Morgunblaðið - 05.03.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 05.03.2002, Síða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 37 Minningarkort Styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l Þ ó rh 1 2 7 0 6 2 ✝ Anna SigríðurJónsdóttir fædd- ist 25. febrúar 1910 í Reykjavík. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni þriðju- daginn 19. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Ólafsson, bóndi á Þóroddsstöðum í Ölfusi og frá 1905 verkamaður í Reykjavík, f. í Neðri- Dal í Mýrdal 18. des- ember 1858, d. í Reykjavík 4. janúar 1941, og kona hans Guðrún Gísla- dóttir húsmóðir, f. á Þóroddsstöð- um 26. ágúst 1870, d. í Reykjavík 22. desember 1910. Anna átti sjö systkini: 1) Halldór, f. 11. júlí 1889, d. í febr. 1912. Hann fórst með þil- skipinu Geir frá Hafnarfirði, þá námsmaður í Stýrimannaskólan- um í Reykjavík og kominn að loka- prófi. 2) Eydís, húsmóðir í Reykja- vík, f. 24. febr. 1891, d. 12. júlí 1954. Eiginmaður hennar var Jón Tómasson skipstjóri. 3) Ástríður, húsmóðir í Reykjavík, f. 18. apríl 1893, d. 9. nóv. 1979. Eiginmaður hennar var Sigurður Kjartansson kaupmaður. 4) Skúli, f. 8. júlí 1895. Hann fór 7 ára gamall til Kanada með fósturforeldrum sínum og dó Hannesdóttir húsmóðir og eignuð- ust þau fjögur börn, Gunnar, f. 1953, Guðmund Árna, f. 1958, Nínu Karen, f. 1961, og dóttur sem dó aðeins tveggja vikna gömul. Þau eiga þrjú barnabörn. b) Guð- leif, húsmóðir í Reykjavík, f. 18. sept. 1936. Hún var gift Axel Aspelund verslunarmanni, en þau skildu. Dætur þeirra eru þrjár, Anna, f. 1955, Edda, f. 1957 og Auður, f. 1963. Þau eiga þau átta barnabörn. Sambýlismaður Guð- leifar er Jón Andrés Jónsson byggingarverktaki. c) Anna Lilja, húsmóðir í Reykjavík, f. 3. ágúst 1945. Maður hennar var Agnar Kristjánsson, forstjóri Kassagerð- ar Reykjavíkur, en hann lést 1988. Sonur þeirra er Agnar Gunnar, f. 1972. Sambýlismaður Önnu Lilju er Þórhallur Dan Johansen fram- kvæmdastjóri. d) Björn tækni- fræðingur í Reykjavík, f. 29. jan. 1950. Kona hans er Dagmar Þóra Bergmann skrifstofustjóri og eru dætur þeirra Sigríður Lovísa, f. 1973, og Þóra Björg, f. 1977. Anna var með föður sínum og systkinum til 8 ára aldurs, en þá fór hún í fóstur austur að Brekku í Lóni til Sigrúnar Sigurðardóttur og Davíðs Sveinssonar, en þær Anna og Sigrún voru systkinadæt- ur. Anna fluttist aftur til Reykja- víkur haustið 1928 og vann þar ýmis störf þangað til hún giftist vorið 1934. Eftir það helgaði hún sig húsmóðurstörfum alla tíð. Útför Önnu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. þar um 1911. 5) Ólína Marta, húsmóðir í Laufási við Eyjafjörð og síðar í Reykjavík, f. 1. mars 1898, d. 19. febr. 1991. Eiginmað- ur hennar var Þor- varður G. Þormar sóknarprestur. 6) Guðjón, verkamaður í Reykjavík, f. 2 okt. 1900, d. 23. okt. 1961. 7) Helga, húsmóðir í Reykjavík, f. 25. febr. 1910, d. 3. janúar 2002, tvíburasystir Önnu. Eiginmaður hennar var Gunnar Rocksén, ræð- ismaður Svíþjóðar í Reykjavík. Anna giftist 26. maí 1934, Gunn- ari Jónassyni, flugvélvirkja og for- stjóra Stálhúsgagna í Reykjavík frá stofnun 1933, f. á Eyrarbakka 13. sept. 1907. Foreldrar hans voru Jónas Einarsson, útvegs- bóndi og bátsformaður í Garðs- húsum á Eyrarbakka, f. í Stokks- eyrarsókn 18. jan. 1867, drukknaði 5. maí 1927, og kona hans Guðleif Gunnarsdóttir, f. í Kraga í Oddasókn á Rangárvöll- um 27. júní 1873, d. 6. jan. 1953. Börn Önnu og Gunnars eru a) Jón, framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 7. febr. 1935. Kona hans er Nína Soffía Ekki er liðinn nema rúmur mán- uður síðan við kvöddum Helgu frænku og nú er Anna frænka líka dáin. Enginn sem sá Önnu við jarð- arför systur hennar bjóst við því að svo stutt yrði á milli þeirra tvíbura- systranna, sem fæddust fyrir ná- kvæmlega 92 árum, en enginn veit hvenær kallið kemur. Anna hafði að vísu verið lasburða nokkuð lengi og dvaldist að mestu á Landakoti síð- asta árið, en í janúarbyrjun fluttust þau Gunnar saman á nýja hjúkrunar- heimilið Sóltún. Það stóð einnig til að Helga systir hennar flyttist þangað á sama tíma og að þær systurnar gætu búið í nágrenni hvor við aðra síðustu æviárin. Svo varð þó ekki því Helga lést aðeins nokkrum dögum áður en hjúkrunarheimilið var tekið í notkun. Anna og Helga voru í flestu mjög ólíkar og ekki voru þær alltaf sam- mála. Þær höfðu þó alltaf mjög náið samband og báru líðan hvor annarr- ar mjög fyrir brjósti. Þær voru líkar að því leyti að báðar voru þær mikið fyrir að klæðast fallegum fötum og að hafa fallega og vandaða hluti í kringum sig. Faðir þeirra hafði líka lagt metnað sinn í að klæða litlu dæt- urnar sínar vel og smekklega eins og sést á myndum frá þeim tíma, þegar þær voru báðar heima hjá honum. Tvíburasysturnar Anna og Helga fæddust á Njálsgötu 33 B hér í Reykjavík. Hingað fluttust foreldrar þeirra, Jón og Guðrún, af Vatns- leysuströndinni árið 1905 með fimm eldri börnin sín og Eydísi, móður Guðrúnar. Eydís og Guðrún dóu báð- ar sama árið og systurnar fæddust, en Jón hélt þó heimilinu saman næstu árin með hjálp elstu dætra sinna, Eydísar sem þá var 19 ára og Ástríðar 17 ára. Tveimur árum síðar varð aftur mikil sorg í fjölskyldunni, þegar elsti sonurinn, Halldór, fórst í sjóslysi í febrúar 1912, en við hann höfðu verið bundnar miklar vonir. Systkinin fóru svo að heiman hvert af öðru, fyrst Ólína og Guðjón, en síðan Eydís sem giftist 1916 og Ástríður sem giftist 1917. Þá sá faðir þeirra sér ekki lengur fært að hafa báðar yngstu dæturnar hjá sér og fór með Önnu, þá 8 ára gamla, landleiðina austur að Brekku í Lóni til fósturs hjá Sigrúnu Sigurðardóttur, systur- dóttur sinni, og Davíð Sveinssyni bónda þar. Fór Helga líka með í þá ferð, en hún fór aftur til Reykjavíkur með föður sínum. Hjá þessum góðu hjónum ólst Anna upp í góðu yfirlæti ásamt fóstursystkinum sínum þeim Sighvati og Halldóru, en hún og Hall- dóra voru næstum upp á dag jafn- gamlar. Kallaði Anna þau Sigrúnu og Davíð á Brekku ávallt pabba og mömmu, enda hafði hún aldrei kynnst móður sinni. Á Brekku var hún síðan næstu 10 árin, en þá fór hún til Reykjavíkur og vann hér ýmis störf næstu árin. Það var mikill hamingjudagur í lífi Önnu þegar hún kynntist eftirlifandi manni sínum, Gunnari Jónassyni, sem hún giftist vorið 1934. Segja má að Gunnar hafi borið hana á höndum sér og dáð hana alla tíð síðan. Gunnar hafði lokið mótoristaprófi á Eyrar- bakka og lært járnsmíði í Reykjavík, en gafst tækifæri til að fara til Þýska- lands árið 1928 ásamt tveimur öðrum til að læra flugvirkjun hjá Lufthansa í Berlín. Voru þeir fyrstir Íslendinga til að læra flugvirkjun og voru á með- al frumherjanna á sviði flugmála á Íslandi. Gunnar stofnaði síðan fyrir- tækið Stálhúsgögn árið 1933 ásamt félaga sínum Birni Olsen. Björn lést árið 1942 og eftir það rak Gunnar fyrirtækið einn. Ég minnist Önnu frænku eins lengi og ég man eftir mér á bernsku- og unglingsárum mínum í Laufási. Mér er sérstaklega minnisstætt sumarið 1939, þegar Anna og Gunnar komu í sumarfrí norður með tvö elstu börnin sín, Nonna og Gullu. Flugvél- ar voru þá notaðar í síldarleit á sumr- in og sáum við þær oft á leið út og inn Eyjafjörðinn. Gunnar var þá þekktur maður í fluginu og enn tengdur flug- málum og litu ungir sveitadrengir mjög upp til hans. Þegar þau fóru frá Laufási í þetta skipti kom flugvél á leið úr síldarleit og sóttu þau. Hún lenti á sjónum við eyrina og mér var boðið að sitja í til Akureyrar. Flugið tók aðeins um 10 mínútur en heim- ferðin með trillubát tók nokkra klukkutíma. Var þetta mín fyrsta flugferð. Jón sonur þeirra var í Lauf- ási í mörg sumur og komu Anna og Gunnar oft í heimsókn á þeim árum. Þegar fjölskyldan í Laufási kom til Reykjavíkur var skipst á að gista hjá móðursystrunum og var þá oft gist hjá Önnu og Gunnari. Þau hjónin voru einstaklega samrýnd og góð heim að sækja. Eftir að Anna giftist vann hún ekki utan heimilisins heldur helgaði því alla starfskrafta sína. Nutu börnin þess í uppvextinum að hafa móður sína heima og Gunnar hinnar ástríku og umhyggjusömu eiginkonu og hús- móður. Þannig liðu árin, börnin uxu úr grasi og fóru að heiman eins og gengur. Gunnar og Anna byggðu sér árið 1973 fallegt einbýlishús í Langa- gerði 9 og þar bjuggu þau alla tíð síð- an, eða þangað til þau fluttust á hjúkrunarheimilið Sóltún í byrjun þessa árs. Þar lést hún 19. febrúar sl. Það er einkennileg tilviljun að dán- ardag hennar skyldi bera upp á sama mánaðardag og dánardag systur hennar og móður minnar fyrir 11 ár- um. Fallegur smekkur, bjartsýni og gleði var einkennandi í fari Önnu. Þótt margvíslegt herjaði á líkamann með aldrinum, eins og gigt og hjarta- sjúkdómur, gerði hún ekki mikið úr því þótt hún fyndi til við hverja hreyfingu. Það var ótrúlegt hve vel hún bar sig fram til hinstu stundar. Hún var alla tíð mikil „dama“. Ég vil að lokum þakka elskulegri móðursystur minni fyrir allar þær góðu stundir sem ég hefi átt með henni og sendi Gunnari, börnum þeirra og öllum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Blessuð sé minning Önnu frænku. Guttormur Þormar. Móðursystur mínar tvær, hinar yngstu og síðustu af fimm systrum, hverfa héðan úr heimi með fárra vikna bili, Helga snemma í janúar og Anna um miðjan febrúar. Báðar sáu þær fyrst dagsins ljós á sama dægri í febrúar 1910, og var því aldurinn orð- inn hár, en svo er forsjóninni fyrir að þakka að þær héldu fullum sönsum og fótavist fram undir það síðasta. Margar góðar og skemmtilegar stundir átti ég með frænkum mínum um dagana. Ég minnist þess t.d. með mikilli gleði, þegar ég fór 9–10 ára telpa með Önnur á strandferðaskipi austur á Höfn í Hornafirði, til þess að dvelja þar sumartíma hjá henni á Brekku í Lónssveit, en þá hafði hún verið þar nokkur ár í fóstri hjá Sig- rúnu föðursystur sinni og fjölskyldu hennar. Eftir að Jón Ólafsson afi minn missti konu sína frá tvíburasystrun- um Önnu og Helgu á fyrsta ári, leit- aðist hann við að ala þær upp með hjálp elztu dætra sinna, Eydísar og Ástríðar, sem þá voru að nálgast tví- tugt. Hélst sú tilhögun til 6–7 ára ald- urs systranna, en Anna fór til skyld- fólksins á Brekku. Eftir ánægjulega sumardvöl mína þar á bæ, hændist ég mjög að Önnu, enda lét hún sér alla tíð mjög annt um minn hag. Hið sama mátti segja um eiginmann hennar, Gunnar Jón- asson. Leitun mun vera að jafn sam- lyndum hjónum. Gunnar var einna fyrstur til að nema flugvélavirkjun hér á landi, og hann stofnaði líka fyr- irtækið Stálhúsgögn, sem nú er orðið 60–70 ára gamalt og hefur alla tíð verið í fararbroddi á sínu sviði. Ég réðst í vinnu til hans, er hann opnaði verzlun við Laugaveg og naut um fáein ár vinsemdar hans sem hús- bónda og kom oft á heimili þeirra Önnu frænku, fyrirmyndarheimili við Skúlagötu og Langagerði. Þegar ég bjó í Kaliforníu áratugum saman, kom ég næstum árlega heim að sum- arlagi og var þá ævinlega mitt fyrsta verk að hringja til Önnu frænku og leita frétta hjá henni um skyldfólkið. Eitt sumarið spurði ég hana, hvort hún væri ekki til í að koma með mér vestur á Kyrrahafsströnd og dvelja hjá mér um tíma. Hún svaraði að bragði játandi, og þetta varð úr. Eftir mánaðardvöl hjá mér komu Gunnar og önnur dóttir þeirra vestur, til þess að sækja hana, og sneru þau þrjú aft- ur heim eftir nokkra daga. Vænt þótti mér um að geta þannig launað Önnu lítillega fyrir sumardvölina á Brekku í Lóni, forðum daga. Og nú er hún horfin. Og nú vill svo til að ég er að hverfa af landi brott á útfarardegi hennar. Ég bið eigin- manni hennar og börnum þeira fjór- um, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum nákomnum Guðs blessunar og anda hennar sjálfrar bjartra eilífð- ardaga. Guðrún A. Jónsdóttir. Anna frænka er dáin, síðust af stórum systkinahópi móður minnar, og aðeins rúmum mánuði á eftir Helgu tvíburasystur sinni. Þannig streymir elfur tímans fram endalaust og rífur með sér eina kynslóð af ann- arri. Frá barnsaldri hef ég talið Önnu og Gunnar til minnar nánustu fjöl- skyldu. Þau komu nokkrum sinnum í heimsókn til okkar norður í land á sumrin og báru með sér andblæ höf- uðstaðarins, glæsileg ung hjón sem ljómi stóð um í mínum huga. Gunnar var á meðal frumherja í flugmálum á Íslandi, hafði lokið námi í flugvirkjun í Berlín einna fyrstur Íslendinga, þúsundþjalasmiður sem allt lék í höndunum á. Hann hafði stofnað fyr- irtækið Stálhúsgögn sem var að hasla sér völl í húsgagnaframleiðslu og var á hraðri uppleið. Anna tók þátt í öllu hans starfi og stóð þétt við hlið hans í blíðu og stríðu. Hún var hin fullkomna húsmóðir, þar sem myndarskapurinn, smekkvísin og rausnin voru aðalsmerkin. Ég á Önnu og Gunnari margt að þakka frá unglingsárum mínum þeg- ar ég var tíður gestur á heimili þeirra um lengri eða skemmri tíma og seinna þegar ég var á ferðalögum til og frá útlöndum með viðkomu í Reykjavík. Síðar, eftir að ég og fjöl- skylda mín fluttumst til Bandaríkj- anna, vorum við svo lánsöm að fá þau nokkrum sinnum í heimsókn og þá styrktust enn frekar þau nánu bönd sem tengdu okkar saman. Þrátt fyrir móðurmissinn á unga aldri held ég að Anna hafi verið mikil gæfumanneskja. Hún ólst að nokkru leyti upp hjá skyldfólki sínu, góðu myndarfólki, og fékk þar vafalaust gott veganesti fyrir lífið. En ég hefði ekki viljað standa í sporum afa míns sem varð að láta hana frá sér svo unga í fjarlægan landshluta. Mesta gæfa hennar var eiginmaðurinn Gunnar og svo börnin sem þau eign- uðust og fjöldskyldur þeirra. Hvílík gæfa það er að eiga svo góða að kom best í ljós seinustu árin í langvinnum veikindum hennar. En svo uppsker hver eins og hann sáir og enn er í gildi að góðir foreldrar ala oftast af sér góð börn. Anna var falleg kona og fegurð hennar minnkaði ekki með aldrinum. Í seinasta sinn sem ég sá hana, fyrir rúmum mánuði, var hún enn jafnfalleg og glæsilega búin, enn sönn hefðarkona. Það sem mér fannst einkenna hana framar öðru var glaðlyndið og léttleikinn í fari hennar. Hún var alltaf hress í tali og gaman og fróðlegt að ræða við hana. Málrómur hennar var alltaf einstak- lega unglegur þannig að hljómur hans var sem hjá ungri stúlku en ekki aldurhniginni konu. Af góðum minningum um Önnu, sem spanna áratugi, standa nokkrar upp úr. Ein sú síðasta er þegar hún á níræðisafmæli sínu stóð upp með mikilli reisn, bauð gesti sína vel- komna og skálaði við þá. Engan skyldi gruna hversu sárþjáð hún var, enda var hún alltaf óvenjulega hörð af sér og lifði lífinu til hins ítrasta á meðan hún gat. Nú þegar komið er að kveðjustund viljum við Lilja og fjölskylda okkar þakka Önnu frænku fyrir langa og góða samfylgd og við vottum Gunn- ari og fjölskyldu hans allri innilega samúð. Halldór Þormar. ANNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Okkur langar til að minnast Ernu, kærrar vinkonu í gegnum ár- in. Hún er búin að berjast hetjulega við illvígan sjúkdóm, en hefur nú orðið að láta í minni pok- ann. Samskipti við þau hjónin Ernu og Söebech hafa verið ánægjuleg í gegnum tíðina. Minnumst við heim- sókna til þeirra í sumarbústaðinn í Eyrarskógi, þar sem tekið var á móti manni með kostum og kynjum, heimsókna hvers til annars, bæði þegar eitthvað var um að vera svo sem fermingar og afmæli og þar fyrir utan, enda eru þeir frændur ERNA HELGA MATTHÍASDÓTTIR ✝ Erna HelgaMatthíasdóttir fæddist á Patreks- firði 27. júní 1930. Hún lést 22. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 1. mars. tengdir órjúfanlegum böndum frá blautu barnsbeini. Erna var mikil fjöl- skyldumanneskja, eig- inmaður, börn og fjöl- skyldur þeirra voru miðpunktur lífs henn- ar, enda var hópurinn hennar stór og mann- vænlegur. Nú er skarð fyrir skildi þegar Erna er horfin frá ykkur. Elsku Söebech, við sendum þér og fjöl- skyldu þinni innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorginni. Við kveðj- um Ernu með söknuð í huga. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (G.Ö.) Ólöf Erla og Hjalti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.