Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 7. APRÍL 2002
78. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Haustbæklingur
Heimsferða um
Prag og Búdapest
er kominn út.
STOFNAÐ 1913
ferðalögSigling um HvalfjörðbílarBreyttur DiscoverybörnPétur PanbíóVinnie Jones
Sælkerar á sunnudegi
Mýs á sunnudagsmorgni
Um 300
manns æfa
hnefaleika
í sátt við
landslög
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
7. apríl 2002
Morgunblaðið/Ásdís
Í fjötrum fátæktar
Fátækt er staðreynd í ís-
lensku samfélagi. Í
hverjum mánuði á
fjöldi Íslendinga ekki
fyrir mat ofan í sig og
fjölskyldur sínar. Hærra
matvöru- og lyfjaverð
og þyngri greiðslubyrði
af lánum í kjölfar verð-
bólgu undanfarinna
mánaða virðist hafa
mikil áhrif á verst settu
hópana og sífellt fleiri
leita aðstoðar hjálpar-
samtaka. Ragna Sara
Jónsdóttir ræddi við
öryrkja og einstæðar
mæður sem ná ekki
endum saman og kann-
aði hvernig lífi þau lifa.
B
Farsælt
og frið-
samlegt
10
Deilt um
keisarans skegg
14
Takmarkalaus
virðing fyrir
skilningarvitunum
18
TALIÐ er líklegt að stjórnendur
þýsku fjölmiðlasamsteypunnar
KirchMedia neyðist á morgun,
mánudag, til að fara fram á það með
formlegum hætti að fyrirtækið verði
lýst gjaldþrota. Upp úr slitnaði fyrir
helgi í viðræðum eigendanna við lán-
ardrottna og minni hluthafa í fyrir-
tækinu, um að þeir fengju yfirráð
þess í sínar hendur gegn því að þeir
legðu til fé sem tryggði áframhald-
andi rekstur þess.
Skuldir KirchMedia, sem m.a. er
rétthafi á sjónvarpsútsendingum frá
Formúlu 1-kappakstrinum og
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu, eru taldar nema um 6,5
milljörðum evra, eða um 600 millj-
örðum króna. Fyrirtækið er fjöl-
skyldufyrirtæki og eiga Leo Kirch
og sonur hans, Thomas, samanlagt
79% hlut.
Ríkisábyrgðir til að bjarga
þýsku knattspyrnunni?
Fari KirchMedia á hausinn er gert
ráð fyrir að slegist verði um réttinn
til að sjónvarpa frá Formúlu 1 og
HM í knattspyrnu, sem fram fer í
Japan og S-Kóreu í sumar. Margir
óttast hins vegar að nokkur stærstu
knattspyrnufélaganna í Þýskalandi
fari á hausinn í kjölfar hruns Kirch-
Media en samsteypan er helsti
styrktaraðili þýsku úrvalsdeildar-
innar. Þykir engan veginn víst að fé-
lögin geti fjármagnað starfsemi sína
án þeirra tekna sem samningur við
KirchMedia um sjónvarpsútsend-
ingar hefur aflað þeim. Eru uppi get-
gátur um að stjórnvöld neyðist til að
koma knattspyrnufélögunum til að-
stoðar með því að veita þeim ríkis-
ábyrgðir á skuldum þeirra.
Gjaldþrot
KirchMedia
talið óum-
flýjanlegt
Frankfurt, München. AP, AFP.
ÍSRAELSHER færði enn út kvíarn-
ar á heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna í gær en þá tóku Ísraelar á sitt
vald bæina Yatta, suður af Hebron, og
Qabatiya, norður af Nablus, þrátt fyr-
ir mótspyrnu palestínskra bardaga-
manna. Harðir bardagar geisuðu í
fyrrinótt og í gærmorgun í Jenín og
Nablus og fullyrtu Palestínumenn að
Ísraelar hefðu fellt a.m.k. þrjátíu Pal-
estínumenn í flóttamannabúðum í
Jenín.
„Þetta er dagur fjöldamorða í Jen-
ín. Ég hef rétt í þessu fengið fréttir
frá forstjóra sjúkrahússins í Jenín um
að a.m.k. þrjátíu píslarvætti,“ sagði
Yasser Abed Rabbo, ráðherra upp-
lýsingamála í heimastjórn Palestínu-
manna, á arabísku sjónvarpsstöðinni
al-Jazeera.
Fyrr í gær hafði komið fram að
a.m.k. tíu Palestínumenn hefðu fallið í
aðgerðum Ísraela í fyrrinótt. Þá
sögðu talsmenn Ísraelshers að sjö
hermenn hefðu fallið undanfarna tvo
daga í skærum í bænum Jenín.
Svo virtist sem stjórnvöld í Ísrael
létu sig engu varða skilaboð sem Col-
in Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sendi þeim á föstudagskvöld
en þá sagði hann að Ísraelum bæri að
kalla her sinn frá heimastjórnarsvæð-
um Palestínumanna „án tafar“.
Ummæli Powells, sem eru í sam-
ræmi við ályktun öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna frá því á föstudag,
komu eftir mesta mannfall á einum
degi í árásum Ísraela en alls biðu 35
Palestínumenn og einn Ísraeli bana á
föstudag. Meðal þeirra sem féllu var
Qais Idwan, liðsmaður Hamas-sam-
takanna, sem Ísraelar segja hafa ver-
ið ábyrgan fyrir sprengjutilræði sem
kostaði 26 Ísraela lífið í páskavikunni.
Hétu fulltrúar Hamas því í gær að
þeir skyldu hefna dauða Idwans með
slíkum hætti að hrikta myndi í stoðum
Ísraelsríkis.
Krefjast þess að Powell
fundi með Arafat
Powell heldur til Mið-Austurlanda í
dag, sunnudag, en í gær hvatti Nabil
Shaath, ráðherra í heimastjórn Pal-
estínumanna, alla leiðtoga arabaríkj-
anna til að virða Powell að vettugi
neiti hann að hitta að máli Yasser
Arafat. Sagði hann að þeir myndu
fara fram á þetta enda væri Arafat
réttkjörinn leiðtogi Palestínumanna.
Útvarpsstöð í Ísrael greindi frá því,
að stjórnvöld hefðu hafnað beiðni pal-
estínskra embættismanna um að þeir
fengju að hitta Yasser Arafat en
honum hefur verið haldið í herkví í
Ramallah.
Fyrr um daginn hafði palestínskur
embættismaður fullyrt að Ísraelar
hefðu tekið allt rafmagn af skrif-
stofum Arafats.
Áfram mikið mannfall
í Mið-Austurlöndum
Sharon/12
Jerúsalem, Nablus, Kaíró. AFP.
ÞÚSUNDIR manna biðu í gær í biðröð fyrir
framan Westminster Hall í London í því skyni að
votta Elísabetu drottningarmóður hinstu virð-
ingu. Kista með líki Elísabetar mun standa
frammi í Westminster þar til á þriðjudag, en þá
verður hún jörðuð. Hún lést 30. mars sl., 101 árs.
Reuters
Þúsundir kveðja Elísabetu drottningarmóður