Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BLÓMABÚÐ AKUREYRAR Líka á Glerártorgi Opnum í dag Gjafavara frá SIA og HACKMAN og margt fleira Stórglæsileg opnunartilboð á kertum, pottablómum og rósum Glerártorgi - sími 462 2901 Vöru- og þjónustusýning Nú gefst fyrirtækjum, stofnun- um, félagasamtökum og öðrum sem áhuga hafa kostur á að kynna starfsemi sína á fjöl- breyttri sýningu. Vinsæl og vel sótt sýning Sýnendur eiga þess kost að kaupa sýningarpláss í aðalsal íþróttahallarinnar, anddyri eða á malbikuðu útisvæði. Tryggðu fyrirtæki þínu pláss á sýningunni Allar nánari upplýsingar: Fremri kynningarþjónusta símar 461 3666 og 461 3668. Bréfasími 461 3667. Netfang: fremri@nett.is í Íþróttahöllinni á Akureyri 10.–12. maí 2002 Frá fyrri sýningu SAMFYLKINGIN fengi einn mann kjörinn í bæjarstjórn Akureyrar ef kosið væri nú, samkvæmt þjóðmála- könnun Rannsóknarstofnunar Há- skólans á Akureyri. Könnunin var gerð dagana 2. til 14. apríl síðastliðinn og náði úrtakið til 678 manns á aldrinum 18 til 75 ára sem búsettir eru á Akureyri. Svör- unin var 66%. Afstaða til stjórnmálaflokkanna skiptist þannig samkvæmt könnun- inni að tæp 52% þeirra sem svöruðu tilgreindu ákveðinn flokk, 6,6% kváð- ust ekki ætla að kjósa og 41,5% voru óákveðnir eða neituðu að svara. Framsóknarflokkur fengi 21% fylgi og 2 menn kjörna í bæjarstjórn, en hefur nú 3 menn. Sjálfstæðisflokk- ur héldi sínum 5 bæjarfulltrúum, en flokkurinn fékk í könnuninni 41% fylgi. Fylgi Samfylkingarinnar er 10,5% sem þýðir að hún næði einum manni inn í bæjarstjórn. Flokkurinn bauð ekki fram við síðustu bæjar- stjórnarkosningar, en Akureyrarlisti sem samsettur var úr Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi, Kvennalista og óháðum fékk 2 menn kjörna þá. L- listinn, listi fólksins, fékk í könnun- inni 11,8% fylgi og einn mann líkt og við síðustu kosningar. Vinstri grænir fengu 15,7% fylgi í könnuninni og þar með tvo menn í bæjarstjórn. Alls eiga 11 bæjarfulltrúar sæti í bæjarstjórn Akureyrar og sam- kvæmt könnuninni er 11. fulltrúinn af lista Vinstri grænna, en næst á eft- ir honum inn er þriðji fulltrúi Fram- sóknarflokks og þar á eftir sjötti fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Metum traust kjósenda mikils Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri, Sjálfstæðisflokki, sagði þessa könnun sýna ákveðinn samhljóm með þeim könnunum sem gerðar hafa verið á fylgi flokkanna á Akur- eyri að undanförnu. „Þær sýna að við höfum gott traust meðal kjósenda og við metum það mikils. Kosningabar- átta D-listans hefur staðið óslitið frá því í maí ’98 og henni lýkur 25. maí næstkomandi. Fram að þeim tíma munum við áfram vinna að því að fá umboð kjósenda til áframhaldandi vinnu,“ sagði Kristján Þór. Oktavía Jóhannesdóttir, Samfylk- ingu, sagði eiginlega kosningabar- áttu ekki komna í gang. Hún benti á að stórt hlutfall kjósenda hefði ekki gert upp hug sinn, „þannig að flokk- arnir þurfa að sýna fleiri spil áður en menn gera upp hug sinn,“ sagði Okt- avía. Hún kvaðst vænta þess að Sam- fylkingin fengi meira upp úr kjör- kössunum en könnunin sýndi. „Þessi könnun er á svipuðu róli og síðustu kannanir, en hún gefur vissulega sterkar vísbendingar um sterka stöðu Sjálfstæðisflokksins. Við mun- um eflaust sækja af krafti í þann hóp sem enn er óákveðinn,“ sagði Jakob Björnsson, Framsóknarflokki. Þá sagði hann að þó nokkur hópur sem kosið hefði flokkinn síðast væri efins nú, „og við munum einhenda okkur í að sannfæra það fólk. Nú er bara að bretta upp ermarnar, baráttan er rétt að hefjast.“ Valgerður H. Bjarnadóttir, Vinstri grænum, sagðist bjartsýn og benti á að fylgi við flokkinn hefði verið held- ur meira í könnun Talnakönnunar sem gerð var á svipuðum tíma. Kosn- ingabaráttan væri að fara af stað um þessar mundir og flokkarnir rétt að hefja kynningu á stefnuskrá sínum. Hún benti á að fulltrúar meirihlutans í bæjarstjórn væru áberandi í fjöl- miðlum, einkum bæjarsjónvarps- stöðinni, en aðrir hefðu ekki fengið svipaða kynningu. „Ég hef trú á að þetta eigi eftir að breytast þegar rödd okkar verður sterkari,“ sagði Valgerður og benti á að hún væri ánægð með gott fylgi bæði meðal yngstu og elstu kjósendanna. Raunhæfur möguleiki á að ná inn öðrum manni „Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr að undanförnu og sam- kvæmt þessari könnun erum við á hraðri uppleið. Fólk veit nú að við er- um komin til að vera,“ sagði Oddur Helgi Halldórsson, Lista fólksins, og kvað könnunina fylla sitt fólk eld- móði. Sagði hann að könnunin sýndi fram á raunhæfan möguleika á að ná öðrum manni inn í bæjarstjórn. „Við bendum á um hvaða fólk verið er að kjósa, hverjir eru næstir því að kom- ast inn og spyrjum hverja fólk vill sjá inni,“ sagði Oddur. Hann sagði það koma sér á óvart hversu mikið fylgi flokkurinn hefði, en það fyllti sig bjartsýni. Sterk staða Sjálfstæðisflokksins í þjóðmálakönnun RHA Vinstri grænir fá tvo menn og Framsókn tapar einum Morgunblaðið/Kristján Oddvitar flokkanna fjögurra sem bjóða fram í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri í vor skoða niðurstöður könnunarinnar. Frá vinstri eru þau Oktavía Jóhannesdóttir, Kristján Þór Júlíusson, Jakob Björnsson og Val- gerður H. Bjarnadóttir. Oddur Helgi Halldórsson, oddviti L-lista, var ekki viðstaddur kynningarfundinn.                                                        ! ! " " # # $ $  % #$& %  "" " # '   # $ $ $ $ $ $ # # !$& % $ &% $$&(% $&)% * + ,-+   ,   .   $//( 0   * +    1* .2. # 1* .2. # $ 1* .2. # #  " # $ STOFNFUNDUR systursamtaka Stígamóta á Norðurlandi verður haldinn í sal Lundarskóla á Akureyri í kvöld, 18. apríl kl. 20.30. Á fundinum verður farið yfir starf undirbúningshópsins og næstu skref ákveðin. Á fundinum mun kona segja sögu sína og Birna Sigurbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur greinir frá starfsemi Neyðarmótttöku. Tímabundið verkefni á vegum Stígamóta var sett af stað á Akur- eyri fyrir rúmu ári til að kanna hvort þörf væri á þjónustu sem fólst í sjálfshjálparhópum fyrir þá sem orð- ið hafa fyrir kynferðisofbeldi. Þriðji hópurinn er nú kominn af stað. Ætla má að um 7000 Norðlendingar hafi orðið fyrir einhvers konar kynferðis- ofbeldi fyrir 18 ára aldur, segir í frétt vegna stofnfundarins. Ennfremur að samkvæmt erlendum rannsóknum verði tvær af hverjum átta stúlkum og einn af hverjum tíu piltum fyrir einhvers konar kynferðisofbeldi fyr- ir átján ára aldur. Systursamtök Stígamóta stofnuð ÁRSÞING Íþróttabandalags Akur- eyrar, ÍBA, verður haldið í kvöld, fimmtudagskvöldið 18. apríl, og hefst það kl. 18 í kaffiteríu Íþrótta- hallarinnar. Ársþing ÍBA eru haldin annað hvert ár. Alls eru 15 íþróttafélög inn- an vébanda ÍBA og verða árs- skýrslur þeirra allra fyrir tvö síðustu ár lögð fram á þinginu. Þá verður einnig rætt um málefni hreyfingar- innar á þinginu. Um 40 manns hafa seturétt á ársþinginu. Ársþing ÍBA ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa fær í dag, fimmtudaginn 18. apríl, af- hent nýtt skip sem félagið festi kaup á fyrir nokkru. Bæjarbúum verður af því tilefni boðið að koma og skoða skipið á milli kl. 16.30 og 18.30, en það liggur við Úgerðarfélagsbryggjuna. Formleg vígsluathöfn hefst kl. 17.15. Um er að ræða fjögurra ára gam- alt frystiskip sem kemur í stað Slétt- baks EA. Skipið er 58 metra langt, 13,5 metra breitt og aðalvél þess er 4.000 hestöfl. Hér er því á ferðinni mjög öflugt frystiskip sem er góð viðbót við flota ÚA. Sléttbakur til sýnis ÞRJÁR aukasýningar verða á söng- leiknum Hárinu sem Leikfélag MA sýnir um þessar mundir í Samkomu- húsinu. Aðsókn á sýninguna hefur verið afar mikil og uppselt á allar sýningar sem áætlaðar voru í þessari viku. Fyrsta aukasýningin er í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 23 og þá verða tvær sýningar á föstudagskvöld, kl. 20 og 23. Sýningin hefur fengið góðar við- tökur og hefur glæsileg ljósahönnun Róberts Lee Evensen, nemanda í 4. bekk, og Andra Gunnarssonar í 3. bekk vakið verðskuldaða athygli. Þá hafa áhorfendur einnig lokið lofsorði á leik hljómsveitarinnar. Hárið Þremur aukasýn- ingum bætt við NÁMSKEIÐIÐ FjármálaAuður verður haldið í húsnæði Háskólans á Akureyri í Sólborg og hefst það á morgun, föstudaginn 19. apríl, og stendur til laugardags. Um er að ræða námskeið fyrir konur og er það hluti af verkefninu „Auður í krafti kvenna“. Þetta er í fyrsta skipti sem námskeiðið er hald- ið utan höfuðborgarsvæðisins og er mikill áhugi fyrir því norðan heiða. Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um skipulag fjármála, verðbréfa- markaðinn, skattamál og lánamark- aðinn. FjármálaAuður fyrir norðan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.