Morgunblaðið - 07.04.2002, Page 43

Morgunblaðið - 07.04.2002, Page 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 43 ✝ Guðrún Pálsdótt-ir frá Höfða í Grunnavíkurhreppi var fædd í Bæjum á Snæfjallaströnd ásamt tvíburasystur sinni Helgu 28. októ- ber 1909. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 23. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Páll Halldór Hall- dórsson, f. 4. júní 1875, d. 20. júní 1937, og Steinunn Jó- hannsdóttir, f. 16. apríl 1866, d. 8. október 1942. Þau bjuggu í Bæjum á Snæfjalla- strönd til 1910 en fluttu þá að Höfða í Grunnavíkurhreppi og þar ólst Guðrún upp. Foreldrar Páls voru Halldór Hermannsson bóndi á Nauteyri og í Bæjum, Hermannssonar í Hattadalshús- um og María Rebekka Kristjáns- dóttir, Ebenezerssonar frá Reykjafirði við Djúp. Foreldrar Steinunnar voru Jóhann Jónsson, bóndi á Svanshóli í Strandasýslu, Níelssonar frá Kleifum í Gilsfirði og Guðrún Stefánsdóttir, bónda á Hrófbergi í Strandasýslu, Stef- ánssonar. Systkini Guðrúnar eru: 1) Guð- mundur, f. 8. október 1895, d. 2. júní 1967, bóndi á Oddsflöt, síðar búsettur á Ísafirði, kona hans El- ísa Einarsdóttir frá Dynjanda. 2) Halldór, f. 1. júlí 1898, d. 14. des- ember 1973, bóndi á Höfða, síðar búsettur á Ísafirði. 3) Sólveig, f. 30. nóvember 1899, d. 21. febrúar 1993. Húsfreyja á Sútarabúðum, síðar í Bæjum og í Hnífsdal, maður hennar Friðbjörn Helgason bóndi á Sútarabúðum. 4) Rebekka, f. 22. nóv- ember 1901, d. 28. nóvember 1984, hús- freyja á Dynjanda og í Bæjum, maður hennar Jóhannes Einarsson, bóndi á Dynjanda og í Bæj- um. 5) Kristín, f. 1. mars 1903, d. 12. september 1903. 6) Jóhann Ágúst, f. 29. ágúst 1904, d. 10. desember 1992, bóndi á Höfða síðar búsettur í Bolungarvík. Kona hans Sigríður Pálsdóttir frá Skálavík. 7) María, f. 24. september 1906, d. 9. febrúar 1993, maður hennar Maríus Jónsson vélstjóri frá Eski- firði. 8) Helga, f. 28. október 1909, Húsfreyja á Eskifirði. Maður hennar Leifur Helgason bifreið- arstjóri Eskifirði. Helga lifir ein þeirra systkina og maka þeirra. Guðrún vann að búi foreldra sinna þar til faðir hennar lést 1937 og móður sinnar ásamt bræðrunum Halldóri og Jóhanni til hún lést 1942. Síðan bjuggu þau systkinin áfram á Höfða til 1945, þá tók Jóhann við jörðinni og Guðrún flutti til Reykjavíkur. Þar stundaði hún verkamanna- vinnu, lengst af við matvælafram- leiðslu hjá Matborg, Sláturfélagi Suðurlands og víðar. Útför Guðrúnar fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 2. apr- íl. Fyrstu ár mannsævinnar eru tímabil vaxtar og þroska. Það að fá tækifæri til að alast upp í návígi við þrjá ættliði sinnar fjölskyldu er hverju barni hollt. Það barn sem er þeirrar gæfu aðnjótandi er blessað. Samvera, frásagnir, hlýja og natni þriðju kynslóðarinnar er ekki í boði fyrir hvern sem er í dag. Guðrún Pálsdóttir afasystir mín hefur kvatt í hinsta sinn. Hún færði mér gott veganesti. Margar ómetanlegar stundir. Ein við ritgerðarsmíð, þá á Blómvallagötunni þar sem hún sagði mér margt sem ég er þakklátur fyrir og nú geymi. Á æskuheimili Gunnu á Höfða, snerist heimilislífið um samhjálp heimilisfólksins við rekstur bús og voru allir kraftar nýttir, jafnt barna og fullorðinna. Lítill tími var aflögu til leikja. Leikföngin voru leggir og skeljar en dúkku eignaðist Gunna frænka aldrei. Gunna sagði mér að hún myndi fyrst eftir sér borðandi rófustöppu í brúðkaupsveislu á Dynjanda. Mikill kærleikur var á milli fjölskyldna á nágrannabæjun- um Höfða og Dynjanda, enda tengd- ir miklar. Sex, sjö ára gamlar voru hún og tvíburasystir hennar Helga farnar að vinna létt heimilisverk og átta ára voru þær sendar til skiptis að smala Kvíaánum. Það var ekki síst gert til að hægt væri að nýta hina innandyra. Gunna sagði mér að það hefði verið tilkomumest þegar hún var 6–8 ára gömul að vaka yfir rifjunum á nóttunni vegna mikillar fjörubeitar. Gaman fannst henni að fara á grásleppunetin með föður sín- um, langafa mínum og þegar þær systur voru tíu, tólf ára gamlar fóru þær með honum á spröku. Hún mundi að þau höfðu fengið hákarl í einni lögninni. Hún sagði mér að fyrir jól hefðu börnin í sveitinni fengið sendan einn brjóstsykurspoka frá kaupmanni á Ísafirði. Systurnar fengu þá kjól- gopa, eins og Gunna kallaði þá, þ.e. léreftskjóla eða svuntur. Þá tíðkuð- ust heimasmíðuð, grænmáluð jólatré með flötum greinum, mjókkandi upp í topp og á greinarnar voru sett lif- andi kertaljós. Þegar búið var að borða var gengið í kringum jólatréð en síðan var á boðstólum heitt súkkulaði, lummur, kleinur og kex. Hún sagði mér að yngra fólkið hefði farið annaðhvort á aðfangadag eða gamlársdag til aftansöngs í Grunna- víkurkirkju og síðan var ball í Sæ- túni á eftir. Þá varð að vera komið heim fyrir kl. 8 að morgni til að fara í fjósið að mjólka. Ógleymanlegt fannst henni að ganga yfir Staðar- heiði í tunglskini og á hjarni. Frostaveturinn mikla mundi hún. Þá sást ekki í dökkan díl á sjó, allt ísi- lagt. Unga fólkið úr sveitinni fór skemmtiferð á ísnum yfir að Kvíum. Þennan vetur fraus æðafugl í sjón- um. Skepnurnar komust vel undan vetrinum, voru allar saman í torfhúsi þ.e. kýr, kindur og hestar. Þetta ástand varði fram yfir nýár og þiðn- aði þá skjótt upp. Hún mundi eftir þegar allir lögðust í spænsku veikina 1918. Faðir hennar sauð þá vatn með karbóldufti sem varð mikill léttir andardrætti þeirra sjúku. Sjö manns létust í sveitinni. Hún mundi að á föstunni voru allir 50 Passíusálmarnir sungnir. Fyrir fermingu dvöldu Gunna og Helga eina viku í Grunnavík og gengu til séra Jónmundar á Stað. Fermt var að venju að vori, í apríl og að hausti, í september. Þar sem systurnar urðu ekki fjórtán ára fyrr en í október misstu þær af haustfermingunni og fermdust um vorið 1924. Eftirferm- ingarkjólarnir voru grænteinóttir búðarkjólar með bláu stykki að framan og blúndu. Í fermingargjöf fengu systurnar biblíu og eina kind saman frá foreldrum sínum og sínar þrjár krónurnar hvor frá eldri systur sinni. Á árunum 1930–37 var Gunna af og til í vist bæði í Hnífsdal, á Ísafirði og í Reykjavík. Hún tók við búinu á Höfða 1937 eftir að faðir hennar lést ásamt bræðrum sínum, Jóhanni og Halldóri en hans nafn ber ég. Um sumarið 1942 lést móðir þeirra, langamma mín. Eftir að hafa farið í heimsókn til Helgu systur sinnar sem þá bjó á Eskifirði gerði Gunna frænka sér grein fyrir hversu harð- býlt var þarna fyrir norðan og ákvað þá að á Höfða ætlaði hún ekki að eiga heima mikið lengur. Gunna fluttist alfarin frá Höfða 1945. Þá réðst hún í kaupavinnu austur á Eskifirði, í ráðskonustarf fyrir skipshöfn í Sandgerði og síðar til verkakonu- starfa í Reykjavík. Árið 1958 keypti hún sér íbúð á Blómvallagötu í Reykjavík þar sem hún bjó æ síðan. Þetta er brot af því sem Gunna frænka sagði mér. Það yljaði henni að heyra að ég hefði hafist handa við að gera æsku- heimili hennar á Höfða upp og naut ég til þess ómetanlegrar hjálpar frá bróðursyni mínum Steinari Erni og föður mínum Kristbirni en Höfða eigum við saman bræðurnir ég og Guðmundur. Gunna frænka var mér og minni fjölskyldu alla tíð afar kær. Nú get ég miðlað sögum Gunnu frænku og um leið sögum langafa og langömmu til barnanna minna. Í dag er ég þakklátur fyrir margar góðar minningar í hjarta mínu. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég og fjöl- skylda mín til Helgu frænku og ann- arra ættingja. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Halldór Páll Kr. Eydal. GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Pálsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Skólagerði 20 - Opið hús frá kl. 14 til 17 sunnudaginn 7. apríl Stórglæsileg 130 fm neðri sér- hæð í tvíbýli ásamt 53 fm bílskúr. Íbúðin er öll nýtekin í gegn. Gegnheilt nýtt parket og flísar á gólfum. Glæsilegt baðherb. Nýtt rafmagn, ofnar, vatns- og skólp- lagnir. Lagt fyrir heitum pott. Sér garður. Verð 18,9 m. Hulda tekur á móti ykkur. sími: 564 6655 Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 Reykás 12, Reykjavík Opið hús í dag frá kl. 14-17. Til sýnis og sölu í dag er þetta fallega og vel staðsetta ca 200 fm endarað- hús á tveimur hæðum. Á neðri hæð er innbyggður bílskúr, góðar stofur, stórt eldhús, þvottahús, hol og gestasnyrting og á efri hæð er sjónvarps- hol, baðherbergi og 4-5 svefnherb. Afgirtur suðvestur garður með stórri verönd. Mikið og fallegt útsýni. Verð 19,9 millj. Sími 575 8500 • Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík Hrauntunga 71 - Tvær aukaíbúðir Í dag milli kl. 14- 17 verður opið hús í Hrauntungu 71 í Kópavogi. Um er að ræða 214 fm. raðhús á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru tvær aukaíbúðir, önnur um 50 fm tveggja herbergja íbúð, en hin er lítil stúdíó-íbúð. Í aðalíbúð eru 3-4 svefnherb., stór og björt stofa, fallegt eldhús með nýrri innréttingu og nýuppgert baðherbergi. Þetta er falleg eign í suðurhlíðum Kópavogs. Hafa má góðar leigutekjur af aukaíbúðum og láta þær greiða af öllum lánum. Þau Magnús og Katrín taka á móti gestum á ofangreindum tíma. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL.14-17 SKEIFAN ATVINNUHÚSNÆÐI TIL SÖLU EÐA LEIGU Til sölu eða leigu 420 fm at- vinnuhúsnæði á mjög góðum stað í Skeifunni. Húsið býður upp á mikla möguleika. 250 fm á götuhæð með stórum innkeyrsludyrum og 100 fm skrifstofuhæð sem er alveg sér. Hentar vel sem heildsala eða sérverslun. Húsnæðið fæst afhent strax. Verð 33 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Til sölu eða leigu nýtt einbýlishús við Birkimóa 5 í Skorradalshreppi. Húsið, sem er 119 fm, auk 42 fm riss og 35 fm bílskúrs, skiptist í stofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, þvottaherbergi, baðherbergi og fl. Húsið verður tilbúið í byrjun maí. Falleg staðsetning í kjarri vöxnu landi við Andakílsá. Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar eða hjá oddvita Skorradalshrepps, sími 437 0005. Einbýlihús í Skorradal til sölu eða leigu ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.