Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 37 Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 4. flokkur, 17. apríl 2002 Kr. 1.000.000,- 2106B 2898H 7630B 8286G 12653F 22989B 24937E 42996G 43251E 47085F Hæð: 1 80cm - Breidd: 150cm - Dýpt: 40cm STJÓRNVÖLD hafa á undan- förnum árum leitað ýmissa leiða til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs vegna lyfjakostnaðar. Þessi viðleitni felur í sér sjálfsagt og nauðsynlegt aðhald, þar sem skattfé borgaranna á í hlut. Á móti hljótum við að gera þá eðlilegu kröfu að um raunhæfar og rökréttar aðgerðir sé að ræða, sem leiði til raunsparnaðar, án þess að það komi niður á gæðum heil- brigðisþjónustunnar eða aðgengi hennar að nýjum og betri lyfjum. Ný lyf sett í bið Því miður sjást stjórnvöld ekki alltaf fyrir í þessari viðleitni sinni við að lækka lyfjakostnað. Eitt ný- legasta dæmi þess, er svonefnd greiðsluþátttökunefnd, sem eins og nafngiftin gefur til kynna á að skera úr um hvort og að hve miklu leyti ríkið tekur þátt í kostnaði einstakra lyfja. Þrátt fyrir þetta þungavigt- arhlutverk nefndarinnar, hefur hún verið óstarfhæf í hátt á annað ár, þar sem engin reglugerð lá fyrir um starfsemi hennar. Það gefur auga leið að fyrir vikið hefur ringulreið hefur verið ríkjandi um stöðu nýrra lyfja þennan tíma, sem hefur haft alvarlegar hindranir í för með sér við innleiðingu nýjunga í lyfjameð- ferð. Úr öskunni í eldinn Umrædd reglugerð leit loksins dagsins ljós í febrúar sl. Í stað þess að greiða úr þeirri óvissu sem óhemju langur aðdragandi að setn- ingu hennar olli, bættu ákvæði hennar gráu ofan á svart. Einkum er um þá alvarlegu annmarka að ræða að auk þess sem reglugerðin er á köflum óljós eða jafnvel tor- skilin, má færa fyrir því gild rök að hún sé að verulegu leyti ófram- kvæmanleg með góðu móti. Það er a.m.k. alveg ljóst að reglugerðin mun í óbreyttri mynd kalla á gíf- urlegan kostnað af hálfu lyfjafram- leiðenda og -innflytjenda, sem mun að litlu eða engu leyti skila sér í lægra lyfjaverði eða aukinni neyt- endavernd. Sem dæmi má nefna að sam- kvæmt reglugerðinni eru öll lyfja- fyrirtæki krafin um tæmandi upp- lýsingar um sambærilega greiðsluþátttöku í öðrum aðildar- ríkjum Evrópska efnahagssvæðis- ins. Þessar upplýsingar er afar erf- itt að nálgast, hvað þá að þær séu fáanlegar í samanburðarhæfu formi. Þetta þýðir því að nýju lyfi getur verið synjað um greiðsluþátt- töku, á þeirri forsendu að ekki liggi fyrir upplýsingar, sem nánast er ógerningur að nálgast! Við þetta má jafnframt bæta að innan flestra ríkja EES endurspeglar greiðslu- þátttaka í lyfjum ákveðnar áherslur í heilbrigðisstefnu viðkomandi stjórnvalda. Upplýsingar um ein- stakt lyf og greiðsluþáttttöku í verði þess segir af þessum sökum afar takmarkaða sögu. Þannig eru reykingalyf niðurgreidd í Bretlandi en ekki hér á landi svo að dæmi sé nefnt. Í þágu hvers? Séu aðgerðir stjórnvalda ekki að skila sér raunsparnaði, án þess að það komi niður á þjónustu heil- brigðiskerfisins eða skjólstæðingum þess, hljótum við að spyrja hvaða tilgangi þær eigi að þjóna? Það er a.m.k. með öllu óásættanlegt fyrir lyfjaframleiðendur og -innflytjend- ur að stjórnvöld séu í vafasömum tilgangi að auka álögur á lyfjageir- ann til muna, á sama tíma og gerð er krafa um að útgjöld þeirra til málaflokksins standi í stað eða lækki. Það stríðir gegn heilbrigðri skynsemi, svo að ekki sé minnst á réttindi sjúklinga í þessu sambandi. Aukin útgjöld sparnaðarins Hjörleifur Þórarinsson Höfundur er formaður lyfjahóps Samtaka verslunarinnar – FÍS. Lyf Innan flestra ríkja EES, segir Hjörleifur Þórarinsson, end- urspeglar greiðslu- þátttaka í lyfjum ákveðnar áherslur í heilbrigðisstefnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.