Morgunblaðið - 07.04.2002, Side 24
24 SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Daily vits
FRÁ
Langsterkasta blandan
á markaðnum
með gæðaöryggi
FRÍHÖFNIN
S
ta
n
sl
a
u
s
o
rk
a
F
yr
ir
k
o
n
u
r
o
g
k
a
rl
a
XBOXIÐ státar af nýjustutækni, líkt og hinar tölv-urnar, og er í hráumkrafti nokkuð ofar bæðiGamecube og Playstat-
ion 2, örgjörvi vélarinnar er Intel
733 MHz Celeron og samkvæmt
upplýsingum frá Microsoft er reikni-
geta vélarinnar um 80 Gigaflops eða
sambærileg Cray C94 ofurtölvu.
Grafíkörgjörvi vélarinnar er ekki af
verri endanum; sérhannaður 233
MHz Nvidia kubbur sem sækir
minni í 64 MB vinnsluminni vélar-
innar.
Hljóðkort Xbox ræður við 256 rás-
ir og 64 3D Audio rásir sem er svo
langt á undan Playstation 2 og
Gamecube að það er eiginlega ekki
sambærilegt, PS2 ræður við 48 og
Gamecube um 64. Eigendur geta
„rippað“ tónlist á harðan disk og
spilað undir í sérstökum leikjum.
Aðeins um þriðjungur leikjanna,
sem komu út í Evrópu með tölvunni,
styður þennan möguleika en næsta
kynslóð leikja mun eflaust verða
með á nótunum.
Harður diskur og Ethernet
Með boxinu fylgir einnig um 8 GB
harður diskur og Ethernet kort til
að tengja við breiðband. Þegar menn
fara eitthvað að grúska í stýrikerfi
vélarinnar má því búast við að fólk
geti sótt sér MP3 og myndbönd á
Netið og vistað á disknum. Þó er enn
of snemmt að segja til um það því
Microsoft mun vafalaust berjast
gegn því af öllum mætti. Einnig
verður hægt að sækja sér nýja kar-
aktera, borð og fleiri viðbætur við
leiki á Netið.
Á www.xboxhackz.com/ má lesa
um afrek forritara sem grúska í
Xbox og skrásetja eigin afrek. Öfl-
ugustu grömsurunum hefur hingað
til ekki tekist margt nema brjóta
nokkur lykilorð að harða disknum og
skipta um DVD ATA/100 kapal sem
stytti tímann sem það tók að „rippa“
tónlistardisk á harða drifið um tvær
mínútur. Ekki slæmt eftir svona
stuttan tíma. Stærsta verkefni
þeirra um þessar mundir er að búa
til forrit sem gerir Xboxinu kleift að
lesa brennda diska. Í fyrstu hélt
Microsoft því fram að geisladrifi vél-
arinnar væri einfaldlega ekki kleift
að lesa CD-R diska en í nýlegu við-
tali staðfesti einn hönnuðanna að
Xboxið gæti alveg lesið CD-R, vélin
kysi bara að skilja þá ekki.
Þegar greinarhöfundur fékk boxið
í hendurnar fyrir stuttu kom það
honum fyrst á óvart hversu stór vél-
in er, Gamecube er ótrúlega lítil og
nett miðað við kraft, PS2 er svona
frekar stór en þó ekki svo að það
skipti einhverju máli en Xbox-tölvan
er líklega stærri en þær báðar til
samans, og ótrúlega ljót í þokkabót.
Lætin í henni eru þó mun minni svo
maður sætti sig við að finna pláss
fyrir hana einhvers staðar.
Stýripinnar vélarinnar hafa vakið
nokkra óánægju og verður greinar-
höfundur að taka undir það eftir að
hafa kynnst því að spila Tony Hawk
með pinnanum sem fylgir. Takkarn-
ir eru einfaldlega of nálægt hver öðr-
um til að hægt sé að renna þuml-
inum á milli og verða spilendur því
hreinlega að lyfta þumlinum til að
ýta á næsta takka. Þetta hljómar ef
til vill ekki eins og hræðilegur ókost-
ur en trúið mér, það er ótrúlega
þreytandi. Japönsku stýripinnarnir
voru jafnvel verri en þar ákváðu þeir
að draga úr stærð X-ins á miðjum
stýripinnanum og gera hann þægi-
legri með því að skekkja takkana
aftan á pinnanum þannig að fólk þarf
að færa þumalinn af neðsta takka of-
an á vélinni til að geta smellt á takka
neðan á vélinni með vísifingri.
Stýripinnavandræði og DVD
Ýmis fyrirtæki hafa þegar tekið til
höndum við framleiðslu aukahluta
fyrir tölvuna og má þar á meðal
nefna Interact Power Pad Pro. PPP
er mjög svipuð fjarstýringunni sem
fylgir með tölvunni en takkarnir
hafa verið færðir lengra í sundur og
spilendur geta forritað takkaupp-
setninguna án þess að gera það í
gegnum leikinn. Ég fékk einn slíkan
með tölvunni en hann var þvílíkt
drasl, takkarnir voru allir í rugli, ef
ég ýtti á hægt beygði hann til vinstri
og svaraði stundum engum aðgerð-
um. Líklega er best að panta sér
bara millistykki og nota Dual Shock
stýripinnann úr PS2.
Xboxið styður einnig DVD video,
sá galli er hinsvegar á gjöf Njarðar
að til þess að geta spilað DVD verð-
ur fólk að fara út í búð og kaupa sér
sérstaka fjarstýringu og innrauðan
móttakara til að tengja við stýri-
pinnatengi á vélinni. Þetta er auðvit-
að frekar lélegt af Microsoft, DVD
spilarinn er innbyggður og í raun
þarf enga fjarstýringu því það er fínt
að nota bara stýripinna vélarinnar.
Annars er DVD spilun Xboxins mjög
góð og mun framar tæknilega séð en
PS2 spilarinn. Mér finnst þetta
dæmigert fyrir hroka Microsoft og
staðfesting á því að þeir álíta sig yfir
það hafna að koma til móts við við-
skiptavini.
Sala umfram væntingar
Xbox hefur þegar selst gríðarlega
vel um allan heim og er Evrópa eng-
in undantekning, Xboxið seldist
meira að segja umfram væntingar
og neyddust framleiðendur leikja
eins og Jet Set Radio Future og
Dead Or Alive 3 til þess að framleiða
fleiri eintök í Japan sérstaklega fyrir
Evrópu, upplagið var „aðeins“ 1,5
milljón tölvur. Microsoft er að auki
eini leikjatölvuframleiðandinn sem
er með verksmiðju í Evrópu sem
þýðir að ef tölvan selst upp þá getur
Microsoft komið tölvu beint af færi-
bandinu til búða á þrem dögum,
jafnvel til Íslands.
Við fyrstu sýn er ekki mikill mun-
ur á leikjum Xbox og leikjum PS2
tölvunnar, líklega vegna þess að
hönnuðir leikja fyrir PS2 eru komnir
lengra og þekkja tölvuna betur en
hönnuðir Xbox-leikja. Greinarhöf-
undur bar saman leik-
ina Tony Hawk Pro
Skater 3 fyrir PS2 og
Xbox og gat í raun ekki séð neinn
mun, þegar mjög mikið gerðist í
einu, gufa og annað í loftinu og kar-
akterinn að detta með tilheyrandi
blóðslettum, hægðu nefnilega báðar
tölvurnar örlítið á sér. Líklega verð-
ur ekki hægt að sjá verulegan mun
fyrr en eftir um 1–2 ár, PS2 nýtir
nefnilega þann takmarkaða kraft,
sem vélin hefur, alveg ótrúlega vel.
Þegar þetta fór í prentun voru um 40
leikir fáanlegir fyrir Xbox í Evrópu,
þar á meðal leikir eins og Max
Payne, Silent Hill 2 og Blood Omen
2. Á næsta leiti eru svo risastórir titl-
ar eins og Elder Scrolls III: Morr-
owind, gríðarstór RPG leikur sem
hægt verður að spila á Netinu með
hundruðum annarra spilenda, Lord
of the Rings: FOTR og Commandos
2.
Gífurlega hörð samkeppni
framundan
Miðað við velgengni Xbox undan-
farna mánuði er ljóst að samkeppnin
á eftir að verða gífur-
lega hörð næstu ár,
hönnuðir Micro-
soft eru þegar
byrjaðir á Xbox
2 og AMD hef-
ur tryggt sér
samninginn um
framleiðslu á ör-
gjörvum. Nin-
tendo hefur ekkert
viljað segja um næstu
tölvu en IBM gerði
nýlega opinbert að
Sony hefur gert samn-
ing við fyrirtækið um
framleiðslu á örgjörvum í
Playstation 3; á vef BBC segir að
nýja PS3 verði jafnvel öflugri en
Deep Blue, tölvan fræga sem vann
Kasparov í skák.
Eins og tíminn hefur sýnt er ekki
hægt að dæma um velgengni leikja-
tölva eftir tæknilegum yfirburðum,
leikjaúrvalið er ávallt það sem skipt-
ir mestu máli á endanum og þó PS2
sé tæknilega séð lélegasta tölvan af
þeim þremur stóru, Sony, Nintendo
og Microsoft, eru risar eins og Cap-
com, Konami, Namco og Square
næstum einungis að gera leiki fyrir
hana. Síðar getur verið að þeir
ákveði að gera leiki fyrir Xbox en
fyrst verður Microsoft að sanna sig á
markaðnum. Þótt tap verði á Xbox
fyrstu árin hafa Microsoft-menn
næga fjármuni til að bíða rólegir og
sjá hvað setur. Sega hefur þegar
ákveðið að taka áhættuna og er í
samningaviðræðum varðandi leiki
eins og Shenmue og fleiri klassíska
Dreamcast leiki.
Leikjaofurtölva frá Microsoft
Nýjasti kaflinn í leikjatölvustríðinu hófst nýlega er
Microsoft gaf loks út Xbox-leikjatölvuna sem er
ætlað að keppa við Playstation 2 Sony og
Gamecube Nintendo. Ingvi Matthías Árnason
kynnti sér Xboxið.
Skjámynd úr Oddworld.
Halo er með flottustu leikjum.
xbox_01.tif