Morgunblaðið - 05.03.2002, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞESSA dagana eru loðnuveiðar í
algleymingi og í gær var loðnuafl-
inn komin í 570 þúsund tonn á vetr-
arvertíðinni. Þegar haldið er til
veiða er að ýmsu að hyggja og
mörg handtökin sem þarf til að skip
komist frá bryggju með mannskap
og veiðarfæri. Þessir einbeittu
menn voru í gær önnum kafnir við
að huga að loðnunót á hafnarbakk-
anum við Grindavíkurhöfn, enda
mikilvægt að allt fari rétta leið með
fumlausum handbrögðum. Mok-
veiði var á loðnumiðunum út af Sel-
vogi í fyrrinótt og gærmorgun en
ekkert var hægt að vera við veið-
arnar um helgina vegna brælu.
Morgunblaðið/RAX
Hugað að
nótinni á
hafnar-
bakkanum
STJÓRN Lífeyrissjóðs sjómanna
hefur ákveðið að vísa máli sjóðsins
gegn íslenska ríkinu til Mannrétt-
indanefndar Evrópu. Hæstiréttur
sýknaði íslenska ríkið af öllum kröf-
um sjóðsins fyrir áramótin en hann
hafði krafið ríkið um greiðslu vegna
kostnaðar við lækkun á ellilífeyris-
aldri sjómanna. Í niðurstöðum
Hæstaréttar segir að lagabreytingin
sem Alþingi samþykkti hafi ekki leitt
til þess að fjármunir hafi verið teknir
af Lífeyrissjóði sjómanna heldur hafi
greiðslur úr honum aukist til ákveð-
inna sjóðfélaga á kostnað heildarinn-
ar.
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs sjómanna, segir
að menn sætti sig ekki við niðurstöðu
Hæstaréttar. Þetta mál hafi nú staðið
í tvo áratugi en menn hafi allan tím-
ann staðið í þeirri trú að ríkið mynda
bæta sjóðnum þetta upp.
Eini lífeyrissjóðurinn
sem lögin tóku til
Árni segir að með lagabreytingu af
hálfu ríkisins árið 1981 hafi ellilífeyr-
isaldur sjómanna verið lækkaður úr
65 árum í 60. Reglan hafi hins vegar
verið afnumin árið 1994 þannig að
málið snúist um tímabilið 1981 til
1994 þegar sjóðurinn hafi greitt
meira út án þess að fá nokkuð á móti.
„Ég þekki engin dæmi þess að aðrir
lífeyrissjóðir hafi lent í svipuðum
málum, ég held að þetta mál sé alveg
fordæmalaust, þ.e. að Alþingi breyti
lögum eins lífeyrissjóðs og leggi á
hann auknar álögur án þess að gera
ráð fyrir auknum tekjum. Með því
var einfaldlega verið að leggja álögur
á aðra sjóðfélaga sem ekki nutu þess
að fá þennan lífeyri. Okkur finnst nið-
urstaðan með ólíkindum.“
Árni segist telja að ríkið megi ekki
breyta reglum sjóðsins og þar með
réttindum sumra sjóðfélaga án þess
að nokkrar tekjur komi á móti og
grundvellinum undir rekstrinum sé
kippt burtu.
Skjóta málinu til mann-
réttindanefndar Evrópu
Lífeyrissjóður sjómanna í mál gegn ríkinu
GENGIÐ var frá ráðningu nýs
slökkviliðsstjóra Brunavarna Vestur-
byggðar í gærkvöldi í kjölfar skyndi-
brunaæfingar Brunamálastofnunar
ríkisins, sem leiddi í ljós að bruna-
varnir á staðnum voru í algjörum
ólestri. Að sögn Guðmundar Bergs-
sonar, deildarstjóra tæknideildar hjá
Brunamálastofnun, var settur á svið
eldsvoði í lögreglustöðinni í samvinnu
við lögregluna á staðnum og kannað
hver viðbrögðin yrðu, en þau urðu á
þann veg að enginn slökkviliðsmaður
kom á vettvang þrátt fyrir útkall.
Starfsmenn Brunamálastofnunar
reykfylltu bílageymslu lögreglunnar
með sérstökum búnaði og leið ekki á
löngu uns vegfarandi varð reyksins
var og hringdi í Neyðarlínu. Starfs-
menn Neyðarlínu brugðust við eins
og um raunverulegt útkall væri að
ræða og kölluðu út fimm menn sem
skráðir eru í slökkviliðið á staðnum.
Boðin voru send út með SMS-skila-
boðum og er staðfest að þau voru
móttekin í símana fimm. „Við vitum
að fimm menn fengu boðin í farsíma
sína en enginn mætti,“ sagði Guð-
mundur Bergsson við Morgunblaðið.
Á Patreksfirði hefur ekki verið
slökkviliðsstjóri frá áramótum og tel-
ur Brunamálastofnun það ótækt og
hugðist leggja fram kæru til viðkom-
andi ráðuneytis vegna aðgerðaleysis
bæjarstjórnar í þessum málum. Guð-
mundur sagði að fallið hefði verið frá
áformum um að kæra um leið og
fréttist að forseti bæjarstjórnar hefði
gengið frá ráðningu nýs slökkviliðs-
stjóra.
„Auðvitað eiga þessir hlutir að vera
í lagi, hér eins og annars staðar,“
sagði Jón B.G. Jónsson, forseti bæj-
arstjórnar. Atburðir dagsins komu
honum í opna skjöldu, enda sagðist
hann hafa staðið í þeirri trú að bæj-
arstjórinn hefði gengið frá ráðningu
slökkviliðsstjóra eftir samþykkt bæj-
arstjórnar þar að lútandi.
Fáeinum klukkustundum eftir
brunaæfinguna var gengið frá ráðn-
ingu slökkviliðsstjórans og hefur Sig-
urður Pétur Guðmundsson verið ráð-
inn til starfans.
Brunavarnir á Patreksfirði í ólestri að mati Brunamálastofnunar
Enginn mætti í brunaút-
kall á lögreglustöðinni
Þegar í stað gengið frá
ráðningu nýs slökkviliðsstjóra
KRISTINN Hallgrímsson, lögmað-
ur Olíufélagsins hf., segir ljóst að
mál Samkeppnisstofnunar gegn fé-
laginu fyrir meint samráð við hin
olíufélögin varði óverulega pen-
ingalega hagsmuni félagsins. Sam-
keppnisstofnun ætlar í dag að
svara erindi Olíufélagsins um sam-
starf við að upplýsa meint brot fé-
lagsins á samkeppnislögum.
Heimildir til sekta vegna brota á
samkeppnislögum eru mjög háar
samkvæmt reglum innan Evrópu-
sambandsins og geta numið 10% af
veltu fyrirtækja sem fundin eru
sek um brot á samkeppnislöggjöf-
inni. Sambærilegar reglur eru í
gildi hér á landi. Kristinn sagði
hins vegar að það flækti málið að á
árinu 2000 hefðu verið sett ný og
hert ákvæði við brotum á sam-
keppnislögum og í þeim tilvikum,
þar sem Olíufélagið gæti hafa gerst
brotlegt gagnvart samkeppnislög-
um, gæti skipt máli frá hvaða tíma-
bili meintar ávirðingar væru, þ.e.
hvort þær væru frá því fyrir árið
2000 eða eftir þann tíma. Sektar-
ákvæðin fyrir árið 2000 miðuðust
við ávinning félagsins af ólöglegri
starfsemi, þótt sektarramminn
væri sá sami, og það væri ljóst að
þær meintu ávirðingar sem málið
snerist um vörðuðu óverulega pen-
ingalega hagsmuni fyrirtækisins.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að ekki hafi verið
tekin afstaða til þess innan fyr-
irtækisins hvernig brugðist verður
við yfirlýsingu Olíufélagsins varð-
andi samstarf við Samkeppnis-
stofnun um að upplýsa meint brot
félagsins á samkeppnislöggjöfinni.
Félagið sé hins vegar að vega það
og meta hvernig málið standi. Ein-
ar Benediktsson, forstjóri Olíu-
verslunar Íslands, segir að félagið
sé að sjálfsögðu fúst til að veita all-
ar upplýsingar sem Samkeppnis-
stofnun kunni að biðja um og eiga
við hana samstarf um að upplýsa
þau mál sem hún telji þörf á.
Lögmaður Olíufélags-
ins um meint brot á
samkeppnislögum
Varðar ekki
mikla pen-
ingalega
hagsmuni
Olíufélagið/31
VERÐ á fiski hefur að meðaltali
hækkað um 7–26% milli ára, sam-
kvæmt verðkönnun Samkeppnis-
stofnunar í 28 fisk- og matvörubúð-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Sambærileg könnun fór fram fyrir
einu ári. Þess má geta að vísitala
neysluverðs hefur hækkað um 8,9%
á þessu tímabili og liðurinn matvörur
um 13,3%.
Mismunur á hæsta og lægsta verði
er allnokkur samkvæmt könnuninni,
eða allt að 97% á heilli smálúðu þar
sem hæsta verð var 1.279 krónur og
lægsta verð 650 krónur. Minnstur
munur á hæsta og lægsta verði var
36% og í fjórum tilvikum er verð-
munur yfir 80%. Verðmunurinn er
40–60% í níu tilvikum en könnunin
náði til 22 tegunda af fiski og fisk-
afurðum.
97% verð-
munur milli
fiskbúða
26% verðhækkun/19