Morgunblaðið - 09.03.2002, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í DAG verður Álftamýri,
Sport-klinik, formlega opnuð
en um er að ræða sameinaða,
sérhæfða meðferðarstöð
íþróttameiðsla, þá fyrstu
sinnar tegundar hér á landi.
Undanfarin fjögur ár hafa
nokkur fyrirtæki boðið upp á
ýmsa þjónustu varðandi stoð-
kerfissjúkdóma og -meiðsl í
Álftamýri 1–5 í Reykjavík.
Þessi fyrirtæki hafa nú ásamt
öðrum sameinast í Álftamýri,
Sport-klinik og segir Sigurð-
ur Ásgeir Kristinsson, bækl-
unarskurðlæknir og fram-
kvæmdastjóri Álftamýri,
Sport-klinik, að með þessari
meðferðarmiðstöð hafi gamall
draumur orðið að veruleika,
en um er að ræða fyrstu með-
ferðarmiðstöð sinnar tegund-
ar hér á landi.
Sigurður Ásgeir Kristins-
son segir að margir meðferð-
araðilar hafi átt sér þennan
draum í langan tíma. Sjúkra-
þjálfarar hafi viljað hafa bein-
an aðgang að lækni eða lækn-
um, læknar hafi viljað vinna
markvissara með öðrum á
þessu sviði og svo framvegis.
Hægt og sígandi hafi þessir
sérfræðingar komið inn í hús-
ið og ákveðið hafi verið að
stíga skrefið til fulls.
Víðtæk þjónusta
Læknastöðin Álftamýri,
Röntgendeildin Álftamýri,
Sjúkraþjálfun Íslands,
Heilsuráðgjöf, Stoðtækni
Gísla Ferdinandssonar, Össur
hf. og Borgarapótek standa
að Álftamýri Sport-klinik,
sem er samtals í um 1.700 fer-
metra húsnæði. Aðalmóttak-
an er í apótekinu og þar er
viðkomandi vísað á réttan
stað, en einnig er móttaka á
Læknastöðinni sjálfri.
20 sérfræðingar í bæklun-
arskurðlækningum, heila- og
taugaskurðlækningum, svæf-
ingum og verkjameðferð
starfa á Læknastöðinni. Þar
eru tvær skurðstofur og sér-
hæfð verkjastofa og segir Sig-
urður Ásgeir Kristinsson að
þar séu gerðar rúmlega 3.000
aðgerðir á ári, fyrst og fremst
speglunaraðgerðir á liðum,
liðbanda- og mjúkbandaað-
gerðir, handaraðgerðir og
sérhæfðar verkjaaðgerðir.
Hann bendir á í þessu sam-
bandi að á slysadeild Land-
spítala-háskólasjúkrahúss í
Fossvogi séu meðhöndluð
tæplega 3.000 íþróttatengd
slys á ári, en margir, sem
meiðist í íþróttum, fari aldrei
á slysadeild.
Á röntgendeildinni er boðið
upp á almennar röntgenrann-
sóknir, ómskoðanir, segul-
ómskannanir, skyggnirann-
sóknir og æðarannsóknir.
Auk þess hefur deildin sér-
hæft sig í greiningu vanda-
mála frá stoðkerfi og þjónustu
tengdri starfsemi þeirri sem
fer fram í Læknastöðinni.
Hjá Sjúkraþjálfun Íslands
starfa 15 sjúkraþjálfarar og
einn nálastungusérfræðingur,
en fyrirtækið er líka með
starfsemi í líkamsræktarstöð-
inni World Class. Flestir
sjúkraþjálfaranna starfa með
íþróttaliðum eða landsliðum
og segir Pétur Einar Jónsson,
sjúkraþjálfari og einn eig-
enda, að þeir búi yfir mikilli
reynslu. Boðið er upp á ýmsa
þjónustu eins og til dæmis lið-
leikamælingar, létt þrekpróf,
hnykkingar og nálastungur
auk almennrar sjúkraþjálfun-
ar.
Hjá Heilsuráðgjöf eru 15
starfsmenn, þjálfarar, heilsu-
ráðgjafar og næringarráð-
gjafi og er einstaklingum,
hópum og fyrirtækjum veitt
ráðgjöf. Markmið fyrirtækis-
ins er að stuðla að því að fólk
tileinki sér heilbrigðan lífsstíl
og njóti þess.
Stoðtækni Gísla Ferdin-
andssonar sérhæfir sig í sér-
smíði og sölu á skóm og inn-
leggjum og er hægt að panta
tíma í göngugreiningu í þjón-
ustumiðstöðinni. Einnig býð-
ur fyrirtækið aðstoð varðandi
ýmiss konar fótamein og ráð-
gjöf við val á íþróttaskóm.
Ennfremur selur fyrirtækið
ýmis konar stoðtæki eins og
t.d. hitahlífar, bakbelti, léttar
spelkur og aðra sérvöru fyrir
íþróttafólk.
Össur býður upp á þjónustu
við einstaklinga og íþrótta-
hópa og er hægt að panta tíma
í miðstöðinni. Fyrirtækið sel-
ur og framleiðir t.d. spelkur,
gervilimi, hálskraga, bakbelti,
líkamsstöðubelti, meðgöngu-
belti og gigtarhlífar.
Borgarapótek er með
helstu stoðvörur frá Stoð-
tækni og Össuri í sölu og að-
stoðar sérþjálfað starfsfólk
fólk við val á þeim vörum. Lyf
sem tengjast starfsemi mið-
stöðvarinnar eru til sölu og að
auki er öll almenn þjónusta í
apótekinu.
Allt á staðnum
Sigurður Ásgeir Kristins-
son segir að það sem vinnist
með þessari þjónustu sé sam-
vinnan. Viðskiptavinurinn
þurfi ekki að fara annað.
„Hugmyndin með þessu er að
vera með alla þjónustu í boði
fyrir alla þannig að meiðist
einhver í íþróttum viti hann
strax hvert hann eigi að fara,
því hér er allt til staðar.“
Hann segir að auk þess sem
einstaklingar fái alla þjónustu
standi íþróttafélögum og hóp-
um ákveðin pakkaþjónusta til
boða, en hún felist í sérstök-
um aðgangi að læknum,
sjúkraþjálfurum og fleiru.
„Hér eru margir af þekktustu
íþróttalæknum landsins og
sérfræðingar sem þekkja vel
þarfir íþróttafélaganna, en
íþróttamenn vilja gjarnan fá
þjónustuna strax.“
Sama verð
Sigurður Ásgeir Kristins-
son áréttar að kostnaður sjúk-
lings sé ekki meiri í þessari
þjónustumiðstöð en annars
staðar. Sá sem meiðist þurfi
alltaf að fara til læknis og
hugsanlega í sjúkraþjálfun í
kjölfarið. Hann þurfi jafnvel
að kaupa einhver stoðtæki, fá
lyf og ráðgjöf um framhaldið.
„Í stað þess að þeytast út og
suður þarf viðkomandi aðeins
að fara á einn stað sem sparar
honum mikinn tíma og fyrir-
höfn auk þess sem verðið fyrir
þjónustuna er það sama og
annars staðar. Með þessu vilj-
um við bjóða upp á markviss-
ari og skilvirkari þjónustu
vegna íþróttatengdra áverka
en áður.“
Álftamýri Sport-klinik sameinuð, sérhæfð meðferðarstöð íþróttameiðsla
Þjónusta fyrir
alla á sama stað
Reykjavík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Speglun á hné í Læknastöðinni. Stefán Carlsson bæklunarskurðlæknir, Björn Tryggvason svæfingarlæknir, og Kristín Úlfljótsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Sigurður Ásgeir Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Álftamýri Sport-klinik.
Pétur Einar Jónsson sjúkraþjálfari hnykkir
á hálsi sjúklings í Sjúkraþjálfun Íslands.
Læknarnir Sveinbjörn Brandsson og Ágúst Kárason og móttökuritararnir Ingunn Bald-
vinsdóttir og Valgerður Ásgeirsdóttir taka á móti íþróttamanninum Valbirni Þorlákssyni.
19. JÚNÍ sjóður um kvenna-
hlaup ÍSÍ í Garðabæ hefur
auglýst eftir umsóknum um
styrki til að efla og styrkja
þátttöku kvenna í íþróttum.
Ráðgert er að úthluta úr
sjóðnum 16. júní nk.
Sjóðurinn er stofnaður að
tilstuðlan íþrótta- og tóm-
stundaráðs Garðabæjar og
framkvæmdanefndar um
kvennalaup í Garðabæ. Kem-
ur fram í fréttatilkynningu frá
bænum að markmiðið með
sjóðnum sé að veita styrki til
verkefna sem miðast að því að
styrkja og efla íþróttir
kvenna.
Umsóknarfrestur er til 3.
apríl 2002. Hægt er að nálgast
umsóknareyðublöð á heima-
síðu Garðabæjar, www.-
gardabaer.is.
Auglýst eft-
ir umsókn-
um úr 19.
júní sjóði
Garðabær
HELGA Bragadóttir, arki-
tekt, hefur verið ráðin skipu-
lagsfulltrúi í Reykjavík.
Skipulags-
fulltrúi starf-
ar á nýju
Skipulags- og
byggingar-
sviði Reykja-
víkur, stýrir
faglegri starf-
semi, hefur
umsjón með
gerð aðal-
skipulags og deiliskipulags
og ber ásamt sviðsstjóra
ábyrgð á framkvæmd ákvarð-
ana sem lúta að skipulags-
málum. Skipulags- og bygg-
ingasvið er til húsa að
Borgartúni 3.
Helga Bragadóttir er fædd
í Reykjavík árið 1954 og lauk
námi frá Arkitektaháskólan-
um í Ósló árið 1981. Hún
starfaði áður á Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur, síðast sem
deildarstjóri deiliskipulags.
Helga Bragadóttir er gift Jó-
hanni Sigurjónssyni, for-
stjóra Hafrannsóknastofnun-
arinnar, og eiga þau þrjú
börn.
Helga
Bragadóttir
ráðin skipu-
lagsfulltrúi
Reykjavík
Helga
Bragadóttir
BERGLIND Árnadóttir
varð í fyrsta sæti í Stóru
upplestrarkeppninni í
Garðaskóla í Garðabæ en
lokahátíðin fór fram í vik-
unni.
Til úrslita kepptu 12 nem-
endur úr 7. bekk og var lesið
í þremur umferðum. Krist-
jana Júlía Þorsteinsdóttir
varð í öðru sæti og Hlynur
Hafsteinsson í því þriðja.
Sparisjóðurinn í Garðabæ
styrkti keppnina með pen-
ingaverðlaunum fyrir þrjú
efstu sætin. Allir keppendur
fengu viðurkenningarskjal,
bókaverðlaun frá Máli og
menningu og rós frá blóma-
búðinni Garðablóm.
Berglind
Árnadóttir í
fyrsta sæti í
lestrarkeppni
Garðabær
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦