Morgunblaðið - 24.03.2002, Blaðsíða 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÚÐARSKART hefur sterka
merkingu í myndlist nútímans og
samtíðarinnar, og nægir að benda
á öndvegisverk Marcel heitins
Duchamp í því sambandi; „Brúð-
urin afklædd af einhleypingum
sínum, jafnvel“, sem hann tók sér
að minnsta kosti átta ár – frá 1915
til 1923 – til að fullgera, án þess að
það yrði nokkru sinni fullkomnað í
þá veru sem listamaðurinn hafði
vænst í öndverðu.
En það má finna annað verk eft-
ir Duchamp – Étant donnés: 1. La
chute d́eau/2. Le gas d́éclairage –
Að gefnu: 1. Fossinn/2. Gasið til
lýsingar – sem tók hann enn lengri
tíma að smíða – eða frá 1946 til
1966 – og virðist að einhverju leyti
eiga sér uppruna í orðaleik með
brúðarslör á frönsku, en brúðar-
slör þekkja Frakkar einnig sem
foss, vegna þess hve fallandi vatn
er áþekkt brúðarslöri. Til er mynd
af Duchamp og Teeny, konu hans,
hjá litlum fossi við Cadaqués í
Norður-Katalóníu, og virðist
sprænan mynda slör yfir höfði
hennar.
Þótt sænska listakonan Malin
Ståhl sé allt öðruvísi brúður en sú
sem Marcel Duchamp hafði í huga
þegar hann lauk hinum marg-
frægu verkum sínum á milli- og
eftirstríðsárunum, er það engu að
síður hin tvíbenta togstreita Eros-
ar og Psyche – Tælis og Sálu –
sem endurspeglaðist í gjörningi
hennar. Yfirskriftin er „Scissors &
Time“ – Skæri og tími – enda
fremur Malin Ståhl þann gjörning
að klæða sig í brúðarskart og
stytta síðan hár sitt.
Það minnir okkur ósjálfrátt á þá
gamalgrónu staðreynd að germ-
anskar fornþjóðir litu á hárvöxt og
sítt hár sem tákn um frelsi. Það
mátti því greina þræla og ambáttir
úr hópi frjálsra, germanskra
manna á hársíddinni, því menn í
ánauð voru snoðklipptir. En það
voru fleiri á miðöldum sem voru
neyddir til að skera hár sitt.
Munkar og nunnur fyrirgerðu
lokkunum við það eitt að ganga í
klaustur. Það er einmitt þetta síð-
astnefnda sem hlýtur að hafa
hvarflað að áhorfendum gjörnings-
ins. Var Malin Ståhl að gefa það í
skyn að brúður væri, um leið og
gift, orðin guðdómleg ambátt –
ancilla dei – eins og nunna sem
gengur í regluna?
Brúðurin klæð-
ir sig og klippir
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Malin Ståhl fremur gjörning
sinn Scissors & Time í Galleríi i8.
MYNDLIST
Gallerí i8, Klapparstíg
Fluttur laugardaginn 2. mars.
GJÖRNINGUR
MALIN STÅHL
Halldór Björn Runólfsson
SÖNGLEIKURINN Grettir
virðist ætla að hafa það af að verða
sígilt viðfangsefni íslenskra leik-
félaga. Þrátt fyrir lausungina í
fléttunni og nykrað sambandið við
Grettissögu hefur hann stór tromp
á hendi; frábæra tónlist frá Agli á
hinu frjóa Þursaskeiði og tvo
fyndnustu penna landsins, þá Ólaf
og Þórarin. Tónlistin er þó stærsta
skrautfjöðrin að mínu mati, vísar í
allar áttir, sækir áhrifamátt á ótal
staði og framundan rokkinu gægj-
ast þeir fimmundarsöngur og viki-
vaki.
Hér segir frá Breiðhyltingnum
Gretti, aula sem fyrir áeggjan
draumadísarinnar lendir í fangelsi
en losnar þaðan til að verða sjón-
varpsstjarna í sápuóperu um nafna
sinn úr fornsögunum. En hver
Grettir á sér sinn Glám og við-
ureignin við hann gerir hann ljós-
fælinn með afbrigðum; einkar
óheppilegt ofnæmi fyrir ljósvaka-
leikara.
Það er margt gott um sviðsetn-
ingu (og frumraun) Jóns Páls Eyj-
ólfssonar að segja. Hann er greini-
lega myndvís mjög, leikmyndin
sem er einnig hans verk er bæði
einföld og flott. Hurðirnar stóru
eru snilldarbragð og margar upp-
stillingar eru glæsilegar og límast í
heilabörkinn. Ásmundur á klóinu,
gengið í sjoppunni, svo tvær séu
nefndar. Hins vegar hefði mátt
leggja meiri rækt við hóp- og söng-
atriði og skapa meiri hreyfingu á
sviðinu. Sýningin hefur tilhneig-
ingu til að verða dálítið kyrrstæð.
Þetta verður til að draga nokkuð
úr kraftinum sem þarf að vera til
staðar til að fleyta henni áfram.
Þetta þarf ekki að vera spurning
um stórkostlega pottþétt dans-
númer heldur einfaldlega að virkja
hópinn meira, verkið bíður enda
upp á léttúð og að allt sé látið
flakka. Eins er með sönginn, hann
var, með einstaka undantekning-
um, eiginlega óþarflega áreynslu-
laus. Kannski væri ráð að skrúfa
aðeins niður í hljóðnemunum og
láta leikarana hafa aðeins meira
fyrir hlutunum! Að þessu sögðu er
rétt að taka fram að sýningin er
bæði skemmtileg og frambærilega
leikin og sungin. Mikið mæðir að
sjálfsögðu á Jóhanni Má Smára-
syni í titilhlutverkinu, en hann er
eins og sniðinn í það, sérstaklega
framan af, meðan Grettir er ennþá
væskilsstrákur. Berglind Ásgeirs-
dóttir er sannkallað „femme
fatale“ sem draumadísin Sigga.
Burkni Birkisson á marga snilld-
artakta í ótal hlutverkum, ekki síst
sem Tarsan apabróðir (Já, merki-
legt nokk, hann kemur við Grett-
issögu!). Jón Marinó Sigurðarson
er bráðgóður Ásmundur og Sandra
Þorsteinsdóttir er skemmtileg sem
systirin Gullauga og söngur henn-
ar dæmi um kraftinn sem þyrfti að
einkenna öll númerin.
Grettir í Keflavík er flott sýning.
Einfaldar lausnir, skýrar myndir
og pottþétt tónlist einkenna hana
öðru fremur. Með betur útfærðri
traffík á sviðinu og meiri krafti
væri hún ómótstæðileg. Samstarf
leikfélaganna tveggja verður að
teljast efnilegt mjög.
Ris og
fall í
Breið-
holtinu
LEIKLIST
Leikfélag Keflavíkur
og Vox Arena
Höfundar: Egill Ólafsson, Ólafur Haukur
Símonarson og Þórarinn Eldjárn. Leik-
stjóri: Jón Páll Eyjólfsson. Tónlistar-
stjórn: Júlíus Freyr Guðmundsson og
Sigurður Guðmundsson. Frumleikhúsinu
í Keflavík 15. mars 2002.
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Þorgeir Tryggvason
VEGLEG tónlistarveisla verður í
Íþróttahöllinni á Akureyri á skír-
dag, 28. mars, kl. 17. Þar munu
stíga á svið um 150 listamenn, Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands,
Karlakórinn Heimir, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Diddú, Óskar Pétursson,
Álftagerðisbræður og Barna- og
unglingakór Akureyrar. Listalíf,
nýstofnað félag á Akureyri, efnir til
tónleikanna. Yfirskrift þeirra er
„Snert hörpu mína“.
„Þetta eru stærstu og viðamestu
tónleikar sem efnt hefur verið til
hér í bænum um árabil,“ sagði Guð-
laug Ringsted, einn forsvarsmanna
Listalífs. Markmið félagsins er að
hlúa að, efla og styrkja margvíslegt
menningarlíf á Akureyri.
Hún sagði hugmyndina að tón-
leikunum fyrst hafa kviknað í hópi
vina, kunningja og ættingja Óskars
Péturssonar í kjölfar þess að hann
var valinn bæjarlistamaður Ak-
ureyrar á liðnu ári. „Okkur þótti þá
tímabært að Óskar fengi að spreyta
sig á virkilega bitastæðu verkefni.
Ýmsum hugmyndum var velt upp,
þær fengu að vaxa og dafna og nið-
urstaðan varð þessi tónaveisla sem
við efnum til á skírdag,“ sagði Guð-
laug.
Efnisskráin með
léttu yfirbragði
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt, íslensk og erlend verk. Í
fyrri hluta tónleikanna munu Sin-
fóníuhljómsveitin og Heimir m.a.
flytja Finlandia eftir Sibelius og
þurfa þá án efa að taka á honum
stóra sínum. Kórinn syngur einnig
þrjú ljóða Davíðs Stefánssonar við
lög eftir Pál Ísólfsson, Sigvalda
Kaldalóns og Atla Heimi Sveinsson.
Óskar syngur Ökuljóðin, sem Skag-
firðingurinn Stefán Íslandi gerði
fræg á sínum tíma. Diddú syngur Il
Bacio eftir Arditi og Mein Herr
Markie úr Kátu ekkjunni. Þá flytja
hljómsveitin, Heimir og Óskar Píla-
grímakórinn eftir Wagner og lýkur
fyrri hlutanum með Cor’ngrato, sí-
gildu tenórlagi sem líkja má við
Hamraborgina hér á landi í flutn-
ingi Álftagerðisbræðra. Síðari hluti
tónleikanna er helgaður Giuseppe
Verdi og verða fluttir forleikir, ar-
íur, dúettar og kórverk úr þekkt-
ustu verkum hans. Einnig verða
flutt verk eftir Donizetti og Man-
söngurinn eftir Sigmund Romber
sem Óskar hefur oft sungið við mik-
inn fögnuð.
„Efnisvalið er þannig byggt upp
að í bland við helstu perlur óperu-
og óperettutónlistarinnar eru ís-
lensk einsöngslög og kórverk. Það
er létt yfirbragð yfir tónleikunum,
þetta eru verk sem fólk þekkir og
margir hafa dálæti á,“ sagði Guð-
laug.
Diddú aldrei verið betri
Alls munu um 50 hljóðfæraraleik-
arar taka þátt í flutningnum með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, en
stjórnandi hennar er Guðmundur
Óli Gunnarsson. Konsertmeistari
verður Sigrún Eðvaldsdóttir. Flest-
ir hljóðfæraleikaranna koma af
Norðurlandi, en nokkrir eru sóttir
suður yfir heiðar, í flestum tilvikum
gamlir nemendur Tónlistarskólans
á Akureyri.
„Einsöngvarana þekkja allir,
þetta er fólk sem er í uppáhaldi hjá
landsmönnum og hefur mikið látið
að sér kveða síðustu ár,“ sagði Guð-
laug og benti á að mat gagnrýn-
enda væri að Diddú hefði til að
mynda aldrei verið betri en nú. Þá
hefði Óskar notað tímann vel að
undanförnu og leitað sér tilsagnar í
söngnum. Óskar er sem kunnugt er
einn Álftagerðisbræðra, sem glatt
hafa landsmenn með söng sínum
um árabil.
Í Karlakórnum Heimi í Skaga-
firði eru um 70 félagar og þeim
stjórnar Stefán Gíslason. Barna- og
unglingakór Akureyrar er 10 ára
gamall og í honum eru um 40 börn
og unglingar. Stjórnandi hans er
Sveinn Arnar Sæmundsson.
Höllin rúmar um
2.000 tónleikagesti
Guðlaug sagði mikið verk að
koma svo viðamiklum tónleikum
upp, en þar legðu margir hönd á
plóginn auk listamannanna. For-
eldrar og knattspyrnumenn í KA
ásamt foreldrafélagi í Þór bera hit-
ann og þungann af framkvæmdinni.
„Það er í mörg horn að líta en við
finnum hvarvetna fyrir miklum vel-
vilja meðal bæjarbúa og áhuginn er
mikill,“ sagði Guðlaug. Íþróttahöll-
in rúmar um 2.000 manns á þessum
tónleikum og hafa viðbrögð verið
góð við miðasölu sem nýlega er haf-
in. „Bærinn fyllist vanalega af
ferðafólki yfir páskana og maður
hefur heyrt að hver einasta skonsa
sé uppbókuð. Flestir koma á skíði
og til að njóta útiveru og nú færist í
vöxt að einnig sé boðið upp á vand-
aða menningardagskrá og ég veit
að fólk kann vel að meta slíkt,“
sagði Guðlaug. Hægt er að kaupa
miða á tónleikana í Nettó á Ak-
ureyri og í Reykjavík, í KA-
heimilinu og hjá Listalífi sem feng-
ið hefur aðstöðu í húsnæði Gil-
félagsins í Kaupvangsstræti, en
netfangið þar er listalif@simnet.is.
Tónleikarnir hefjast kl. 17 á skír-
dag, en húsið verður opnað kl. 15.
Stórtónleikar haldnir í Íþróttahöllinni á Akureyri á skírdag
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Morgunblaðið/Kristján
Hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Um 150 listamenn stilla
saman strengi sína
Óskar Pétursson