Morgunblaðið - 24.03.2002, Page 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 27
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
hefst sunnudaginn 24. mars
í Síðumúla 6
(áður Vaka Helgafell)
Opið verður frá kl. 12-18
Listasafn Reykjavíkur – Hafn-
arhús Táknmálstúlkur verður með í
leiðsögn um tvær sýningar safnsins
kl. 16. Sýningarnar eru Byggt yfir
hugsjónir: Breiðholt frá hugmynd að
veruleika og Aðföng 1998–2001.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Rúss-
neska kvikmyndin Stríðið hefst á
morgun (Voína byla zavtra) verður
sýnd kl. 15. Leikstjóri er Júríj Karan.
Myndin er byggð á samnefndri skáld-
sögu eftir rússneska rithöfundinn
Boris Vasilijev. Bókin var tileinkuð
minningu skólabarna í Rússlandi fyr-
irstríðsáranna og fóru beint af skóla-
bekk á vígvöllinn til að verjast fyrstu
og hörðustu árásum innrásarherja
fasista í Sovétríkjunum sumarið 1941.
Gunnukaffi, Hvammstanga Ingi-
björg Heiðarsdóttir opnar sýningu á
leirmyndum kl. 15. Sýningin stendur
fram yfir páska.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
GYLFI Gröndal rithöfundur hlaut á dög-
unum viðurkenningu Rótarýklúbbs Kópa-
vogs fyrir að hafa skarað fram úr og vakið
athygli fyrir störf sín, en hann hefur búið í
Kópavogi um aldarfjórðungs skeið. Þetta
er í sjötta sinn sem Rótarýklúbburinn vetir
slíka viðurkenningu.
Gylfi Gröndal stundaði blaðamennsku og
ritstjórn í rúm þrjátíu ár en hefur jafn-
framt sent frá sér fjölda bóka, til dæmis
tuttugu ævisögur fólks úr hinum ýmsu
stéttum íslensks þjóðfélags. Meðal þeirra
er ævisaga Huldu Jakobsdóttur, bæjar-
stjóra í Kópavogi, en hún var fyrsta konan
á Íslandi sem gegndi slíku starfi. Sú saga
er mikil heimild um líf og starf frumbyggj-
anna í Kópavogi. Gylfi hefur einnig skrifað
ævisögur þriggja forseta Íslands, Sveins
Björnssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar og
Kristjáns Eldjárns, og fyrir síðustu jól lauk
hann tveggja binda verki um ævi Steins
Steinars, en það var tilnefnt til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Auk þess hefur
hann gefið út sjö ljóðabækur, séð um út-
gáfu ljóðasafna og annast fjölda útvarps-
þátta um bókmenntir og menningarmál.
Hlýtur viðurkenn-
ingu fyrir ritstörf
Vilhjálmur Einarsson, forseti Rótarýklúbbs Kópavogs, afhendir Gylfa Gröndal rithöfundi
verðlaunagrip eftir Ingu Elínu glerlistakonu.
Gylfi Gröndal heiðraður í Kópavogi