Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss, Richmond
Park, Ice Lady, Magn
og Arnarfell koma í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom í gær,
Pólar Siglir og Ocean
Tiger koma í dag,
Klyuchevsk. Sopka fór í
gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðju- og
fimmtudaga kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl 10 boccia, kl.
10 enska, kl. 11 enska
og dans Lance, kl. 13
vinnustofa, postulíns-
málning og bað.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. All-
ar upplýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna,
kl. 10–17 fótaaðgerð, kl.
10 sund, kl. 13 leirlist.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga föstudaga
kl. 11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund,
kl.14 félagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fótaaðgerða-
stofan verður lokuð
óákveðinn tíma vegna
veikinda.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids,
nýir spilarar velkomnir,
saumar undir leiðsögn
og frjáls handavinna kl.
13:30. Spænska kl.
16:30. Í fyrramálið er
línudans kl. 11. Á
fimmtudag verður opið
hús í boði Sjálfstæð-
isfél. í Hafnarfirði.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi, blöðin
og matur í hádegi.
Þriðjudagur: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30. Leikfélagið Snúð-
ur og Snælda sýnir í
Ásgarði í Glæsibæ, söng
og gamanleikinn „Í lífs-
ins ólgusjó“ Og „Fugl í
búri“ dramatískan gam-
anleik. Sýningar: Mið-
viku- og föstudaga kl.
14 og sunnudaga kl. 16.
Miðapantanir í s: 588-
2111, 568-8092 og
551-2203. Miðviku-
dagur: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Ásgarði Glæsibæ kl. 10.
Söngfélag FEB kór-
æfing kl. 17.
Línudanskennsla fellur
niður. Söngvaka kl.
20.45 stjórnandi Anna
Danielssen umsjón
Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir.
Heilsa og hamingja,
fyrirlestrar laugardag-
inn 16. mars nk. kl.
13.30 í Ásgarði 1:
Minnkandi heyrn hjá
öldruðum. 2: Alzheim-
ersjúkdómar og minn-
istap. Framtalsaðstoð
frá Skattstofu Reykja-
víkur verður þriðjudag-
inn 19. mars, panta þarf
tíma. Sparidagar á Örk-
inni 14.–19.apríl, skrán-
ing á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
f.h. í síma 588-2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Félagsstarfi Sléttuvegi
11–13. Vegna afmælis
Þorgerðar Sveinsdóttur
stendu sýning á verkum
hennar uppi í fé-
lagsmiðstöðinni frá kl.
10–16, dagana 11 til 13.
mars. Allir velkomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16. 30 vinnustofur
opnar, m.a. glerskurður
umsjón Helga Vilmund-
ardóttir, kl. 13 boccia,
veitingar í vetingabúð
Aðstoð við skattframtal
verður veitt miðviku-
daginn 20. mars, skrán-
ing hafin. Fimmtudag-
inn 21. mars verður
félagsvist í samstarfi
við Hólabrekkuskóla.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10 handa-
vinna, kl. 14
þriðjudagsganga og
boccia, kl. 16.20 og kl.
17.15 kínversk leikfimi,
kl. 19 brids. Handverks-
markaður verður
fimmtudaginn 14. mars
kl. 14–16. Panta þarf
borð sem fyrst.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–17 hárgreiðsla.
Háteigskirkja eldri
borgara á morgun mið-
vikudag, samvera, fyr-
irbænastund í kirkjunni
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Félagsstarfið
er opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl.9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð, kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
ITC-Melkorka. Afmæl-
isfundur í tilefni 20 ára
afmælis deildarinnar
verður fundur miðviku-
daginn 13. mars kl. 20 í
Borgartúni 22, 3. hæð.
Allir velkomnir. Til-
kynna þarf komu sína
til Fanneyjar, s.
568 7204, Ásgerðar, s.
567 0405, eða Jóhönnu,
s. 553 1762. Heimasíða
ITC: www.simnet.is/itc
www.itcmelkorka.-
tripcod.com.
Sinawik í Reykjavík.
Hattafundur í kvöld 12.
mars kl. 20 í Sunnusal
Hótel Sögu gestur
fundarins er Helga
Braga.
Þjóðdansafélag Reykja-
víkur. Síðasta opna
húsið í vetur verður í
kvöld 12. mars í Álfa-
bakka 14a, kl. 20.30–23.
Gömlu dansarnir og
kleinukaffi.
Í dag er þriðjudagur 12. mars, 71.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Lát bæn mína koma fyrir þig,
hneig eyra að hrópi mínu, því að
sál mín er mett orðin af böli, og
líf mitt nálægist Hel.
(Sálm. 81, 7.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 bréfbera, 4 ósannindi, 7
þekkja, 8 ber, 8 verkfæri,
11 sefar, 13 lof, 14 grísk-
ur bókstafur, 15 flutning,
17 ófögur, 20 beita, 22
munnbita, 23 kynið, 24
þekkja, 25 hellti öllu úr.
LÓÐRÉTT:
1 laumuspil, 2 sól, 3 geð, 4
gleðskap, 5 beljaki, 6
agnar, 10 frek, 12 borg,
13 mann, 15 févana, 16
Æsir, 18 viðurkennum,
19 þyngdareiningu, 20
skynfæri, 21 nægilegt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 ofurhugar, 8 efnuð, 9 dapur, 10 una, 11 glaum,
13 rýran, 15 hafts, 18 safna, 21 átt, 22 áleit, 23 aðals, 24
okurkarls.
Lóðrétt: 2 fenna, 3 ráðum, 4 undar, 5 Alpar, 6 deig, 7
grun, 12 urt, 14 ýsa, 15 hrár, 16 flekk, 17 sátur, 18 staka,
19 fjall, 20 ansa.
Víkverji skrifar...
Í NÝJASTA hefti Mannlífs erskemmtileg grein um Njálsgötuna
eftir Auði Haralds rithöfund. Víkverji
las greinina með ánægju en hitt þótti
honum skrýtið, að meiripartur mynd-
anna, sem henni fylgja, er ekkert frá
Njálsgötunni. Ein myndin er augljós-
lega af húsi á Njálsgötu og kannski
önnur til, en þarna er líka mynd af
rauðu húsi við Bergstaðastræti og
önnur af póstkassa við sömu götu.
Svo er mynd af grænu húsi við
Grundarstíg og þar sem fjallað er um
bílskúra og bíslög birtist ekki mynd af
bílskúr á Njálsgötu, heldur á Spítala-
stíg! Njálsgatan er merkisgata en er
þetta nú ekki óþörf útþenslustefna?
x x x
VÍKVERJI heyrði ágæta sögu afungum knattspyrnuáhuga-
manni, sem hefur fylgst vel með öll-
um íþróttafréttum frá blautu barns-
beini, veit nákvæmlega hver staðan
er í ensku knattspyrnunni hverju
sinni og þekkir knattspyrnuliðin í
efstu deildinni út og inn. Svo fór
landafræðikunnátta piltsins vaxandi
og hann fór að gruna að England
myndi vera ennþá merkara knatt-
spyrnuland en hann hafði ætlað. Þó
þótti honum vissara að spyrja föður
sinn: Pabbi, af hverju heita allar borg-
irnar í Englandi eftir fótboltaliðum?
x x x
EINN af meginkostum við tilkomutónlistarsjónvarpsstöðvarinnar
íslensku Popptíví er sá að nú er loks-
ins kominn vettvangur fyrir flutning
íslenskra tónlistarmyndbanda en hin-
ar sjónvarpsstöðvarnar voru svo að
segja steinhættar þeim flutningi. Já-
kvæðra áhrifa stöðvarinnar er líka
þegar farið að gæta því nú líta flestir
popparar á það sem sjálfsagðan hlut
að gera myndband við lögin sín – þeg-
ar einhver er til í að koma þeim á
framfæri. Og allir græða. Poppararn-
ir ná til fleiri eyrna og augna, útgef-
endur selja fleiri plötur og tónlistar-
áhugamenn fá loks að sjá meira
íslenskt tónlistarefni í sjónvarpinu.
x x x
ÞAÐ má og segja aðstandendumPopptíví til hróss að þeir hafa
ekki einasta leikið myndbönd hinna
ráðsettari poppara í landinu heldur
einnig tekið framlagi hinna ungu og
efnilegu opnum örmum. Eitt þessara
myndbanda, sem mikið hefur verið
leikið upp á síðkastið og nýtur klár-
lega mikilla vinsælda, er flutt af ung-
um og hæfileikaríkum krökkum sem
Víkverji kann því miður ekki að
nefna. Lagið heitir hins vegar
„Hverju hef ég að tapa?“ og í því
syngur stúlka nokkur grípandi viðlag
af mikilli innlifun, á milli þess sem
a.m.k. tveir piltar rappa vígalega til
skiptis. Þetta er hið skemmtilegasta
lag og til fyrirmyndar að listamenn-
irnir skuli hafa kosið að semja við það
íslenskan texta. Það er þó stór galli á
gjöf Njarðar. Í viðlaginu, þegar stúlk-
an syngur síendurtekið á góðri og
gildri íslensku: „Hverju hef ég að
tapa?“, muldra drengirnir í svölum
stíl rapparanna og henni til fulltingis:
„HVAÐ hef ég að tapa?“ Sú setning
verður seint talin til íslenskrar tungu
og mesta synd að svo meinleg mál-
farsvilla slæðist inní annars grípandi
lagstúf. Skýringin á misfellunni er
vafalítið sá ljóti óvani sem við mör-
landar virðumst hafa átt við að glíma í
síauknum mæli – tilhneigingin að vilja
mynda setningar undir áhrifum
enskrar tungu.
Að borga
fyrir sig
KONA hafði samband við
Velvakanda vegna pistils
sem Hjalti skrifar í Velvak-
anda sl. sunnudag, „Að
borga fyrir sig“. Í pistli
Hjalta kemur fram sú hug-
mynd að fólk borgi fyrir
veitingar í erfidrykkjum.
Er þessi kona hjartanlega
sammála Hjalta og hvetur
hún presta landsins að
ganga fram fyrir skjöldu
um að þessu verði breytt.
Mættu þeir t.d. benda fólki
á að hægt sé að hittast eftir
athöfnina á tilteknum stað
í kaffi og borgi þá hver fyr-
ir sig. Segir þessi kona að
hún og eiginmaður hennar
séu að mestu hætt að mæta
í erfidrykkju nema hjá sínu
nánasta því þau viti að fólk
standi uppi með skuldir á
bakinu eftir útfarir.
Segir hún að það sé eng-
um ofviða að borga fyrir
sitt kaffi.
Hollt að horfast
í augu við afleiðingar
ÉG hlustaði á Ísland í bítið
einn morguninn þar sem
rætt var við dæmdan
glæpamann. Hann kvart-
aði undan ýmsu á Hraun-
inu. Mér er til efins að
fangar kæmu betri menn
út úr fangelsi þótt enda-
laust væri dælt fé í þeirra
þágu. Fara ekki milljarðar
króna í fangelsismál? Er
endalaust hægt að heimta
fé af skattborgurunum?
Væri ekki rétt að Ísland í
bítið fengi til sín í viðtal
einn þeirra þúsunda
manna sem orðið hafa fórn-
arlömb glæpamanna til að
grennslast fyrir um hvern-
ig þessu fólki gengur að
vinna úr þeim hremming-
um sem það hefur orðið
fyrir. Ég held að föngum,
sem öðrum, væri hollt að
horfast í augu við afleiðing-
ar gjörða sinna. Siðferði
batnar ekki með stanslaus-
um kröfum til annarra.
Skattgreiðandi.
Tapað/fundið
Loðhúfa
í óskilum
LOÐHÚFA, karlmanns, er
í óskilum í Alþingishúsinu.
Upplýsingar í síma 563-
0506.
Svart seðlaveski
týndist
SVART seðlaveski með
áfastri buddu týndist sl.
fimmtudag, líklega í Kjöt-
höllinni eða í Hagkaup í
Skeifunni.
Skilvís finnandi skili
veskinu til lögreglunnar.
Lyklakippa
í óskilum
LYKLAKIPPA með mörg-
um lyklum á er óskilum í
afgreiðslunni á Aflagranda
40.
Dýrahald
Kisa
í óskilum
KISAN, sem meðfylgjandi
mynd er af, var á vergangi
á Laugaveginum á laugar-
dagskvöldið 2. mars sl.
Hún var mjög horuð og
vildi ólm komast heim með
einhverjum svo við fórum
með hana heim og höfum
fóstrað hana síðan. Við höf-
um líka haft samband við
Kattholt og látið þau vita.
Þetta er ógeltur fress sem
er u.þ.b. 4ra mánaða gam-
all, ljósgulur með hvítt í sér
eins og sést á myndinni.
Hann er óskaplega mann-
elskur og góður og malar
út í eitt. Hann er ómerktur
með öllu. Þeir sem kannast
við kisa geta haft samband
við Svein í síma 894 4140.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞAKKA skrif Víkverja í
dag (föstudag) um bygg-
ingar banka í miðborg
Reykjavíkur. Hafi ein-
hver sjónarmið ráðið í
byggingarstefnu banka í
miðborg Reykjavíkur var
smekkvísi og þekking á
byggingarsögulegum
verðmætum ekki þeirra á
meðal. Það er því löngu
kominn tími til að banka-
stofnanir fari að greiða
aftur skuld sína við mið-
borgina. Víkverji nefnir
skemmdir á Austurstræti
7 og Hafnarstræti 8. Bún-
aðarbankinn hefur um
langt skeið átt fleiri hús á
þessum reit og haldið
þeim illa við og fjarri því
að hafa þau í sinni glæsi-
legustu gerð. Landsbank-
inn reif Ingólfshvol,
breytti Edinborgarhús-
inu, reisti sína smekk-
lausu viðbyggingu gegn
pósthúsunum. Og þá er
ekki allt talið: upp eftir
Bankastræti og Lauga-
vegi standa minnismerkin
um þá skammsýni sem
ráðið hefur á skrifstofum
bankamanna þar sem hús
eftir virtustu húsagerð-
armeistara okkar hafa
verið í nafni framfara og
nútíma vandaliseruð.
Reykvíkingur.
Um byggingarstefnu banka
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16