Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
XL 1100
Smekklegar og
kraftmiklar
toppgræjur frá
SHARP
C-200 Mju ll
„Dæturnar með í vinnuna“
Starfskraftar
framtíðarinnar
VERKEFNIÐ Auð-ur í krafti kvennalifir enn góðu lífi,
en einn af vinklum þess er
„Dæturnar með í vinn-
una“. Sú uppákoma fer
fram nk. þriðjudag, í
þriðja skiptið. Auður í
krafti kvenna er þriggja
ára verkefni. Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir kenn-
ari og verkefnisstjóri hjá
Háskólanum í Reykjavík
veit allt um verkefnið,
stöðu mála og fram-
kvæmdina nk. þriðjudag.
Hún svaraði nokkrum
spurningum Morgun-
blaðsins.
Segðu okkur aðeins
fyrst frá verkefninu Auður
í krafti kvenna.
„Verkefnið Auður í
krafti kvenna var hugsað sem
þriggja ára átaksverkefni til að
auka atvinnusköpun og atvinnu-
þátttöku kvenna. Verkefninu er
skipt í sex hluta, Frumkvöðla-
Auði, 120 klst., þar sem konur
læra að koma hugmyndum sínum
um rekstur í framkvæmd, Fjár-
málaAuði, 16 klst., þar sem konur
læra um einkafjármál, Framtíð-
arAuði, þar sem stúlkur á aldr-
inum 13 til 16 ára fara í leiðtoga-
búðir, 3 dagar, LeiðtogaAuði, 3
dagar, þar sem kvenstjórnendur
fyrirtækja fara á leiðtoganám-
skeið, Auðarverðlaunin, sem er
nokkurs konar uppskeruhátíð
einu sinni á ári og svo „Dæturnar
með í vinnuna“, sem verður núna
á þriðjudaginn kemur. Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, Ís-
landsbanki, Morgunblaðið og
Deloitte & Touche eru veglegir
styrktaraðilar Auðar í krafti
kvenna og hafa starfað mjög vel
með Háskólanum í Reykjavík,
sem er framkvæmdaaðili verkefn-
isins.“
Þið hafið áður staðið fyrir
„Dæturnar með í vinnuna“.
Hvernig heppnaðist það?
„Dagurinn „Dæturnar með í
vinnuna“ er búinn að vera tvisvar
áður, árið 1999 og árið 2000. Fyr-
irtæki og stofnanir hafa tekið
þessu gríðarlega vel og gert frá-
bæra hluti fyrir dætur landsins. Í
fyrra til dæmis var keppt í að
setja saman tölvur hjá Nýherja,
stúlkur fluttu tillögur til úrbóta í
borginni í ráðhúsinu, stúlkur
skoðuðu gerð flæðilína í Marel og
mörg fyrirtæki eins og Deloitte &
Touche leyfðu stúlkunum að vera
„skuggi“ starfsmanna í heilan
dag. Þessi dagur er alltaf ánægju-
legur hjá fyrirtækjum og mælist
vel fyrir hjá öllum dætrum og
starfsfólki fyrirtækjanna. Við höf-
um engar nákvæmar tölur en síð-
ustu tvö ár hafa um 5.000 stúlkur
heimsótt fyrirtæki landsins.“
Hver er tilgangur þessa hluta
verkefnisins?
„Tilgangur dagsins er að kynna
stúlkum á aldrinum 9 til 15 ára
þau tækifæri atvinnulífsins sem
til eru og mismunandi
störf. Ungar stúlkur í
dag eru starfskraftar
framtíðarinnar og
munu breyta kynja-
hlutföllum hinna nýju
starfsgreina. Með því að opna alla
vinnustaði fyrir ungum stúlkum
einn dag á ári gefum við þeim
tækifæri til að kynnast þeim fjöl-
breyttu möguleikum sem at-
vinnulífið hefur að bjóða. Tak-
markið er að stúlkur á þessum
aldri nái að kynnast 5–6 ólíkum
fyrirtækjum og störfum. Þess
vegna hvetjum við alla til að taka
dætur landsins með sér í vinnuna,
hvort sem það eru dætur, frænk-
ur, afa- og ömmubörn og vinadæt-
ur.“
Eru ekki synir landsins hlunn-
farnir með þessu átaki?
„Dagurinn vekur alltaf upp
margar raddir þeirra sem finnst
við hlunnfara drengina: Stað-
reyndirnar segja okkur þó að enn
eiga konur undir högg að sækja á
vinnumarkaði. Þær eru í miklum
minnihluta í stjórnendastöðum og
eru með mun lægri laun. Að auki
eru konur í miklum minnihluta í
fyrirtækjarekstri, en með því að
kynna dætrum okkar hin ýmsu
störf landsins, aukum við líkurnar
á því að þær verði þátttakendur í
fyrirtækjum og fyrirtækja-
rekstri. Við teljum því mikilvægt
að þær fái sérstakt tækifæri til að
kynnast atvinnulífinu betur. Hins
vegar hvetjum við fyrirtæki til
þess að leyfa strákunum að koma
með foreldrum sínum í vinnuna,
en ekki á sama degi. Í ár veit ég
t.d. til þess að Kaupþing og IMG
ætla að bjóða strákunum til sín á
miðvikudaginn.“
Á „Dæturnar með í vinnuna“ að
vera árlegt átak?
„Átakið Auður í krafti kvenna“
var áætlað til þriggja ára. Eftir-
spurnin og ánægja með verkefnið
hefur verið gríðarlega mikil og við
höfum séð mörg fyrirtæki stofnuð
og margar konur vaxa. Því er ver-
ið að ræða núna með styrktarað-
ilum hvernig hægt sé að halda
Auði áfram og með rannsókn á
áhrifum verkefnisins sjáum við
árangurinn. Það hefur þó alltaf
verið von okkar að „Dæturnar
með í vinnuna“ verði
hluti af íslensku at-
vinnulífi óháð Auðar-
verkefninu og að fyrir-
tæki sjái sér hag í
framtíðinni í að gera
daginn að árlegum viðburði.“
Hvernig verða áhrifin mæld?
„Í sumar verður gerð rannsókn
á árangri mismunandi þátta Auð-
ar. Þetta eru erfiðar mælingar því
áhrif átaka sem slíkra skila sér oft
ekki strax og margt getur haft
áhrif á breytingar. Varðandi
„Dæturnar með í vinnuna“ er
auðvelt að mæla hversu mörg fyr-
irtæki taka þátt og hve margar
stúlkur heimsækja fyrirtækin.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
fæddist í Reykjavík 1972. Stúd-
ent frá Verslunarskóla Íslands
1992. BA í uppeldis- og mennt-
unarfræði við Háskóla Íslands
1998 og MA í sálfræði frá Uni-
versity of Washington í Seattle
1999. Er nú kennari og verkefn-
isstjóri hjá Háskólanum í Reykja-
vík. Maki er Hallbjörn Karlsson
viðskiptafræðingur hjá Kaup-
þingi og eiga þau tvo stráka, Karl
Ólaf og Atla Frey, 6 og 2 ára.
…um 5.000
stúlkur
komu…
Mundu svo að segja að þú sért kominn af Hornfirðingum í báðar ættir, þegar þú verður
spurður hverra manna þú sért.
FRAM kemur í úrskurði óbyggða-
nefndar um þjóðlendumörk í Þjórsár-
dal og afrétti Gnúpverjahrepps í Ár-
nessýslu að málatilbúnaði Lands-
virkjunar hafi verið „allverulega
ábótavant“, og svo mjög að kröfum
fyrirtækisins á eignarrétti á svæðinu
yrði vísað frá dómstólum. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu á fimmtudag
kvað óbyggðanefnd upp sína fyrstu úr-
skurði á fimmtudag og samkvæmt
þeim telst Landsvirkjun ekki eigandi
landsréttinda, þ.m.t. vatnsréttinda,
innan þjóðlendunnar í uppsveitum Ár-
nessýslu heldur ríkissjóður.
Fyrirtækið gerði aðallega kröfu um
víðtæk landsréttindi í Gnúpverja-
hreppi vegna virkjana á vatnsföllum
Þjórsár, m.a. á því landi sem skila-
nefnd Fossafélagsins a/s Títan, sem
Einar Benediktsson skáld stofnaði á
sínum tíma, seldi ríkinu fyrir um
hálfri öld. Sem kunnugt er benti Ein-
ar fyrstur manna á virkjunarmögu-
leika á Þjórsársvæðinu og keypti
landssvæði af Gnúpverjahreppi árið
1916 í nafni Títans.
Óbyggðanefnd telur ennfremur að
Gnúpverjahrepp hafi skort eignar-
heimildir til að ráðstafa vatns- og
landsréttindum á Gnúpverjaafrétti.
Títan hafi þannig ekki réttilega komið
að þeim réttindum sem skilanefnd fé-
lagsins seldi ríkissjóði hinn 8. júní árið
1951 og ríkissjóður síðan lagði fram
sem eignarhluta við stofnun Lands-
virkjunar fjórtán árum síðar. Telur
óbyggðanefnd því að Landsvirkjun
hafi ekki getað byggt rétt á framsali
eignarréttinda fyrir þann samning.
Í úrskurði óbyggðanefndar um
Gnúpverjaafrétt kemur einnig fram
að þess hafi verið ítrekað freistað að
fá kröfugerð Landsvirkjunar skýrða
nánar. Skort hafi á nægilega skýra af-
mörkun og tilgreiningu þeirra rétt-
inda sem krafist var. Ekki hafi verið
fullt samræmi milli efnislegrar kröfu-
gerðar í málinu og svo lýsingar henn-
ar í málflutningi fyrir nefndinni.
Eignarréttur Landsvirkj-
unar ekki viðurkenndur
Landið við Þjórsá sem Fossafélag Einars Benediktssonar
seldi ríkinu fyrir hálfri öld vegna virkjanaáforma
VEGNA hættu á slitlagsskemmdum
eru öxulþungatakmarkanir nú í gildi
á flestum þjóðvegum landsins. Víð-
ast er öxulþungi takmarkaður við 10
tonna ásþunga.
Hláka er nú víða um land en við
þær aðstæður verður undirlag vega
mjög viðkvæmt. Þegar frost fer úr
jörðu verður undirlagið blautt og er
þá hætta á að slitlagið skemmist ef
þungum bílum er ekið um veginn.
Öxulþungi
takmarkaður
við 10 tonn
♦ ♦ ♦