Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 15
TILBOÐ ÓSKAST
í Kia Sportage 4x4 árgerð 1999
sjálfskiptur (ekinn 25 þús. mílur)
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 9. apríl kl. 12-15.
VINNUFLOKKABIFREIÐ
Ennfremur óskast tilboð í Chevrolet P/U
6 manna árgerð 1988 m/ dieselvél.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Á VORDÖGUM verður íþrótta-
minjasafn opnað í Safna-
skálanum við Byggðasafn
Akraness í Görðum. Hugmynd-
in að íþróttasafni á Akranesi
hefur verið lengi í umræðunni.
Fyrst í stað var hugmyndin að
sýna muni sem tengdust
Íþróttabandalagi Akraness, ÍA,
en þegar undirbúningur að
slíkri sýningu hófst var stefnan
tekin á að safna einnig hlutum
sem tengdust íþróttasögu Ís-
lands.
Jón Allansson, forstöðumaður
safnsins, sagði að mikil frum- og
heimildavinna væri að baki sýning-
unni en stefnt væri á að opna sýn-
inguna í maí og mun hún verða hluti
af safninu í nánustu framtíð og upp-
færð reglulega.
Björn G. Björnsson listfræðingur
hefur haft umsjón með uppsetningu
og heildaryfirbragði sýningarsvæðis-
ins sem er í 130 m2 rými í
Safnahúsinu sem reist var á sl. ári og
hýsir m.a. Steinaríki Íslands. Jón
sagði ennfremur að markmiðið væri
að sýningin yrði myndræn, fjölbreytt
og aðgengileg fyrir alla aldurshópa.
Ennfremur verða tölvur og
sjónvarpsskjáir á svæðinu sem
sýningargestir geta nýtt sér.
Að sögn Jóns hefur aðsóknin að
safninu verið góð undanfarin ár og
starfsemin á svæðinu nú fjölbreyttari
en áður. Nýverið gerði Akranes-
kaupstaður samkomulag við Steina-
ríki Íslands um að veita þjónustu og
hafa umsjón með almennri upp-
lýsingagjöf til ferðamanna sem
heimsækja Akranes og ætti það að
draga fleiri á svæðið.
Byggðasafnið í Görðum var stofnað
árið 1959 að frumkvæði sr. Jóns
M. Guðjónssonar, þáverandi
sóknarprests á Akranesi. Safnið
er á fornu höfuðbóli og
varðveitir heildstætt safn muna.
Veglegasti gripur safnsins er
Kútter Sigurfari, eikarseglskip
frá árinu 1885. Skipið hefur
verið fært í upprunalegt horf og
er eini kútterinn sem
varðveittur er úr fyrri tíðar
þilskipastóli Íslendinga.
Gamli prestsbústaðurinn í
Görðum, Garðahúsið, frá árinu
1876, er fyrsta steinsteypta
íbúðarhúsið sem byggt var hérlendis.
Húsið hefur verið endurbyggt og er
nú til sýnis ásamt ýmsum húsbúnaði.
Neðri-Sýrupartur, frá árinu 1875, er
elsta varðveitta íbúðarhúsið á
Akranesi og var það flutt á
safnasvæðið haustið 1990. „Háskólinn
á Geirstöðum“ eða Geirstaðir, frá
árinu 1903, var flutt á safnasvæðið
vorið 1994. Er nú unnið að
endurbyggingu þess á vegum
safnsins en það er einna þekktast sem
skólahús fyrir yngstu nemendur á
Akranesi.
Íþróttir bætast í fjöl-
breytta flóru safnsins
Neðri-Sýrupartur og Geirstaðir setja svip
sinn á sýningarsvæði Byggðasafns Akraness.
Akranesi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar