Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ FJÁRMÁLARÁÐHERRA og land- búnaðarráðherra, fyrir hönd ríkis- sjóðs, hafa endurnýjað samning við Bændasamtök Íslands um verkefni samkvæmt búnaðarlögum frá 1998 og framlög ríkisins til þeirra á árunum 2003 til 2007. Samningurinn var und- irritaður á Búnaðarþingi á Hótel Sögu í gær. Framlög ríkisins á tíma- bilinu nema alls rúmum 2,8 milljörð- um króna, eða á bilinu 555 til 570 milljónir ár hvert. Landbúnaðarráðu- neytið mun hafa eftirlit með fram- kvæmd samningsins en Bændasam- tökin annast ráðstöfun fjármunanna. Samkvæmt búnaðarlögum á land- búnaðarráðherra að gera samning við Bændasamtökin til fimm ára í senn um verkefni samkvæmt lögunum og framlög til þeirra. Samninginn þarf að endurskoða og framlengja annað hvert ár. Fyrst var gerður samningur sem þessi árið 1999. Framlögin eiga að renna til verkefna á sviði leiðbein- ingarstarfsemi, búfjárræktar, þróun- arverkefna og jarðabóta á lögbýlum og til Framleiðnisjóðs landbúnaðar- ins, annars vegar vegna atvinnuupp- byggingar í sveitum og hins vegar vegna sölu- og markaðsstarfs á ís- lenskum landbúnaðarafurðum. Framlög ríkisins miðast einkum við stuðning við þróunarverkefni og önn- ur verkefni sem talin eru „stuðla að framförum í íslenskri búvörufram- leiðslu og aukinni hagkvæmni í bú- rekstri með það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni landbúnað- ar og efla hag bænda“, líkt og segir í tilkynningu frá landbúnaðarráðu- neytinu. Meðal annars á að leggja áherslu á aukna afurðasemi, innlenda fóðuröflun og fóðurnýtingu, betra starfsumhverfi bænda, verndun um- hverfisins, bætta nýtingu landgæða, aukin gæði framleiðslunnar og vel- ferð búfjár. Mestu fjármagni verður varið til leiðbeiningarstarfsemi, eða 1,1 millj- arði. Til Framleiðnisjóðs landbúnað- arins fara 927 milljónir og þar af 802 milljónir vegna atvinnuuppbyggingar í sveitum, sem búnaðarlög skylda sjóðinn til að styrkja, og 125 milljónir eiga að fara í markaðsstarf við sölu á íslenskum landbúnaðarafurðum er- lendis, eða 25 milljónir á ári. Áhersla verður lögð á sölu afurða undir merkjum hollustu, hreinleika og gæða. Þetta er nýmæli hjá sjóðnum og markmiðið að fylgja eftir þeim ár- angri sem verkefnið Áform – átaks- verkefni hefur náð, en því lýkur um næstu áramót. Til þróunarverkefna og jarðabóta á lögbýlum eiga að fara 445 milljónir á samningstímanum og 335 milljónir í verkefni tengd búfjárrækt. Dreifast framlögin nokkurn veginn jafnt niður á árin fimm. Mikilvægur samningur fyrir bændur og landbúnaðinn í heild Ari Teitsson, formaður Bænda- samtakanna, sagði að lokinni undir- skrift að samningurinn væri mjög mikilvægur fyrir bændur. Þakkaði hann ráðherrunum fyrir það traust sem ríkisstjórnin sýndi landbúnaðin- um. Ari sagði að samningurinn tryggði rekstraröryggi í þjónustu- störfum fyrir landbúnaðinn og stuðl- aði að aukinni samkeppnishæfni hans. Samningurinn tryggði landbúnaðin- um ennfremur lengra öryggi en áður. Því næst tóku ráðherrarnir til máls og óskuðu þeir bændum til hamingju með samninginn. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði samning- inn marka framtíð greinarinnar á mörgum sviðum. „Það er mikilvægt hlutverk og vandasamt að vera bóndi. Hann rekur fyrirtæki í náttúru landsins. Þar þarf hæfileikafólk til starfa sem á að eiga aðgang að færustu vísindamönnum. Mistök í náttúru landsins verða ekki aftur tekin. Því er það eðlilegt að rík- isvaldið komi að þessum undirstöðu- atvinnuvegi með þeim hætti sem hér er gert,“ sagði Guðni. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði að bæði ríkissjóður og bændur mættu vel við una, samningurinn tryggði bændum ákveðið öryggi í sín- um rekstri til lengri tíma en áður. Það væri mikilvægt á viðsjárverðum tím- um. „Ég vona að samningurinn verði hér eftir sem hingað til vottur um prýðilegt samstarf og þá þróun sem á sér stað í ykkar mikilvægu atvinnu- grein. Menn munu áfram taka hönd- um saman um að efla og treysta bú- fjárframleiðsluna í landinu, eins og vera ber,“ sagði Geir og beindi orðum sínum til fjölmargra fulltrúa bænda á Búnaðarþingi sem voru viðstaddir samningsundirskriftina. Ríkið endurnýjar samning við Bændasamtök Íslands um stuðning Samið um 2,8 milljarða framlög til ársins 2007 Markaðsstarf á að styrkja um 125 milljónir                        !"# !$"# %&"# '!&"# &"#             "& !("& $#"# '!#"# &"#   '%"& !!"& $#"# '!#"# &"#  '%"& !!"& $#"# '!#"# &"#    )  *+ *)  *  *,  '("& !&"& $#"# '&("# &"#              !""#                   Morgunblaðið/Sverrir Létt var yfir Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra þegar þeir skrifuðu undir samninginn. MESTAR umræður urðu um kjara- mál og skipulagsmál á aðalfundi Fé- lags grunnskólakennara sem verður fram haldið í dag. Guðrún Ebba Ólafsdóttir lætur af störfum for- manns en þau Finnbogi Sigurðsson, varaformaður félagsins, og Agla Ást- björnsdóttir, sem sæti á í samninga- nefnd þess, hafa boðið sig fram til formennsku. Að sögn Guðrúnar verða væntan- lega ekki gerðar stórvægilegar breytingar á lögum félagsins. Þá hafi verið líflegar umræður um fram- boðsmál og uppstillingu en kjósa á nýja stjórn og nýjan formann í dag. „Í kennarasambandinu gamla var alltaf stillt upp en það á ekki að gera núna. Allir geta gefið kost á sér og síðan verður einfaldlega kosið um þá. Þetta er breytt og mun lýðræðislegri vinnubrögð en áður. Fyrst verður formaður kosinn og atkvæði talin, síðan verða kosnir fjórir meðstjórn- endur til þriggja ára og atkvæði talin þannig að þeir sem ekki ná kjöri geti gefið kost á sér í varastjórn.“ Aðspurð um kjaramálin segir Guðrún Ebba að þegar eigi sér stað kerfisbreyting eins og reyndin sé hjá kennurum komi hækkunin mjög misjafnlega út milli manna. „Með samningum jókst launamunur yngri og eldri kennara. Síðan höfum við rætt mikið um framkvæmd samn- ingsins. Nú hefur svo margt verið fært út í skólana sjálfa. Skólastjórar hafa miklu meira um vinnutíma og launakjör kennara að segja en áður. Okkur finnst að sveitarfélögin hafi ekki staðið sig í því að styðja við bak- ið á skólastjórunum og fylgja fram- kvæmd samningsins eftir. Þá hafa Félag grunnskólakennara og Skóla- stjórafélag Íslands ekki verið nægi- lega samstiga í túlkun en það hefur aftur skapað nokkra spennu í skól- unum.“ Aðspurð segist Guðrún Ebba hafa starfað hjá kennarasamtökunum í ellefu ár og hún telji sig skila góðu búi. Hún hlakki til þess að takast á við ný verkefni. Aðalfundur Félags grunnskólakennara hófst í gær Kjara- og skipulagsmál aðallega í brennidepli Morgunblaðið/Ásdís Fulltrúarnir 92 munu kjósa beint um formannsframbjóðendur í dag. ÁRSSKÝRSLA Framleiðnisjóðs landbúnaðarins fyrir árið 2001 hef- ur verið lögð fram og kynnt á Bún- aðarþingi. Samkvæmt henni námu framlög úr sjóðnum og samningsbundnar greiðslur rúmum 309 milljónum króna á síðasta ári. Þar af er framlag ríkisins til loð- dýraræktar upp á 44 milljónir. Alls bárust sjóðnum 206 erindi í fyrra, þar af 43 umsóknir vegna at- vinnueflingar og nýsköpunar á bú- jörðum og 163 erindi töldust al- mennar umsóknir um nýbreytni á sviði landbúnaðar. Þetta eru færri umsóknir en áður en upphæðir þeirra eru þó meiri samanlagt en sést hefur. Stjórn sjóðsins afgreiddi 167 erindi með fyrirheit um fjárstuðning en árið áður var sambærilegur fjöldi 188. Á síðasta ári námu tekjur sjóðs- ins tæpum 288 milljónum króna, þar af nam framlag ríkisins sam- kvæmt fjárlögum 170 milljónum og sérstakt framlag vegna loðdýra- ræktar var sem fyrr segir 44 millj- ónir. Fjármunatekjur námu 35 milljónum króna Fjármunatekjur námu um 35 milljónum króna og tekjur sjóðsins af fóðurtollum voru tæpar 39 millj- ónir. Rekstur sjóðsins í fyrra kost- aði 15,7 milljónir en stjórn hans hélt tólf fundi á árinu. Samkvæmt ársreikningi Fram- leiðnisjóðs var hann gerður upp með 63,3 milljóna króna halla. Ekki er um eiginlegan rekstrarhalla að ræða, að því er fram kemur í árs- skýrslunni, heldur að greiðslur til verkefna sem hljóta styrki úr sjóðn- um fylgja framvindu óháð því ári sem samþykki er veitt. Framleiðnisjóður landbúnaðarins Rúmum 309 millj- ónum ráðstafað í fyrra BÚIST er við að sjópróf vegna Bjarma VE-66, sem fórst vestur af Þrídröngum 23. febrúar, fari fram í næstu viku í Héraðsdómi Reykjavík- ur. Tryggingamiðstöðin hf. lagði á föstudag fram beiðni til héraðsdóms um sjópróf en endanleg dagsetning hefur ekki verið ákveðin. Fjórir skipverjar voru um borð í Bjarma á leið til Grindavíkur frá Vestmannaeyjum og var tveimur þeirra bjargað á lífi. Sá þriðji fórst og þess fjórða er enn saknað. Tildrög sjóslyssins eru til rann- sóknar hjá Rannsóknanefnd sjó- slysa. Rannsóknanefndin staðfesti við- Morgunblaðið í gær að grunur léki á um að stöðugleika skipsins hefði ver- ið áfátt. Vitað er að talsverð lest var á dekki skipsins, fiskkör með ýmsum búnaði og eru þessir þættir m.a. til skoðunar hjá rannsóknanefndinni og kannaðir m.a. með hliðsjón af ágjöf og krapamyndun á dekki og búnaði. Hjá Tilkynningarskyldunni, sem leit fram hjá skipinu þegar varðskip- ið Týr hringdi vegna neyðarkalls frá því, vegna þess að það var með bilað STK-tæki í sjálfvirka tilkynningar- skyldukerfinu, hafa verklagsreglur verið ræddar innan stofnunarinnar frá því slysið varð. Verið er m.a. að kanna hvort reglur fyrir vaktmenn séu nógu skýrar og aðgengilegar. Sjópróf væntanleg í næstu viku HEIMILDARMYNDIR eru ekki skoðunarskyldar sam- kvæmt lögum og ekki hefur verið óskað eftir skoðun á heimildarmyndinni um Eld- borgarhátíðina að sögn Sigurð- ar Snæbergs Jónssonar, for- stöðumanns Kvikmyndaskoð- unar. Sigurður sagðist ekki eiga von á því að heimildarmyndin um Eldborg yrði skoðuð nema óskað yrði sérstaklega eftir því. Heimildarmyndir hefðu verið skoðaðar þegar menn vildu hafa vaðið fyrir neðan sig, en ekki hefði verið óskað eftir því í þessu tilviki. 18 ára aldurstakmark er ekki til Hann sagði að samkvæmt lögum væri 18 ára aldurstak- mark vegna aðgangs að mynd- um ekki til, þótt þeir gjarnan vildu hafa það stundum eftir að sjálfræðisaldurinn hefði verið hækkaður. Allt tal um 18 ára aldurstakmark væri þannig bara auglýsingabrella. Kvikmyndaskoðun Heimildar- myndir ekki skoðunar- skyldar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.