Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.04.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Málþing jafnréttisnefndar kirkjunnar Ekki aðeins hagsmunamál VEGNA kosninga tilkirkjuþings semstanda fyrir dyr- um býður jafnréttisnefnd kirkjunnar til málþings nk mánudag. Arnfríður Guð- mundsdóttir er formaður Jafnréttisnefndarinnar og hún svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðs- ins. Segðu okkur fyrst sitt- hvað um málþingið. „Yfirskrift málþingsins er „Konur – kirkjuþing?“ og tilefnið er kosning til kirkjuþings sem fer fram í vor. Það er jafnréttisnefnd kirkjunnar sem boðar til þessa málþings sem verð- ur á morgun, mánudag, klukkan 17 til 19 í safnað- arsal Hallgrímskirkju. Kirkjumálaráðherra flytur ávarp í upphafi málþingsins en síðan er það mitt hlutverk að draga upp mynd af stöðu jafnréttisins innan kirkjunnar í dag. Við höfum feng- ið einn fulltrúa presta og annan úr hópi sóknarnefndarfólks til þess að bregðast við spurningunni, af hverju eigum við að keppa eftir jafnrétti kvenna og karla innan kirkjunnar og vera um leið máls- hefjendur í almennum umræðum sem taka síðan við. Þetta eru þau Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðing- ur og sóknarnefndarfulltrúi í Bú- staðasókn, og sr. Magnús Erlings- son sóknarprestur á Ísafirði. Það er biskup Íslands sem flytur loka- orðin. Fundarstjóri er Drífa Hjartardóttir, alþingismaður og fulltrúi í jafnréttisnefnd kirkjunn- ar. Ég vil taka það fram, að mál- þingið er öllum opið sem hafa áhuga.“ Hvernig standa jafnréttismál kirkjunnar? „Á kirkjuþingi haustið 1998 var samþykkt jafnréttisáætlun fyrir íslensku þjóðkirkjuna og um leið var skipuð jafnréttisnefnd til þess að fylgja þessari áætlun eftir. Í jafnréttisáætluninni eru talin upp fimm verkefni sem lögð skal meg- ináhersla á. Að rétta hlut kvenna innan kirkjunnar, að jafna aðild kynjanna að nefndum og ráðum og yfirstjórn kirkjunnar, að stuðla að jöfnun launa og aðstöðu kvenna og karla innan kirkjunnar, að vinna að fræðslu um jafnrétti og að vinna að endurskoðun málfars í kirkjulegri boðun og starfi. Á undanförnum áratug hefur orðið mikil breyting á stöðu kvenna innan kirkjunnar. Fyrsta konan var vígð til prests árið 1974 og síðan liðu sjö ár þar til kona númer tvö bættist við. Lengi framan af varð fjölgun kvenna í prestastétt hæg, en nú eru konur 26% af hópi þjónandi presta. Á síðustu fjórum árum hafa þrjár konur orðið prófastar, en alls eru prófastsdæmin 16. Ennþá hefur kona ekki hlotið biskups- vígslu hér á landi, en síðan 1999 situr kona í fyrsta skipti í kirkju- ráði. Það dapurlega er hins vegar að konum fækkaði um tvær í síð- ustu kirkjuþingskosningum og nú situr þar aðeins ein kona, en alls eru kirkjuþingsfulltrúar 21, 9 prestar og 12 leikmenn.“ Getur orðið jafnrétti staðið hér undir nafni? „Það má reikna með að hlutfall kvenna og karla á meðlimaskrá þjóðkirkjunnar sé nokkuð jafnt. Enda kemur í ljós, þegar kynja- samsetning í sóknarnefndum er skoðuð, að þar eru svotil alveg jafnmargar konur og karlar. Hlut- fallið breytist nokkuð þegar litið er á samsetningu á hópi formanna sóknarnefndanna, en þar eru karl- ar talsvert fleiri, eða 63% á lands- vísu. Konur í formannshlutverki eru langflestar á höfuðborgar- svæðinu, eða allt niður í 6% í einu prófastsdæmanna þar. Það er sóknarnefndarfólk sem kýs 12 fulltrúa leikmanna á kirkjuþingi og því hlýtur það að vekja athygli að engin kona úr þeim hópi skuli hafa verið kosin á kirkjuþing í síð- ustu kosningum.“ Hvers vegna hefur kirkjan ver- ið svona „karlastýrð“? „Lengi vel var staðan sú að karlar höfðu einir aðgang að guð- fræðimenntun og vígðum emb- ættum kirkjunnar. Nú er það ekki lengur raunin innan íslensku þjóð- kirkjunnar. Kirkjuskilningurinn tekur breytingum með tímanum og prestsímyndin sömuleiðis. Eins og áður sagði eru konurnar jafnmargar körlunum í sóknar- nefndum og þeim fer fjölgandi meðal presta. Innan kirkjunnar eru alltaf einstaklingar sem vilja halda í það gamla og streitast á móti öllum breytingum. Það virð- ist vera aukin tregða til að hleypa konum að eftir því sem ofar dreg- ur í valdastiganum. Kirkjuþing er valdamikil stofnun og því er eðli- legt að spyrja hvort það hafi eitt- hvað að gera með stöðu kvenna þar.“ Myndu fleiri konur breyta kirkjunni? „Það er köllun kirkj- unnar að vinna í anda jafnréttisboðskapar Krists. Jafn- réttið varðar einnig trúverðug- leika kirkjunnar og í þessu tilfelli sérstaklega kirkjuþings. Það er að mínu mati mjög nauðsynlegt að kirkjuþing endurspegli það sam- félag sem það er fulltrúi fyrir. Hvort kirkjan breytist eitthvað með tilkomu kvenna veltur fyrst og síðast á því hvernig konurnar sem kosnar eru nota aðstöðu sína og hvort þær finna sig frjálsar til að koma með breyttar áherslur.“ Arnfríður Guðmundsdóttir  Arnfríður Guðmundsdóttir er fædd 1961. Stúdent frá MS 1981 og með embættispróf í guðfræði frá HÍ 1986. Framhaldsnám í trú- fræði í Bandaríkjunum frá 1987, v/ University of Iowa, University of Chicago og Lutheran School of Theology at Chicago og lauk þaðan doktorsprófi 1996. Prests- vígð 1987 sem aðstoðarprestur í Garðaprestakalli. Stundakennari v/ guðfr.deild HÍ 1996–99 og lektor í guðfræði frá 2000. For- maður jafnréttisnefndar kirkj- unnar frá 1999. Maki er Gunnar Rúnar Matthíasson sjúkra- húsprestur og eiga þau Guð- mund Má og Önnu Rún. Aukin tregða að hleypa konum að FORRÁÐAMENN sænska lág- gjaldaflugfélagsins Goodjet, sem áformar að hefja starfsemi síðar í mánuðinum í samkeppni við SAS, voru langt komnir í viðræðum við Ís- landsflug um að félagið útvegaði Bo- eing 737-vélar til áætlunarflugs í Evrópu í sumar. Að sögn Ómars Benediktssonar, framkvæmdastjóra Íslandsflugs, var Goodjet búið að greiða inn á banka- reikning þegar Svíarnir ákváðu á síðustu stundu að breyta vélakost- inum og taka inn stærri vélar af gerðinni Airbus 320 frá sænsku flug- félagi. Þær taka um 180 manns í sæti en Boeing 737 taka tæplega 150 manns. Íslandsflug var tilbúið að leggja fram fimm slíkar vélar en til að byrja með ætlar Goodjet að fljúga daglega frá Gautaborg til tveggja áfangastaða í Frakklandi. Síðar í sumar er svo ætlunin að fjölga áfangastöðum í Evrópu, að því er fram kom á fréttavef BBC og greint var frá í Morgunblaðinu á miðviku- dag. Ómar sagði að forráðamenn Goodjet hefðu sett sig í samband við Íslandsflug um síðustu áramót og viðræður staðið yfir, m.a. hér á landi, alveg þar til fyrir um þremur vikum. „Vissulega hefði verið gott að fá þetta verkefni. En eins og oft er í við- skiptum er ekkert öruggt fyrr en all- ir peningar eru komnir í bankann og verkefnið byrjað,“ sagði Ómar. Hann sagði það ofsagt í frétt BBC að hópur fjárfesta stæði á bakvið Goodjet. Um einn aðila hefði verið að ræða í upphafi sem síðan hefði fengið stórt fjárfestingarfélag í Svíþjóð til liðs við sig. Það félag hefði átt hags- muna að gæta í öðru flugfélagi sem nú ætti að endurreisa. Efaðist Ómar um að það félag fengi flugrekstrar- leyfi fyrir tilætlaðan tíma í lok apríl. Lággjaldaflugfélög taka ekki þátt í alþjóðlegu sölukerfi Goodjet mun, líkt og önnur lág- gjaldaflugfélög, eingöngu bjóða ferð- ir sínar á Netinu. Flugleiðir munu ekki selja tengiflug með Goodjet og segir Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Flugleiða, það einfald- lega ekki standa félaginu til boða. Goodjet selji flug sín sjálft og sé ekki þátttakandi í því alþjóðlega sölu- og bókunarkerfi flugfélaga, Amadeus, sem gerir þeim kleift að selja ferðir um allan heim. Íslandsflug var í við- ræðum við Goodjet LÖGREGLAN á Hólmavík stöðvaði fimmtán ökumenn á Holtavörðuheiði fyrir of hraðan akstur á föstudag á aðeins fjórum klukkustundum. Flestir ökumannanna voru á 120 km hraða en sá sem hraðast fór mældist á 125 km hraða. Mikið hefur borið á hraðakstri úti á þjóðvegum landsins undanfarna daga. Fimmtán teknir á Holtavörðuheiði ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.