Morgunblaðið - 05.03.2002, Side 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 7
Hafið samband í síma 570 30 30
fax: 570 3001
websales@flugfelag.is
www.flugfelag.is
SKÍÐAPAKKAR Á AKUREYRI
Verðdæmi:
D A G S F E R Ð
Flug fram og til baka til Akureyrar. Dagpassi
í Hlíðarfjalli. Bílaleigubíll frá Hertz.
Verð frá 12.625 kr. á mann m.v. tvo í bíl
Flugvallarskattur og tryggingargjald, 830 kr., eru ekki innifalin í verði.
E I N N S Ó L A R H R I N G U R
Flug fram og til baka til Akureyrar. Skíðapassi
í Hlíðarfjalli. Bílaleigubíll frá Hertz og gisting
Verð frá 16.438 kr. á mann m.v. tvo í herb.
Flugvallarskattur og tryggingargjald, 830 kr., eru ekki innifalin í verði.
Tilboðin gilda til 30. apríl
Skíðaslaufur
Snjórinn freistar fyrir norðan. Spennandi skíðaferðir
til Akureyrar fyrir alla sem vilja njóta sín og sinna í
góðu skíðafæri.
Dagsferð eða flug og gisting í eina eða fleiri nætur á frábæru
verði, bílaleigubíll frá Hertz og lyftupassi í Hlíðarfjalli.
Tryggið ykkur sæti í tíma!
Munið eftir skíðaslaufunum
þegar þið fáið fiðring í bindingarnar.
Upp niður
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
1
65
74
02
/2
00
2
og
Gjafabréf með Skíðaslaufum
er tilvalin fermingargjöf.
ER FERMING Í VÆNDUM?
FJÁRVEITINGAR til jarðganga-
gerðar á árunum 1980 til 2001 námu
samtals 8.039 milljónum króna.
Þetta kemur fram í svari sam-
gönguráðherra við fyrirspurn Einars
K. Guðfinnssonar (D) um fjárveiting-
ar til jarðgangagerðar. Heild-
arfjárveitingar til vegagerðar 1980 til
2001 voru 189.596 millj. króna á áætl-
uðu meðalverði 2002 (vísitala vega-
gerðar 6.740) og var hlutfall fjárveit-
inga til jarðganga 4,2%.
Frá 1981 til 1992 var kostnaður við
jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla samtals
1.975 millj., 148 millj. við Strákagöng
1991 og 1992, 5.535 millj. við Vest-
fjarðagöng 1989 til 2000 og annar
kostnaður við jarðgöng 1991 til 2001
281 millj. kr.
Tölur fyrir 1980 til 2000 eru sam-
kvæmt skýrslum samgönguráðherra
um framkvæmd vegáætlunar en tölur
fyrir 2001 eru samkvæmt vegáætlun
fyrir árin 2000 til 2004 og fjárlögum
varðandi frestun framkvæmda.
Um átta
milljarðar til
jarðganga
síðan 1980
NÝ SAMÞYKKT fyrir Samtök sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
(SSH) var samþykkt á framhaldsað-
alfundi samtakanna á föstudag. Í
samþykktinni segir m.a. að í stjórn
samtakanna verði framvegis fram-
kvæmdastjórar sveitarfélaganna átta
sem aðild eiga að samtökunum, en til
þessa hafa 11 kjörnir sveitarstjórn-
armenn, mismargir frá hverju sveit-
arfélagi, setið í stjórn. „Nú er tilgreint
að framkvæmdastjórar sveitarfélag-
anna sitji í stjórn, hvort sem þeir kall-
ast oddvitar, bæjarstjórar eða borg-
arstjórar,“ segir Guðmundur Malm-
quist, framkvæmdastjóri SSH.
Hver sveitarstjórn tilnefnir vara-
mann úr röðum kjörinna sveitar-
stjórnarmanna aðildarfélaga SSH.
Formaður félagsins var kosinn á
fundinum Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði. Þá eru önnur
nýmæli í samþykktinni þau að full-
trúaráð skal skipað á aðalfundi til árs
í senn þar sem hver sveitarstjórn til-
nefnir tvo fulltrúa frá hverju sveitar-
félagi og fundar fulltrúaráðið tvisvar
á ári. Í samþykktinni segir einnig að
stjórn SSH skuli skipa svæðisskipu-
lagsráð til árs í senn. Þá er í sam-
þykktinni að stjórn SSH skipi sam-
starfsráð til sama tíma, en ekki er
búið að ganga endanlega frá sam-
þykkt um ráðið. Samstarfsráðið skal
samkvæmt tillögum skipað fulltrúum
aðildarsveitarfélaganna, samtökum
launafólks, ríkisstofunum, félagasam-
tökum eða menntastofnunum.
Stjórn SSH verður framvegis skipuð framkvæmdastjórum sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu.
Ný samþykkt Samtaka
sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu
Breytt
skipan á
stjórn
KONA hefur verið dæmd í 100.000
króna sekt og svipt ökuréttindum í
tvö ár fyrir að aka undir áhrifum
áfengis í haust á Selfossi og aftan á
bifreið. Í blóði hennar reyndist
alkóhólmagn vera rúm 3,1 prómill.
Konan játaði brot sitt. Ók hún
aftan á bifreið sem hún fylgdi eftir.
Blóðsýni var tekið úr konunni og
samkvæmt niðurstöðu alkóhólrann-
sóknar mældist alkóhól í blóði yfir
3,1 prómill. Með sátt í október sl.,
eða daginn eftir brotið sem hún var
dæmd fyrir nú, samþykkti hún að
greiða 70.000 krónur í sekt og sæta
sviptingu ökuréttar í átta mánuði
fyrir annað umferðarlagabrot.
Sáttin felld úr gildi
Sú sátt var felld úr gildi í nóv-
ember sl. og var hún með dómi
Héraðsdóms Reykjaness í desem-
ber dæmd til að greiða 130.000
krónur í sekt og til að sæta svipt-
ingu ökuréttar í tvö ár frá í október
sl. fyrir umrætt brot, sem framið
var í september sl.
Borgi konan ekki sektina, sem
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
henni í dag, innan fjögurra vikna
þarf hún að sæta tuttugu daga
fangelsi. Hún var einnig dæmd til
að borga allan sakarkostnað.
Var með 3,1 prómill
af vínanda í blóðinu