Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða á Alþingi í gær en í frumvarpinu er m.a. lagt til að lagt verði á 9,5% veiðigjald á handhafa aflaheimilda. „Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að lagt verði á magn- og afkomutengt veiðigjald,“ sagði ráð- herra. „Með því móti næst fram hvort tveggja í senn tenging við af- komu og magn veiðiheimilda hverju sinni. Er hér um að ræða útfærslu á hugmyndum nefndar um endurskoð- un laga um stjórn fiskveiða. Er gjaldið fundið út með því að draga helstu kostnaðarliði útgerðarinnar, olíu-, launa- og annan rekstrarkostn- að ákveðins tímabils frá aflaverð- mæti sama tímabils. Gerir frumvarp- ið ráð fyrir að 9,6% þeirrar fjárhæðar sem eftir stendur, reiknuð í krónum á þorskígildiskílógrömm, verði lögð á þorskígildiskílógrömm komandi fiskveiðiárs. Til þess að fyr- irtæki geti lagað rekstur sinn að breytingum er lagt til að veiðigjaldið verði tekið upp í áföngum á árunum 2004 til 2000,“ sagði ráðherra í fram- söguræðu sinni. Ráðherra ítrekaði að yrði frum- varpið að lögum hefði það auknar álögur á sjávarútveginn í för með sér. Að lokum sagði ráðherra: „Hér hef ég fylgt úr hlaði frumvarpi mínu sem m.a. felur í sér að leggja skuli veiðigjald á sjávarútveginn sem er í samræmi við þingsályktun þá sem Alþingi samþykkti og kvað á um að innheimta skyldi hóflegt veiðigjald. Síðan hefur verið fjallað um það í auðlinda- og endurskoðunarnefnd- um. Ég gat þess í upphafi ræðu minnar að þingsályktunin um auð- lindagjald hefði verið samþykkt hér á Alþingi mótatkvæðalaust. En auð- vitað vitum við að ýmsir voru á móti gjaldtöku af þessu tagi og það eru því einmitt þeir sem mest hafa gefið eftir í því skyni að skapa sátt um stjórnun veiða á Íslandsmiðum.“ Ekki tekið á því sem skiptir máli Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf mál sitt á því að velta því upp hvort frumvarp ráð- herra svaraði kallinu um að koma á „réttlæti í sjávarútvegi“, eins og hann orðaði það. Síðan sagði hann: „Svar mitt við því er alveg klárt nei. Það er ekki verið að taka á neinu af því sem skiptir mestu máli í þessu deilumáli, þ.e. það er ekki verið að koma á jafnræði til að nýta auðlind hafsins. Um það hefur deilan staðið frá upphafi, þ.e. að fólki eða þeim sem vilja taka þátt í þessum atvinnu- rekstri er mismunað til að taka þátt í honum.“ Síðan sagði hann: „Þessi niðurstaða mun leiða til þess að kerf- ið lokast enn frekar, einfaldlega vegna þess að þeir sem fyrir eru í kerfinu fá veiðiheimildirnar áfram á silfurfati; þurfa ekki að kaupa veiði- heimildir af öðrum, þeir eru í ennþá betri stöðu í samkeppni við hina, sem þurfa að kaupa veiðiheimildir af þeim sem fyrir eru og borga nýtt gjald ofan á.“ Kristinn H. Gunnarsson, formað- ur þingflokks framsóknarmanna, sagði m.a. að ekki væri hægt að segja að frumvarpið væri íþyngjandi fyrir útgerðina. „Breytingarnar á því að taka upp veiðigjald frá því sem við höfum verið með eru ekki mjög mikl- ar,“ sagði hann. Síðar sagðist hann ekki gera ráð fyrir því að tillögur þær sem fram kæmu í frumvarpinu yrðu varanlegar. „Ég tel þær ekki líklegar til að lægja öldurnar um kerfið. Það eru aðrir sem eru ann- arrar skoðunar og trúa því að þetta geti orðið viðunandi niðurstaða. Tím- inn verður að leiða í ljós hver hefur rétt fyrir sér í þeim efnum.“ Auðlindagjaldið skálkaskjól Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist hafa leitað logandi ljósi í frumvarpinu að einhverri breytingu sem teldist geta verið bitastæð en ekkert fundið. „Auðlindagjald á að vera skálka- skjólið, á að sýna breytinguna, ein- hverja nýja byltingu í þessum mál- um. En allt annað í kerfinu á að vera óbreytt,“ sagði hann. Síðar sagði hann að ekkert frumvarp eins og þetta hefði verið lagt fram nema með fullu samþykki, vitund og vilja Landssambands íslenskra útvegs- manna. „Samt eru menn að tala um sættir þegar svo virðist sem allir séu eiginlega á móti þessu,“ sagði hann. Bætti hann því við að aðeins einn hópur mann fylgdi þeim hugmynd- um sem fram kæmu í frumvarpinu af alúð en það væri þingflokkur Sjálf- stæðsflokksins. „Alveg frá upphafi var enginn sáttahugur í mönnum. Þetta var kosningabrella sem for- maður Sjálfstæðisflokksins fann upp,“ sagði hann. „Auðlindanefndin, – innan hennar var haldið á floti þessari aðferð sem menn komust frá upphafi að niðurstöðu um; óbreyttu kerfi. Skeytt við auðlindagjaldi sem allir vissu að yrði aðeins til mála- mynda.“ Árni Steinar Jóhannsson, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði m.a. að það yrði að koma skýrt fram að frum- varpið breytti í engu fiskveiðistjórn- unarkerfinu. „Það frekar stuðlar að því að framkalla frekari ágalla þess kerfis sem við höfum búið við og er- um svo óánægð með; frekari sam- þjöppun í útgerðinni, færri og stærri fyrirtæki, gríðarlegan byggðavanda og möguleika manna á því að fara með verulegar fjárhæðir út úr grein- inni. Og þetta eru hlutir sem við get- um og þjóðin engan veginn sætt okk- ur við.“ Umræður um frumvarpið stóðu fram eftir kvöldi í gær. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu frumvarp sjávarútvegsráðherra á þingi í gær Segja veiðigjaldið að- eins til málamynda Stjórnarandstæðingar á Alþingi sögðu í gær enga sátt felast í frumvarpi sjávarút- vegsráðherra um 9,5% veiðigjald. Árni M. Mathiesen mælti fyrir frumvarpinu og sagði að með því væri verið að leggja aukn- ar álögur á sjávarútveginn. Morgunblaðið/Golli Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra mælti fyrir frumvarpinu. HEGNINGARHÚSIÐ við Skóla- vörðustíg verður lokað frá 18. maí til 9. september í sumar og hluti fang- elsisins á Litla-Hrauni verður sömu- leiðis lokaður frá 1. maí fram í miðj- an september vegna fjárskorts hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. Um 35 milljónir króna vantar upp á til að hægt verði að komast hjá lokunum í sumar og hafa lokanirnar það í för með sér að dómþolar verða að bíða fram til sumars eða hausts eftir boð- un í afplánun. Í heildina þarf að fækka plássum úr 138 í 100, 22 á Litla-Hrauni og 16 í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg. Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir þær 617 milljónir króna sem stofnun fær til reksturs á þessu ári, ekki duga til að halda öllum fangaplássum opnum og því þurfi að grípa til umræddra ráðstafana. „Ég tel að til þess að halda Hegn- ingarhúsinu opnu í sumarleyfi þurfi 15 milljónir og 20 milljónir til við- bótar vegna deildarinnar á Litla- Hrauni,“ segir Þorsteinn. Um er að ræða svokallað Hús 3 á Litla- Hrauni, sem tekið var í notkun árið 1971. Reynt að gæta fyllsta réttaröryggis Þorsteinn segir að þrátt fyrir þetta ástand verði reynt að gæta fyllsta réttaröryggis aðspurður hvort allir sakamenn verði látnir bíða eftir boðun í afplánun án tillits til eðlis brota þeirra. „Þeir sem eru væntanlega dæmdir fyrir alvarleg brot eða ítrekuð brot verða látnir ganga fyrir,“ segir hann og bendir aðspurður á að dómþolar í mann- drápsmálum sæti alla jafna gæslu- varðhaldi þar til dómur fellur og því fari ekki svo að dæmdir morðingjar muni ganga lausir á meðan þeir bíða boðunar í afplánun. Þorsteinn segir að rekja megi hluta rekstrarerfiðleika Fangelsis- málastofnunar til þess að illa hafi gengið að afla sértekna, sem eru um 10% af fjárveitingum til stofnunar- innar. „Stærstur hluti sérteknanna er fyrir framleiðslu á bílnúmeraplöt- um og samdráttur í bílainnflutningi hefur þar af leiðandi bein áhrif á að við getum staðið við þær forsendur fjárlaga að afla þessara tekna.“ Er til skoðunar Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra sagði á Alþingi í gær að hún hefði rætt sérstaklega við fjár- málaráðherra, Geir H. Haarde, um fjárhagsvanda Fangelsismálastofn- unar. „Það er ljóst að fjárhagsstaða fangelsanna er afar slæm,“ sagði hún og bætti við: „En verið er að vinna í þessu máli.“ Stjórnarand- stæðingar tóku málið upp í upphafi þingfundar í gær og kváðust margir þeirra hafa áhyggjur af stöðu fang- elsanna vegna fjárhagsvanda Fang- elsismálastofnunar. Þá minntust þeir á 50% hækkun almennra núm- eraplatna sem framleiddar væru á Litla-Hrauni. Sagðist Lúðvík Berg- vinsson, þingmaður Samfylkingar- innar, telja þá hækkun sérstaka í ljósi þess að Davíð Oddsson for- sætisráðherra hefði „gengið á milli manna,“ eins og hann orðaði það „í þeim erindagjörðum að tryggja að verðhækkanir verði haldið í lág- marki.“ Dómsmálaráðherra greindi frá því að gripið hefði verið til þess ráðs að auka tekjur fangelsanna með því að hækka verð á almennum númera- plötum í samræmi við kröfur fjár- laga um sértekjur fangelsanna. Sagði hún að skv. upplýsingum frá Hagstofunni hefðu þær hækkanir hverfandi áhrif á vísitölútreikninga. Bætti hún því þó við að hækkun númeraplatnanna nægði ekki til þess að tryggja að ekki þyrfti að grípa til lokunar fangelsa að hluta til í sumar til að mæta rekstrarvanda stofnun- arinnar. Að lokum kvaðst ráðherra vera sammála þingmönnum um það að ástand Fangelsismálastofnunar væri ekki nógu gott. „Ég vil svo sannar- lega að við fáum úrbætur í þessu máli.“ Ekki unnt að boða dómþola í afplánun fyrr en síðar á árinu Grípa þarf til lokana í fang- elsum vegna fjárskorts REYKJAVÍKURLISTINN mælist með 56,9% fylgi þeirra sem afstöðu taka í nýrri fylgiskönnun DV um stuðning framboðslista fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor en Sjálf- stæðisflokkurinn mælist með 39,5% stuðning þeirra sem afstöðu taka. Skv. þessari niðurstöðu fengi R-list- inn níu borgarfulltrúa en D-listinn sex ef kosið yrði nú. 3,6% þeirra sem afstöðu tóku sögðust mundu kjósa önnur framboð. Ríflega tveir af hverjum tíu hafa enn ekki gert upp hug sinn skv. könnuninni, sem gerð var sl. laug- ardag og sunnudag. 82,3% aðspurðra tóku afstöðu í könnuninni samanbor- ið við 79,5% í könnun sem DV gerði í janúar. Ef litið er til alls úrtaksins er niðurstaða könnunarinnar sú að 32,5% sögðust mundu styðja D- listann, 46,8% R-listann, 2,2% Frjálslynda flokkinn, 0,2% úthverfa- lista og 0,7% aðra lista. 12% voru óákveðnir og 5,7% neituðu að svara. Mun fleir konur sögðust ætla að kjósa R-listann en Sjálfstæðisflokk- inn. Úrtakið í könnuninni var 600 manns í Reykjavík. Fylgiskönnun DV R-listi mælist með 56,9% fylgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.