Morgunblaðið - 09.03.2002, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
RÓBERT Guðfinnsson, stjórnarfor-
maður Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, telur sterk rök vera fyrir
sameiningu SH og SÍF. Þannig gætu
félögin aukið sameiginlegan hagnað
sinn um 50% í kjölfar sameiningar.
Þetta kom fram í ræðu hans á aðal-
fundi SH í gær.
Róbert sagði í ræðu sinni að margt
hafi breyst í 60 ára sögu SH. Sam-
keppni stóru fisksölusamtakanna
væri ekki lengur raunveruleg á inn-
anlandsmarkaði, heldur snerist hún
um hylli viðskiptavinanna á erlend-
um mörkuðum. Þar væru hinsvegar
erlendir samkeppnisaðilar sífellt að
verða stærri og sterkari.
Í ljósi breytinga á rekstrarformi
íslensku fisksölufyrirtækjanna og
þróunar á mörkuðunum veltu æ
fleiri því fyrir sér hvers vegna ís-
lensku sölufyrirtækin SH og SÍF
taki ekki upp nánari samvinnu eða
hreinlega sameinist. Fyrirtækin
ættu ekki í raunverulegri samkeppni
hér innanlands og þau störfuðu á
svipuðum mörkuðum og samlegðar-
áhrif hlytu að vera veruleg.
„Ég verð að segja það sem mína
persónulegu skoðun, að við fyrstu
sýn eru rökin sem mæla með slíkri
sameiningu sterk. Mér kæmi til
dæmis ekki á óvart þótt sameiginleg-
ur hagnaður félaganna gæti aukist
um 50% í kjölfar slíkrar sameining-
ar,“ sagði Róbert.
Hagnaður SH meira en fjórfald-
aðist á síðasta ári og varð 641 milljón
króna, en hann var 152 milljónir árið
áður.
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
SÍF, segir að hugmyndir um samein-
ingu sölufyrirtækjanna séu ekki nýj-
ar af nálinni og hafi komið upp reglu-
lega síðustu tíu árin eða svo. „Fyrir
nokkrum árum var gerð tilraun til
þess að sameina SH og Íslenskar
sjávarafurðir (ÍS) sem ekki gekk. En
síðan gekk vel sameining SÍF, Ís-
landssíldar og ÍS undir hatti SÍF.
Fyrir liggur að töluverð samlegðar-
áhrif gætu orðið með sameiningu SH
og SÍF ef þau héldu öllum sínum við-
skiptum. Það hefur hins vegar ekk-
ert verið rætt og félögin eru í eðli
sínu og stefnu afar ólík og sameining
því ekki einfalt mál.
SÍF er að koma úr mjög viðamikl-
um sameiningum á síðustu tveimur
árum þar sem þrjú félög voru sam-
einuð á Spáni, þrjú í Frakklandi og
þrjú hér heima á Íslandi og það sýnir
sig að við þetta næst fram mikil hag-
ræðing hjá SÍF.“
Segir sterk rök mæla með sameiningu við SÍF
Telur hagnað geta
aukist um 50%
Sterk rök/34
VIÐRÆÐUR standa þessa dagana
yfir um yfirtöku bandaríska fyrir-
tækisins ResMed á Flögu hf. en
ResMed hefur um þriggja ára skeið
átt 10% eignarhlut í Flögu. ResMed
vinnur nú að því að gera öðrum
hluthöfum Flögu yfirtökutilboð í
hlutabréf þeirra. Fyrirhugað til-
boðsverð fæst ekki uppgefið.
Svanbjörn Thoroddsen, forstjóri
Flögu, segir viðræðurnar langt
komnar. Nú sé unnið að lögfræði-
legum atriðum hvað tilboðið varðar.
Hann gerir ráð fyrir að ResMed
muni að öllum líkindum gera hlut-
höfum Flögu tilboð og að það verði
þá lagt fram í byrjun apríl.
„Samstarf okkar við ResMed hef-
ur verið mjög náið á ýmsum sviðum
þau undanfarin þrjú ár sem liðin
eru frá því að þeir keyptu 10% hlut
í Flögu. Við lítum á þetta sem stað-
festingu á því að samstarfið hefur
gengið mjög vel,“ segir Svanbjörn.
Hann segir ennfremur að ef af yf-
irtöku verður muni Flaga verða
rekin sem sjálfstætt dótturfélag
ResMed. Ekki sé gert ráð fyrir
neinni breytingu á starfsemi félags-
ins. „Þvert á móti opnar þetta ýmis
tækifæri þar sem starfsfólk okkar
verður hluti af stóru og öflugu al-
þjóðlegu fyrirtæki.“ Flaga þróar,
framleiðir og selur um allan heim
tæki og hugbúnað til rannsókna á
svefntruflunum. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru 65 talsins og hluthafar
eru alls 435, þar á meðal eru flestir
starfsmanna.
ResMed framleiðir tæki til með-
ferðar á kæfisvefni og eru hlutabréf
félagsins skráð í NYSE-kauphöll-
inni í New York. Um 1.100 starfs-
menn starfa á vegum félagsins um
allan heim en markaðsvirði ResMed
nemur um 1,3 milljörðum Banda-
ríkjadala, sem svara til um 130
milljarða íslenskra króna.
ResMed undirbýr
yfirtöku á Flögu
Ekki gert ráð fyrir breytingum á starfsemi ef af yfirtöku verður
EINN lést og fjórir slösuðust í
mjög hörðum árekstri jeppa og
fólksbifreiðar um klukkan hálfátta í
gærkvöld, um það bil þrettán kíló-
metra austur af Selfossi, skammt
vestan við bæinn Bitru.
Að sögn vakthafandi læknis á
bráðamóttöku Landspítalans voru
farþegar annarrar bifreiðarinnar,
hjón með tvö börn, fyrst flutt á
Heilsugæsluna á Selfossi og síðan
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
bráðamóttökuna í Fossvogi. Enginn
úr fjölskyldunni reyndist þó vera
alvarlega slasaður.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Selfossi var þetta geysilega
harður árekstur en snjóþekja var á
veginum þar sem slysið átti sér
stað; varð það með þeim hætti að
tveir bílar, fólksbíll og jeppi, sem
fjölskyldan var í, komu úr gagn-
stæðri átt og skullu saman. Hálka
og skafrenningur var á þessum
slóðum og rann önnur bifreiðin til í
hálkunni og yfir á öfugan vegar-
helming.
Tafir á umferð
Töluverðar tafir urðu á umferð
vegna slyssins og mynduðust lang-
ar raðir á þjóðveginum enda mikil
umferð sumarhúsafólks á þessari
leið á föstudagskvöldum og hvarf
lögreglan á Selfossi ekki af vett-
vangi fyrr en um klukkan tíu í gær-
kvöld en þá var umferð komin í
eðlilegt horf.
Ökumaður fólks-
bifreiðar lést
Harður árekstur á Suðurlandsvegi
SÆUNN ÞORSTEINSDÓTTIR,
sautján ára íslenskur sellóleikari,
búsett í Bandaríkjunum, leikur ein-
leik með Des Moines-sinfóníunni í
dag og á morgun. Til þess heiðurs
vann hún með sigri sínum í yngri
deild Des Moines Young Artist
Competition og er hún fyrsti þátt-
takandi úr yngri deildinni sem
stjórnandi sinfóníunnar velur til að
leika einleik með hljómsveitinni.
Sæunn mun leika Shostakovich
sellókonsert nr. 1 með sinfón-
íuhljómsveitinni.
„Þetta er auðvitað í fyrsta skipti
sem ég spila einleik með alvöru sin-
fóníuhljómsveit,“ segir Sæunn sem
er full tilhlökkunar. En auk þess að
koma fram með Des Moines-
sinfóníunni mun hún einnig koma
fram í útvarpsþættinum From the
Top á útvarpsstöðinni National
Public Radio í dag. „Ég sendi inn
prufuspólu og var valin úr stórum
hópi fólks til að koma fram í þætt-
inum.“
Sigur Sæunnar í keppninni og
einleikur hennar með sinfón-
íuhljómsveitinni hefur vakið athygli
fjölmiðla í Bandaríkjunum og hafa
blaðagreinar og viðtöl við hana
birst á undanförnum dögum. Sæunn
stefnir á að koma til Íslands í sumar
og leika á sellóið sitt sem fiðlusmið-
urinn Hans Jóhannsson smíðaði.
Íslensk stúlka spilar með
Des Moines-sinfóníunni
Sæunn Þorsteinsdóttir
Með syngjandi/6
ÞETTA par lét kuldann ekki aftra
sér frá því að fá sér hressandi
göngutúr enda sú háfætta og sá
lágfætti bæði vel dúðuð og fær í
flestan sjó. Ekki var vitað hvort al-
klæðnaður þess lágfætta var heima-
gerður eða keyptur í tískuverslun
og má það raunar einu gilda.
Morgunblaðið/Kristinn
Kona,
hundur
og vetur
LÖGREGLAN á Blönduósi
stöðvaði í gær 20 ökumenn fyr-
ir of hraðan akstur á Norður-
landsvegi. Sá sem hraðast ók
var á 130 km hraða á klst. þeg-
ar hann lenti inn á radar lög-
reglunnar og fær sekt fyrir
aksturslagið. Umferð á Norð-
urlandsvegi var að þyngjast
talsvert undir kvöldið, að sögn
lögreglunnar.
Tekinn á 130
km hraða