Morgunblaðið - 24.03.2002, Side 52
DAGBÓK
52 SUNNUDAGUR 24. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Waldtraut B vænt-
anlegt og á morgun fer
Vigri RE út.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru Karelia og
Sevriba 2 væntanleg og
á morgun eru Wald
Troud B og Brúarfoss
væntanleg.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl 9 vinnustofa og
leikfimi, kl 13 vinnu-
stofa, kl 14 spilavist.
Sigvaldi verður með
dans kl. 11.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handavinnu-
stofan, kl. 10.15 leik-
fimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Allar upplýs-
ingar í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið, kl.
13–16 bútasaumur.
Eldri borgarar, Kjal-
arnesi og Kjós. Félags-
starfið í Hlaðhömrum
er á þriðju- og fimmtu-
dögum kl. 13–16.30,
spil og föndur. Les-
klúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11. Kór-
æfingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum fimmtudaga
kl. 17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014
kl. 13–16. Uppl. um
fót-, hand- og andlits-
snyrtingu, hárgreiðslu
og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan, Gullsmára
9, er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna, kl.
13.30 enska, framhald.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Þriðjudaginn
26. mars er spilað í
Holtsbúð kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un, mánudag, félagsvist
kl. 13.30 og púttæfing-
ar í Bæjarútgerð kl.
10–11.30. Þriðjudagur:
Brids. Nýir spilarar
velkomnir. Saumur
undir leiðsögn og frjáls
handavinna kl. 13.30.
Spænskukennsla kl.
16.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Sunnudagur: Félagsvist
fellur niður. Dansleikur
kl. 20. Caprí-tríó leikur
fyrir dansi.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði
í Glæsibæ, félagsheimili
Félags eldri borgara,
söng- og gamanleikinn
„Í lífsins ólgusjó“,
minningar frá árum
síldarævintýranna, og
„Fugl í búri,“ drama-
tískan gamanleik.
Næsta sýning miðviku-
daginn 27. mars kl. 14.
Ath. á morgun, sunnu-
dag, fellur sýningin
niður. Sýningum fer
fækkandi. Miða-
pantanir í síma 588-
2111 og 568-9082.
Mánudagur: Brids kl.
13.
Þriðjudagur: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði kl.
10.
Sparidagar á Örkinni
14.–19. apríl, skráning
á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Ath. sunnu-
dagana 24. og 31 mars
er lokað.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag myndlistarsýning
Braga Þórs Guðjóns-
sonar, opið frá kl. 13–
16. Listamaðurinn er á
staðnum. Veitingar í
veitingabúð. Á morgun,
mánudag, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Frá
hádegi spilasalur opinn.
Kl. 15.30 dans hjá Sig-
valda. Veitingar í veit-
ingabúð. Félagsstarfið
er opið mánud.,
þriðjud. og miðvikudag
í næstu viku. Fjöl-
breytt dagskrá. Veit-
ingar í veitingabúð. All-
ar uppl. um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.11
hæg leikfimi, kl. 13
lomber og skák, kl.
17.15 kórinn. kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist. Nýjung í Gull-
smára. Félagsvist verð-
ur spiluð þriðjudaginn
26. mars kl. 13. Jó-
hanna Arnórsdóttir
stjórnar. Allir velkomn-
ir.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia,
kl. 13 frjáls spila-
mennska, kl. 13.30
gönguferð. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Félags-
starfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla
mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund mánudag-
inn 25. mars kl. 19 í
Borgartúni 22, 3. hæð.
Samskipti, sjálfstraust,
skemmtun, skipulag,
stjórnun. Stef fund-
arins er: Hvað ungur
nemur, gamall temur.
Fundurinn er öllum op-
inn. Ath. breyttan
fundartíma. Nánari
uppl. veitir Jóhanna
Björnsdótir í síma 553-
1762, netfang: hann-
ab@isl.is
Safnaðarfélag Graf-
arvogskirkju. Páska-
eggjabingó á vegum
safnaðarfélags Graf-
arvogskirkju verður
haldið í safnaðarsal
Grafarvogskirkju
mánudaginn 25. mars.
Vinningar eru sem fyrr
páskaegg af mörgum
stærðum. Verð á bingó-
spjöldum er 200 kr.
Allir velkomnir. Stjórn-
in.
Minningarspjöld
Landssamtökin
Þroskahjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í
síma 588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla
virka daga milli kl. 8 og
16. Utan dagvinnutíma
er tekið á móti minn-
ingargjöfum á deild
11-E í síma 560-1225.
Hrafnkelssjóður (stofn-
að 1931) minningarkort
afgreidd í símum 551-
4156 og 864-0427.
Í dag er sunnudagur 24. mars,
84. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Deiglan er fyrir silfrið og bræðslu-
ofninn fyrir gullið, en Drottinn
prófar hjörtun.
(Orðskv. 17, 3.)
Víkverji skrifar...
SPURNINGAÞÁTTURINNGettu betur lauk göngu sinni að
þessu sinni í Sjónvarpinu á föstu-
dagskvöldið, með sigri Menntaskól-
ans í Reykjavík og er þetta tíunda
árið í röð sem MR-ingar fagna sigri!
Afrek MR-inga er einstaklega
glæsilegt og greinilegt að þar á bæ
er mikill metnaður til að halda áfram
á sigurbraut.
Lið Menntaskólans í Reykjavík
skipa að þessu sinni Atli Freyr
Steinþórsson, 4.C, Oddur Ástráðs-
son, 4.Y og Snæbjörn Guðmundsson,
4.A. Liðsstjóri er Helgi Hrafn Guð-
mundsson, 4.C. Þessar upplýsingar
er að finna á heimasíðu MR á Net-
inu.
Á heimasíðu MR segir einnig:
„Æfingakeppnir eru fastur liður í
undirbúningi spurningaliðsins fyrir
keppni í Gettu betur. Til að mynda
fóru þrjár æfingakeppnir fram í jan-
úarmánuði. Var þá keppt við lið
Flensborgarskólans í Hafnarfirði og
vannst sigur í sérhverri viðureign.
Æfingar eru haldnar oftar en viku-
lega á veturna og allt að sex sinnum í
viku meðan á keppni stendur.
Forpróf er haldið hvert ár. Niður-
stöður þess eru hafðar til hliðsjónar
þegar meðlimir spurningaliðsins eru
valdir.
Meðlimir spurningaliðsins sjá
einnig um Ratatosk sem er spurn-
ingakeppni milli bekkja.“
x x x
SIGURLIÐ MR í fyrra var skipaðHjalta Snæ Ægissyni miðju-
manni, Svani Péturssyni og Sverri
Teitssyni. Liðsstjórar þá voru Oddur
Ástráðsson og Snæbjörn Guðmunds-
son, tveir þeirra sem skipa sigurliðið
í ár. Skemmtilegt hvernig hópurinn
endurnýjast þannig ár frá ári.
x x x
SPURNINGAKEPPNI semGettu betur er stórfínt sjón-
varpsefni að mati Víkverja. Spennan
gjarnan mikil og áhugavert að sjá og
heyra hversu vel að sér hinir ungu
menntaskólanemar eru. Oft virðist
það með hreinum ólíkindum hvað
þeir vita.
Annar spurningaþáttur, Viltu
vinna milljón, er í miklu uppáhaldi á
heimili Víkverja. Varla líður svo það
sunnudagskvöld að fjölskyldan setj-
ist ekki saman og fylgist með Þor-
steini J. spyrja gesti sína spjörunum
úr á Stöð 2. Þorsteinn er líka eins og
fæddur í spyrilsstarfið.
x x x
ÞAÐ er Austfirðingum talsvertáfall að Norsk Hydro skuli ekki
treysta sér til að standa við það að
taka ákvörðun 1. september um
hvort af því verður að þeir taki þátt í
að reisa og reka álver á Reyðarfirði.
Fólk austur þar, a.m.k. sumir, geta
engu að síður brosað að þeirri löngu
bið eftir álveri sem orðin er stað-
reynd. Einn þeirra sendi Víkverja
þennan brandara í vikunni:
„Maður hittir ungan dreng á förn-
um vegi austur á fjörðum og spyr;
hvað ætlar þú að gera þegar þú verð-
ur stór?
– Bíða eftir álveri eins og afi, svar-
ar þá litli drengurinn!“
Þetta kallar Víkverji húmor í lagi.
Beiðni um
endursýningu
Í MORGUNBLAÐINU
föstudaginn 15. mars sl. eru
viðraðar hugmyndir íbúa
Þingholtanna um gerð
þriggja torga. Fyrir þá sem
ekki sáu þessa umfjöllun
gengur hún út á að byggja
upp þrjú torg þar sem íbú-
ar svæðisins geta hist með
eða án barna sinna, sest
niður og haft það notalegt.
Sjálfri finnst mér hug-
myndin frábær og vona að
úr framkvæmdum verði, þó
svo að ég sé ekki íbúi þessa
svæðis.
Í Ríkissjónvarpinu var
fyrir allnokkru sýnd dönsk
heimildamynd um skipulag
svæða, Livet mellem hus-
ene, og hét á íslensku Borg-
arlíf. Sú mynd vakti upp hjá
mér svipaðar kenndir og
þessi hugmynd Evu Maríu
Jónsdóttur um torgin, þ.e.
hversu mannlífið skiptir
miklu máli í lífi borgarbúa.
Í myndinni kemur glögg-
lega fram munurinn á
mannvænum arkitektúr
sem leiðir af sér iðandi líf
og köldum glæsilegum
svæðum sem fáir njóta sín
að ganga um eða hafa löng-
un til að setjast niður á.
Myndin sýnir mismun-
andi tísku í arkitektúr á
Norðurlöndunum og þar
með talið á Íslandi. Einnig
kemur fram hvaða áhrif
mismunandi arkitektúr
hefur á veðráttu, t.d. hvern-
ig vindsveipar geta skapast
í kringum háhýsi og hvers
vegna nánast hitabeltis-
loftslag er í Dragør, útjaðri
Kaupmannahafnar. Í
myndinni er útskýrt á skilj-
anlegan hátt af hverju sum
svæði verða vinsælli en
önnur, sem stafar meðal
annars af því, að þar sem
fólk sest niður verður það
að geta horft á mannlífið
eða fjölbreytt umhverfi.
Dæmi um slíkan vel heppn-
aðan stað á Íslandi (en ekki
var rætt um í myndinni) er
til dæmis Laugardalsgarð-
urinn. Nánast alltaf þegar
vel viðrar er iðandi mannlíf
í kringum tjörnina, ís-
lensku blómaflóruna og
vatnslistaverkið.
Í myndinni er einnig
fjallað um af hverju fólk
nýtur þess að ganga um
sum hverfi en ekki önnur.
Eftir að hafa horft á þessa
mynd finnst manni til dæm-
is eðlilegt að sú tenging
sem yrði frá Öskjuhlíð,
Tjörninni og fleiri svæðum
við Nauthólsvíkina – ef út í
byggingu á flugvallarsvæð-
inu yrði farið – væri þannig
úr garði gerð að fólk nyti
þess að ganga þessa leið.
Til þess þurfa ákveðnar
forsendur að vera fyrir
hendi, eins og lágar bygg-
ingar eða a.m.k. fallegar og
fjölbreytilegar framhliðar
hærri húsa, að vindstreng-
ur liggi ekki eftir endi-
langri götunni o.s.frv.
Það væri vel til fundið
hjá Ríkisútvarpinu að end-
ursýna þessa mynd, ekki
síst með tilliti til allrar
þeirrar umræðu sem fram
hefur farið um skipulag
svæða, byggingu háhýsa og
brottflutning flugvallarins.
Hildur.
Tapað/fundið
Gullhringur tapaðist
GULLHRINGUR með 3
rauðum steinum tapaðist
fyrir skömmu í Reykjavík
eða Kópavogi. Hringurinn
var smíðaður úr gömlum
gullhringjum og hefur því
persónulegt verðmæti.
Finnandi vinsamlegast hafi
samband við Sigríði í síma
861 2699 eða 565 5907.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT:
1 sundfuglar, 8 innt eftir,
9 kyrra, 10 dveljast, 11
mannsnafn, 13 eru ólatir
við, 15 vatnagangs, 18
gæði, 21 guð, 22 gana, 23
vesælum, 24 örlagagyðja.
LÓÐRÉTT:
2 Ásynja, 3 skipar fyrir, 4
reiðan, 5 ilmur, 6 æsa, 7
bera illan hug til, 12
hagnað, 14 bókstafur, 15
bjálfi, 16 markleysa, 17
trébala, 18 alda, 19 snák-
ur, 20 nokkur hluti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fenna, 4 þarft, 7 jötna, 8 álfar, 9 nær, 11 taut,
13 bali, 14 rykki, 15 edrú, 17 koll, 20 hné, 22 dafna, 23
túðan, 24 runan, 25 ræður.
Lóðrétt: 1 fljót, 2 nýttu, 3 aðan, 4 þrár, 5 rifta, 6 torgi, 10
æskan, 12 trú, 13 bik, 15 eldur, 16 rifan, 18 orðað, 19 lin-
ur, 20 hann, 21 étur.
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
HVERNIG stendur á því
að leiðsögumenn gerast
bílstjórar samtímis? Telst
þetta ekki vera hættulegt?
Þarna er fólk með hugann
við tvennt í einu og stofn-
ar öðrum í hættu. Það er
nú ekki eins og þeir séu
bara að hugsa um sjálfa
sig. Hver man ekki eftir
skilti sem hefur hangið við
sæti strætisvagnastjóra í
áraraðir þar sem bannað
er að tala við bílstjóra í
akstri? Af hverju halda
menn að þessi skilti hafa
verið sett upp? Er ekki
kominn tíma til að gera
eitthvað í þessu máli?
Það mætti hugsa út í
það sem Chuck Hurley,
talsmaður bandarísku ör-
yggissamtakanna Itasca),
sagði eitt sinn: Að það sé
ekki spurningin um hvar
hendurnar séu heldur
hvar hugurinn sé. Menn
hljóta að átta sig á þessari
merkingu. Það eru ekki
einu sinni til reglugerðir
fyrir þessa starfsstétt.
Menn eru akandi um í
stórum bílum fullum af
fólki og segja frá á sama
tíma hvað fyrir augu ber
og þess háttar. Það ætti
allavega að setja ákveðna
tölu á farþegafjölda fyrir
þessa starfsgrein og hafa
hana ekki hærri en 8. Það
skiptir ekki máli þótt um
sé að ræða handfrjálsan
búnað í bílnum, hugurinn
er áfram við tvennt í einu.
Og svo er alltaf sú hætta
fyrir hendi að hóparnir
verði stærri og stærri
þannig að þá verður þetta
eins og með svo margt
annað að ekkert er gert í
málinu fyrr en slys hlýst
af.
Það er mikil ábyrgð að
vera bílstjóri almennt
hvað þá ef menn gerast
leiðsögumenn á sama
tíma.
F.h. stjórnar hóp-
ferðaleyfishafa,
Bjarni Björnsson.
Leiðsögumaður – bílstjóri