.
„Þegar keyptur er bíll skiptir það
kaupandann miklu máli að öryggi sé
gott. Segir Runólfur að það sé því
um að gera að kaupendur bíla spyrji
um þessa staðla þegar kaup eru
gerð. „Nú getur fólk farið inn á www
euroncap.com og þar getur það feng-
ið nýjar og eldri upplýsingar um
prófanir í bílum samkvæmt þessum
staðli.“
Morgunblaðið/Kristinn
Markmið evrópsku NCAP-prófananna er að hvetja bifreiðaframleið-
endur til að gera betur en lágmarkskröfur segja til um í öryggismálum.
NCAP-staðallinn
tryggir mesta
öryggi bifreiða
í Evrópu
MAGNÚS Óli Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Innnes ehf., segir að fimm rann-
sóknir sem gerðar hafi verið af öðr-
um rannsóknarstofum en norskri
rannsóknarstofu, sem fann of mikið
magn af efninu PAH í matarolíu frá
Fillipo Berio, sýni að magn þessa
efnis sé undir viðmiðunarmörkum.
Magnús segir að á Norðurlöndum
og víðast í Evrópu sé miðað við að
magnið sé undir 5 míkrógrömmum
á kíló. Fimm rannsóknir sjálfstæðra
rannsóknarstofa og rannsókn rann-
sóknarstofu Salovs, framleiðanda
Filipo Berio matarolíunnar, leiða í
ljós að magnið er undir 5 míkró-
grömmum á kíló. Í yfirlýsingu frá
Hollustuvernd ríkisins síðan 3. októ-
ber sl. kemur fram að Hollustu-
vernd hafi borist upplýsingar um
olífuolíu sem Innnes ehf. flytur inn
og að hún geri ekki athugasemd við
innflutning á eftirfarandi tegundum:
Berio EV, framleitt af Salov, Low
Acidity, framleitt af Salov og Berio
Olive Oil, framleitt af Salov.
Magnús segir að norska rann-
sóknarstofan hafi gert mistök í
þessari rannsókn. Rannsóknin var
gerð fyrir sænsku hollustuverndina
og ítalski framleiðandinn sé nú að
stefna henni fyrir sænska dómstóla
og alþjóðlegan dómstól í Brussel.
Stofnunin hefur þegar tekið fullyrð-
ingar um of mikið magn PAH í Fil-
ipo Berio olíu af sinni heimasíðu.
„Málið kemst á kreik hérna vegna
þess að verið er að senda viðskipta-
vinum nafnlaus bréf og tölvupóst.
Það er orðið lögreglumál hér. Ég
get ekki fullyrt hvaðan nafnlausu
bréfin koma en tölvupósturinn kem-
ur frá okkar samkeppnisaðila í olíu-
nni, þ.e. Meistaravörum. Þeir hafa
sent tölvupóst til veitingahúsa og
einnig til fjölmiðlanna,“ segir Magn-
ús.
Magnús segir að lögmaður Inn-
nes telji að hér sé um hreinan at-
vinnuróg að ræða.
Fimm rannsóknir á matarolíum frá Filipo Berio
Olían í góðu lagi
NÝLEGA var opnaður á netinu
nýr upplýsingavefur, www.-
namskeid.net sem sérhæfir sig
í að veita upplýsingar um þau
námskeið sem eru í boði hér á
landi.
Markmiðið með www.nams-
keid.net er að auðvelda notend-
um netsins að fá á einfaldan,
aðgengilegan og fljótlegan hátt
yfirsýn yfir öll helstu nám-
skeiðin sem eru í boði hér á
landi hverju sinni.
Þjónustan er notendum að
kostnaðarlausu, segir í frétta-
tilkynningu.
Nýr vefur
www.nam-
skeid.net
VOR- OG SUMARLISTI frá H&M
Rowells er kominn út, segir í til-
kynningu
frá H&M
Rowells.
Listinn er
300 blaðsíð-
ur og í hon-
um mikið
úrval af föt-
um fyrir
börn og
fullorðna,
segir enn-
fremur.
Hægt er
að panta
listann símleiðis hjá H&M Rowells í
Kringlunni.
Vor- og sum-
arlisti H&M
kominn
NÝTT
VOR- OG SUMARLISTI frá Argos
er kominn og hefur verð á yfir 1.000
hlutum verið lækkað, segir í tilkynn-
ingu frá B.
Magnús-
son hf. Í
listanum
er meðal
annars að
finna garð-
vörur,
verkfæri,
húsgögn,
búsáhöld,
gjafavör-
ur, skart-
gripi, leik-
föng og fleira, segir ennfremur.
Listinn fæst hjá B. Magnússyni.
Vor- og sum-
arlisti frá
Argos