Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT könnun Gallup á áfengis- og vímuefnaneyslu Íslend- inga telur 51% svarenda að það eigi að leyfa sölu á léttvíni og bjór í mat- vörubúðum. Þetta er töluvert lægra hlutfall en fékkst í nýlegri könnun PricewaterhouseCoopers, en þar kom fram að 67% svarenda voru fylgjandi sölu áfengs bjórs og léttvíns í matvöruverslunum. Könnun Gallup var gerð fyrir Áfengis- og vímuvarnaráð í nóvem- ber 2001 og er að hluta til sambærileg könnunum sem gerðar voru árin 1984 og 1992. Eftir á að vinna samanburð á könnunum þessum. Mun lægra hlutfall svarenda er hlynnt því að selja eigi sterkt áfengi í matvöruverslunum, eða 11%, og 81% sagðist vera því andvígt. Í könnuninni var einnig spurt um notkun og viðhorf til fíkniefna og sýna niðurstöður að 7% svarenda voru hlynnt því að leyfa neyslu hass á Íslandi en 88% sögðust vera því and- víg. „Það er mjög gleðilegt fyrir okkur hversu fólk er andvígt lögleiðingu hass og því að selja sterkt vín í mat- vöruverslunum,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir hjá Áfengis- og vímu- varnaráði. „Þá fannst okkur mjög at- hyglisvert að það er miklu lægra hlut- fall úr þessari könnun sem er fylgjandi því að áfengi fari í matvöru- búðir en í nýlegri könnun Pricewater- houseCoopers.“ Rúmlega 23% þátttakenda hafa einhvern tíma notað eða prófað hass eða marijúana og um 7,5% amfetamín eða kókaín. E-töflu sögðust 2,3% hafa notað eða prófað. Heil 42% segjast hins vegar þekkja einhvern sem hef- ur prófað eða notað ólögleg vímuefni síðustu tólf mánuði. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur í ljós að 66,4% aðspurðra hafa notað verkjalyf á síðustu tólf mánuð- um. „Nú er talað um vímuefni í víðara samhengi en oft áður,“ segir Þor- gerður. „Sumir nota verkjalyf sem vímugjafa og það var ákveðið í þess- ari könnun að spyrja mjög breitt.“ Einnig var spurt um notkun ann- arra lyfja og sögðust 13% svarenda hafa notað svefnlyf á síðustu tólf mánuðum, 8,3% þunglyndislyf og 6,9% kvíðalyf. Hefur áfengisneysla þín haft skaðleg áhrif á hjónabandið? Í könnuninni er spurt út í ýmsa skaðsemisþætti af völdum áfengis- neyslu. „Það verður fróðlegt að sjá hvaða raun sú greining gefur, en það á eftir að vinna úr þeim gögnum að fullu,“ segir Þorgerður. „Þá er hluti spurninganna sambærilegur útlend- um könnunum og það verður spenn- andi að sjá hvaða raun það gefur líka.“ Tæplega 7% svarenda hafa ein- hvern tímann leitað sér aðstoðar vegna áfengisneyslu sinnar en aðeins 3,8% telja þó áfengisneyslu sína vera vandamál. Þá var spurt í könnuninni hvort maki hefði á síðustu tólf mán- uðum reynt að fá viðkomandi til að draga úr eða hætta neyslu áfengis og svöruðu rúmlega 7% því játandi. Um 5% sögðu aðra fjölskyldumeðlimi hafa reynt að fá þá til þess sama. Tæplega 4% þeirra sem neyta áfengis hafa tekið þátt í slagsmálum eftir að hafa neytt áfengis á undanförnum tólf mánuðum og er þátttaka í slags- málum algengust hjá aldurshópnum 18–24 ára. Það vekur athygli að rúm- lega 25% þátttakenda sögðust hafa orðið fyrir áreitni af hendi drukkins fólks úti á götu eða almannafæri sl. tólf mánuði. Þá telja 7,4% þátttak- enda að áfengisneysla þess hafi haft skaðleg áhrif á hjónaband eða náið samband annað en vinasamband und- anfarna tólf mánuði. Rétt tæpur fjórðungur þeirra sem neyta áfengis sagðist hafa drukkið heimatilbúið áfengi undanfarið ár. Neysla heimatilbúins áfengis var al- gengari meðal karla en kvenna og unga fólkið drekkur meira af slíku áfengi en það eldra. Þá sögðust 10% þeirra sem neyta áfengis hafa ekið undir áhrifum þess einhvern tímann undanfarna tólf mánuði. Á að herða refsingar til að ná meiri árangri í forvörnum? Um 27% þátttakenda könnunar- innar reykja. Á hinn bóginn var tölu- verður munur á tíðni reykinga eftir menntun. Til dæmis reykja aðeins 14% þeirra sem lokið hafa háskóla- prófi en sú tala hækkar í 36% á meðal þeirra sem eingöngu hafa lokið grunnskóla. „Í útlöndum hefur hlut- fall reykinga farið eftir félagslegri stöðu fólks, ég veit ekki hvort þetta er vísbending um að svo sé einnig hér á landi,“ segir Þorgerður. Einnig var spurt um viðhorf til for- varna. „Töluverð umræða hefur verið um það í fjölmiðlum að fólk krefjist hertra refsinga. En það kemur í ljós í þessari könnun að fólk er alls ekki hlynnt því að herða refsingar,“ segir Þorgerður. Flestir þátttakendur telja að forvarnir meðal barna og unglinga skili bestum árangri í baráttunni gegn fíkniefnum en aðeins 9,6% telja hertar refsingar bestu forvörnina. Áfengis- og vímuvarnaráð leggur áherslu á forvarnir barna og ung- linga. „Ekki síst í gegnum foreldra með aðstoð stofnana svo sem heilsu- gæslu, skóla, félagsþjónustu og íþrótta- og æskulýðsstarfsemi,“ út- skýrir Þorgerður. „Við höfum reynt að hafa áhrif á að sveitarstjórnir hugi að forvörnum í nærumhverfi sínu og reyni að taka ákvarðanir með tilliti til forvarna.“ Ráðið hefur umsjón með forvarna- sjóði. Hann er notaður til ýmissa ný- sköpunarverkefna á sviði forvarna. „Við reynum að leggja áherslu á að peningarnir nýtist sem næst grasrót- inni, í beinu starfi með börnum og unglingum.“ Stærstu verkefnin sem hafa verið styrkt af forvarnasjóði eru samstarfs- verkefni sveitarfélaga, SÁÁ og heil- brigðisráðuneytisins og verkefnið Ís- land án eiturlyfja sem lauk á dögunum. Árangur af þessum báðum verkefnum hefur verið metinn. „Það sem er gott við matið er að glögglega má sjá hvaða þættir takast vel og hvað hefði mátt betur fara. Miðað við niðurstöður mats á verkefninu Ísland án eiturlyfja tel ég að aðstandendur þess megi vel við una. Við munum læra af fyrri reynslu og halda áfram með það sem hefur reynst vel.“ Úrtak könnunarinnar var 4.000 manns á aldrinum 18–75 ára. Helm- ingur úrtaksins fékk spurningalista sendan í pósti en hinn helmingurinn var spurður í síma. Svarhlutfall úr póstkönnun var 56,3% og úr síma- könnun 71%. 51% hlynnt sölu bjórs og léttvíns í matvörubúðum samkvæmt nýrri könnun Gallup 25% verið áreitt af drukknu fólki NÚ standa yfir sýningar Ljósmynd- arafélags Íslands og Félags blaða- ljósmyndara í Gerðarsafni í Kópa- vogi. Við opnunarathöfn sl. laugar- dag voru félögum í báðum félögun- um veittar viðurkenningar fyrir bestu myndirnar í ýmsum flokkum og bestu myndina á hvorri sýningu um sig. Auk áðurnefndra sýninga sýnir Sigurður Jökull Ólafsson ljós- myndari myndaröð. Á myndinni eru frá vinstri: Hreinn Hreinsson á Fróða, Þorvaldur Örn Kristmundsson, DV, Gunnar V. Andrésson, DV, Bragi Þór Jósefs- son, Fróða, Gunnar Gunnarsson hjá Fróða, Kjartan Þorbjörnsson, Morg- unblaðinu, Arnaldur Halldórsson, sem átti bestu mynd á sýningu Ljós- myndarafélagsins, Inger Helene Bóasson, Kristinn Ingvarsson, Morg- unblaðinu, og Gréta S. Guðjóns- dóttir. Myndir verðlaunaðar á sýningu Morgunblaðið/Ásdís AÐALHEIÐUR Birgisdóttir, fram- kvæmdastjóri SMS-samskipta með síma á Stöðvarfirði, segist undrandi á þeim málalyktum sem urðu eftir beiðni hennar til Alþingis um verk- efni í rafrænni ræðuritun þing- manna. Hún segist hafa sent forsæt- isnefnd Alþingis þrjú bréf í janúar, febrúar og október 2001, en aldrei fengið formlegt svar frá nefndinni. Hins vegar hafi Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sent sér bréf þar sem hann tjáir henni að hann hafi ekki fundið nein verkefni á Alþingi sem sé hægt að vinna á Stöðvarfirði. Hann muni hins vegar taka málið upp eftir hálfan mánuð. „Síðan hélt Halldór Blöndal opin- beran fund hér í janúar eða febrúar sl. og segir mér að hingað sé að koma eitt starf í símsvörun fyrir Al- þingi og skönnun á þingskjölum muni fara fram í Ólafsfirði. Ég gerði mér hins vegar ekki grein fyrir því að um væri að ræða þrjú störf til þriggja ára sem hann ætlaði að flytja til Ólafsfjarðar og er eilítið undrandi á þessum málalyktum,“ segir Aðal- heiður. SMS var stofnað í apríl á síðasta ári en áður hafði verið starfrækt á Stöðvarfirði Íslensk miðlun, sem varð gjaldþrota. Hjá fyrirtækinu hafa starfað frá fimm og upp í fimm- tán manns, á tvískiptum vöktum, gegnum tíðina. Í dag vinnur Aðal- heiður ein hjá fyrirtækinu þar til mál skýrast og verkefnastaðan lagast. Fyrirtækið tekur að sér skráningu á hvers kyns gögnum, einnig skönnun, símsvörun, úthringingar, auglýs- ingasöfnun o.fl. Hugmynd að skönnun Alþingis- tíðinda komin upp fyrir 1999 Halldór Blöndal segir að þegar hann var kosinn forseti Alþingis árið 1999 hafi verið komin upp sú hug- mynd hvort rétt væri að skanna gömul Alþingistíðindi og um það vitni m.a. minnisblað frá 22. júní 1999. „Á hinn bóginn hóf Íslensk miðlun á Stöðvarfirði starfsemi í ágúst á sama ári. Það er því augljóst mál að við vorum farnir að vinna að því að undirbúa skönnun á Alþing- istíðindum áður en við fengum slíkar leiðbeiningar frá Íslenskri miðlun á Stöðvarfirði,“ segir Halldór. Að- spurður hví Aðalheiður hafi ekki fengið svör frá forsætisnefndinni bendir Halldór á að hann hafi skrifað henni bréf og talað við hana í síma. Bendir hann á að rétt um þremur mánuðum eftir að hann fékk bréf frá henni hafi hann átt fund með henni og sveitarstjóra á Stöðvarfirði og einhvern tíma á síðasta ári hafi hann sent henni handskrifað bréf og sagst vera að vinna að hennar máli. Halldór segir Ólafsfirðinga og Hríseyinga hafa staðið frammi fyrir miklum vanda eftir að rekstur Sæ- unnar Axels lagðist niður í desember 1999 og KEA lokaði frystihúsi sínu í Hrísey í febrúar 2000. „Á þessum tíma var haldinn mjög fjölmennur fundur á Ólafsfirði þar sem ég lýsti því yfir að ég vildi vinna að því að reyna að koma fjarvinnslu- verkefnum til Ólafsfjarðar. Við höf- um unnið að því að koma þessu máli fram og vorum auðvitað byrjaðir að tala um það í tengslum við það at- vinnuleysi sem var, en Íslensk miðl- un rak fyrirtæki á Ólafsfirði og Hrís- ey á þessum tíma. Ef við horfum á atvinnuleysistölur nú í janúarmán- uði, þá eru tíu manns atvinnulausir í Hríseyjarhreppi, 59 á Ólafsfirði en enginn á Stöðvarfirði, sem auðvitað skýrir það sem ég hef áður sagt að það er eðlilegt að maður skuli hafa horft til þess hvort maður geti með einhverjum hætti styrkt atvinnu- grundvöllinn í Ólafsfirði og Hrísey. Á hinn bóginn höfðum við talað um að reyna að styrkja fyrirtækið á Stöðvarfirði með því að flytja þang- að starf í símsvörun, sem var eitt af því sem Aðalheiður stakk upp á,“ segir Halldór og bætir við að á fundi forsætisnefndar í haust hafi form- lega verið gengið frá því að skönnun alþingistíðainda færi fram á Ólafs- firði og að ráðið yrði í eitt símsvör- unarstarf fyrir Alþingi á Stöðvar- firði. Framkvæmdastjóri SMS-samskipta með síma á Stöðvarfirði Undrandi á málalyktum Halldór Blöndal, forseti Alþingis, segir mikið atvinnuleysi í Hrísey og á Ólafsfirði en ekkert á Stöðvarfirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.