Morgunblaðið - 07.04.2002, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 07.04.2002, Qupperneq 7
AÐ undanförnu hafa selir verið tíð- ir gestir í Grafarvoginum og verið íbúum og öðrum vegfarendum til ánægju, enda ekki á hverjum degi sem sundgarpar hafdjúpanna sýna sig í íbúðahverfum höfuðborg- arinnar. Þegar fólk fær slíkar heimsóknir hljóta að rifjast upp fyrir mörgum þjóðsögur sem fjalla um samskipti sela og manna eins og t.d. Selshamurinn, hin ljúfsára saga um selinn sem átti sjö börn í sjó og sjö í landi. Selur heimsækir Grafarvog Morgunblaðið/GuðlaugurWium FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 7 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 17 35 9 0 4/ 20 02 Traustur íslenskur ferðafélagi Ferðatímabil: Apríl og maí. Sölutímabil: Til 13. apríl. Hámarksdvöl: 21 dagur. Lágmarksdvöl: 7 dagar Síðasta heimkoma: 7. júní. Ferðirnar gefa 4200-5000 ferðapunkta og 1000 að auki í Netflugi. *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og þjónustugjöld. **Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Baltimore/Washington Boston, New York Minneapolis 42.610 kr.** www.icelandair.is 42.460kr.** Baltimore/Washington Boston, New York 46.360 kr.* Minneapolis 46.510 kr.* Söluskrifstofur/Fjarsala Tilboð til vesturstrandarinnar og víðar: Los Angeles, San Diego, San Fransisco, Las Vegas, Phoenix, Seattle, Denver, New Orleans, Chicago 62.030 kr.* Ef bókað er á Netinu er ekki innheimt 900 kr. þjónustugjald. Við bjóðum flugfar til neðangreindra borga í apríl og maí á einstæðu verði. Blómstrandi vortilboð Komdu út í vorið í Bandaríkjunum Hafið samband við söluskrifstofur eða Fjarsöludeild Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud.-föstud. kl. 8-20, laugard. kl. 9-17 og sunnud. kl. 10-16). Eða bókið sjálf á netinu, www.icelandair.is. TVÆR bílveltur urðu með stuttu millibili á höfuðborgar- svæðinu í fyrrakvöld. Rétt fyrir klukkan 19 missti ökumaður vald á bifreið sinni á Njarðar- götu við Vatnsmýrarveg með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist mikið og varð að flytja hana á brott með krana- bifreið. Ökumanninn, sem var einn í bifreiðinni, sakaði ekki. Mildi að ekki varð stórslys Þá varð bílvelta á Reykjanes- braut við Álverið í Straumsvík um klukkan 19.30. Ökumaður, sem var einn í bifreiðinni á norðurleið, missti vald á henni og ók inn á öfugan vegarhelm- ing áður en bifreiðin fór út af veginum og valt sex metra nið- ur í úfið hraun með þeim afleið- ingum að eldur kviknaði í henni og var Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins kallað út. Maðurinn var fluttur á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi með meiðsli í andliti en lögregl- an í Hafnarfirði telur mikla mildi að ekki varð stórslys. Tvær bíl- veltur á rúmum hálftíma Skýrsla um störf rannsóknarnefndar flugslysa árið 2001 Enginn Íslend- ingur slasaðist í flugi í fyrra ENGIN slys urðu á mönnum í flugi íslenskra loftfara í fyrra en eitt dauðaslys varð þegar tveggja hreyfla bandarísk flugvél fórst með tveimur konum nálægt Þrídröngum undan suðurströnd landsins í mars. Árið 2000 fórust hins vegar sex Íslending- ar eftir flugslys í Skerjafirði. Þetta kemur fram í skýrslu sam- gönguráðherra um störf rannsóknar- nefndar flugslysa í fyrra. Þormóður Þormóðsson, rannsókn- arstjóri flugslysa, segir flugslysið við Þrídranga hafa verið alvarlegasta slys ársins og rannsóknarnefndin hafi þurft að leigja skip með neðansjáv- armyndavél og sónar til að reyna að finna flak vélarinnar. Verulegur kostnaður hafi verið vegna þessa en í lögum sé þó ákvæði um það að nefnd- in geti fengið aukafjárveitingu þegar óvænt atvik beri upp. „Það var leitað að vélinni en hún fannst ekki og við ræddum það við Bandaríkjamenn hvort þeir vildu fara út í frekari leit en þeir vildu ekki fjármagna hana. Vélin er hins vegar á togslóð og við vorum að vonast eftir að hún kæmi í troll en það hefur ekki enn gengið eftir.“ Þormóður segist telja að síðasta ár hafi verið nálægt meðalári hvað varð- ar fjölda flugslysa og flugatvika en ár- ið 2000 hafi á hinn bóginn verið óvenju mikið um flugatvik. Þormóður segir að rannsóknarnefnd flugslysa hafi skráð samtals 89 tilvik í flugi ís- lenskra loftfara hér heima og erlendis og í flugi erlendra loftfara um ís- lenska lögsögu og um íslenska flug- stjórnarsvæðið. Af þessum atvikum hafi 26 atvik verið skilgreind sem flugslys, flugumferðaratvik eða alvar- leg flugatvik og tekin til formlegrar meðferðar og rannsóknar af hálfu nefndarinnar. Í árslok átti nefndin eftir að ljúka skýrslum vegna þriggja mála, flug- slyssins við Þrídranga, flugslyss kennsluvélar í Eyjafirði og flugatviks þegar Metró-vél Flugfélags Íslands hlekktist á í lendingu á Hornafjarð- arflugvelli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.