Morgunblaðið - 24.03.2002, Page 50
50 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! " #
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í MORGUNBLAÐINU 21. mars er
fjallað um athugasemdir við tillögu
að svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins, einkum um undirskrifta-
lista með nöfnum 1.369 einstaklinga á
117 blaðsíðum annars vegar og hins
vegar um óundirritaðar athugasemd-
ir frá Samtökum um betri byggð.
Látið er í veðri vaka að undir-
skriftalistinn hafi mikið vægi, jafnvel
meira vægi en sem nemur einni at-
hugasemd. Jafnframt er gefið til
kynna að fyrir siða sakir hafi athuga-
semdir Samtaka um betri byggð
fengið að fljóta með.
Til upplýsingar er textinn með
1.369 undirskriftum svofelldur:
Við undirritaðir teljum, að flug-
völlur fyrir höfuðborgarsvæðið sé
nauðsynlegur.
Við teljum jafnframt að sá flugvöll-
ur sé best staðsettur á núverandi
stað í Vatnsmýrinni án verulegrar
skerðingar.
Við teljum ennfremur, að núver-
andi borgaraleg flugstarfsemi á
Reykjavíkurflugvelli verði ekki
skipulögð brott án þess að kveðið sé á
um hvert hún eigi að flytjast.
Í þessum texta er ekki að finna
rök. Höfundunum finnst einfaldlega
að flugvöllurinn eigi að vera í Vatns-
mýri. Nálgun þeirra er frá þröngum
og sértækum einkahagsmum flug-
rekenda og flugáhugamanna.
Athugasemdir Samtaka um betri
byggð miðast við víðtæka og al-
menna meginhagsmuni samfélagsins
og byggjast á vinnu þverfaglegs hóps
fagmanna. Þær byggjast á reynslu
annarra þjóða af bílasamfélaginu og
af þróun byggðar, á þekkingu á sviði
borgarskipulags og borgarhagfræði
og síðast en ekki síst á Staðardag-
skrá 21 og alþjóðlegum skuldbind-
ingum, sem tengjast henni.
Að baki athugasemdum samtak-
anna liggur einnig tillaga að svæðis-
skipulagi höfuðborgarsvæðisins, Nes-
ið, þróun til vesturs, sem samtökin
unnu sjálf og gáfu út í febrúar 2000.
Skv. henni dregur úr þörf fyrir akstur
um 30% næstu 20 ár en skv. tillögu
samstarfsnefndarinnar eykst þörfin
um 50% á sama tímabili. Akstur á höf-
uborgarsvæðinu kostar samfélagið nú
röska 100 milljarða króna á ári. Mis-
munurinn á þessum valkostum verður
því 80 milljarðar á ári 2024.
Þó borgaryfirvöld og sérfræðingar
þeirra eiga að vita betur en að leggja
að jöfnu þær athugasemdir, sem hér
eru nefndar gerast þau þó æ ofan í æ
sek um slík vinnubrögð, m.a. fyrir
kosningu um Vatnsmýri í mars 2001
þar sem þau jafnsettu órökstudda,
þrönga og sértæka einkahagsmuni
ríkisrekinna vina flugvallarins ann-
ars vegar og hins vegar fagleg, víð-
tæk og almenn samfélagssjónarmið
Samtaka um betri byggð.
10. apríl nk. verða stofnuð borg-
armálasamtök í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur. Þeim er m.a. ætlað að
berjast gegn því spillta háttarlagi nú-
verandi ráðamanna að víkja til hliðar
víðtækum og almennum meginhags-
munum fyrir þrönga og sértæka
einkahagsmuni.
ÖRN SIGURÐSSON, arkitekt,
Fjólugötu 23, Reykjavík.
Að gefnu tilefni
Frá Erni Sigurðssyni:
ÉG SÁ það í sjónvarpi að taka ætti
svæði vestan Hringbrautar fyrir
Landspítalann, frá húsi sem kallað
hefur verið Tanngarður og í átt að
Háskóla og er það af hinu góða og
þótt Umferðarmiðstöðin fari þá gerir
það ekkert til. Það eina sem ég var
ekki sáttur við var að færa átti
Hringbrautina til að tengja svæðin
saman. Það hafa verið grafin göng
undir Hvalfjörð og í gegnum Vest-
fjarðafjöllin en það er ekki hægt að
komast undir Hringbrautina frá
Landspítala að Tanngarði. Hvað er
eiginlega að þessum mönnum sem
bera þetta á borð fyrir almenning?
Það á að grafa mýrina frá Tjarnar-
enda út undir flugvöll og gera þar
veg með ærnum kostnaði algerlega
að ástæðulausu og það var ekki
minnst á það einu orði hvert vegur-
inn ætti að fara þegar kæmi að
Öskjuhlíð. Það getur verið að það sé
ekki búið að hugsa þetta til enda.
Hringbrautin er eina greiða leiðin úr
vesturbæ út úr bænum, því ennþá er
ekkert of greið leið frá Ánanaustum
að Kalkofnsvegi þótt það hafi mikið
lagast enda eru ekki fiskbílar af
Grandanum að fara þar um inn á
Kirkjusand og inn í Voga eins og áð-
ur var. Hringbrautin hefur alltaf ver-
ið fyrirmyndargata frá upphafi enda
var hún í Bláu bókinni (kosninga-
handbók Sjálfstæðisflokksins sem
gefin var út jafnan fyrir borgar-
stjórnarkosningar árum saman) oft-
ar en nokkuð annað og hún hefur
staðist umferðina í öll þessi ár og er
svo enn. Þetta er líka eina leiðin úr
vesturbæ frá Selsvör að Miklubraut.
Fólkið af Seltjarnarnesi og úr vest-
urbæ hefur enga aðra leið, en nú á að
ráðast í það spellvirki að eyðileggja
Miklubrautina. Í allri þeirri miklu
umræðu um bílastæðahús undir
Túngötu og Tjörninni þá hefur eng-
inn minnst einu orði á Arnarhólinn,
þó er kolaportið þar og hefur reynst
vel. Það á að byggja Tónlistarhús og
hótel við höfnina og tvö hótel við Að-
alstræti og enginn minnist einu orði
á að undir Arnarhólnum er bílastæði
aldarinnar, Ingólfur má vera á sínum
stað þótt bílar séu inni í hólnum. Ég
heyrði í fréttum að bráðlega, eftir
eitt til tvö ár, yrði farið í að gera mis-
læg gatnamót á Miklubraut-Kringlu-
mýrarbraut. Það gætu orðið margir
árekstrar þar áður en þau koma þótt
það sé gott fyrir þá sem þá lifa og
þess njóta, en það er bara á þessum
gatnamótum, öll önnur óbreytt.
Hvergi eru beygjuljós á neinni götu
inn á Miklubraut sem gætu þó hugs-
anlega fækkað árekstrum því flestir
verða árekstrarnir við að beygja til
vinstri inn á Miklubrautina af göt-
unum sem að henni liggja og allar
eru þær mjög fjölfarnar. Gaman
hefði ég af að heyra frá umferðarráði
hvað þeir hafa um málin að segja.
Mál er að linni.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Skemmdarverk
á Hringbraut
Frá Guðmundi Bergssyni: