Morgunblaðið - 18.04.2002, Qupperneq 14
Morgunblaðið/Golli
Á Geldinganesi er gert ráð fyrir hafnar- og athafnasvæði.
TILLAGA að aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar 2001–
2024 verður lögð fram í borg-
arstjórn í dag en skipulags-
og byggingarnefnd Reykja-
víkur hefur nú tekið afstöðu
til athugasemda sem bárust
frá um 1.500 einstaklingum,
stofnunum og félagasamtök-
um við skipulagstillöguna.
Íþrótta- og útivistarsvæði á
og við fyrirhugaða landfyll-
ingu við Ánanaust/Eiðs-
granda, nánari stefnumörkun
um landnotkun á flugvallar-
svæðinu í Vatnsmýri og ýms-
ar betrumbætur fyrir gang-
andi, hjólandi og akandi
vegfarendur eru meðal þeirra
breytinga sem gerðar hafa
verið á tillögu að aðalskipu-
lagi. Þá er og fjallað nánar um
stefnumörkun vegna Vatns-
mýrarinnar og skýrð frekar
rökin fyrir því að leggja frek-
ar niður norður-suðurflug-
brautina en austur-vestur-
brautina þegar deiliskipulag
flugvallarsvæðisins fellur úr
gildi árið 2016.
Mikilvægt að þétta byggð
eins og unnt er
Borgarstjóri, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, fór með
blaða- og fréttamenn í sér-
stakt útsýnisflug yfir höfuð-
borgina í gær og kynnti að-
alskipulagið og breytingarnar
á því.
„Það opinberast fyrir
manni þegar maður flýgur yf-
ir borgina hvað hún tekur yfir
mikið flæmi og hvað byggðin
er víða gisin,“ varð borgar-
stjóra að orði að loknu flug-
inu. „Og hvað það er í raun-
inni erfitt að halda uppi góðu
og öflugu þjónustustigi í
svona gisinni borg. Við þurf-
um ekki annað en að horfa á
vegalengdirnar sem menn
þurfa að aka og hvaða áhrif
það hefur á þörfina fyrir bíla-
stæði og gatnamannvirki svo
ekki sé nefnd áhrifin á um-
hverfið, loftgæðin og hávaða.
Þannig að það er geysilega
mikilvægt fyrir okkur að
reyna að þétta en þó þannig
að við göngum ekki á gæði úti-
vistarsvæða.“
Þarf að bregðast við
breyttum áherslum
Ingibjörg Sólrún segir að-
alskipulagið fela í sér stefnu-
mótun til næstu 24 ára og það
hvernig menn vilji sjá borg-
arsamfélagið þróast. „Það
sem við erum að leggja höf-
uðáherslu á er í fyrsta lagi
höfuðborgarhlutverkið og
mikilvægi hennar fyrir landið
allt og að hún geti verið svona
ákveðinn brimbrjótur gagn-
vart útlöndum þannig að ef
um flutninga er að ræða fari
þeir ekki lengra en hingað. Í
öðru lagi er það hið alþjóðlega
hlutverk höfuðborgarinnar
sem tengist líka, það er í
fyrsta sinn verið að setja það
fram sem markmið að
Reykjavík sé og verði alþjóð-
leg borg. Það þýðir að við
þurfum að bjóða upp á annars
konar atvinnulíf, annars kon-
ar aðstöðu fyrir atvinnulífið
en gert hefur verið áður. Það
tengist aftur Vatnsmýrinni,
vísindagörðum og þróun
Landspítalans, þ.e. að borgin
sé staður fyrir upplýsinga- og
þekkingariðnað, menningar-
framleiðslu og ferðmannaiðn-
að sem eru að verða mjög
mikilvægar atvinnugreinar.“
Ingibjörg Sólrún segir
þetta vitaskuld tengjast mið-
borginni, og sérstöðu hennar
og baklandi. Og að hún hafi
vaxtarmöguleika. Í hinni al-
þjóðlegu borg skipti kjarninn
og miðborgin alveg gríðarlega
miklu máli. Þetta tengist allt
mjög vel saman.
„Við viljum einnig að
Reykjavík sé vistvæn borg og
við erum mjög stolt af því að
hafa unnið í fyrsta sinn sér-
stakt umhverfismat á þessu
deiliskipulagi.“
Skipulags- og byggingar-
nefnd leggur til að afmarkað
verði sérstakt íþrótta- og úti-
vistarsvæði á og við fyrirhug-
aða landfyllingu við Ána-
naust, sem nýtast muni Vest-
urbæingum og KR-ingum. En
á móti verði íbúðum á land-
fyllingunni við Eiðsgranda/
og þekkingargarða þar við
svæði Landspítalans – há-
skólasjúkrahúss. Af öryggis-
og umhverfisástæðum sé flug
að og frá norður-suðurbraut-
inni einnig talið gagnrýnis-
verðara en flug að og frá aust-
ur-vesturbrautinni. Í aðal-
skipulagstillögunni er gert
ráð fyrir því að mögulegt
verði að reka austur-vestur-
Breytingar á tillögum að aðalskipulagi
Sérstakt íþrótta-
svæði við Ánanaust
Íbúðum á landfyllingunni við Eiðsgranda verður fækkað. Stefnt er að því að leggja fyrst niður norður-suðurbrautina.
Reykjavík Ánanaust fækkað úr 900 í
600–700. Þá er vilji til þess af
hálfu borgaryfirvalda að meta
umhverfisáhrif fyrirhugaðrar
landfyllingar áður en fram-
kvæmdir hefjast og einnig er
stefnt að því að vinna heild-
arskipulag fyrir strandsvæði
borgarinnar innan tveggja
ára frá staðfestingu aðal-
skipulagsins. Kanna á mögu-
leika á að framlengja fyrir-
hugaðan stokk fyrir Miklu-
braut, milli Reykjahlíðar og
Snorrabrautar, lengra til
austurs eftir Miklubraut.
Einnig að kannaður verði til
hlítar möguleiki á að gera
göng eða stokk fyrir bílaum-
ferð eftir Hringbraut, frá Sæ-
mundargötu og vestur fyrir
Suðurgötu.
Athafnasvæði vestan Vest-
urlandsvegar verður minnkað
að sunnan- og norðanverðu og
í staðinn verður þar blönduð
byggð eftir 2024.
Lagt til að leggja niður
norður-suðurbrautina
Stefnumörkun borgaryfir-
valda vegna uppbyggingar í
Vatnsmýrinni 2001–2024 er
skýrð nánar, einkum rökin
fyrir því að leggja frekar nið-
ur norður-suðurflugbrautina
en austur-vesturbrautina
þegar deiliskipulag flugvall-
arsvæðisins fellur úr gildi árið
2016. Er m.a. bent á að með
því skapist fyrr en ella sam-
fellt atvinnusvæði nyrst í
Vatnsmýrinni sem muni
tengja saman háskólasvæðið
flugbrautina frá 2016 til loka
skipulagstímabilsins og er
frátekið rými í þeim tilgangi á
skipulagsuppdrætti. Fram-
vinda málsins alls verði hins
vegar að leiða í ljós hvers kon-
ar flugstarfsemi verður fýsi-
legt að reka í Vatnsmýrinni á
þessum hluta skipulagstíma-
bilsins eða hvort hún leggist
af með öllu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir erfitt að
halda uppi góðu og öflugu þjónustustigi í gisinni borg.
Flogið yfir höfuðborgarsvæðið
með borgarstjóra
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐA- og kynningarmál
Reykjavíkurborgar fara í
breyttan farveg með stofnun
Höfuðborgarstofu; ferðamála-
markaðs- og viðburðaskrif-
stofu Reykjavíkur. Tillögur
um stofuna voru kynntar í
borgarráði á þriðjudag og vís-
að til samgöngunefndar til
frekari umfjöllunar.
Stofunni er ætlað að sinna
þríþættum verkefnum;
rekstri Upplýsingamiðstöðv-
ar ferðamála í Reykjavík, al-
mennum ferða- og kynningar-
málum auk þess að bera
ábyrgð á skipulagi og fram-
kvæmd ýmissa viðburða á
vegum borgarinnar.
Svanhildur Konráðsdóttir
hefur verið ráðin forstöðu-
maður Höfuðborgarstofu.
„Verkefni höfuðborgarstof-
unnar er m.a. að halda utan
um markaðssetningu Reykja-
víkur og vinna að ímyndar-
sköpun fyrir Reykjavík á er-
lendum vettvangi,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri. „Þá mun hún
reka upplýsingamiðstöð
ferðamála sem þjónar landinu
öllu.“ Ingibjörg segir hlutverk
stofunnar einnig verða að
halda utan um þá fjölmörgu
viðburði sem orðnir eru fastir
punktar í borgarlífinu ár
hvert og teljast mikilvægir
fyrir ferðaþjónustuna. Hingað
til hafa verið ráðnir verkefn-
isstjórar fyrir hvern viðburð,
„svo samfellan hefur kannski
tapast. Skrifstofan mun hins
vegar halda utan um alla
þessa viðburði og skipuleggja
þá.“ Ingibjörg segir að miklar
vonir séu bundnar við starf-
semi stofunnar, „enda er
Reykjavík alltaf að verða vin-
sælli áfangastaður fyrir ferða-
menn.“
Stefnt að opnun
næstu áramót
Markmið Höfuðborgar-
stofu verður m.a. að styrkja
stöðu borgarinnar í alþjóð-
legri samkeppni á sviði ferða-
mála og að rækta hlutverk
Reykjavíkur sem höfuðborgar
gagnvart landinu.
Undirbúningur er nú þegar
hafinn og í upplýsingum frá
Svanhildi Konráðsdóttur for-
stöðumanni stofunnar kemur
fram að „með áformum sínum
um rekstur Höfuðborgarstofu
undirstrikar Reykjavíkur-
borg áherslur sínar á mikil-
vægi ferða- og markaðsmála
fyrir borgina í heild. Hjá mið-
stöðinni verður til nýr vett-
vangur sem m.a. mun skila
nánari samvinnu Reykjavík-
urborgar og stofnana hennar
við ferðaþjónustuna, öllum að-
ilum til hagsbóta. Skýr far-
vegur fyrir ferða- og kynning-
armál í tengslum við
viðburðaskrifstofu skapar
jafnframt nýja möguleika í
vöruþróun, t.d. á sviði menn-
ingar- og heilsutengdrar
ferðaþjónustu og er því mjög
þýðingarmikið framlag til að
styrkja stöðu Reykjavíkur
sem höfuðborgar Íslands í
samkeppni á alþjóðavett-
vangi.“
Ráðgert er að Höfuðborg-
arstofa verði opnuð um næstu
áramót.
Höfuðborgarstofa mun vista ferða- og kynningarmál borgarinnar frá næstu áramótum
Mun styrkja stöðu
borgarinnar
Reykjavík