Morgunblaðið - 18.04.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 31
ENGUM að óvörum er það illskilj-
anleg ljóðræn fegurð sem umlykur
súrrealíska tilvistarkreppu Tenen-
baum-fjölskyldunnar. Wilson og And-
ersen skila hér þriðju kvikmynd sinni
þar sem sári treginn ríkir undir oft al-
gerlega órökrænum samtölum og af-
stæðum aðstæðum sem eru samt eitt-
hvað svo mannlegar og trúverðugar
persónur lenda í.
Tenenbaum-fjölskyldan er sérstök
að því leytinu til að öll börn Tenen-
baum-hjónanna voru snillingar á sínu
sviði í æsku, en eru nú fullorðin og á
niðurleið. Höfuð fjölskyldunnar, fað-
irinn Royal Tenenbaum, yfirgaf þau
fyrir meira en áratug, en vill nú búa
undir sama þaki og þau á meðan hann
bíður dauðans. Fjölskyldumeðlimirn-
ir eru mjög alvarlegir á svip allan tím-
ann. Enda ekkert gamanmál að vera
barnasnillingur sem hefur klúðrað lífi
sínu, og þurfa að takast á við föður
sinn sem maður hatar. Andersen og
Wilson tekst að skapa dásamlegar
persónur með ótrúlega ríkt tilfinn-
ingalíf undir alvarlegum andlitssvip.
Og það gerir allan gæfumuninn. Mað-
ur skilur hvernig þeim líður, og finnur
til með þessum verum sem yfirnátt-
úrulegar kröfur hafa verið gerðar til.
Þeir gera grín að uppeldi og sálfræði-
bulli, og komast að kjarna málsins. Og
úr verður bráðfyndin gamanmynd.
Og var það ekki Gosford Park sem
vann af þeim Óskarinn fyrir besta
frumsamda handritið? Royal Tenen-
baums er nefnilega miklu meira en
hún lítur út fyrir að vera, en Gosford
Park miklu minna en hún heldur sig.
Valið hefur verið sérstaklega vel í
hlutverkin, en bestur er Gene Hack-
man sem Royal sjálfur, ólýsanlegur
sjarmur en algert skítmenni um leið.
Allir aðdáendur hans verða að sjá
þessa mynd, þar sem hann sannar
endanlega hversu ótrúlega fjölhæfur
og frábær leikari hann er. Bill
Murray fer með lítið hluverk í mynd-
inni, en hann lék stærra hlutverk í
myndinni Rushmore og maður veltur
fyrir sér hvers vegna hann fékk ekki
hlutverk Royal, enda mjög hæfur
leikari einnig. Aðrir fastaleikarar eru
Kumar Pallana sem hefur leikið í öll-
um kvikmyndunum þeirra, og það er
sérstök skemmtun að fylgjast bara
með honum í hlutverki Pagoda. Og
svo Íslandsvinurinn Seymour Cassel,
sem er alltaf góður. Stórstjörnurnar
standa sig allar vel, enda er leikstjórn
Andersens sérlega styrk. Það er
kannski helst að Wilson sjálfur í hlut-
verki fjölskylduvinarins Eli Cash hafi
verið smáleiðinlegur. Ætli Andersen
hafi nokkuð ráðið við hann?
Það vekur sérstaka athygli mína
hversu áreynslulega skrifuð og leik-
stýrð myndin er, frábær heildræna í
leiknum og hreinlega mjög smekkleg
á allan máta. Hún einhvern veginn
flýtur áfram. Tónlistina flytja pönk-
arar eins og Joe Ramone og öll hans
fjölskylda, Nick Drake og Joe Strum-
mer. Fersk notkun á tónlist og þótt
undalegt megi virðast, alls ekki á
skjön við myndina.
Það er yndislegt að koma út af
þessari mynd og eiga ekki orð ein-
hvern veginn. Vera sleginn af fersk-
leikanum, sanna undirtóninum undir
alvarlegu yfirborðinu sem samt er
fyndið. Draga að sér ferskt loftið,
hrista hausinn, glotta og finna nota-
lega tilfinningu í brjóstinu. Dekrið nú
við sjálf ykkur, kynnist Tenenbaum-
fjölskyldunni og upplifið eitthvað
nýtt. Það gefast allt of sjaldan tæki-
færi til þess í bíó.
KVIKMYNDIR
Sambíóin Álfabakka
Leikstjórn: Wes Anderson. Handrit:
Owen Wilson og W.A. Kvikmyndataka:
Robert P. Yeoman. Aðalhlutverk: Gene
Hackman, Angelica Huston, Owen Wil-
son, Luke Wilson, Gwyneth Paltrow, Ben
Stiller, Danny Glover og Bill Murray. 109
mín. USA. Buena Vista Pictures 2001.
THE ROYAL TENENBAUMS/TENENBAUM
FJÖLSKYLDAN 1/2
Ljóðræn fegurð?
Alltaf gaman hjá Tenenbaum-
fjölskyldunni.
Hildur Loftsdóttir
T FYRIR HANN
NÝI ILMURINN FRÁ
TOMMY HILFIGER
Útsölustaðir: Lyfja Lágmúla, Lyfja Laugavegi, Lyfja Spönginni, Lyfja
Smáralind, Lyfja Smáratorgi, Lyfja Garðabæ, Lyfja Setbergi, Lyfja Grindavík.
Kynnum nýjan ilm
T fyrir hann
frá Tommy Hilfiger
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
75
02
04
/2
00
2
LJÓMANDI
Endurspeglaðu nýja ímynd.
Fljótandi farði í föstu formi, HYDRO-LIQUID COMPACT. Hér sameinast ferskleiki
og þægindi, útkoman er hámarks raki og fallegt, ferskt útlit. Ljóminn kemur í ljós,
mýktin endist og árangurinn er lýtalaus húð.
Shiseido og Debenhams bjóða þig velkomna á dekurdaga 18. - 30. apríl.
Persónuleg ráðgjöf í vali á kremum og í förðun. Spennandi tilboð og kaupauki.*
*Á meðan birgðir endast.
The Makeup
LANDSBÓKASAFN Íslands – há-
skólabókasafn auglýsir eftir mynd-
listarmönnum til að taka þátt í op-
inni hugmyndasamkeppni um gerð
útilistaverks fyrir framan Þjóðar-
bókhlöðuna að sunnanverðu.
Tilgangur samkeppninnar er að
fá fram tillögu að verki sem útfæra
má í fullri stærð. Senda skal inn
frumdrög að verkinu á A4-blöðum
sem meðal annars sýni verkið frá
ólíkum hliðum. Einnig skal fylgja
stutt greinargerð um hugmyndina
að baki verkinu, efnisval og upp-
byggingu.
Að samkeppni lokinni verður tek-
in ákvörðun um hvaða eitt verk
verður valið til útfærslu og uppsetn-
ingar, samkvæmt nánara samkomu-
lagi við viðkomandi listamann. Að
auki verða veitt önnur og þriðju
verðlaun svo og viðurkenningar fyr-
ir frumlegar tillögur eftir því sem
efni standa til.
Ef dómnefnd telur enga tillögu
koma til greina til útfærslu áskilur
hún sér rétt til að hafna öllum inn-
sendum tillögum. Þegar úrslit sam-
keppninnar liggja fyrir verða til-
lögur sem verðlaun eða
viðurkenningu hljóta almenningi til
sýnis í húsakynnum Þjóðarbókhlöð-
unnar.
Fimm manna dómnefnd skipuð
fulltrúum Landsbókasafns Íslands –
háskólabókasafns og Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna sér um
framkvæmd samkeppninnar, sem
fram fer samkvæmt samkeppnis-
reglum Sambands íslenskra mynd-
listarmanna, og keppnislýsingu,
sem unnt er að fá hjá trúnaðar-
manni keppninnar.
Tillögum skal skila inn undir dul-
nefni og skulu A4-blöðin merkt dul-
nefninu í hægra horni neðst. Jafn-
framt fylgi með ógegnsætt umslag
merkt dulnefninu er hafi að geyma
upplýsingar um rétt nafn höfundar
eða höfunda verksins, ásamt kenni-
tölu, heimilisfangi og síma.
Trúnaðarmaður samkeppninnar
er Ásmundur G. Vilhjálmsson hdl.
Tillögur í samkeppnina þurfa að
berast trúnaðarmanni í síðasta lagi
kl. 16 hinn 3. júní, í A4-umslagi
merktu:
Útilistaverk við Þjóðarbókhlöðu:
Grant Thornton endurskoðun ehf.
Ásmundur G. Vilhjálmsson hdl.
Suðurlandsbraut 20, 101
Reykjavík.
Samkeppni um
útilistaverk við
Þjóðarbókhlöðu
Bossakremið
frá Weleda – þú færð ekkert betra
Fæst í: Þumalínu, Heilsuhúsinu,
Lyfju, Lyf og heilsu og Apótekinu