Morgunblaðið - 09.03.2002, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÁNÆGJULEG BREYTING
NEYÐARÁSTAND
Á SJÚKRAHÚSUM
Með stuttu millibili hafa tveirlæknar kvatt sér hljóðs hérá síðum Morgunblaðsins
og fullyrt annars vegar að mann-
réttindi séu brotin innan spítalanna
hérlendis og hins vegar að lífi og
heilsu almennings sé stofnað í
hættu vegna aðhaldsaðgerða á spít-
ölunum.
Það er ekki algengt að læknar
setji fram jafnbeitta gagnrýni á fyr-
irkomulag sjúkrahúsanna og þau
Margrét Leósdóttir og Björn Rúnar
Lúðvíksson hafa gert í greinum sín-
um. Lengi hefur verið rætt um
vandamál sjúkrahúsanna sem nú
hafa verið sameinuð í eitt – Land-
spítala – háskólasjúkrahús. Nú þeg-
ar sérhæft starfsfólk þessarra
stofnana lætur áhyggjur sínar í ljós
opinberlega og af einlægni, er ekki
lengur hægt að hunsa ábendingar
sem berast um stöðu heilbrigðis-
þjónustu hérlendis.
Margrét segir m.a. að stríðs-
ástand ríki innan sjúkrahúsanna.
Ástandið hafi lengi verið slæmt en
aldrei jafnslæmt og nú. „Á flestum
deildum Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss liggja sjúklingar á göng-
um og jafnvel inni á skolherbergj-
um, klósettum eða hvar svo sem
plássin finnast.“ Hún segir ástæð-
urnar fyrir slæmu ástandi mega
rekja til þess að stóru sjúkrahúsin
geti ekki útskrifað sjúklinga vegna
skorts á hjúkrunarheimilum og end-
urhæfingarplássum. Á meðan kom-
ist bráðveikir sjúklingar ekki inn á
spítalann þar sem engin laus pláss
séu fyrir hendi.
Björn Rúnar bendir aftur á móti á
að „óraunsær 4% niðurskurður“
stjórnvalda til málaflokksins valdi
því að ekki sé hægt að halda uppi
viðunandi þjónustu á spítalanum og
með því sé lífi og heilsu sjúkra teflt í
tvísýnu á álagstímum. „Þrátt fyrir
mikinn niðurskurð stjórnvalda á
fjárveitingum til stofnunarinnar hef-
ur almenningi verið talin trú um að
sameiningarferlið gangi vel fyrir sig.
Þar sé öllum landsmönnum tryggð
fullkomin og mannsæmandi heil-
brigðisþjónusta eins og lög kveða á
um. Raunveruleikinn sem birtist
læknum og heilbrigðisstarfsfólki
bráðaþjónustu sjúkrahússins er ann-
ar og dapurlegri. Þjónusta við sjúka
og aðstaða til aðhlynningar er á
álagstímum langt fyrir neðan það
sem eðlilegt getur talist á háskóla-
sjúkrahúsi,“ segir Björn Rúnar Lúð-
víksson.
Það hlýtur að vera tekið alvarlega
þegar lýsingar sem þessar koma frá
fagfólki sem starfar innan sjúkra-
húsanna, og jafnframt að þau telji
sig ekki geta, með góðri samvisku,
staðið við læknaeiðinn og látið sér
þetta ástand lynda. Skattgreiðendur
allir hljóta jafnframt að taka þessar
ábendingar alvarlega og láta sig þær
varða. Sérstaklega í ljósi þess að
töluverðum hluta skattpeninga
þeirra er varið til uppbyggingar í
heilbrigðiskerfinu og allir lands-
menn eiga rétt á „fullkomnustu heil-
brigðisþjónustu, sem á hverjum tíma
eru tök á að veita til verndar and-
legri, líkamlegri og félagslegri heil-
brigði“, samkvæmt lögum.
Það er ánægjulegt að fylgjast meðþeim afkomutölum, sem þessa
dagana eru að berast frá nokkrum
stærstu útgerðarfyrirtækjum lands-
ins. Þær sýna að sjávarútvegsfyrir-
tækin eru að rétta úr kútnum, svo
um munar.
Svo aðeins sé vitnað til tveggja
fyrirtækja, sem birt hafa tölur síð-
ustu daga er augljóst að mikil um-
skipti til hins betra hafa orðið í
rekstri Samherja hf., stærsta og öfl-
ugasta sjávarútvegsfyrirtækis
landsins.
Hagnaður Samherja eftir skatta,
afskriftir og fjármagnsliði nam á
síðasta ári rúmlega 1.100 milljónum
króna. Það segir þó ekki alla söguna.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði, sem nú
orðið er talinn bezti mælikvarðinn á
stöðu og afkomu fyrirtækja, nam
rúmlega 3.600 milljónum króna.
Veltufé frá rekstri nær þrefaldaðist
á milli ára úr rúmlega 1.000 millj-
ónum í rúmlega 3.000 milljónir
króna.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja og einn helzti drif-
krafturinn í uppbyggingu þessa
merka fyrirtækis, segir að síðasta ár
hafi án efa verið bezta rekstrarár fé-
lagsins frá upphafi. Og hann bætir
við: „Við getum því ekki annað en
horft björtum augum til framtíðar.“
Síldarvinnslan í Neskaupstað,
sem var rekin með rúmlega 400
milljóna króna tapi árið 2000, náði
þeim árangri að koma tapinu niður í
67 milljónir á síðasta ári. Hagnaður
fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam tæplega 1.600 millj-
ónum. Það sýnir trú Samherja-
manna á framtíð Síldarvinnslunnar
að þeir hafa jafnt og þétt verið að
auka hlut sinn í fyrirtækinu.
Sá góði árangur í rekstri sjávar-
útvegsfyrirtækjanna á síðasta ári,
sem endurspeglast í afkomu þeirra
tveggja fyrirtækja, sem hér hafa
verið nefnd er vísbending um að at-
vinnulífið sé að ná sér á strik á nýjan
leik. Velgengnin í sjávarútveginum
mun smátt og smátt skila sér út í
efnahagslífið og hafa jákvæð áhrif í
öðrum þáttum atvinnulífsins eins og
jafnan áður.
Þessi frábæri árangur sýnir líka,
að þeir sem telja, að sjávarútvegur-
inn geti ekki staðið undir greiðslu
gjalds fyrir afnot af fiskimiðunum
hafa á röngu að standa. Miðað við
þær afkomutölur, sem nú eru að
birtast, þarf ekki að hafa áhyggjur
af bolmagni sjávarútvegsins til þess
að standa undir þeim greiðslum.
S
AMEINING stóru fisk-
sölusamtakanna, Sölu-
miðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og SÍF, gæti
aukið sameiginlegan
hagnað félaganna um 50% að mati
Róberts Guðfinnssonar, stjórnar-
formanns SH. Þetta kom fram í
ræðu hans á aðalfundi félagsins í
gær. Hann telur veruleg samlegð-
aráhrif af sameiningu félaganna
tveggja. Þau eigi ekki lengur í
raunverulegri samkeppni innan-
lands þótt þau starfi á svipuðum
mörkuðum erlendis, bæði séu til-
tölulega smá á heimsvísu og því
séu sterk rök fyrir sameiningu.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
fagnar 60 ára afmæli sínu á þessu
ári. Róbert sagði að fljótlega eftir
stofnun Sölumiðstöðvarinnar hafi
skapast mikil og hörð samkeppni
hér innanlands milli þeirra fyr-
irtækjablokka sem stóðu að baki
fisksölufyrirtækjunum. „Barist
var um hlutdeild af heildarút-
flutningi frá landinu og þeir sem
fóru höndum um flest tonn nutu
mestrar virðingar.
Enn eimir eftir af þessu gamla
viðhorfi hér á Íslandi og enn er
rætt um samkeppni sölusamtak-
anna. Sölusamtökin eru hins veg-
ar ekki til í dag. Stóru félögin á
markaði, SH og SÍF, eru ekki
lengur sölusamtök; þau eru fram-
leiðslu-, sölu og markaðsfyrir-
tæki, sem að vísu kaupa stóran
hluta aðfanga sinna frá Íslandi.
Samkeppnin fer því ekki lengur
fram hér heima. Hin raunveru-
lega samkeppni er baráttan um
hylli viðskiptavinarins úti á mark-
aðnum. Þar eru fyrirtækin að
keppa á heimsmarkaði og sam-
keppnisfyrirtækin sem og við-
skiptavinirnir verða sífellt stærri
og sterkari.“
Róbert sagði það hafa verið at-
hyglisvert að fylgjast með þeirri
þróun sem orðið hafi á sölu sjáv-
arafurða undanfarin ár og mán-
uði. Allir þekki þá miklu sam-
þjöppun sem orðið hafi í rekstri
smásölukeðja um allan heim.
Sömuleiðis þekki menn vöxt veit-
ingahúsakeðjanna og áhrif þeirra
sem kaupenda, og menn kannist
við samþjöppun í dreifingu til
veitingastaða. „Svar okkar hefur
verið sérhæfing í þeim rekstri,
þar sem við teljum okkur búa yfir
ótvíræðum styrk og mikilli sér-
þekkingu. Það hefur leitt til þess
að við erum nú að gera enn betur
á okkar helstu mörkuðum en áð-
ur. Á þremur árum hefur okkur
tekist að endurskipuleggja Sölu-
miðstöðina þannig að hún skilar
nú góðum hagnaði.
Í ljósi breytinga hér heima á
rekstrarformi fisksölufyrirtækj-
anna og fyrrgreindrar þróunar á
mörkuðunum leita áleitnar spurn-
milljónir árið áður. F
hlutabréf í fjórum erlend
arútvegsfyrirtækjum og
bókfærð á um 2,4 milljarð
Þar á meðal er um 15%
kanadíska sjávarútvegsf
inu Fisheries Products
tional (FPI), að verðmæt
milljarðar króna. Eins
hefur komið í fréttum h
töluverð átök í kringum
Nýfundnalandi upp á s
Fyrirtækið hafði áform
töku eða samruna við Cl
á Nova Scotia og unnið
fleiri fjárfestingartæ
Sérstök lög gilda um FP
fundnalandi og hafa s
unnið að breytingum á lö
ingar á hugann. Æ fleiri, sem
maður hittir á förnum vegi,
spyrja hvers vegna íslensku sölu-
fyrirtækin SH og SÍF taki ekki
upp nánari samvinnu eða hrein-
lega sameinist. Fyrirtækin eigi
ekki í raunverulegri samkeppni
hér innanlands, bæði eru þau til-
tölulega smá á heimsvísu, þau
starfa á svipuðum mörkuðum og
samlegðaráhrif hljóti að vera
veruleg. Ég verð að segja það
sem mína persónulegu skoðun, að
við fyrstu sýn eru rökin sem
mæla með slíkri sameiningu
sterk. Mér kæmi til dæmis ekki á
óvart þótt sameiginlegur hagnað-
ur félaganna gæti aukist um 50% í
kjölfar slíkrar sameiningar. En
þetta eru aðeins hugleiðingar
mínar, málið hefur ekki verið rætt
í stjórn félagsins og þar með eng-
in afstaða tekin til þess,“ sagði
Róbert á fundinum.
Erfitt ár fyrir FPI
Hagnaður SH ríflega fjórfald-
aðist á síðasta ári og varð 641
milljón króna, en hann var 152
Stjórnarformaður SH segir að veruleg samlegðaráhrif yrðu
Róbert Guðfinnsson spáir áframhaldandi vexti Sölumiðstöðv
vexti, þar sem við munum í auknum mæli þróa nýjar vörur og
löndum. Hins vegar mun það gerast með sameiningum v
Fram kom á aðalfundinum að SH muni ekki selja hlutabréf sí
næstu misserum en þar á félagið 15% eignarhlut. Ástæðan er sö
kanadískra stjórnvalda sem voru
Telur sterk
sameiningu S
Róbert Guðfinnsson,
stjórnarformaður SH,
segir sterk rök fyrir
sameiningu SH og
SÍF. Hann segir félög-
in ekki lengur í raun-
verulegri samkeppni
innanlands og sam-
einuð gætu félögin í
samkeppni við erlend
fyrirtæki aukið hagnað
sinn um allt að 50%.
’ Sameiginleguhagnaður félag
gæti aukist um
50% í kjölfar sa
einingar ‘