Morgunblaðið - 05.03.2002, Page 14
AKUREYRI
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKÍÐAFERÐ Páls Sævars Sveins-
sonar til Akureyrar endaði heldur
illa sl. sunnudag en hann fótbrotnaði
eftir að hafa farið fram af hengju í
Hlíðarfjalli og lent mjög harkalega.
Páll Sævar var fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert
var að sárum hans. Hann gerir at-
hugasemdir við að ekki skuli vera
merkingar á þessu svæði, þar sem
varað sé við hættunni.
Páll Sævar kom til Akureyrar
ásamt þremur félögum sínum úr
Reykjavík og voru þeir allir á snjó-
brettum. „Ég var að renna mér
vinstra megin við nýju stólalyftuna
og að beygja í átt að henni, þegar ég
var allt í einu kominn á flug og lenti á
klaka með fyrrgreindum afleiðing-
um. Ég var ekki á mikilli ferð en fall-
ið var 4–5 metrar og bindingin á
brettinu brotnaði við höggið. Ökkl-
inn á mér brotnaði illa og mér er sagt
að ég komi til með að eiga í þessu í
sex vikur,“ sagði Páll Sævar, sem
hefur fengið lögfræðing til að kanna
réttarstöðu sína.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli,
sagði að aðstæður í fjallinu hefðu
verið mjög erfiðar á sunnudag og
skyggni lítið sem ekkert. Hann sagði
að það væri alltaf spurning um hvaða
svæði ætti að merkja sérstaklega og
hversu mikið en þó væri alltaf hægt
að gera betur í þeim efnum.
Fólk verður að meta aðstæður
og haga sér eftir því
„Fólk er að renna sér út og suður
en það verður að meta aðstæður og
haga sér eftir því. Fólk er á skíðum á
eigin ábyrgð og gerir sér grein fyrir
hættunum á skíðasvæðunum. En
það er mjög erfitt fyrir okkur að
passa upp á alla sem hingað koma.
Ég var sjálfur á skíðum í gær
(sunnudag) og skyggnið var það
slæmt að það var ekki annað að gera
en að halda sig á troðnum brautum í
námunda við lyftustaurana,“ sagði
Guðmundur Karl.
Páll Sævar sagði að eftir atvikið
hefðu menn komið þarna að, sett upp
merkingar og varað fólk við. „Svörin
sem ég fékk voru nokkuð skrýtin,
eins og að Akureyringar vissu af
þessari hættu. Það er bara ekki nóg,
erlendis þar sem ég hef verið sér
maður aldrei svona lagað og þar eru
hættuleg svæði girt af.“
Telur merkingum
áfátt í fjallinu
Morgunblaðið/Kristján
Páll Sævar Sveinsson í sjúkra-
rúmi á FSA í gær.
Snjóbrettamaður fór fram af hengju í Hlíðarfjalli
NEMENDUR í Húsabakkaskóla
í Svarfaðardal notuðu drjúgan
tíma nú nýlega í leikbrúðugerð.
Þeim til leiðsagnar og aðstoðar
var brúðu-leikhúsmaðurinn
Bernd Ogrodnie. Um 30 börn í
5.–8. bekk, bjuggu til persónur
úr Pétri og úlfinum. Þau gerð-
ur einnig leikmynd og allt ann-
að sem tilheyrir og settu upp
sýningu á verkinu. Sýningin
tókst einkar vel og þótti hreint
ótrúlegt hve allt gekk hnökra-
laust hjá börnunum sem hjálp-
uðust að við að stjórna brúð-
unum.
Það gerist nú æ oftar að los-
að er um stundaskrá í skólum.
Nemendur takast þá á við ým-
is verkefni sem eru á öðru
sviði en hið vanabundna en
eru þroskandi og skemmtileg.
Leikmynd úr Pétri og úlfinum sem börnin bjuggu til.
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi
Nemendur í Húsabakkaskóla, ásamt leiðbeinandanum Bernd Ogrodnie,
með brúðurnar.
Leikbrúðugerð í Húsabakkaskóla
Börnin sýndu
Pétur og úlfinn
NORÐURORKA og sveitarstjórn
Arnarneshrepps eru að hefja sam-
starf um hitaveituframkvæmdir við
Hjalteyri. Undanfarin tvö ár hafa
verið boraðar 18 grunnar rann-
sóknarholur í hreppnum, 50–450
metra djúpar. Að sögn Franz Árna-
sonar, forstjóra Norðurorku, bend-
ir árangur þeirra borana mjög ein-
dregið til þess að þar sé að finna
jarðhitakerfi með yfir 80 gráðu
heitu vatni.
Franz sagði að fyrsta skrefið í
framhaldinu væri að gera samning
við landeigendur umrædds svæðis
og afla nauðsynlegra leyfa. „Næsta
skref er svo að ráðast í borun á
1.000–2.000 metra djúpri rannsókn-
ar- og/eða vinnsluholu. Þá gerir
áætlunin ráð fyrir að lögð verði
hitaveita á Hjalteyri, jafnvel á
þessu ári. Ef niðurstaðan verður
mjög góð er stefnt að því að leggja
lögn inn til Akureyrar, hugsanlega
á næsta ári. Samfara því yrði þá
lögð hitaveita á bæi í hreppnum.“
Franz sagði að vonast væri til að
Orkustofnun skilaði skýrslu vegna
áðurnefndra rannsókna í lok þessa
mánaðar. Verði skýrslan jákvæð
verður ráðist í framkvæmdir í kjöl-
farið. „Niðurstaða Orkustofnunar
gæti líka þýtt að bora þurfi fleiri
rannsóknarholur og þá tefst málið.“
25 milljónir króna verði
lagðar í verkefnið
Alls hafa verið lagðar um 25
milljónir króna í framkvæmdir á
þessum tveimur árum en Arnarnes-
hreppur hefur fengið styrki til
verkefnisins. Svæðið sem um ræðir
nær frá Arnarnesvík og inn á Hjalt-
eyri. Jóhannes Hermannsson, odd-
viti Arnarneshrepps, sagði að mikl-
ar vonir væru bundnar við
verkefnið og hann vonast til að
hægt verði að leggja hitaveitu á
hvert heimili í hreppnum áður en
langt um líður en þau eru 50–60
talsins.
„Við förum í samstarf við Norð-
urorku með þetta verkefni og ef
fyrirtækið verður gert að hluta-
félagi höfum við fullan hug á að
koma að því,“ sagði Jóhannes.
Norðurorka og Arnarneshreppur
Samstarf um hita-
veituframkvæmd-
ir við Hjalteyri
SÓKNARNEFND Lögmannshlíð-
arsóknar hefur harðlega mótmælt
deiliskipulagstillögu vegna breyt-
inga á skipulagi við Lindasíðu, en
þar er fyrirhugað að byggja íbúðir.
Bendir sóknarnefndin á að sam-
kvæmt fyrri hugmyndum um skipu-
lag á þessu svæði hafi ávallt verið
haft í huga að Glerárkirkja nyti sín
sem best og að innan ákveðins geira
við ásstefnu kirkjunnar yrði sýn til
hennar óheft og tekið yrði mið af
stöðu hennar í bæjarmyndinni.
„Sóknarnefndin telur að skipulag-
stillagan sé gerð eftir pöntun tiltek-
ins verktaka sem þegar hafi verið út-
hlutað svæðinu og unnin af arkitekt
á hans vegum,“ segir í mótmælabréfi
sóknarnefndar vegna deiliskipulags-
ins. Þar segir og að í tillögu verktak-
ans teygi tveggja hæða íbúðarbygg-
ingar anga sína langt inn á það svæði
sem samkvæmt fyrri hugmyndum
hafi verið litið á sem „verndarsvæði“.
Hljóðmön við Hlíðarbraut teygi sig í
ofanálag lengra til vesturs en fyrir-
hugað var.
Auglýsing til málamynda
Sóknarnefndin telur að eðlilegra
hefði verið að hafa einnar hæðar hús
á byggingareitunum og mörk íbúða-
svæðins væru fjær kirkjunni og þá
er því mótmælt að ekki hafi verið
haft samband við talsmenn kirkjunn-
ar en skipulagið unnið algerlega út
frá forsendum verktaka. „Allt bendi
til þess að auglýsing skipulagstillög-
unnar hafi einungis verið til mála-
mynda, en ekki til að gæta raunveru-
legra hagsmuna þeirra, sem næstir
séu svæðinu,“ segir í bréfi nefndar-
innar og þá er harmað að óskir kirkj-
unnar og boð um að talsmenn hennar
kæmu á fund umhverfisráðs hafi
ekki verið virt viðlits.
Deiliskipulag við Lindasíðu
Sóknarnefnd
mótmælir harð-
lega skipulaginu SKÓLANEFND Akureyrar hefursamþykkt tillögu um hvernig sumar-
leyfum á leikskólum bæjarins verður
háttað næsta sumar. Í henni er gert
ráð fyrir að sumarlokun leikskóla
verði skipt á tvö tímabil, hið fyrra er
frá 1. júlí til 19. júlí og hið síðara frá
22. júlí til 12. ágúst.
Fimm leikskólar verða lokaðir á
fyrra tímabilinu, þ.e. Iðavöllur,
Klappir, Flúðir, Síðusel og Krógaból,
en á því síðara verða leikskólarnir
Lundarsel, Pálmholt, Kiðagil, Árholt,
Holtakot og Sunnuból lokaðir.
Skólanefnd beinir þeim tilmælum
til stjórnenda leikskólanna að finna
lausn á málum þeirra foreldra sem
lenda í miklum vanda vegna sumar-
lokunar leikskólanna, en æskilegt
þykir að hvert barn taki fjögurra
vikna samfellt sumarleyfi.
Þetta fyrirkomulag á sumarlokun
leikskóla er til reynslu. Áréttað er í
bókun skólanefndar að ákvörðun í
þessu máli hefur dregist og því var
horfið frá fyrri ákvörðun um að for-
eldrar fengju að kjósa um á hvaða
tímabili leikskóli þeirra myndi loka.
Skólanefnd hefur samþykkt að
fram fari endurskoðun á gildandi
reglum um forgangsröðun og inntöku
barna í leikskóla og hefur skipað tvo
fulltrúa í starfshóp til að skoða málið.
Tillaga um
sumarlokun leikskóla
Lokun
skipt í tvö
tímabil
FÉLAG áhugafólks um heimspeki á
Akureyri stendur fyrir námskeiðinu
Pílagrímaleiðin til Santiago, en það
samanstendur af fjórum fyrirlestr-
um í tveimur lotum, annars vegar 11.
og 12. mars og hins vegar 18. og 19.
mars næstkomandi frá kl. 20. til
22.30. Kennari er Jón Björnsson sál-
fræðingur.
Mun hann fjalla um ferðalag sitt
um þessa fornu leið frá Roncevalles
við landamæri Frakklands til San-
tiago, en hún er um 740 kílómetra
löng og gengin á um fjörutíu dögum.
Jón fór þessa leið á síðasta ári og
vinnur nú að bók um ferðalagið.
Pílagrímar
á Akureyri
♦ ♦ ♦