Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 23 Þórunn Lár NO NAME Andlit ársins 2002 er förðuð með nýjustu vorlitunum frá NO NAME Varalitur Micro Sunberry Gloss varalitur Candlelight Skrúfvarablýantur Spice Þrískiptir augnskuggar Bistro - 213 svartur Stardust Tender Kinnalitur Mosaic Bronze MANNTJÓN Ísraela um helgina í átökunum við Palestínumenn var eitt hið mesta í manna minnum. Margir Ísraelar kenna Yasser Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, um vaxandi hörku í átökunum, gagnrýni á Ariel Sharon forsætisráðherra fer einnig vaxandi. „Það er engin önnur leið til en að binda enda á völd Ara- fats,“ sagði ráðherra í Ísraelsstjórn, Dan Naveh, á sunnudag. Leyniskytta tók sér stöðu á hæð skammt frá þorpinu Silwad og ísr- aelskri varðstöð á Vesturbakkanum á sunnudag og skaut til bana 7 ísr- aelska hermenn og þrjá óbreytta borgara á sunnudag. Fjórir að auki særðust. Alls féllu 20 Ísraelar í árásum Pal- estínumanna á laugardag og sunnu- dag en Ísraelar svöruðu fyrir sig með því að ráðast með þyrlum og orrustuþotum á stöðvar Palestínu- stjórnar og bækistöðvar herskárra samtaka sem oft eru í flóttamanna- búðum. Féllu þá fjórir Palestínu- menn. Enn héldu Ísraelar áfram árásum á flóttamannabúðir á Vest- urbakkanum í gær og féllu þá eig- inkona eins af leiðtogum Hamas- samtakanna og þrjú börn þeirra og tvö börn að auki. Gaf sér góðan tíma Varðstöðin sem leyniskyttan réðst á er í grennd við eina af landnema- byggðum gyðinga er nefnist Ofra. Skyttan miðaði vel og gaf sér góðan tíma og notaði aðeins 25 skot. Byss- an var gömul, úr síðari heimsstyrj- öld. Manninum tókst að flýja af vett- vangi og skildi vopnið eftir. Gerð var einnig árás um sama leyti á varð- stöðina Kissoufim skammt frá Gaza- ströndinni og féll þar 19 ára gamall hermaður, þrír aðrir særðust. Síðdegis á laugardag, er hvíldar- degi var að ljúka, sprengdi Palest- ínumaður sig við innganginn að Mahane Israel-skólann í Jerúsalem er bókstafstrúaðir gyðingar voru að yfirgefa húsið. Auk sprengjumanns- ins fórust níu manns, þar af sex börn og um 30 slösuðust. Palestínsk sam- tök er nefnast Herdeild píslarvott- anna sögðu að liðsmaður þeirra hefði verið að verki. Ríkisstjórn Sharons var kölluð til bráðafundar á laugardagskvöld til að ræða aðgerðir vegna mannfallsins í árásum Palestínumanna. Ísraelskar hersveitir gerðu í hefndarskyni skriðdrekaárás á bæinn Salfit á Vesturbakkanum og Ramallah, þar sem Arafat hefur verið í eins konar stofufangelsi síðan í desember. Tveir palestínskir lögreglumenn féllu í þessum árásum auk þess sem tveir tugir óbreyttra borgara særðust, þar af einn hættulega. Loks felldu Ísr- aelar tvo liðsmenn úr leyniþjónustu Palestínumanna í árás á borgina Qalqilyia. Loks gerðu ísraelskar þyrlur árás á stöð vopnaðra sveita Palestínustjórnar í Betlehem en ekki mun hafa orðið mannfall. Óþekkjanleg barnslík Meðal hinna látnu í tilræðinu í Jerúsalem á laugardag var að sögn lögreglunnar móðir og sjö mánaða gamalt barn hennar. Ársgamalt barn fórst ásamt 12 ára bróður sínum, sjö ára systir þeirra reikaði ein um hverfið í nokkrar klukkustundir áður en ættingi rakst á hana og kom henni á sjúkrahús. „Ég heyrði ægilega sprengingu, sá reyk og eld, þetta var svo ógn- vekjandi ... ég æpti á börnin mín,“ sagði Aviva Nachmani, ísraelsk kona sem hafði verið að fagna fermingu sonar síns í skólahúsinu. Hún sagðist hafa séð barnslík, svo illa brennd að þau voru óþekkjanleg. Hún leitaði í skelfingu að eigin börnum í brenn- andi húsinu, fór hæð af hæð, „ég hélt að ég myndi kannski þekkja fötin þeirra“. Síðan æddi hún um göturn- ar, grátandi af skelfingu. Svo fór að Nachmani fann börnin sín. Þau voru óhult en mágur hennar slasaðist og var í lífshættu. Blóðugasta helgi um langt skeið Jerúsalem. AP, AFP. Tíu Ísraelar féllu í tilræði sjálfsmorðingja í Jerúsalem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.