Morgunblaðið - 24.03.2002, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 33
m-
ma-
m,
ót-
ýs-
p í
að
usu
ær-
rr-
nd-
m-
nn
ro,
nn
ga,
m-
að
im
ðs-
itt
eir
ýð-
fá
að
.
rð-
ssi
til
pp
r.
an
kk-
ka
ið-
ðu
En
ein
gu-
pp-
ga
al-
ún
um
ag,
nds
ssi
pp-
en
ort
til
lta
ag,
pp-
kj-
nar
ýði
dir
ns:
ur
í
ála
rir
tað
gja
ek-
ís-
nn
að
gg-
rk-
ál-
á
kið
ru
gar
um
fið
dir,
af
rn-
sú
um
til
að
ar-
er
ði-
um
rið
gefinn of lítill gaumur en þar er um að ræða
framkvæmdir Bandaríkjamannsins Kenneth
Peterson við uppbyggingu álvers á Grundar-
tanga, sem gengið hafa mjög vel.
Í Morgunblaðinu í dag, laugardag, birtist
grein eftir Guðjón Guðmundsson, alþingismann
Sjálfstæðisflokks fyrir Vesturlandskjördæmi. Í
grein þessari segir þingmaðurinn m.a.:
„Norðurál hefur áhuga á að stækka verk-
smiðju sína þannig, að framleiðslan aukist úr
90 þúsund tonnum í 240 þúsund tonn á ári.
Fyrirtækið kynnti iðnaðarráðuneytinu þessa
ætlun sína sumarið 1999 og setti fram form-
lega ósk um aukin raforkukaup í september
2000. Enn hefur óskum fyrirtækisins ekki ver-
ið svarað. Við það verður ekki unað öllu lengur.
Norðurál verður að fá jákvætt svar þannig að
hægt verði að ráðast í stækkun verksmiðj-
unnar sem fyrst.“
Í lok greinar sinnar segir Guðjón Guð-
mundsson, alþingismaður: „Eigandi fyrirtæk-
isins er ákveðinn í fyrirætlunum sínum, það
þarf ekki að ganga á eftir honum eins og sum-
um öðrum. Hann þarf því að fá ákveðin svör
frá iðnaðarráðuneytinu og Landsvirkjun, drátt-
ur á þeim svörum er þegar orðinn allt of lang-
ur.“
Hér fjallar Guðjón Guðmundsson um það
sama og vikið er að í forystugrein Morgun-
blaðsins í dag, laugardag, en þar segir m.a.:
„Frá því að álverið í Straumsvík var byggt fyr-
ir bráðum fjórum áratugum hefur einn maður
staðið við stóru orðin í sambandi við uppbygg-
ingu áliðnaðar á Íslandi. Það er Kenneth
Peterson, eigandi Norðuráls í Hvalfirði. Hann
hefur haft áhuga á að stækka álverið á
Grundartanga til þess að auka hagkvæmni í
rekstri þess. Af einhverjum ástæðum hefur
honum verið tekið af umtalsverðu fálæti og
ljóst, að á síðasta ári var honum og samstarfs-
mönnum hans misboðið vegna þess hve litla
áheyrn þeir fengu í iðnaðarráðuneytinu.“
Af samtali við Peterson, sem birtist í
Morgunblaðinu 23. október sl., má ráða að
áhugi hans á stækkun á Grundartanga sé þrátt
fyrir allt óbreyttur. Þar segir hann m.a.: „Við
höfum hafið viðræður við Landsvirkjun um
mögulega raforkusölu. Sem kunnugt er þarf
Landsvirkjun að ráðast í fjárfestingar í virkj-
unum til þess að útvega okkur næga orku…við
bíðum eftir að það skýrist hvaða virkjunarkosti
Landsvirkjun getur ráðizt í. Þegar það liggur
fyrir förum við væntanlega á fullt í viðræður
um raforkuverð og fleira, sem því tengist.“
Í þessu sama viðtal er Kenneth Peterson
spurður, hvort hugsanlegt sé að fyrirtæki hans
mundi hlaupa í skarðið ef Norsk Hydro hætti
við þátttöku í Reyðarálsverinu. Svar hans var á
þessa leið:
„Ég get ekki sagt, að við höfum velt fyrir
okkur þeim möguleika. Við rekum álver á
Grundartanga, sem hefur heimild til að stækka
enn frekar. Þar er fyrir hendi alls kyns þjón-
usta, sem þyrfti að byggja upp frá grunni á
nýjum stað. Það yrði því dýrara fyrir okkur að
byggja álver á Austurlandi en stækka það ál-
ver, sem við rekum á Grundartanga. Áhugi
okkar miðar því að því að stækka Norðurál.“
Lítið land og
alþjóðleg
fyrirtæki
Þegar fyrst komst á
samband milli Ís-
lendinga og Kenneth
Peterson höfðu
margir hér efasemd-
ir um, að vit væri í
að ráðast í slíkt samstarf við tiltölulega lítið
bandarískt fyrirtæki og spurningamerki var
sett við bolmagn þess til að standa í slíkum
stórframkvæmdum. Fram að því höfðum við
fyrst og fremst átt í viðræðum við stór al-
þjóðleg fyrirtæki um þessi málefni. Talsmenn
þeirra komu hingað jafnvel í einkaþotum og
framgangsmáti þeirra í samræmi við það. En
jafnframt hefur komið í ljós, að þessir al-
þjóðlegu risar geta leyft sér að leggja í mikinn
kostnað við að kanna hugmyndir um fram-
kvæmdir hér en hafa jafnframt efni á því að
henda því öllu frá sér ef það hentar hags-
munum þeirra.
Framganga Petersons og hans manna hefur
verið með öðrum hætti. Þar er á ferðinni til-
tölulega lítið fyrirtæki í eigu eins manns. Þeg-
ar starfsmenn hans komu hingað fyrst vakti
athygli, að þeir bjuggu ekki á lúxushótelum
Reykjavíkur heldur í mun ódýrari húsakynn-
um. Öll háttsemi þeirra var í samræmi við það.
Spurning er af fenginni reynslu, hvort það
hentar fámennri þjóð kannski betur að eiga
viðskipti við tiltölulega lítið fyrirtæki eins og
Petersons, sem hefur hins vegar, ólíkt stóru al-
þjóðlegu fyrirtækjunum, sýnt að hann stendur
við sitt. Hann hefur ekki efni á að leggja út í
mikinn kostnað án þess að láta verkin tala.
Er fráleitt að kanna möguleika á samstarfi
við Peterson um byggingu álvers á Austurlandi
þótt hann haldi áfram stækkun á Grundar-
tanga? Er kannski hugsanlegt að slíkt verkefni
hafi hvarflað að honum og hans mönnum?
Ein af röksemdunum gegn því að ræða við
Kenneth Peterson um álversframkvæmdir víð-
ar á landinu hefur verið sú, að við Íslendingar
getum ekki látið áliðnað okkar byggjast á ein-
um manni í svo ríkum mæli. Það má vel vera
að eitthvað sé til í þeirri röksemd en eftir að
álver eru risin sýnir reynslan að enginn getur
sagt fyrir um hvaða breytingar verða á eignar-
haldi þeirra eins og komið hefur í ljós í
Straumsvík.
Önnur röksemd er sú, að áformað álver á
Reyðarfirði sé alltof stórt verkefni fyrir fyrir-
tæki Petersons. Það má vel vera. En þá vaknar
í fyrsta lagi sú spurning, hvort hugsanlega sé
skynsamlegra að stefna að byggingu minna ál-
vers þar og í öðru lagi hvort hugsanlegt sé að
Kenneth Peterson eigi auðveldara með að
finna samstarfsmenn á alþjóðavettvangi um
byggingu álvers en reynslan hefur orðið með
íslenzk stjórnvöld og sendimenn þeirra.
Að fenginni reynslu er ekki ástæða til að úti-
loka þann möguleika að nýr samstarfsaðili geti
verið nær okkur en hingað til hefur verið talið
og að starfsmenn iðnaðarráðuneytisins ættu
kannski að eyða meiri tíma í að tala við Kenn-
eth Peterson og hans menn en þeir hafa haft
tilhneigingu til fram að þessu.
Morgunblaðið/RAX
Hestur og ís í Breiðafirði.
„Hér er um að ræða
stórmál fyrir lands-
menn alla en alveg
sérstaklega fyrir
Austfirðinga, sem
hafa bundið miklar
vonir við þessar
framkvæmdir og
eru jafnvel nú þeg-
ar byrjaðir að
leggja í fjárfest-
ingar í trausti þess,
að af þeim verði.
Þess vegna er það,
að mati Morgun-
blaðsins, ámælis-
vert, að ráðamenn
hafi ekki veitt upp-
lýsingar um hina
nýju stöðu fyrr en
þeir voru knúnir
til.“
Laugardagur 23. mars