Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 21
reistu sitt framtíðarheimili á Sel- tjarnarnesi á stríðsárunum – á tímum þegar skömmtun á nauðsynjum var í algleymingi og efni og lánsfé til hús- bygginga af skornum skammti. Fyrsta barnið, Sigríður, leit dagsins ljós árið 1944 og síðan komu Bryndís (1948) Jóhann (1949) og Björn (1951). Sveinn var vélstjóri og sótti sjóinn en Unnur sá um heimilið. Lífið gekk sinn vanagang þar til rétt fyrir jólin 1955. ,,Ég var í Gufunesi að lesta áburð í skipið sem ég var vélstjóri á og á leið til Húsavíkur þegar mér voru færðar þær fréttir að Unnur væri lögst fár- veik í rúmið og að nærveru minnar væri óskað heima,“ segir Sveinn. ,,Ég vissi að hún var búin að vera lasin, sem og strákarnir okkar, en á þeim tíma tíðkaðist ekki að húsmæður eða vinnandi fólk legðist í rúmið fyrr en það stóð ekki lengur á fótunum og þá var stundum í óefni komið. Unnur hafði því verið á fótum og séð um heimilið eins og venjulega þrátt fyrir veikindin sem án efa hefur gert sótt- ina verri. Þegar ég kom heim nokkr- um klukkustundum síðar var Unnur búin að missa máttinn í fótunum.Við áttuðum okkur ekki á því sem var að gerast og það gerði heimilislæknirinn okkar ekki heldur og taldi þetta vera einhvers konar inflúensu. Við höfðum ekkert heyrt um að skæður mænu- sóttarfaraldur gengi í Reykjavík og nágrenni og því hvarflaði ekki að okk- ur að um mænusótt gæti verið að ræða. Heilsu Unnar hélt hins vegar áfram að hraka og tveimur dögum síðar kom Alma Þórarinsson læknir í vitjun og hún var í engum vafa um að hér væri á ferðinni mænusótt og Unnur var flutt á Heilsuverndarstöð- ina þar sem hún dvaldi fram á mitt ár 1957.“ Mænusóttarfaraldrar tíðir alla öldina Heilsuverndarstöðin var þá ný- byggð og átti aldrei að verða spítali. Heilbrigðiskerfið var hins vegar illa í stakk búið til þess að taka á móti þeim mikla fjölda sjúklinga sem veiktust í faraldrinum 1955. Þá var brugðið á það ráð að leggja alla mikið veika mænusóttarsjúklinga inn á Heilsu- verndarstöðina sem var um leið breytt í nokkurs konar bráðaspítala. Mænusótt var ekki ný af nálinni, hérlendis eða í nágrannalöndum okk- ar, en það er ekki fyrr en komið var langt fram á 19. öld sem læknar fóru að veita henni verulega athygli. Yf- irleitt bar ekki mikið á mænusóttinni fyrr en komið var fram yfir 1900 en þá fara faraldrar að verða tíðari og stærri bæði hér á landi og erlendis og var svo þar til vísindamönnum tókst að þróa bóluefni gegn mænusóttinni í kringum 1950 og farið var að bólu- setja fólk. Í grein sinni um mænusóttarfar- aldra á Íslandi 1904–1947, sem birtist í Læknablaðinu árið 1948, segir Júl- íus Sigurjónsson að mænusóttar sé fyrst getið í skýrslum lækna hér á landi árið 1904 en þá hafi komið upp faraldur í Reykjavík. Af lýsingum af dæma í öðrum heimildum megi þó ætla að mænusóttartilfelli hafi komið upp fyrir þann tíma. Sennilega voru einungis skráð í heilbrigðisskýrslur mænusóttartilfelli þar sem lömunar varð vart fram til ársins 1951 en þá var farið var að skrá alla sem sýktust, einnig þá sem ekki lömuðust. Þessi vitneskja skekkir töluvert heildarmyndina af gangi mænusóttar hér á landi á fyrstu áratugunum en samkvæmt heilbrigðisskýrslum virð- ast mænusóttarfaraldrar, reyndar misstórir, ganga á um tíu ára fresti. Fyrstu faraldrarnir, 1904–1905 og 1914–1915 virðast ekki stórir miðað við það sem síðar gerðist, en þess ber þó að gæta að talsverður munur var á fólksfjölda á Íslandi á fyrstu áratug- um aldarinnar og um hana miðja sem og að skráningunni gæti hafa verið ábótavant. Þegar leið á öldina urðu samgöngur einnig greiðari og sýkill- inn þá eflaust borist hraðar á milli manna og landshluta en í flestum til- fellum voru mænusóttarfaraldrarnir bundnir við landsvæði eða landshluta. Mænusóttarfaraldurinn 1955–56 var sá síðasti sem hér gekk en alls voru þá 833 skráðir með mænusótt samkvæmt heilbrigðisskýrslum og þar af lömuðust 133 en tveir dóu í kjölfar lömunar á öndunarfærum. Konur sem lömuðust voru nokkru fleiri en karlar og flestir sem lömuð- ust voru á aldursbilinu 20–40 ára. Bar harm sinn í hljóði Unnur var 33 ára þegar hún tók sóttina. ,,Henni hrakaði allt- Mænusóttarveiran. Yfir 800 tilfelli greindust á Íslandi 1955. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 21  Símar: 515 1735 og 515 1731 Bréfasími: 515 1739 Farsími: 898 1720 Netfang: oskar@xd.is Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin. Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt. Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.30 – 15.30. Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar. Utankjörsta›askrifstofa Sjálfstæ›isflokksins Sjálfstæ›isfólk! Láti› okkur vita um stu›ningsmenn sem ekki ver›a heima á kjördag, t.d. námsfólk erlendis. Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.