Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 29
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.950
Flug og hótel í 3 nætur m.v. 2 í herbergi
á góðu 3ja stjörnu hóteli, 21. mars,
4 nætur, flug, gisting, skattar.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri
til að kynnast þessari ótrúlegu borg og bjóða einstakt tilboð á síðustu
sætunum þann 21. mars. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og
spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn, eða til hins
einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum
fararstjórum Heimsferða. Það er engin tilviljun að þeir sem einu sinni
fara til Prag, kjósa að fara þangað aftur og aftur, enda er borgin
ógleymanleg þeim sem henni kynnast og engin borg Evrópu kemur
ferðamanninum eins á óvart með fegurð sinni og einstöku andrúmlofti.
Síðustu 11 sætin
Flug fimmtudaga
og mánudaga
í mars og apríl
Helgarferð til
Prag
21. mars
frá kr. 39.950
Dragtir - Kjólar - Blússur
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
VETRARHÁTÍÐIN í Reykjavík,
ásamt Sænsk-íslenzka samstarfs-
sjóðnum og Svenska rikskonserter,
áttu hver sinn þátt í furðuvel sóttum
slagverkstónleikum Jonasar Lars-
sons á sunnudag. Eða svo mátti
skilja af skærrauðu dagskrárblaði
Norræna hússins, sem aftur á móti
kunni frá engu um höfunda og verk
að greina og fáu bitastæðu um sól-
istann öðru en því að hann væri í
þeim fámenna hópi túlkandi lista-
manna sem ekki telja eftir sér hálfs
árs vinnu við eitt og sama verkið ef
þörf krefur.
Hvaða verk hefði útheimt slíka
fórn – hafi eitthvert gert það –
fékkst ekki gefið upp. Hitt stóð þó
eftir, að fátt var við hæfi meðal-
skussa á tré, járn og húðir, enda
hefur hljóðfæragreinin allt frá því
snemma á nýliðinni öld staðið í far-
arbroddi framsækinnar tónlistar.
Athygli vakti að þrjú verkanna (eft-
ir Österling og Smith, auk AURA
eftir Áskel Másson) hlutu hér
heimsfrumflutning, að Österling og
Áskatli viðstöddum.
„Having never written a note for
percussion“ var heiti fyrsta verks,
samið fyrir tam-tam og eftir James
Tenney. Hvort því bæri að taka sem
afsökun gagnvart lengra komnum
kollegum í greininni eða ekki, þá
mátti furðu gegna hvað tíminn flaug
– jafnvel þótt nyti góðs af ósorfinni
athygli hlustenda í upphafi tónleika
– á rúmra sex mínútna tremólóferð
tveggja mjúkra slegla um víðan
koparflötinn. Verkið hófst og endaði
á „engu“, þ.e.a.s. á löturhægu risi og
hnigi í styrk, eða á músíkmáli dal ni-
ente al niente. Haft er fyrir satt að
hljóðveröld tam-tamsins sé meiri en
halda mætti, enda kvað Stockhaus-
en t.a.m. hafa varið einu sumri til að
grafa upp öll leyndarmál þessa
„tónlausa“ hljóðfæris heima í garði
hjá sér. Verk Tenneys dró að vísu
aðeins brotabrot af þeim möguleik-
um upp úr hafsjónum, en var samt
nokkuð minnisstætt fyrir stigmagn-
aða „ofviðrislýsingu“ sína, þar sem
blikurnar á lofti upphafsins gátu
vakið ógnvænlegt hugboð um
sprengjuflugvélager að nálgast við
sjónarrönd.
Prím, einleiksverk Áskels Más-
sonar fyrir litla trommu með og án
snerils, hefur farið víða á 18 ára ævi,
jafnt sem konsert-
stykki og kennsluefni
á efstu stigum, og ver-
ið flutt af sumum
fremstu slagverks-
mönnum heims. Ef
minnið svíkur ekki
mun strúktúr þess
grundvallaður á prím-
töluröð og gæti í
fljótu bragði virzt
verk af því tagi sem
útheimtir „algjört
tímaskyn“, sé slíkt þá
til (sbr. algjöra heyrn
um tónhæðir). Engu
að síður tók flutning-
ur Larssons rúmar 8
mínútur, þó að lengd verksins sé að-
eins talin 7 (í heildarlista ITM frá
1996). Ekki var þó að heyra að
furðuáleitinn sjarmi stykkisins biði
tjón af ögn hægari og lotuskiptari
túlkun Larssons, sem gældi við
bæði form og blæ af stimamjúkri
natni.
„Slideshow“ (Skuggamyndasýn-
ing) hins sænska Fredriks Öster-
lings fór fram í skjóli myrkurs en að
upplýstu tjaldabaki, þar sem mótaði
fyrir hljómlistarmanninum við leik
og störf. Í sjálfu sér skemmtilegt
uppátæki sem að skaðlausu hefði
mátt útfæra enn sjónrænna en gert
var. Hjóðgjafaáhöfn verksins var
naumt skömmtuð og heyrðist eink-
um samanstanda úr meðalstórri
tom-tom-trommu, tveim hofblökk-
um og litlu gongi, sem afmarkaði
sérhver kaflaskil með stöku lág-
væru höggi. Þó var stundum umlað
undir af munni fram, einu sinni í
formi kvalaóps, og í lokin marraði
lágt hindurvitnislegt korr úr ofur-
gúmsypplingi nudduðum við
trommuskinn. Verk Österlings var
jafnspart á atburði og hljóðtól, en
bauð samt af sér nokkurn austur-
lenzkan þokka í anda zen-íhugunar,
þrátt fyrir ríflega tímalengd.
Mestu virtúósastykkin komu eftir
hlé. Fyrst „Dads [eða Dad’s?] time
had come“ eftir Stuart Saunders
Smith fyrir tréspil (xýlofón), sem
trúandi væri til að hafa kostað
ómælda yfirlegu hjá flytjandanum,
enda flókið með afbrigðum jafnt í
takti og tónbilum sem í hraða- og
styrkbreytingum. Verkið virtist
feikivel flutt, þó að varla gætu aðrir
en höfundur og túlkandinn greint
aukatekna feilnótu. Leikið var með
fjórum sleglum á allt upp í hundrað
með miklum sviptingum, þrátt fyrir
frekar gisið og punktakennt heild-
aryfirbragð, með lágværum trem-
ólóum inn á milli.
Ekki gekk minna á í næsta atriði,
„Di-Remption“ eftir
Frank Cox fyrir 5 tom-
tom, sneriltrommu og
einar kongur. Sýndust
víða sjö sleglar á lofti í
senn, og þurfti spilar-
inn að hafa sig nánast
allan í frammi í heilar
tíu mínútur. Að sönnu
dolfellandi sjónarspil,
en hvað framvindu
varðar einkennilega
kyrrstætt. Líkt og
fyrra verkið minnti það
svolítið á refsingu Sís-
ýfosar í undirheimum –
sem mörlandar nefndu
fyrrum Kleppsvinnu,
þótt sú hefði reyndar uppbyggilegri
tilgang en hér var að heilsa.
Öðru máli gegndi um AURA
(Ára) eftir Áskel Másson sem Lars-
son frumflutti í tónleikalok af fag-
mennskri snilld. Það var skrifað fyr-
ir málmspil (Glockenspiel) og
fornklingjur („crotales“ eða „anti-
que cymbals“; látúnsskífur með
sveiflukenndan eftiróm). Grískt
nafn verksins mun skylt orði yfir
loft, og að sönnu virtist loftkenndur
glithjúpur sveima yfir sindrandi
blæ hljóðfæranna. Verkið var mark-
visst upp byggt með skýrt að-
greindri kaflaskiptingu og beitti
m.a. ísórytmískum þrástefjum sem
samtengjandi afl. Áhrifin voru óvart
heillandi og leiddu hugann ýmist að
vafurlogadýrð norðurljósa eða
grýlukertaspili e.k. norrænnar ga-
melansveitar í klakahöll Vetrar
konungs við blásilfraðan kristals-
ljóma.
Í klakahöll Vetrar konungs
TÓNLIST
Norræna húsið
Verk eftir James Tenney, Áskel Másson,
Fredrik Österling, Stuart Saunders Smith
og Frank Cox. Jonas Larsson, slagverk.
Sunnudaginn 3. marz kl. 17.
SLAGVERKSTÓNLEIKAR
Jonas Larsson
Ríkarður Ö. Pálsson
SIÐFRÆÐISTOFNUN efnir
til málþings í Borgarleikhúsinu
í kvöld kl. 20 um leikritið Gest-
inn sem nú er sýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins.
Á málþinginu tala prófessor-
arnir Dagný Kristjánsdóttir
bókmenntafræðingur og Pétur
Pétursson, guðfræðingur. Þá
mun Vilhjálmur Árnason,
heimspekingur, halda stutt inn-
gangserindi og leiða umræður.
Einnig verða sýndir stuttir
kaflar úr verkinu með leikurun-
um Gunnari Eyjólfssyni og
Ingvari Sigurðssyni.
Málþing
um Gestinn
Freemans - Bæjarhrauni 14 -
s: 565 3900 - www.freemans.is
Nýi Freemanslistinn kominn út
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga