Morgunblaðið - 09.03.2002, Blaðsíða 51
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 51
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
www.plusapotek.is
Lyfjafræðingur
Plúsapótek ehf. óska eftir að ráða
lyfjafræðinga í fullt starf til vinnu
í apótekum sínum og til ýmissa
verkefna.
Innan Plúsapóteka eru 19 lyfjabúðir staðsettar
um allt land. Ef þú ert að leita að skemmti-
legu og krefjandi starfi hjá ört vaxandi fyrir-
tæki, þá er þetta rétta tækifærið.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Plúsapóteka, í síma 577 6055
eða t-pósti plusapotek@plusapotek.is .
Skrifstofa: Nethyl 2, 110 Reykjavík.
S. 577 6055, t-póstur plusapotek@plusapotek.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Bakarasveinafélags Íslands verð-
ur haldinn laugardaginn 16. mars
kl. 14.00 á Stórhöfða 31, gengið
inn að neðanverðu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Grænland
Í dag, laugardaginn 9. mars, verður opinn fund-
ur á vegum Grænlensk-íslenska félagsins um
flugsamgöngur milli Íslands og Grænlands.
Fundurinn verður í sal Norræna hússins og
hefst kl. 15.00. Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn Kalak.
Sjóðfélagafundur
Sjóðfélagafundur Lífeyrissjóðs bankamanna
verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl nk.
kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á Hótel
Loftleiðum, Þingsal 8.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf sjóðfélagafundar skv. 6. gr.
samþykkta sjóðsins.
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna.
Reykjanesbær 11. mars 2002 mánudagur Sjálfstæðishúsinu Njarðvík.
Þorlákshöfn 12. mars 2002 þriðjudagur Duggunni, Þorlákshöfn.
Sandgerði/Garði 13. mars 2002 miðvikudagur Veitingahúsinu Vitanum, Sandgerðisbæ.
Hella 14. mars 2002 fimmtudagur Veitingahúsinu Kanslaranum.
Grindavík 18. mars 2002 mánudagur Sjómannastofunni Vör, Grindavík.
Árborg 19. mars 2002 þriðjudagur Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 38, Selfossi.
Hveragerði 20. mars 2002 miðvikudagur Sal verkalýðsfélagsins í Hveragerði.
Vestmannaeyjar 21. mars 2002 fimmtudagur Ásgarði Vestmannaeyjum.
Fundartími er kl. 20.30 á öllum stöðum nema í Vestmannaeyjum kl. 12.00.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
FÉLAGSSTARF
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
HUGMYNDIN að rannsóknarverk-
efninu kviknaði eingöngu út frá
fræðilegu sjónarmiði, að sögn
Agnesar. Hún sagði að sífellt færð-
ist í aukana að ólíkir einstaklingar,
af báðum kynjum og á öllum aldri,
sem hefðu sama áhugamál, mynd-
uðu hópa frekar en þeir sem hefðu
sömu menntun eða væru á sama
aldri eða af sömu stétt.
Virðist hestamenn
vera sérstakur hópur
„Við þetta myndast nýr vinkill á
markhópa,“ sagði Agnes Ósk, en
hún leggur áherslu á markaðsfræði
í námi sínu. „Þetta fyrirbæri fang-
aði hug minn og næsta skref var að
leita að hópi sem væri svona sam-
ansettur. Mér virtist sem hesta-
menn gætu einmitt verið svona
hópur og valdi þá. Ég vil taka það
fram að ég er ekki sjálf í hesta-
mennsku.
Ég leitaði mér upplýsinga víða og
las til dæmis allan Eiðfaxa, tímarit
hestamanna, nánast frá 1. tölublaði.
Mér leist best á að leita á náðir
FEIF, alþjóðlegra samtaka eigenda
íslenskra hesta, en það reyndist
ekki auðvelt því viðhorfin til rann-
sóknarinnar voru mjög misjöfn
milli landa. Þjóðverjar vildu til
dæmis alls ekki senda mér upplýs-
ingar, en nágrannar okkar á Norð-
urlöndunum brugðust fljótt við og
sendu mér félagalista sína um hæl.“
Agnes Ósk segist hafa komist að
því að á sínum tíma hafi spurn-
ingalisti verið sendur til allra
áskrifenda Eiðfaxa International í
útlöndum í samvinnu við Félag
hrossabænda og hafi það komið vel
út. Hún ákvað því að leita á náðir
Eiðfaxa og fyrir nokkru var sendur
út spurningalisti með blaðinu til
áskrifendanna þar sem hún spurði
40 fullyrðingaspurninga og Félag
hrossabænda ákvað að vera einnig
með nú og lagði einnig fram spurn-
ingar. Alls voru spurningarnar 54
talsins. „Markmiðið með þessum
spurningum er að skoða hvort við-
horf þessa hóps séu hin sömu, óháð
þjóðerni, aldri og kyni, eða ekki.
Spurningarnar grundvallast á
þeirri tilgátu minni að hópurinn sé
einsleitur í viðhorfum. Ég er mjög
ánægð með viðbrögðin því að á
tveimur vikum hafa þegar borist
um 200 svör, bæði með pósti og
tölvupósti. Ég er svo spennt að ég
get varla beðið eftir að komast
heim á daginn til að sjá hvað hefur
borist. Það hefði verið gaman að
geta einnig tekið viðtöl við Íslend-
inga sem hafa verið mikið í útlönd-
um í tengslum við hross og einnig
útlendinga sem eiga íslenska hesta
og koma mikið hingað til lands í
tengslum við hestamennskuna. En
því miður hefur ekki orðið úr því.“
Agnes Ósk segir þessa rannsókn
hafa tvíþætt markmið, það er að
segja að vera hluti af MS-ritgerð og
einnig mun hún skila skýrslu til Fé-
lags hrossabænda og Hestamið-
stöðvar Íslands sem hún vonast til
að nýtist hestamönnum við mark-
aðssetningu íslenska hestsins. Hún
hlaut 150.000 króna styrk frá Fé-
lagi hrossabænda og 100.000 króna
styrk frá Hestamiðstöð Íslands
vegna verkefnisins. Hún segist
stefna að því að ljúka rannsókninni
sem fyrst og útskrifast í vor.
Rannsakar hestamenn
sem þjóðfélagshóp
Agnes Ósk Sigmundardóttir, sem er að
ljúka meistaranámi í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands, sagði Ásdísi Haraldsdóttur
hvers vegna hún valdi hestamenn sem um-
fjöllunarefni í lokaritgerð sinni.
SAMKVÆMT nýjum samningi
landbúnaðarráðherra, fjármálaráð-
herra og Bændasamtaka Íslands
verður samtals 9,5 milljónum króna
varið sérstaklega í alþjóðlega gagna-
grunninn um íslenska hestinn,
WorldFengur, á árunum 2003–2007.
Framlög ríkisins vegna kynbóta-
skýrsluhalds í hrossarækt nema auk
þess 25,5 milljónum króna á sama
tímabili. Nú eru skráð um 130.000 ís-
lensk hross í WorldFeng. Nýlega
skrifaði þýska Íslandshestafélagið,
IPZV, undir áskriftarsamning að
gagnagrunninum og einnig hefur
danska Íslandshestafélagið, Dansk
Islandshestforening, nýlega ákveðið
að gerast áskrifandi. Þar með eru
stærstu aðildarlönd FEIF orðin
áskrifendur. Danmörk er 12. aðild-
arlandið sem sækir um áskrift af
WorldFeng.
Á heimasíðu íslensks landbúnaðar
kemur fram að Tölvudeild BÍ sé nú
að undirbúa flutning á gögnum úr
þýska og sænska gagnagrunninum
inn í WorldFeng. Þetta krefst mik-
illar vinnu þar sem grunnskrá þarf
mörg þúsund hross sem fædd eru á
Íslandi.
Tæpar 10 milljónir í WorldFeng
MIKIÐ verður um að
vera í Reiðhöllinni í
Víðidal í Reykjavík á
sunnudaginn kemur,
10. mars, þegar
hestamenn höf-
uðborgarsvæðinu og
Suðurnesjum halda
æskulýðsdag hesta-
manna undir yf-
irskriftinni „Æskan
og hesturinn“ í sjö-
unda sinn.
Það eru hesta-
mannafélögin Hörður
í Mosfellsbæ, Fákur í
Reykjavík, Andvari í
Garðabæ, Gustur í
Kópavogi, Sóti á
Álftanesi, Sörli í Hafn-
arfirði og Máni á Suðurnesjum
sem standa að hátíðinni og er öll
vinna unnin í sjálfboðavinnu. Á
hátíðinni kemur fram fjöldi barna
og unglinga úr röðum þessara fé-
laga og hefst hún á fánareið þar
sem búast má við að Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
ríði í broddi fylkingar.
Hvert hestamannafélag býður
upp á atriði á hestum og börn úr
félögunum sjá einnig um önnur
skemmtiatriði. Meðal þeirra sem
koma fram eru Jóhanna Guðrún
söngkona, Margrét Freyja flautu-
leikari og systurnar Camilla
Petra og Viktoría sem spila á
fiðlur. Þá verður Kristinn Há-
konarson, sem reyndar er fullorð-
inn, með óvenjulegt atriði sem
sýnir góð tengsl manns og hests
og hinn kunni ungi knapi, Daníel
Ingi Smárason, bætir um betur
og sýnir að enn á það við að „…
milli manns og hests og hunds
hangir leyniþráður.“
Margir hafa komið að und-
irbúningi sýningarinnar og verið
börnunum til aðstoðar. Sýning-
arstjóri er Tómas Snorrason og
þulur Hulda G. Geirsdóttir.
Vegna mikillar aðsóknar á sýn-
inguna Æskan og hesturinn í
fyrra er boðið upp á tvær sýn-
ingar á sunnudaginn. Sú fyrri
hefst kl. 14.00, en hin síðari kl.
17.00. Aðgangur er ókeypis.
Æskan og hesturinn
á sunnudag
Börn, unglingar og hestar verða í aðalhlut-
verkum á hátíðinni Æskan og hesturinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Úrval fermi gargjafa
Góð fermingartilboð