Morgunblaðið - 18.04.2002, Side 58
MINNINGAR
58 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ein af mínum fyrstu
minningum er frá því
þegar ég var agnarlítill
patti að leika mér í fót-
bolta við þig, pabbi
minn, á ganginum
heima á Marbæli. Oft var mikill has-
ar í þessum leik þarna á ganginum,
enda þráðum við systkinin þessar
stundir meira en nokkuð annað. Allt-
af gastu gefið þér smástund til að
leika þér við okkur, þótt mikið væri
að gera við bústörfin.
Síðar þegar við bræðurnir byrjuð-
um að stunda bæði frjálsar og fót-
bolta studdir þú okkur af heilum hug.
Keyrðir með okkur á æfingar og
keppnir án þess að nefna nokkurn
tímann að mikið væri að gera, að ekki
væri tími til að sendast með okkur.
Frá því að ég man eftir mér fékk
ég að fylgjast með og „aðstoða“ þeg-
ÞÓRÐUR
STEFÁNSSON
✝ Þórður Stefáns-son fæddist á
Hrafnhóli í Hjaltadal
26. ágúst 1926. Hann
lést á sjúkrahúsi
Sauðárkróks 2. apríl
síðastliðinn og var
hann jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju
13. apríl.
ar dytta þurfti að ein-
hverju, enda var það
fátt sem þú náðir ekki
að laga með hugviti og
næmi. Án nokkurs vafa
mótaði þetta mig sem
polla, ég fékk óbilandi
áhuga á að smíða og
laga hvers kyns hluti.
Þetta voru dásamlegar
stundir sem aldrei
gleymast.
Fleiri atriði koma
upp í hugann þegar litið
er til baka. Eitt er mjög
ofarlega í minningunni,
það er þegar þú varst
að slá á gömlu Deutz-dráttarvélinni
með greiðusláttuvélinni. Það jafnað-
ist ekkert á við að sitja í farþegasæt-
inu tímunum saman og fylgjast af
áhuga með því hvernig bera átti sig
að við þetta vandasama verk.
Oft varstu líka með mér í huganum
í vélsleðaferðalögum. Þegar ég kom
heim eftir vel heppnaðar ferðir voru
kortin jafnan dregin upp og farið yfir
ferðina með bros á vör. Oft barst í tal
að við yrðum að fara saman í svona
ferðir, því miður varð aldrei neitt af
því.
Frá því ég fyrst man eftir mér
varst þú, pabbi minn, til staðar, þú
varst alltaf tilbúinn að leggja þitt af
mörkum svo okkur öllum liði vel.
Þær dásamlegu stundir sem þú gafst
okkur munu lifa í minningunni um
góðan föður.
Guð gefi þér frið.
Haukur.
Þórður frá Marbæli er búinn að
ljúka sínu jarðvistarlífi. Ég kynntist
honum þegar ég kom á heimili hans,
bróður hans og föður 1953. Næstu
tíu árin var hann þar til heimilis svo
ég fékk kynni sem aldrei rofnuðu.
Hann varð ekki einungis mágur
minn, bróðir manns míns og föður-
bróðir barna minna, heldur líka ein-
lægur vinur okkar allra.
Þegar hann festi svo ráð sitt með
eftirlifandi konu sinni fluttu þau og
hófu búskap á Hofi í Hjaltadal. Þar
bjuggu þau í nokkur ár en fluttu síð-
an að Marbæli í Óslandshlíð og hafa
búið þar síðan.
Samstilling hjónanna var aðdáun-
arverð við að hlúa að búi og börnum.
Því var ævinlega mikil tilhlökkun hjá
fjölskyldu minni að heimsækja þau
þar sem hlýja, nærgætni og glað-
værð ríkti og bera börn þeirra þetta
fangamerki frá þeim, sem er tryggð,
reglusemi og heiðarleiki í ríkum
mæli.
Þórður var laghentur og nutu
bæði vélar og annað sem til þurfti
lagni hans á Marbæli. Þórður hafði
gott skopskyn og var vinafastur en
var – eins og kona hans – meira fyrir
að hlúa að heimilinu en að vera í fé-
lagsmálum.
Ég reyni ekki að telja upp einstak-
ar minningar því þær eru svo marg-
ar, góðar og samofnar margra ára
sambandi okkar að ég þakka bara
hverja og eina. Um leið bið ég Rósu
og afkomendum þeirra allrar guðs-
blessunar um ókomin ár og vona og
veit að vináttan við þau mun ekki
blikna þótt eitt úr hópnum kveðji.
Þórður, þökk fyrir allt, kæri vinur,
hittumst seinna, hress að vanda.
Fjóla Kr. Ísfeld.
Er sárasta sorg okkar mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H. I. H.)
Elsku Þórður frændi, að kveðja
þig er óskaplega erfitt og einhvern-
veginn er það svo að þegar einhver
hefur verið fastur punktur í tilver-
unni frá því að maður man eftir sér
þá er óraunverulegt að þér sé kippt í
burt, ég vil bara geta komið til ykkar
Rósu út á Marbæli og þú segir: ,,Nei,
ert þú komin, sæl og blessuð
frænka,“ með hlýja viðmótið þitt og
brosið sem alltaf var til staðar. Að
koma til ykkar var alltaf svo gott,
maður var kominn ,,heim“, þið bæði
einstaklega gestrisin, góð, hlátur-
mild og hægt að spjalla um allt, já
skrítið verður að koma í Marbæli án
þín, en þó hláturinn þinn heyrist ekki
lengur verður hann alltaf skýr í hug-
um okkar sem eftir stöndum og
söknum þín mikið. En kannski er
þetta frekja að vilja hafa þig alltaf,
þú lifðir 75 ár, áttir yndislega konu
þér við hlið, þið voruð svo einstak-
lega samhent hjón, komuð upp fjór-
um góðum og duglegum börnum og
áttuð myndarbú sem þú naust þín í.
Við frændsystkini, vinir þínir og fjöl-
skylda eigum ótal góðar og skemmti-
legar minningar um þig sem við get-
um yljað okkur við.
En þakklæti er mér samt efst í
huga, þakklæti fyrir góðan frænda
og félaga, þakklæti fyrir það hvað þú
varst góður við mig og börnin mín.
Strákarnir kölluðu þig afa, Tómas
kom alltaf sæll og glaður úr sveitinni
eftir dvölina á sumrin, ég vona bara
og veit að þú ert kominn á góðan
stað, laus við kvalirnar. Hafðu þökk
fyrir allt, kæri frændi.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
Elsku hjartans Rósa, Kolla,
Hjalti, Haukur, Edda og fjölskyldur.
Þórður fór allt of fljótt frá ykkur. Ég
sendi ykkur mína innilegustu
samúðarkveðjur, guð veri með ykk-
ur.
Sæunn Guðmundsdóttir.
1=7787
5< 5 -&
(&(,(E
/ ; 5!
" !
<
! # "#
'(#
1<&($%&&
.!&((1<&(! ,9(16 $%&&
0 0+!,0 0 0+/
'787/
5/% &%25 (%
/
" !
;
= ! " "#
)&*20 $%&&
$( ?(,(!
20+,(! 2 $%&&
, ,((+(!,'* $(20 ?/
- .
$5 9- (+
3
! + ##
,*(%$%&&
,9(, &G$%&&
@ $* $%&& , !
'(0+, $%&& H
% - ! ,0+,'(%$%&&
&&% ! '/ $%&&
!, + ? $(/
- .
( .
6&#:I
6(5 ,+&(:J:
? 5*
" !
>
! " "#
&
'
(
; /
* ((
/
,0+,/'&$%&& $%./
!
,*('/ $%$%&& $%@/'(-($!
'&( $%! & /2$%&&
,# $%!
!,?& 0+/
- .
1
(,+&(JB
&?9% -
; '
1# !
+ ##
&
'
; '
;
? ) ')
(,16 $%&&
16 $%&& .!0,(",!
,( ,#& 16 $%&&
% %$%&& )&6$<!
.!5 $( " 16 ! 9 $
0 0+!,0 0 0+/
' '7' 7 '
)%,0 E
? 5*
/ %
!
= ! " "#
,'&!,0,! / &$%&&
? 5* ,0,$%&& ,#,K%!
L9,0,$%&& ,# - L9
$ ,0,$%&&
!,0 0+/
@
%
6
)
'6'
)
6; /
'
* ($ /
- .
'.
)
6 $;G
*@&- ?(-
(
<
%
!
0
<
1# ! + ##
'(#5 (,$
0+&,$ 0+!,0 0+/
.
@'/ )
-# -&
<%,(-:E
? 5*
! " "#
&
'
'
'(# ,#$%&&/
@,$*@,$%&& .%
!
5*M@,!
$?@,! $ ?% $%&&
$ *@, !, * /