Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 41 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar                                                          !"     # $%     "    &         '(  )    ' ' ' ' ' " ✝ Guðrún Ár-mannsdóttir fæddist á Hofteigi á Akranesi 19. ágúst 1929. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu- daginn 1. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Ármann Ingimagn Halldórs- son skipstjóri, f. 31.12. 1892, d. 26.6. 1956, og Margrét Sól- veig Sigurðardóttir, f. 17.8. 1897, d. 26.2. 1989. Þau bjuggu á Hofteigi á Akranesi. Systkini Guð- rúnar eru Jórunn, f. 2.1. 1917, d. 8.11. 2000, maki Sighvatur Bjarnason, d. 29.1. 1991, Sigríður Ásta, f. 3.7. 1918, maki Elías Jón Guðjónsson, d. 14.9. 1989, Valdi- mar, f. 26.4. 1920, d. 2.10. 1925, Ármann, f. 27.4. 1922, maki Ingi- björg Elín Þórðardóttir, Sigurður, f. 21.2. 1924, d. 3.1. 1925, Sigvaldi, f. 28.8. 1928, maki Jóna Katrín Guðnadóttir, Halldór, f. 31.5. 1932, maki Sigríður Jóna Sigþórs- dóttir, d. 7.6. 1991, og Margrét, f. 5.2. 1937, maki Sigurður Ólafsson. Árið 1954 giftist Guðrún Þor- keli Kristinssyni raf- virkja, f. 14.6. 1929 í Reykjavík. Foreldr- ar hans voru Júnía Stefánsdóttir, d. 31.10. 1998, og Krist- inn Sveinsson, d. 15.10. 1991. Börn Guðrúnar og Þor- kels eru: 1) Margrét Sólveig Traustadótt- ir, f. 12.10. 1951 (stjúpdóttir Þor- kels), maki Gísli Freysteinsson, sonur þeirra Björgvin, fyr- ir átti Margrét einn son, Þorkel, sonur hans er Patrek- ur Sveinn. 2) Júnía, f. 16.6. 1955, sonur hennar Jón Gunnar, dóttir hans er Thelma Björk. 3) Málfríð- ur, f. 16.6. 1955, maki Sigurður M. Jónsson, börn Ingvar Ágúst og Ragnar Lárus. 4) Sveinn, f. 7.5. 1959, maki Guðbjörg Vestmann. 5) Sigríður, f. 9.4. 1964, maki Þor- finnur Ísleifsson. Guðrún og Þor- kell bjuggu allan sinn búskap á Akranesi. Útför Guðrúnar fer fram frá Akraneskirkju á morgun, mánu- daginn 8. apríl, og hefst athöfnin klukkan 14. Á morgun mun ég kveðja ástkæra ömmu mína Guðrúnu Ármannsdótt- ur sem lést á Landspítalanum við Hringbraut eftir stutta sjúkdóms- legu. Það var í marsbyrjun sem hún var lögð inn á sjúkrahús og átti því mið- ur ekki afturkvæmt. Hún var svo sterk að hún ætlaði heim aftur, en því miður snerist blaðið við og sú barátta tapaðist við þennan illvíga sjúkdóm. Það er margs að minnast en ég veit ekki hvar ég á að byrja. Þegar mér var tilkynnt úti á sjó að hún hefði verið lögð inn á sjúkrahús og væri mikið veik langaði mig að fara heim strax, en það fannst henni rugl að vera taka sér frí á miðri loðnuvertíð út af sér, þannig er henni best lýst. Amma og afi hafa alltaf haft fjöl- skylduna í fyrirrúmi, öllum tekið með ást og hlýju, og öll þau jóla- og kaffiboð sem þar hafa verið eru ótelj- andi, þar er mikið skarð komið þar sem hana ömmu vantar nú í hópinn, þessar stundir hafa haldið fjölskyld- unni saman. Á mínum uppvaxtarárum eyddi ég mörgum stundum hjá þeim, þó að stundirnar hefðu verið færri hin síð- ari ár, sökum starfs míns, þá voru þær bara betri. Það var margt brall- að á þeim árum, þegar ég var u.þ.b. fimm ára á Jaðarsbrautinni taldi ég ömmu á að búa til túttubyssu fyrir mig, ég fór auðvitað beint út með nýja vopnið og skaut að sjálfsögðu í nærstatt fólk. Þá var lögreglan kvödd til og ég hljóp heim til hennar logandi hræddur yfir gjörðum mín- um og henti byssunni og snerti ekki í bráð. Ekki minnist ég þess að hún hafi kjaftað frá þessu, sagði bara: Þér var nær. Eitt skipti fórum við frændur nið- ur í vinnu til hennar og biðum eftir að hún væri búin. Vorum við með forláta gamalt hjól með okkur og plötuðum hana upp á það og létum hana hjóla, að sjálfsögðu grétum við úr hlátri, því hún tók alla götuna til þess, var það mildi að hún datt ekki eða mætti bíl, að sjálfsögðu var ég í forystu með þetta uppátæki. Hún hefur alltaf staðið með mér, sama hvað ég hef tekið mér fyrir hendur, og neitað að trúa að ég hafi gert eitthvað rangt, svoleiðis tali eyddi hún strax, auðvitað veit ég bet- ur. Mér þykir sárast að hún geti ekki verið viðstödd þegar stóra stundin hjá mér verður í sumar, en ég veit að hún fylgist með úr fjarlægð. Þetta var yndisleg manneskja í alla staði sem ég sakna sárlega. Elsku afi, missir þinn er mikill, þú átt hug okkar allra og vona ég að þú standir upp úr þessu og haldir áfram því sem þú og amma hafið gert. Ég votta ykkur öllum mína dýpstu sam- úð. Þorkell Pétursson. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmungáog rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá Lambsins stól. (Hallgr. Pét.) Hún Gunna frænka lést á annan í páskum sl. eftir snörp og erfið veik- indi. Við vonuðum öll að hún hefði betur með sínum meðfædda dugn- aði, en það dugði ekki til í þetta sinn, því miður. Við vitum líka að hún var svo mik- ið veik og þreytt . Hún var umvafin af fjölskyldu sinni og starfsfólkið á deildinni var einstakt og hún ánægð með allt sem fyrir hana var gert. Hún Gunna frænka var frænka allra í fjölskyldunni, jafnt skyldra sem tengdra og lét sér annt um okk- ur öll. Hún var mikil dugnaðarkona og nutum við svo iðulega góðs af því. Hvort sem þurfti aðstoð við sauma- eða prjónaskap var alltaf vel tekið á móti manni og flíkin jafnvel kláruð meðan stoppað var við. Og dúkkuföt- in, þau voru nú heldur betur vinsæl, vettlingar með þumli og allt fullkom- ið. Hún var gædd þeim einstöku hæfileikum að vera bæði vandvirk og hraðvirk, sem nýttust henni svo sannarlega gegnum ævina. Þau Keli maðurinn hennar ólu upp börnin sín fimm, sem öll eru dugleg, góð og trygg og hafa þau stutt foreldra sína á allan hátt, ekki síst þessar erfiðu vikur. Heimili þeirra var alltaf einstak- lega notalegt og snyrtilegt og oft erf- itt að skilja hvernig það var hægt með sjö manna fjölskyldu, en snyrti- mennskan er þeim öllum í blóð borin. Gunna frænka ræktaði sína fjöl- skyldu vel og mikið er erfitt fyrir systur hennar, Siggu og Grétu, að sjá á eftir henni. Það er ómetanlegt hve mikla tryggð og umhyggju hún hefur sýnt þeim alla tíð til hinstu stundar. Hún krafðist ekki neins fyr- ir sig en var alltaf tilbúin að búa í haginn fyrir aðra. Gunna frænka var ekki með fag- urgala né hégóma, maður vissi alltaf hvar maður hafði hana og það var gott. Að leiðarlokum þökkum við sam- fylgdina og óskum þess að Gunnu frænku líði vel. Elsku Keli, Margrét, Júna, Fríða, Svenni , Sigga og fjölskyldur, Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgr. Pét.) Hinsta kveðja. Guðjón, Vigdís Gunnhildur og börn. Guðrún Ármannsdóttir, ömmu- systir mín, er látin langt fyrir aldur fram. Allt frá því ég man fyrst eftir mér fyrir rúmum aldarfjórðungi hef- ur Gunna verið fyrir mér Gunna frænka með stóru f-i og það var svo sannarlega engin tilviljun að fyrsta dúkkan mín var látin heita í höfuðið á henni. Þegar litið er til baka koma fyrst upp í huga minn minningar tengdar kaffisopaheimsóknum mínum og pabba sem við fórum oft í til Gunnu frænku eftir að pabbi var búinn að sækja mig á leikskólann. Það var aldrei hætta á því að við kæmum að tómum kofunum hjá Gunnu frænku í þessum heimsóknum. Hún tók jafn- an hressilega á móti okkur og reiddi fram miklar kræsingar á mettíma. Bestar voru þessar heimsóknir í des- ember þegar Gunna frænka var búin að baka hinar ómótstæðilegu loft- kökur sem enginn bakaði eins góðar og hún. Eftir því sem árin liðu fækkaði þessum heimsóknum en í staðinn lágu leiðir okkar oftar saman yfir kaffibolla hjá ömmu Siggu. Þar sem margt var skrafað um landsins gagn og nauðsynjar og spunnust oft fjör- ugar umræður þar sem enginn lá á skoðunum sínum. Gunna frænka var fyrir mér ein- stök kona sem sýndi sinni stóru fjöl- skyldu og öðrum ættingjum mikla umhyggju og hlýju. Hún er í mínum huga ein að þessum persónum sem gefa lífinu gildi með sínum skemmti- lega persónuleika og skoðunum og verður því sárt saknað af öllum sem hana þekktu. Elsku Keli, Magga, Fríða, Júna, Svenni, Sigga og fjölskyldur, megi góður Guð veita ykkur styrk sorg- inni Blessuð sé minning minnar kæru frænku. Sigríður Ásta. Okkur langar að minnast móður- systur okkar Guðrúnar Ármanns- dóttur í nokkrum orðum. Hún lést 1. apríl sl. eftir stutta sjúkrahúslegu, annars hafði hún verið frekar heilsu- hraust fram að þeim tíma. Gunna frænka eins og við kölluð- um hana var alltaf tilbúin að hjálpa okkur öllum á einn eða annan hátt, tók okkur ávallt opnum örmum. Hún var fjölskyldunni okkar stoð og stytta gegnum árin. Hún hafði létta lund, gott skopskyn, var lítillát, um- hyggjusöm og hjartahlý. Fjölskyldan og heimilið var henni allt. Það var sama hvað hún tók að sér, allt lék í höndunum á henni, bæði var hún fljótvirk og vandvirk. Að leiðarlokum kveðjum við frænku okkar með þakklæti og hlýju. Kela, eiginmanni hennar, börnum og þeirra fjölskyldum, sem henni voru svo einstaklega kær, sendum við innilegar samúðarkveðjur á erf- iðum tímum. Blessuð sé minning frænku okkar. Ólafur Frímann, Margrét Sólveig, Emelía Petrea og Ólína Ása. GUÐRÚN ÁRMANNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Ármannsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                                             !!"#$"%  !!"# &! $$' (" ) $"%  * +* , ! $"%   & $$'  -. &'& -.                                 ! "!               !" # $%&' (!&                      !" " #$ %&' '                  ()*+ ,- ).  ))* ))  )-)   + /*,- '.   * ).   0!))-)  ,  )-)  ()*1 )..  '  )-)  )  )*-+*  )  )  )                                          !    "#$   !%&'  (('!#!(((' Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.