Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra sagði á Alþingi í gær að það kæmi ekki til greina að Náttúru- vernd ríkisins drægi úr landvörslu á hálendinu. „Landvarsla er mjög mik- ilvæg og það á ekki að draga úr henni,“ sagði ráðherra. Tilefni þessara ummæla var fyr- irspurn Jóhanns Ársælssonar, þing- manns Samfylkingarinnar, um álit umhverfisráðherra á þeim fyrirætl- unum Náttúruverndar ríkisins að draga úr landvörslu á hálendinu. Í svari ráðherra kom fram að ráðu- neytið hefði fyrir skömmu fengið rekstraráætlun Náttúruverndar þar sem fram kæmi að ætlunin væri að draga úr landvörslu til að hagræða í rekstri sínum. Fram kom í máli ráð- herra að Náttúruvernd ríkisins væri að velta um 140 milljónum kr. á ári. Þar af væri kostnaður landvörslunn- ar um 10 milljónir kr. „Það er alveg ljóst að ég mun ekki samþykkja það að dregið verði úr landvörslunni,“ sagði ráðherra. „Það er ekki í anda þeirrar stefnumörkunar sem við höf- um markað.“ Ráðherra sagði að Náttúruvernd ríkisins yrði að finna aðrar leiðir til að draga úr rekstr- arkosnaði, t.d. með því að hagræði á skrifstofu Náttúruverndar í Reykja- vík. „Það er ljóst að landvarslan er mjög mikilvæg, ferðamannastraum- urinn verður æ meiri þannig að við drögum ekki úr landvörslunni.“ Umhverfisráðherra Vill ekki draga úr landvörslu KATRÍN Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er fyrsti flutnings- maður tillögu til þingsályktunar Al- þingis um úttekt á óhreyfðum skip- um í höfnum og skipsflökum og kostnað við hreinsun þeirra. Meginefni tillögunnar er að Al- þingi álykti að fela umhverfisráð- herra að láta kanna fjölda óhreyfðra, úreltra skipa í höfnum landsins, svo og fjölda strandaðra skipa og skips- flaka nálægt landi, kostnað við að flytja þau burt og endurvinna brota- málm, timbur og plast úr skips- skrokkunum. Meðflutningsmenn tillögunnar eru Ásta Möller, Gunnar I. Birgis- son, Kristján Pálsson, Guðjón Guð- mundsson, Guðmundur Hallvarðs- son og Einar Oddur Kristjánsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Í greinargerð tillögunnar segir m.a. að umhverfis landið, jafnt í höfnum sem annars staðar, sé að finna óhreyfð skip, úrelt, ónýt og jafnvel án eigenda. Enginn vilji væri hins vegar fyrir því að fjarlægja úr sér gengna skipsskrokka sökum þess hve kostnaðarsamt það væri talið vera. „Ekki hefur verið lagt mat á hve verðmætt efnið í þessum skip- um og bátum kynni að vera, en kostnaður við að flytja efnið í mót- tökustöð til endurvinnslu hefur vaxið mönnum í augum og orðið til þess að enginn úrlausn hefur fundist. Þannig er um óleyst umhverfisvandamál að ræða,“ segir í greinargerðinni. Þar segir enn fremur að skv. upplýsing- um hafnarstjórans í Reykjavík væru engin ónýt skip í Reykjavíkurhöfn, en þar væru nokkur verkefnalaus skip sem þó væri vel við haldið. Úttekt á óhreyfð- um skipum Morgunblaðið/Kristinn Í mörgum höfnum landsins eru úrelt skip og önnur sem staðið hafa óhreyfð svo árum skiptir. Kostnaðarsamt er að koma þeim í endurvinnslu. VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, gagnrýnir á heimasíðu sinni leiðara Morgunblaðs- ins sl. föstudag og sunnudag sem fjalla um dreifða eignaraðild að bönk- um. Segir ráðherrann m.a. að leiðara- höfundur fullyrði að lagasetning sín um eftirlit með virkum eignar- hlutum í fjármála- stofnunum hafi ekki haft nein áhrif. „Þetta tel ég að byggist á mis- skilningi. Það er alls ekki komin næg reynsla á þessi lög,“ segir hún. Í upphafi greinarinnar á heimasíðu sinni segir ráðherrann að í leiðaran- um hafi ekki verið minnst á viðskipta- ráðuneytið sem fari með þennan málaflokk og hafi undirbúið tillögu til úrbóta sem samþykkt hafi verið af fulltrúum allra flokka á Alþingi fyrir tæpu ári og vísar ráðherrann þar til lagaákvæða um eftirlit með virkum eignarhlutum í fjármálastofnunum. „Ég undrast það að Morgunblaðið hefur aldrei séð ástæðu til að fjalla um þá greinargóðu skýrslu sem unnin var af viðskiptaráðuneytinu um þá möguleika sem væru fyrir hendi til þess að taka á þessu mikilvæga máli sem snertir lánastofnanir og eignar- aðild að þeim. Skýrslan birtist sem fylgirit með frumvarpinu um eftirlit með virkum eignarhlutum og var grunngagn í tengslum við ákvarðana- töku af hálfu ráðuneytisins, ríkis- stjórnarinnar og Alþingis í málinu. Auðvitað vildi ég skoða þann mögu- leika til hlítar og binda í lög takmark- anir á eign í lánastofnunum og því var lagt í mikla vinnu af hálfu ráðuneyt- isins til að grandskoða allar leiðir. Það þýðir hins vegar ekki að berja höfðinu við steininn og láta eins og við séum eyland í þessum efnum. Í skýrslunni kemur fram hvaða leiðir eru færar, reifaðir kostir þeirra og gallar, greint frá því hvaða leiðir aðrar þjóðir hafa farið, hverjar reglurnar eru í samn- ingnum um Evrópska efnahagssvæð- ið o.s.frv.“ Viðskiptaráðherra segir að í banka- tilskipunum Evrópusambandsins sé kveðið á um að fjármálaeftirlit skuli meta hæfi eigenda virkra eignarhluta í lánastofnunum, þeirra sem eiga meira en 10%. Um þetta hafi verið sett viðamikil ákvæði í íslensk banka- lög þar sem Fjármálaeftirlitið geti m.a. tekið atkvæðisrétt af þeim sem fari þannig með hlut sinn að það skaði heilbrigðan og traustan rekstur við- komandi lánastofnunar. Segir hún löggjöf annarra EES-ríkja með líkum hætti en Noregur sé undantekningin. Þar sé kveðið á um að enginn megi eiga meira en 10%. „Þetta komast Norðmenn ekki upp með. ESA hefur haft þessar takmarkanir Norðmanna til skoðunar í nokkurn tíma og gefið út þá skoðun sína að takmörkunin brjóti í bága við 40. gr. EES-samn- ingsins og sé í andstöðu við banka- tilskipunina. Norska fjármálaráðu- neytið hefur nú ákveðið að leggja til að þessar takmarkanir verði afnumd- ar í stað þess að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn. Í stað þess verða sett lög lík þeim sem við settum í fyrra,“ segir ráðherrann. Í lok greinarinnar segist Valgerður Sverrisdóttir að sjálfsögðu fylgjandi dreifðri eignaraðild að lánastofnun- um. „Ég var fylgjandi því að skoða þann möguleika til hlítar hvort ekki væri rétt að setja takmarkanir á eign- arhluti í lánastofnunum. Niðurstaðan eftir vandlega yfirlegu var sú að setja þess í stað efnismeiri ákvæði um eft- irlit Fjármálaeftirlitsins með eigend- um virkra eignarhluta. Sú leið er í samræmi við það sem almennt tíðkast í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Síðan lögin voru sett í fyrra hefur það komið í ljós að við fór- um rétta leið. Sú leið að setja beinar takmarkanir á eignarhluti brýtur í bága við alþjóðlegar skuldbindingar okkar, hvort sem Mogganum líkar það betur eða verr.“ Viðskiptaráðherra gagnrýnir leiðara Morgunblaðsins um dreifða eignaraðild fjármálastofnana Stríðir gegn alþjóðleg- um skuldbindingum Valgerður Sverrisdóttir ELLERT Sölvason, sem fleiri kannast trú- lega við undir nafninu Lolli í Val, lést á Landspítalanum sl. föstudag á 85. aldurs- ári. Ellert fæddist á Reyðarfirði 17. desem- ber 1917 en fluttist tveggja ára til Reykja- víkur og var alinn upp á Óðinsgötu. Lolli gekk í ÍR á níunda aldursári og æfði fim- leika með félaginu. Árið 1931 gekk hann í Val og æfði hann knatt- spyrnu með félaginu í áraraðir. Sumarið 1935 hóf hann að leika með meistaraflokki og varð sjö sinnum Íslands- meistari með félaginu. Einnig lék hann með félaginu í keppnisferð- um erlendis og tvisvar var hann lánaður til Víkings í keppni er- lendis. Árið 1951 lagði Lolli í Val skóna á hilluna en hafði áfram afskipti af knattspyrnu. Stund- aði hann m.a. þjálfun um árabil víða um land og hélt námskeið á vegum Knatt- spyrnusambands Íslands. Ellert Sölvason Andlát ELLERT SÖLVASON TÖLUVERÐAR skemmdir urðu í þremur íbúðum í Logalandi í Fossvogi í gær þegar eldur kom upp í kjallaraíbúð þar. Reykur barst frá íbúðinni yfir í hinar íbúðirnar og hlutust skemmdir af hans völdum. Ein kona var inni í kjallaraíbúð- inni sem kviknaði í en ekki reynd- ist þörf á að flytja hana á sjúkra- hús með sjúkrabifreið. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst til- kynning um eldinn kl. 16.28 og var það um klukkustund að slökkva eldinn, sem var töluverð- ur þegar að var komið. Ekki er vitað um eldsupptök, en lögreglan hefur tekið tildrög eldsins til rannsóknar. Morgunblaðið/Ásdís Enginn slasaðist í eldsvoðanum en talsverðar reykskemmdir urðu. Kviknaði í kjallaraíbúð Samþykkt að sameina Húsavík og Reykjahrepp SAMEINING Húsavíkurkaupstað- ar og Reykjahrepps var samþykkt í kosningum sl. laugardag. Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, segir þetta þýða að í vor verði til nýtt sveitarfélag með sameinaðri sveitar- stjórn sem taki til starfa 9. júní. Kosningin fór þannig að á Húsavík kusu 558 af 1.688 sem voru á kjör- skrá eða rúm 33%. Já sögðu 515 eða yfir 92%, nei sögðu 40 sem er 7,17% og auðir seðlar og ógildir voru 3. Í Reykjahreppi kusu 58 af 69 sem á kjörskrá voru. Samþykkir samein- ingu voru 35 eða rúm 60%, en nei sögðu 23. Íbúafjöldi á Húsavík er rúmlega 2.400 og í Reykjahreppi búa 100 manns. Reinhard segir að þótt sam- einingin sé ekki stór í sniðum skipti hún miklu máli. Þarna sameinist þéttbýli og dreifbýli og telur hann það geta orðið undanfara frekari sameiningar nágrannabyggða í dreifbýli við þetta sameinaða sveit- arfélag í næstu framtíð. Settur forstjóri Þjóðhags- stofnunar FORSÆTISRÁÐHERRA hefur sett Sigurð Guðmundsson skipu- lagsfræðing til að taka tímabundið við embætti forstjóra Þjóðhags- stofnunar. Þórði Friðjónssyni, forstjóra stofn- unarinnar, hefur verið veitt lausn að eigin ósk frá 31. mars næst- komandi. Í frétt frá for- sætisráðuneyt- inu kemur fram að unnið hafi verið að undan- förnu að breyttri verkaskiptingu stofnana ríkisins á sviði efnahags- mála. Um sé að ræða viðamikla endurskipulagningu sem lúti eink- um að því að færa verkefni Þjóð- hagsstofnunar til annarra stofn- ana. Þegar ljóst verði hvernig því verði hagað í einstökum atriðum verði frumvarp þar að lútandi lagt fyrir Alþingi. Sigurður Guðmundsson er settur í embættið til þriggja mánaða með- an unnið er að undirbúningi áður- nefndra breytinga. Sigurður hefur starfað á Þjóðhagsstofnun undan- farin þrjú ár en hann var áður starfsmaður Byggðastofnunar. Sigurður Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.