Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÁ dæmi eru þess í ís-
lenskri réttarsögu að
kveðnir hafi verið upp
dómar vegna brota á
ákvæðum almennra
hegningarlaga um mút-
ur og mútuþægni, skv.
upplýsingum Róberts
Ragnars Spanó, að-
júnkts við lagadeild Há-
skóla Íslands. Í tilkynn-
ingu efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglu-
stjóra um lok rann-
sóknar á máli Árna
Johnsen og fleiri aðila,
kemur fram að meðal
ætlaðra brota eru tilvik
sem talin eru geta varðað við 109. og
128. grein almennra hegningarlaga
nr. 19 frá 1940 um mútur.
Fjórir refsidómar í
Hæstarétti um mútur
,,Það hefur ekki oft reynt á þetta
ákvæði eftir gildistöku hegningarlag-
anna frá 1940,“ segir Róbert en hon-
um er þó kunnugt um
fjóra refsidóma, sem
fallið hafa í Hæstarétti
þar sem dæmt var á
grundvelli 128. gr.
hegningarlaganna. Í
greininni segir að opin-
ber starfsmaður sem
heimtar, tekur við eða
lætur lofa sér eða öðr-
um ávinningi, sem hann
á ekki tilkall til, í sam-
bandi við framkvæmd
starfa síns, skuli sæta
fangelsi allt að 6 árum,
eða sektum, ef máls-
bætur eru. 109. grein
kveður hins vegar á um
refsiábyrgð manns sem afhendir op-
inberum starfsmanni mútur eða ein-
hvers konar fjármuni til að fá hann til
að gera eitthvað eða láta ógert, sem
tengist opinberum skyldum hans.
Elsti Hæstaréttardómurinn er frá
árinu 1944 en skv. honum var starfs-
maður í þjónustu Reykjavíkurborg-
ar, sem annaðist úthlutun skömmt-
unarseðla, fundinn sekur um að
draga sér seðla og selja þá gegn fé-
gjaldi.
Mútuþægni
tollvarða
Í öðrum dómi Hæstaréttar frá
1952 var starfsmaður, sem hafði á
hendi gæslu og stjórn Framkvæmda-
sjóðs Ríkisútvarpsins, fundinn sekur
um að hafa tekið sér lántökugjald,
sem hann átti ekki tilkall til, og var
hann dæmdur til sektargreiðslu.
Að sögn Róberts féll einnig dómur
í Hæstarétti árið 1986 er varðaði
mútuþægni tollvarða og árið 1994
hlaut fyrrverandi sýslumaður á
Siglufirði dóm í Hæstarétti, m.a. á
grundvelli 128. greinar, fyrir að
draga sér þóknun fyrir uppboðsað-
gerðir.
Dómurinn byggðist á að fleiri
refsiákvæði laga hefðu verið brotin
en maðurinn var dæmdur í skilorðs-
bundið varðhald og til að greiða fé-
sekt.
Að sögn Róberts eru umrædd
lagaákvæði hegningarlaganna efnis-
lega sambærileg við ákvæði í dönsku
hegningarlögunum um mútur. ,,Þau
hafa staðist tímans tönn og eru til-
tölulega vel úr garði gerð,“ segir
hann.
Varasamt að draga almennar
ályktanir um refsingar
Hann tók þó fram að dómafor-
dæmin þar sem reynt hefur á laga-
ákvæði um mútur væru fá og sumir
umræddra dóma frá gamalli tíð. Því
væri mjög erfitt að draga einhverjar
almennar ályktanir út frá þeim um
hugsanlega refisidóma ef svo færi að
mál Árna Johnsen sætti ákæru og
dómi. ,,Það fer líka að miklu leyti eft-
ir eðli og umfangi þeirra fjárhæða
sem um er að ræða, sem ekki hafa
komið í ljós ennþá,“ sagði hann.
Ekki víst að öll tilvikin verði
rakin til Árna Johnsen
Í tilkynningu efnahagsbrotadeild-
ar kemur fram að brot þau sem rík-
issaksóknara eru gerð grein fyrir eru
talin geta varðað ýmis fleiri ákvæði
hegningarlaga, m.a. um fjársvik og
fjárdrátt, auk annarra laga. Róbert
Ragnar bendir á að ekki sé hægt að
draga neinar ályktanir af þeim upp-
lýsingum sem komið hafa fram um
hugsanlegar lyktir þessara mála.
,,Það verður einnig að hafa í huga að
þrátt fyrir að talað sé um 32 tilvik
[meintrar regsiverðrar háttsemi], þá
hafa 12 einstaklingar fengið réttar-
stöðu sakaðra manna, að meðtöldum
Árna Johnsen, og það verður ekki
séð af þessari lýsingu hvað mörg
þessara tilvika verða rakin til Árna
Johnsen sjálfs,“ sagði hann.
Róbert Ragnar Spanó, aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands
Fáir dómar hafa fall-
ið um mútuþægni
Róbert R. Spanó
SKELJUNGUR hf. hefur að svo
stöddu ekki tekið ákvörðun um hvort
beðið verður um fund með Sam-
keppnisstofnun, að sögn Kristins
Björnssonar, forstjóra Skeljungs.
„Mér finnst vanta á að Samkeppn-
isstofnun upplýsi það fyrir okkur
hvaða mál það eru sem þeir eru sér-
staklega að rannsaka. Það hefur
bara ekkert komið fram,“ sagði
Kristinn í samtali við Morgunblaðið,
en á þriðjudag komu fram skilyrði
Samkeppnisstofnunar vegna erindis
Olíufélagsins hf. um samstarf við
stofnunina til að upplýsa meint brot
félagsins á samkeppnislögum.
Kristinn sagði að sér fyndist mjög
furðulegt að það mætti fylgjast með
þessum samskiptum Samkeppnis-
stofnunar við hin olíufélögin á síðum
dagblaðanna. Þar mætti lesa sér til
um hver væru þau skilyrði sem fé-
lögin þyrftu enn að uppfylla. Engin
afstaða lægi fyrir hjá félaginu í þeim
efnum og það teldi enn að það væri
forgangsmál að fá niðurstöðu í það
mál sem liggur fyrir til úrlausnar hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur varðandi
framgöngu Samkeppnisstofnunar
hvað snertir haldlagningu gagna hjá
olíufélögunum. Kristinn bætti því við
að félagið væri að sjálfsögðu
reiðubúið, eins og hann hefði áður
sagt, að aðstoða og svara fyrirspurn-
um Samkeppnisstofnunar eftir bestu
samvisku.
Fundur á næstunni
Ekki hefur verið ákveðinn fundur
með Olíuverslun Íslands og Sam-
keppnisstofnun en félagið hefur ósk-
að eftir fundi með stofnuninni. Búist
er við að fundað verði með félaginu á
næstunni, samkvæmt upplýsingum
Samkeppnisstofnunar.
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs
Vantar á að Samkeppn-
isstofnun upplýsi okkur
KARLMAÐUR var fluttur á Heilsu-
gæsluna á Ólafsvík á þriðjudag eft-
ir að bifreið var ekið á hann við Bú-
landshöfða á vestanverðum Snæ-
fellsnesvegi. Hann fékk að fara
heim að lokinni læknisskoðun. Til-
drögin voru þau að maðurinn hafði
fest bifreið sína á veginum og fékk
aðstoð ökumanns annarrar bifreið-
ar til að losa sig. Á meðan mað-
urinn athafnaði sig kom bifreið út
úr snjókófi og lenti á manninum og
bifreiðunum tveimur. Talsverðar
skemmdir urðu á ökutækjunum en
öll voru þau þó ökufær á eftir.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Varð fyrir
bíl á Snæ-
fellsnesvegi
ÁTTA dómarar í Hæstarétti hafa
sagt sig frá dómsmáli sem flutt var í
réttinum í gær, en þeir bera fyrir sig
vanhæfi.
Málið snýst um meint brot Jóns
Steinars Gunnlaugssonar hæstarétt-
arlögmanns gegn friðhelgi stúlku
sem kærði föður sinn fyrir kynferð-
islega misnotkun, en maðurinn var í
Hæstarétti sýknaður af ásökunum
stúlkunnar.
Eftir að Hæstiréttur sýknaði
manninn af ásökunum um kynferð-
islega misnotkun urðu miklar um-
ræður um dóminn. Jón Steinar, sem
var lögmaður mannsins, tók þátt í
umræðum um málið haustið 1999.
Hann flutti m.a. útvarpserindi um
það. Í framhaldi af því höfðaði stúlk-
an mál gegn lögmanninum, en hún
taldi að hann hefði brotið gegn frið-
helgi hennar með ummælum sem
hann lét falla um málið.
Stefnda óheimilt að skýra frá
öðru en dómsendurritum
Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að þeirri niðurstöðu að Jón Steinar
hefði brotið gegn friðhelgi stúlkunn-
ar. Var Jóni Steinari gert að greiða
henni 100 þúsund krónur, auk 400
þúsund króna í málskostnað. Í nið-
urstöðu dómsins sagði: „Stefnda,
Jóni Steinari, var því í umfjöllun
sinni óheimilt að skýra frá öðru sem
fram kom undir rekstri málsins en
því sem fram kemur í dómsendurrit-
um.“
Jón Steinar áfrýjaði þessum dómi
til Hæstaréttar.
Þurfa ekki að gefa upp
ástæðu fyrir vanhæfi
Aðeins einn af dómurum Hæsta-
réttar dæmir í málinu, en hinir átta
úrskurðuðu sig vanhæfa til að fjalla
um málið. Málið dæma því Markús
Sigurbjörnsson hæstaréttardómari,
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður,
Helgi I. Jónsson héraðsdómari, Jón-
atan Þórmundsson prófessor og
Ingveldur Einarsdóttir dómstjóri.
Sigrún Guðmundsdóttir, skrif-
stofustjóri Hæstaréttar, sagði að
átta dómarar í Hæstarétti hefðu sagt
sig frá málinu. Hún sagði að þeir
þyrftu ekki að gefa upp ástæðu fyrir
vænhæfi.
Þess má geta að fjórir þeirra dóm-
ara sem sögðu sig frá málinu dæmdu
í máli mannsins sem sakaður var um
kynferðisbrot gegn dóttur sinni þeg-
ar það kom fyrir Hæstarétt árið
1999. Þrír af fimm dómurum, sem
dæmdu í málinu, töldu að sýkna ætti
manninn.
Hæstiréttur fjallar um meint
brot lögmanns gegn friðhelgi
Átta dómarar
úrskurðuðu sig
vanhæfa
RÍKISSJÓÐUR keypti í gær hluta-
bréf í Símanum á tilboðsmarkaði
VÞÍ fyrir ríflega 471 milljón króna.
Fjárfestum í hlutafjárútboði Símans
sl. haust var á þriðjudag boðið að
selja ríkissjóði bréf sín enda hefur
einkavæðingu félagsins verið slegið
á frest. Viðskiptin í gær voru 44 tals-
ins og fóru fram á úboðsgenginu
5,75. Það verð stendur til boða fram
að aðalfundi Símans á mánudag en
lækkar þá væntanlega í 5,63 vegna
arðgreiðslna til hluthafa.
Ríkið kaupir
hlutabréf
í Símanum