Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 18
NEYTENDUR
18 FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fiskfars
199kr. kg
FISKBÚÐIN VÖR
Höfðabakka 1, sími 587 5070.
Fyrir vandláta!
MEÐALVERÐ á fiski á fiskmörkuð-
um hefur hækkað um 31% á síðast-
liðnum tveimur árum, samkvæmt
upplýsingum frá Fiskifréttum. Þar
kemur fram að meðalverð á öllum
fiski á innlendum fiskmörkuðum hafi
verið 118 krónur árið 2000 en 154
krónur árið 2001.
Fram kemur í nýrri könnun Sam-
keppnisstofnunar á verði á fiski í fisk-
búðum og stórmörkuðum að meðal-
verð á fiski hafi hækkað um 26% frá
febrúar 2001 til febrúar 2002.
Hækkanir á fiskverði, bæði á fisk-
mörkuðum og í smásölu, helgast
meðal annars af aukinni samkeppni
fiskbúða við fyrirtæki í útflutningi á
ferskum fiski og hefur meðalverð á
þorskhrognum til að mynda þrefald-
ast á fiskmörkuðum frá febrúar 2000
til febrúar 2002, úr 202 krónum kílóið
í 604 krónur, samkvæmt upplýsing-
um frá Íslandsmarkaði.
Miklar hækkanir hafa líka orðið á
meðalverði lúðu á sama tímabili og
eru dæmi þess að kíló af lúðu fari vel
yfir 1.000 krónur á fiskmarkaði. Með-
alverð á lúðu hefur hækkað úr 529
krónum í 640 krónur frá því í febrúar
árið 2000.
Eiríkur Auðunn Auðunsson rekur
Fiskbúðina Vör í félagi við fleiri og
segir hækkandi fiskverð hafa leitt til
minni fiskneyslu heimilanna, sem sé
„sorglegt hjá fiskveiðiþjóð“.
Ástæðuna segir hann aukna sam-
keppni fiskverslana við fyrirtæki í út-
flutningi á ferskum fiski.
Lúða á 2.000 krónur kílóið
„Verð á lúðu hefur verið hátt síðan
í fyrra og fyrir hefur komið að við
höfum þurft að selja hana á 2.000
krónur kílóið, bara til þess að hafa
upp í kostnað,“ segir hann.
Allt að 97% verðmunur var á sum-
um fisktegundum milli fiskbúða í
könnun Samkeppnisstofnunar og
segir Eiríkur misjafnt hvers konar
hráefni sé á ferðinni. „Við kaupum til
að mynda ávallt línulúðu, sem getur
kostað helmingi meira en lúða úr
botnvörpu eða neti. Hér er alls ekki
um sambærilega vöru að ræða. Línu-
lúðan er hvítari og fallegri, ekki mar-
in, hryggbrotin eða blóðsprengd, eins
og hin lúðan getur verið,“
segir hann.
Verslanirnar kaupa ýmist
slægðan eða óslægðan fisk
af mörkuðunum og segir Ei-
ríkur að nýtingin sé 43–46%
eftir flökun. Fyrir komi að
vanti í körin þegar í búðirn-
ar kemur og einnig þurfi að
taka til greina flutnings-
kostnað, afgreiðslu- og
þjónustugjöld sem og
kostnað við fullvinnslu. „Ef
vantar í körin hækkar út-
söluverðið strax um 10%.
Þetta er lottó upp á hvern
einasta dag,“ segir hann.
Sem dæmi um verðmynd-
un nefnir hann ýsu, sem
gæti kostað 300 krónur kíló-
ið á fiskmarkaði. „Miðað við
43% nýtingu, fyrrgreindan
kostnað, afföll og rekstrarkostnað er
útsöluverðið komið upp í 690 krónur.
Almennt talið er álagningin 30–35%
hjá fiskbúðunum,“ segir hann.
Eiríkur segir margar fiskverslanir
leitast við að hafa ferskan fisk á boð-
stólum en fyrir komi að fiskurinn sé
3–4 daga gamall. Þeir sem vilji glæ-
nýjan fiski greiði hann hærra verði.
„Fiskur sem er 4–8 daga gamall fer
síðan til stórmarkaðanna,“ segir
hann.
Skortur á hráefni erlendis
Ragnar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja, segir að meðalhækkun á öllum
fiski, slægðum og óslægðum, sem far-
ið hafi gegnum markaðinn í fyrra hafi
verið 27%. „Meðalverð á öllum teg-
undum hjá okkur var 114 krónur kíló-
ið árið 2000 og er nú 156 krónur.
Meðalverð á ýsu hefur til að mynda
hækkað úr rúmum 160 krónum í jan-
úar 2000 í 224 krónur í janúar árið
2002. Til samanburðar má geta þess
að í janúar árið 1996 var meðalverð á
kílói af allri ýsu á Fiskmarkaði Suð-
urnesja tæpar 98 krónur,“ segir
hann.
Mestar hafa verðbreytingarnar
verið frá árinu 2000 og segir Ragnar
að miklar hækkanir á verði á þorsk-
hrognum hafi orðið til að mynda
vegna skorts á hrognum á erlendum
mörkuðum. Annar áhrifavaldur er
gengisþróun, að hans sögn, þar sem
greitt er fyrir ferskan fiskútflutning í
bandaríkjadölum og pundum.
Fleiri ástæður aukinnar sam-
keppni útflutningsfyrirtækja og inn-
lendra fisksala um hráefni eru slæm-
ar gæftir fram á haustið, biðstaða hjá
smábátaeigendum, sem til að mynda
hafi haft mikil áhrif á framboð á ýsu
og mikil vöntun á ferskum fiski í Evr-
ópu. „Verð á fiskmörkuðum hér
heima er að færast nær verði á fisk-
mörkuðum erlendis. Fisksalarnir
hafa þurft að mæta grimmri sam-
keppni um hráefnið og hafa takmark-
að þanþol,“ segir hann.
Ragnar segir að þrátt fyrir þessa
þróun hafi útflutningur á fiski „ekki
endilega aukist“ og að 600
tonn vanti upp á söluna á
Fiskmarkaði Suðurnesja nú
miðað við sama tímabil í fyrra.
Fólk er hætt að „safna
í plokkfisk“
Kristófer Ásmundsson fisk-
iðnaðarmaður í Gallerý Fiski
segir greinilegt að neysla al-
mennings á fiski hafi dregist
saman og breyst. „Fólk er
orðið mun kröfuharðara en
áður, bæði hvað varðar gæði
vörunnar og magn. Fyrir
nokkrum árum kom fólk og
bað um 3 flök af tilteknum
fiski án þess að velta þyngd-
inni nákvæmlega fyrir sér.
Nú biður það um 1.200 eða
1.500 grömm og ekkert um-
fram það. Það vill ekki eiga af-
gang og er hætt að safna í plokkfisk,
eins og var algengt hér áður. Þeir
sem vanir voru að borða fisk reglu-
lega, okkar fastakúnnar, koma líka
sjaldnar,“ segir hann.
Kristófer segir ekki um „stórkost-
legan samdrátt“ að ræða, en merkj-
anlegan, og segir ennfremur að
„grimm samkeppni“ fiskbúða og fyr-
irtækja í útflutningi á ferskum fiski
hafi byrjað þegar frumvarp um kvóta
á smábátaeigendur stóð fyrir dyrum.
„Samkeppnin harðnaði gríðarlega
þegar kvótanum var komið á og ég
myndi segja að frumvarpið sé einn
mesti áhrifavaldurinn um núverandi
fiskverð. Þegar það var til umræðu
hækkaði bókstaflega allur fiskur,“
segir hann.
Áhrifa þessa hafi til að mynda gætt
mikið í verði á ýsu. Loks segir hann
ekki óeðlilegt að breyttar aðstæður
hafi leitt til hækkandi fiskverðs.
„Fyrirtæki í útflutningi á ferskum
fiski borga það sem upp er sett á fisk-
mörkuðum. Hinir fylgja svo á eftir,“
segir hann að lokum.
$ %
&
&
& &
&'
( )
*+& & &,+-
! "!#
$#%
&'%
()%
%
*
+*
',
*
Dýrara í fisk-
búðum vegna
„grimmrar
samkeppni“
Fiskur í fiskbúðum hefur hækkað um 26% á einu
ári og dregið hefur nokkuð úr neyslu í kjölfarið.
Morgunblaðið/Kristinn
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 31. mars nú kr. áður kr. mælie.
Nóa kúlur, 100 g ................................... 79 100 790 kg
Góa, Prins, 40 g .................................... 55 650 1.380 kg
Góa, Bingókúlur, 100 g .......................... 79 100 790 kg
Góa, hraunbitar, stór, 220 g ................... 239 265 1.090 kg
MS létt Cappuccino, 330 ml................... 99 115 300 ltr
MS létt kakó, 330 ml ............................. 99 115 300 ltr
11–11-búðirnar
Gildir 7.–13. mars nú kr. áður kr. mælie.
Goða kindabjúgu, 20% afsl. á kassa ....... 576 720 576 kg
Eðalgrís gordon bleu, 20% afsl. á kassa .. 1.014 1.268 1.014 kg
Eðalgrís vínarsnitsel, 20% afsl. á kassa ... 934 1.168 934 kg
Rauð epli .............................................. 159 219 159 kg
Gul epli ................................................ 159 229 159 kg
Græn epli ............................................. 159 229 159 kg
Jónagold............................................... 139 199 139 kg
Epli, machintosh ................................... 169 259 169 pk.
FJARÐARKAUP
Gildir 7.–9. mars nú kr. áður kr. mælie.
Vínber, allir litir ...................................... 395 445 395 kg
Appelsínur ............................................ 149 169 149 kg
Pascual jógúrt, 10 teg. ........................... 175 198 350 ltr
KS súrmjólk, ½ lítri ................................ 109 125 218 ltr
Lambalæri ............................................ 798 898 798 kg
Lambahryggur ....................................... 798 898 798 kg
Rauðvínsbógsteik frá SS ........................ 934 1.098 934 kg
HAGKAUP
Danskir dagar 7.–17. mars nú kr. áður kr. mælie.
Ferskar kjötvörur, svína hamborg-
arhryggur ..............................................
799 1.398 799 kg
Ferskar kjötvörur, svína rifjasteik ............. 299 589 299 kg
Hverdag franskar kartöflur, rifflaðar, 750
g..........................................................
149 nýtt 199 kg
Svínabógur/svínalæri í kjötborði ............. 399 599 399 kg
Hatting pítubrauð, fín, 6 st...................... 139 169
Paaske Pölsebröd, 6 st........................... 199 nýtt
Hverdag hvítlauksbrauð, 2 st. ................. 179 nýtt
Dan Cake, 300 g ................................... 198 nýtt 660 kg
KRÓNAN
Gildir 7.–13. mars nú kr. áður kr. mælie.
Gæða grís bayonneskinka, 25% afsl.
á kassa ................................................
974 1.299 974 kg
Svínahnakki, jurtakryddaður, beinlaus,
20% afsl. á kassa..................................
1.196 1.495 1.196 kg
Krónubrauð........................................... 89 89 st.
Gourmet-læri, 25% afsl. á kassa............. 1.096 1.461 1.096 kg
Hversdagslax, reyktur, 30% afsl. á kassa . 1.047 1.494 1.047 kg
Hversdagslax, grafinn, 30% afsl. á kassa . 1.047 1.494 1.047 kg
Möndlukaka.......................................... 169 389 169 st.
Brazzi, 2 ltr, appelsínu............................ 189 259 94 ltr
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 7.–11. mars nú kr. áður kr. mælie.
Appelsínur ............................................ 95 190 95 kg
Kell. Rice Krispies, 600 g + CD ............... 356 419 593 kg
Kellog. Coco Pops, 600 g + CD............... 390 459 650 kg
Kellog. Frosties, 500 g + CD................... 299 353 598 kg
Nói, púkar, 2 pakk. 3 teg........................ 119 149
SELECT-verslanir
Gildir 28. feb.– 20. mars nú kr. áður mælie.
Júmbó langlokur.................................... 219 280
½ ltr Pepsi/Diet/Max............................. 109 140 218 ltr
Hersheys kossar .................................... 309 378
Hersheys súkkulaði, 3 teg. ..................... 95 118
Hersheys cookie bar .............................. 99 125
Risa tópas venjul. og saltlakkrís .............. 89 115
Risa tópas m/xylitol............................... 99 130
Remi súkkulaðikex................................. 135 170
10–11-búðirnar
Gildir 8.–10. mars nú kr. áður kr. mælie.
Kexsmiðjan snúðar, 400 g, 4 teg............. 189 299
Kjarnafæði, rauðvínslegnar svínakótilettur 989 1.487 989 kg
Óðals nautahakk ................................... 998 799 998 kg
Herseys rally, 62,5 g .............................. 95 119
Herseys Reeses Peanut Cup ................... 103 129
Hersheys súkkulaði, 150 g, 4 teg. ........... 319 399
Hersheys Cookie n’ Cream, 43 g ............. 103 129
Hersheys Reese Stick, 42 g .................... 95 119
Hersheys Cookie Bar, 43 g ..................... 103 129
Hersheys Almond Joy, 50 g ..................... 95 119
Knorr bollasúpur, 3 í pk., 14 teg. ............. 139 179
Rolo kex, 105 g..................................... 179 239
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Mars tilboð nú kr áður kr. mælie.
Freyju staur........................................... 65 80
Lion Bar................................................ 89 105
Kit Kat Chunky ...................................... 89 105
Pepsi Max, 0,5 ltr .................................. 119 140 238 ltr
ÞÍN VERSLUN
Gildir 7.–13. mars nú kr. áður kr. mælie
Londonlamb ......................................... 942 1.178 942 kg
1944 Tikka Masala kjúklingur................. 415 488 415 pk.
1944 Kjöt í karríi ................................... 382 449 382 pk.
Toro pastaréttir, 130 g............................ 149 167 1.132 kg
Toro skyndiréttir ..................................... 119 138 1.904 kg
Bisca ostakex, 300 g ............................. 139 178 457 kg
Bisca ískex, 100 g ................................. 59 72 590 kg
Fructis sjampó, 250 ml .......................... 298 325 1.192 ltr
Fructis hárnæring, 200 ml ...................... 298 325 1.490 ltr
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Vínber með afslætti, tilboð á Dönskum dögum