Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ virðingu. Megi svipleg brottför þín vera okkur öllum alvarleg áminning um að aðgát skal höfð í nærveru sál- ar. Við biðjum algóðan Guð um að blessa Helgu og Helga, foreldra, systkini og aðra aðstandendur. Þórir Kristinsson, Baldvin Kristinsson. Elsku Kiddi. Þann dag sem ég sá þig fyrst var á bókasafninu í MS. Ég busi og þú á öðru ári. Ég man nátttúrulega hvernig drengurinn var til fara. Með slegna rokkarahárið, í vinnufata- skyrtu og gulrótarbuxunum frægu. Ég hugsaði, aha, þessi er örugglega á mínu plani! Af hverju? Ég sagði þér aldrei frá kaupum mínum á sjö stykkjum gulrótar Levis í Ameríku. Ég var svona meira að spá í liti en snið. Lét ekki sjá mig í þeim, því þær voru ekki „in“. Það var slatta gert grín að gulrótarskálmunum þínum. Þú sagðir: ,,Fötin skapa ekki mann- inn, heldur halda á honum hita.“ Mik- ið rétt. Þú fylgdir mikið eftir þinni sannfæringu. Áttir til að vera reikull en samt hnitmiðaður og afskaplega duglegur og gefandi. Þúsund þjala smiðurinn í öllu sínu veldi. Þér gekk vel í skólanum og varst líka á kafi í margskonar félagslífi. Ég einmitt kynntist þér í leiklistinni. Þú meira og minna sást um alla sviðs- myndina. Já og þú hannaðir líka og bólstraðir heilan bar, mér fannst svekkjandi hvað sást lítið í hann á leiksýningunni. Það var alltaf gaman í partí með þér. Þú varst meira og minna hrókur alls fagnaðar. Trúba- dor af lífi og sál. Oft hættir þú ekki fyrr en allir strengir voru slitnir, röddin orðin skræk eða partíið ein- faldlega búið. Taktu munnhörpulag- ið, taktu munnhörpulagið sárbændi ég oft, … when everybody knows what is going on, and I don’t even know what to do, with myseeelf …; ég heyri þig syngja og þetta lag fannst mér þú syngja extra vel. Ég var líka svo stolt, já, þetta er hann Kiddi og hann er þessi hæfileikaríki og hann er vinur minn. Við vinirnir áttum margar virkilega góðar stund- ir með þér. En þess væri óskandi að þær hefðu verið fleiri á okkar fullorð- insárum. Minningin mín af þér var, er og mun ávallt vera ljúf. Ég skal reyna allt sem ég get til að hjálpa Helgu og honum Helga þín- um, hann er svo mikill gimsteinn með ótrúlega kímnigáfu og þroskaður einstaklingur. Ég geri mér grein fyrir að þér leið verulega illa. Þú lifðir fyrir fjölskyldu þína. En eitthvað brást. Þú sagði kjarkinn bregðast. Ég skil en samt skil ég bara ekki. Við erum svo ringl- uð hérna niðri. Við getum ekki snúið tímanum heldur unnið með honum til að sætta okkur við að þú sért farinn. Sá dagur mun koma að við hitt- umst aftur og þá tökum við lagið Gro- und control to Major Tom og fleiri góð lög, já, það yrði ljúft. Elsku Kiddi, ég kveð þig með söknuði. Megir þú hvíla í friði og megi góður guð vera með þér. Helgu, Helga og aðstandendum sendi ég innilegustu samúðarkveðj- ur. Þín vinkona, Katrín. Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Laugardagskvöldið 23. febrúar síðastliðinn fengum við þær sorgar- fréttir, að Kristján hennar Helgu væri farinn frá okkur. Þessar fréttir voru okkur mikið áfall, því þó svo hann væri maki vinkonu okkar, þá var hann líka vinur okkar. Kristján var þeim hæfileikum gæddur að þeg- ar við hittum hann fyrst kom hann fram við okkur eins og gamla góða vini. „Munnhörpulagið“ er það fyrsta sem kemur upp í huga okkar allra þegar við hugsum til hans. Það er því erfitt að ímynda sér að við eigum ekki eftir að sjá hann spila og syngja eins og honum einum var lagið. Í kringum hann var alltaf gleði og kát- ína líkt og í þau skipti er hann spilaði í kennó, þá hreif hann alla með sér. Elsku Kristján við viljum kveðja þig með þessu ljóði. Minningin um góðan dreng lifir í hjarta okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Helga, Helgi og aðrir að- standendur. Megi góður Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Ykkar vinir Matthildur (Matta), Davíð, Halldóra (Dóra) og Rannveig (Rannsa). Kristján Sigvaldason hefur nú kvatt þennan heim fyrir aldur fram. Leiðir okkar Kidda lágu saman í fyrsta bekk Menntaskólans við Sund og sátum við svo saman í tímum öll fjögur árin þó að ekki værum við allt- af saman í bekk. Kiddi var stakt ljúfmenni og vann hug og hjarta okkar allra. Hann var rólyndur maður og hófsamur en vakti strax athygli sem stuðbolti. Hann reyndist vera liðtækur gítar- leikari í bekkjarpartýum og spilaði þar jafnt íslenska og franska slagara en hann hafði alltaf áhuga á frönsku og franskri menningu. Seinna meir komu aðrir hæfileikar Kidda í ljós. Hann var með eindæm- um laghentur og smíðaði og hannaði leikmyndir fyrir ýmsar uppákomur nemenda í skólanum. Þar kom í ljós að hann bjó yfir frumlegri hugsun og hönnunarhæfileikum sem vöktu mikla athygli innan skólans. Sérstak- lega vakti athygli fljúgandi diskur sem var uppistaða leikmyndar í söngvakeppni skólans eitt árið og hefur sviðsmyndin líklega aldrei ver- ið glæsilegri. Þá smíðaði hann inn- anstokksmuni fyrir aðstöðu nem- enda. Og síðast en ekki síst tók hann upp á því að sauma sér föt sem gleymast seint, m.a. köflóttan ullar- hjálm. Kiddi var ákveðinn maður, ekki síst þegar kom að sköpun og hönnun, en var ávallt reiðubúinn til að ræða málin. Hann hafði sínar eigin hug- myndir og hikaði ekki við að leita á móti straumi. Það var alltaf gott að leita til hans og hann tók öllum hug- myndum og skoðunum með opnum huga. Síðast en ekki síst var hann maður umtalsgóður. Síðast hitti ég Kidda á endurfund- um árgangsins sem útskrifaðist 1996 sem haldnir voru nú í janúar. Þar var hann glaður og reifur og við áttum skemmtilegar samræður. Það er með sorg í hjarta sem við skólafélagar Kidda úr Menntaskólanum við Sund kveðjum þennan góða dreng. Við minnumst hans með þakklæti og gleði. Katrín Jakobsdóttir. Þetta getur ekki verið satt. Það var það eina sem ég hugsaði þegar ég heyrði þessi sorglegu tíðindi. Þessa óumflýjanlegu staðreynd er erfitt að sætta sig við. Við kynntumst Helgu og Kristjáni eftir að við Helga byrj- uðum í Kennaraháskólanum. Kristján var maður sem öllum lík- aði vel við, annað eins gæðablóð fyr- irfinnst varla hér í þessum heimi. Hann var eins og ferskur andblær sem kætti og gladdi alla með nær- veru sinni og var hreinlega tilbúinn til að gera allt fyrir alla. Það var ekk- ert eins skemmtilegt og að fá þau í heimsókn og honum fylgdi alltaf þessi mikla væntumþykja og hlýja í garð annarra. Hann spilaði alltaf á gítarinn sinn í öllum barnaafmælum hjá okkur og það vakti alltaf jafn- mikla kátínu. Ég tala nú ekki um síð- astliðið sumar þegar hann skemmti í afmælinu mínu. Ég man að í vinkon- uhópnum mínum var deilt um það daginn eftir hvort það hefði verið hljómsveit eða ekki! Neibb, „bara“ Kristján með gítarinn sinn og munn- hörpuna. Hann spilaði líka nokkrum sinnum í Kennó og þar hefur sjaldan verið eins mikil stemning og þegar hann var þar. Hann var alveg ynd- islegur og Helga talaði mjög oft um það hvað hann væri góður, bæði sem unnusti hennar og í pabbahlutverk- inu. Helgi litli var algjör pabbastrák- ur og er það ekkert skrýtið því hann var alveg einstakur faðir. Elsku Kristján, við erum svo inni- lega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þér og er minning þín ljós í lífi okkar, við kveðjum þig með söknuð í hjarta. Megi góður Guð varðveita þig. Helga mín, elsku besta vinkona, og Helgi vinur okkar, hugur okkar er hjá ykkur, fullur af hlýju og vænt- umþykju. Guð gefi ykkur styrk í söknuði ykkar og sorg. Við viljum einnig votta ykkar yndislegu fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Hugga þú faðir, fjölskyldu hans sem finnur ei ró í hjarta. Blessaðu sál hins unga manns og láttu ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, Faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei þér skal ég gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni, svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Ykkar vinir, Guðrún Jóna, Þórður, Íris Lilja og Valgeir Ingi. Hann Kiddi er dáinn, síðustu dag- ar hafa verið eins og vondur draumur og ég get ekki vaknað. Ég finn svo mikið til, þetta er ólýsanlegur sökn- uður. Það var alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur, hann gat gert allt, hvort sem það var að smíða, sauma eða baka, hver man ekki eftir súkku- laðikökunni góðu. Kiddi var afskaplega góður faðir. Ég man til dæmis eftir þegar fyrsti snjórinn kom þá fór Kiddi út með Helga og Heiðberg að hlaða snjóhús, það fannst þeim frændum alveg toppurinn. Það var sama hvað maður bað Kidda um, hann var alltaf boðinn og búinn ef hann gat hjálpað til. Það var ekki svo sjaldan sem hann spilaði í partýjum hjá mér og Smára og nú síðast í brúðkaupinu okkar. Það verður erfitt að sætta sig við það að þú sért farinn úr þessum heimi, kannski til mömmu. Elsku Helga og Helgi, megi góður guð styrkja ykkur, við styðjum hvert annað á þessum erfiðu tímum. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Guðmunda og Smári. Elsku Kiddi. Okkur þótti svo vænt um þig, þú varst alltaf svo góður við okkur og það var svo gaman þegar þú spilaðir og söngst með okkur, Sér- staklega var gaman að syngja You are my sunshine. Elsku Helga og Helgi, við elskum ykkur. Við biðjum góðan Guð um að passa Kidda og vaka yfir ykkur. Jóhanna og Helga. KRISTJÁN SIGVALDASON  Fleiri minningargreinar um Kristján Sigvaldason bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.Dalshraun 13 S. 555 4477  555 4424 Erfisdrykkjur                                                          "   #$$      !" #  ! $%#    $      & '& ( $     ) *  *    + ,$- . !"  /)0    %#   &$(1   2"3  / /0  / / /0 4 % &  '(                  ') 2+%-* + 5  6  7 +6   7)(          *      +   ,$$ &    *   24**   + # &   /  *   2 *   &/)0 $&  &  *   &()8  9 .*   *   !  *   :) $ *   / /0  7 4 % &                   ') 15!2!& +!!5 )8 ( 8# ;< . .        - .    /       0  1   (  # :  (41    + /)0%  &( 1    2"1 . !  =1    %  & !41    , #)8 (!>8  - 0. 1     7 !4 7    4  %-!!5 .7"4.(+ 2" 0?< + 7            )      0  /2            1"  $(4 % &                2@%- : -!+2@%- :!!5 .7"4") (#"  !  7          )     #  1   (   '/)  /  &(  % $+ . 27) .127) . + $+  &. !  27) . /)A 27) .  '  ./0 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.