Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIÐBORGIN
Traustir leigusamningar
Erum með í sölu þessar tvær glæsilegu húseignir
(skrifstofuhúsnæði) í miðborginni. Um er að ræða 1543,9 fm í
Pósthússtræti 5, sem er gamla pósthúsið. Á götuhæð og í
kjallara leigir Íslandspóstur hf., en aðra hluta hússins leigir
Reykjavíkurborg til langtíma. Einnig er um að ræða
Pósthússtræti 3 (gamla lögreglustöðin) og er það hús allt í
útleigu einnig til langs tíma til Reykjavíkurborgar, samtals 762,1
fm. Húsin eru í mjög góðu ástandi og er eignin að innan í 1.
flokks ástandi og skiptist bæði í opin vinnurými, skrifstofur,
fundarsali, kaffistofur o.fl. Lagnastokkar og góð lýsing. Um er
að ræða eftirsóttar eignir. Góð staðsetning. Traustir
leigutakar. Góð fjárfesting.
Allar nánari upplýsingar veita Óskar og Sverrir. 1481
SKIPULAGSSTOFNUN hefur nú til
umfjöllunar tillögu að matsáætlun
sem Vegagerðin hefur lagt fram
vegna ný- og endurlagningar Djúp-
vegar í Súðavíkurhreppi. Um er að
ræða 30,18 km vegarkafla frá Ísafirði,
innsta firðinum í Ísafjarðardjúpi, yfir
í vestanverðan Mjóafjörð. Gert er ráð
fyrir að Mjóifjörður verði brúaður um
Hrútey, sem er á miðjum firðinum
sem myndi stytta vetrarleiðina um 28
km að sögn Gísla Eiríkssonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Vestfjörðum. Áætlaður fram-
kvæmdakostnaður er um 1.300 millj-
ónir króna.
Núverandi Djúpvegur liggur yfir
Eyrarfjall, fjallgarðinn milli Ísafjarð-
ar og Mjóafjarðar og er sá hluti leið-
arinnar einungis fær að sumri til.
Þessi vegur þykir krókóttur og bratt-
ur og liggur um snjóþungan fjallveg.
Vegagerðin leggur til að Djúpvegur
liggi í framtíðinni út Ísafjörðinn vest-
anverðan, um Reykjarfjörð og Vatns-
fjörð, yfir Vatnsfjarðarháls og yfir
Mjóafjörð um Hrútey yfir í vestan-
verðan Mjóafjörð. Gísli segir aðal-
markmiðið að losna við fjallveginn,
vegurinn verði mun öruggari á lág-
lendi og ekki verði jafn kostnaðar-
samt að halda veginum opnum.
Núverandi Djúpvegur er 25,83 km
en nýi vegurinn yrði 3,3 km lengri.
Vegagerðin telur að yrði nýr vegur
lagður yfir Eyrarfjall yrði hann tals-
vert lengri en hann er í dag, þar sem
nauðsynlegt væri að draga verulega
úr langhalla. Verði vegurinn lagður
þvert yfir Reykjarfjörð, sem er einn
þeirra möguleika sem lagðir eru til,
myndi leiðin styttast um 1,8 km.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist árið 2005 og að þeim gæti verið
lokið 2008. Verkinu mun verða skipt í
tvo til þrjá áfanga í útboði, en þeir
hafa ekki verið skilgreindir. Útboð
fyrsta áfanga gæti í fyrsta lagi orðið
haustið 2004.
Framkvæmdin er liður í að fram-
fylgja samþykkt Alþingis frá júní
1998 á langtímaáætlun í vegagerð þar
sem gert er ráð fyrir að uppbyggingu
heilsársvegar milli Reykjavíkur og
Skutulsfjarðar verði lokið innan 12
ára frá samþykkt áætlunarinnar.
Vegagerðin leggur til að Mjóifjörður verði brúaður um Hrútey
Styttir vetrar-
leiðina um 28 km
Ísafjarðardjúp
kennurum og krökkunum frábært
starf við undirbúning hátíðarinnar.
Þá var tjaldið dregið frá leik-
sviðinu. Hófst nú sýning á leik-
þáttum sem og söng á sjómanna-
ljóðum. Hver bekkur hafði sitt
atriði og gerðust þeir veigameiri
eftir því sem aldurinn færðist upp.
Þó var það svo að leikgleðin og
ánægjan yfir því sem var flutt var
sjáanlegust hjá krökkunum úr
yngstu bekkjunum.
Rak hvert atriðið annað með
leik og söng og birtust þar ýmsar
hetjur sjómannsljóðanna: Jörundur
hundadagakonungur, Gvendur á
NÝLEGA héldu nemendur Grunn-
skólans á Hellissandi árshátíð sína
í Félagsheimilinu Röst. Skólastjór-
inn, Hulda Skúladóttir, setti hátíð-
ina. Bauð hún gesti velkomna og
bað þá njóta þeirra skemmtiatriða
sem nemendur hefðu fram að
færa.
Þetta árið tengdust skemmti-
atriðin hjá nemendunum sjó-
mennskunni, enda ekki óeðlilegt
þar sem þau flest og kannski öll
væru tengd þeim atvinnuvegi á
einhvern hátt. Hulda þakkaði
Eyrinni, Kokkur á kútter frá Sandi
og hún Tóta hans, Stína stuð og
margar fleiri. Lokaatriðið var svo
leikþáttur um síðasta síðutog-
arann,vinnu áhafnarinnar í netum
og baráttu þeirra við ísinguna.
Sviðsmyndin var skemmtileg og
haganlega gerð og tók stutta stund
milli atriða að breyta henni eftir
þörfum.
Allt tókst þetta sérstaklega vel.
Krakkarnir fengu dúndrandi klapp
frá yfirfullum sal í Röstinni bæði
milli atriða og svo í lokin. Allur
ágóði af skemmtuninni rennur til
ferðasjóðs nemenda skólans.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Sýndur var m.a. leikþáttur með söng um Jörund hundadagakonung.
Skólahátíð á Hellissandi
Hellissandur
ÞAÐ var hress hópur unglinga
sem tók þátt í Tónlistarhátíð sem
haldin var á Hótel Framtíð á
Djúpavogi nýverið. Þetta er í
annað sinn sem slík hátíð er hald-
in.
Skólastjóri Tónlistarskólans,
Svavar Sigurðsson, hafði sett
saman hljómsveit með nemendum
skólans og var dagskráin mjög
fjölbreytt. M.a. flutti Steinar
Smári Hilmarsson frumsamið
rapplag við mikinn fögnuð áhorf-
enda. Flest lögin voru erlend og
frá ólíkum tímabilum.
Tónlistarhátíðin var vel sótt og
það var ekki annað að heyra en
að fólki líkaði dagskráin vel.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Hópurinn sem tók þátt í Tónlistarhátíðinni.
Rappað á
tónlistarhátíð
Djúpavogi
FRAMFARAFÉLAG Fljótsdals-
héraðs og Landsbanki Íslands veittu
nýverið árlegar viðurkenningar til
einstaklinga, sem þykja hafa skarað
fram úr og sýnt frumkvæði að fram-
förum.
Að þessu sinni hlutu fjórir aðilar
viðurkenningar: Hermann Eiríksson
á Egilsstöðum, fyrir áratuga starf að
skálabyggingum á vegum Ferða-
félags Fljótsdalshéraðs og fleiri
samtaka; Lilja Óladóttir, Jökuldal,
fyrir lifandi fræðslu og kynningu á
lifnaðarháttum liðins tíma í Sæ-
nautaseli á Jökuldalsheiði; Gunn-
hildur Ingvarsdóttir og Þráinn
Skarphéðinsson, Egilsstöðum, fyrir
ræktun og kynningu á dansarfi Ís-
lendinga og fyrir hlut þeirra í þjóð-
dansafélaginu Fiðrildunum.
Tilgangur viðurkenninganna er að
beina sjónum að því sem vel er gert í
samfélaginu og vekja athygli á þeim
grettistökum sem einstaklingar geta
lyft og stuðlað þannig með frum-
kvæði sínu að almennum framförum.
Morgunblaðið/Steinunn
Þau hlutu viðurkenningu Framfarafélags Fljótsdalshéraðs og Lands-
bankans fyrir framsækni og dugnað. F.v. Hermann Eiríksson, Lilja Óla-
dóttir, Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir.
Einstaklingar stuðla
að framförum
Egilsstaðir
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ
Huginn í uppsveitum Árnes-
sýslu minntist 40 ára afmælis
síns með veglegu samsæti að
Hótel Flúðum miðvikudags-
kvöldið fyrir páska.
Slegið var á létta strengi í
ræðum og ávörpum, m.a. frá
alþingismönnunum Drífu
Hjartardóttur, Kjartani
Ólafssyni og Kristjáni Páls-
syni.
Steinþór Gestsson fyrver-
andi alþingismaður var gerð-
ur að heiðursfélaga og átta
stofnendur sem voru á sam-
komunni fengu fallegar rósir.
Sendiherrahjónin Ingibjörg
Rafnar og Þorsteinn Pálsson
voru heiðursgestir kvöldsins.
Listamenn fluttu söng og
gamanmál og tekið var
hraustlega undir í almennum
söng.
Þótti samkoman takast afar
vel og skemmtu veislugestir,
sem voru um 60, sér hið
besta.
Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson
Steinþór Gestsson fv. al-
þingismaður var gerður að
heiðursfélaga og Þorsteinn
Pálsson var heiðursgestur
kvöldsins.
Huginn
fagnar
40 ára
afmæli
Flúðir