Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 59
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002 59 Þriðjudagurinn 12. mars byrjaði nánast eins og hver annar dag- ur. Þegar vinnudegi lauk kom ég heim og biðu þá amma þín, Rún- ar og Bergsveinn frændur þínir eftir mér í íbúðinni minni. Ég gekk inn í íbúðina og komu þau á móti mér niðurdregin og sorg- mædd á svipinn. Ég sá strax að eitt- hvað var að og sagði amma þín mér að hún hefði ekki góðar fréttir að færa, að elskulegur Óli okkar væri látinn. Ég var aðeins sex ára gömul þegar þessi sólargeisli kom inn í líf mitt. Mér fannst ég geta sigrað heiminn. Var að byrja í skóla og var búin að eignast lítinn frænda. Ég man þegar ég hljóp yfir til vinkonu minnar til að segja henni frá litla frænda mínum. Ég var svo stolt, ánægð og rík. Með hverju ári sem leið varð ég stoltari og stoltari yfir að eiga þig sem frænda. Það var ekkert barn þægilegra að passa en þig, Óli minn. Þú varst alltaf ÓLAFUR RAGNAR PÉTURSSON ✝ Ólafur RagnarPétursson fædd- ist í Keflavík 27. mars 1976. Hann lést í Keflavík 12. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 21. mars. svo blíður og kátur. Brosið og hláturinn alltaf svo stutt undan. Rólegur sýndir þú Þór- mundi litla bróður þín- um hvernig ætti að raða Fisher Price-köllunum og hvernig ætti að nota Fi. Pr.-kranann og litli bróðir horfði dolfallinn á. Síðan komu Lúlli og Viktor í heiminn og þú varst ætíð þeim innan handar. Í öll þau ár sem við áttum samleið minnist ég þess aldrei að þú hafir farið í fýlu eða værir pirraður út í einhvern eða eitthvað. Það „gen“ var einfaldlega ekki til staðar í þér. Þú tókst öllu með svo miklu jafnaðargeði og sást alltaf það góða í öllu og öllum. Þú varst vinaríkur og voru tengsl þín við fjöl- skyldu þína mjög sterk enda skipti fjölskyldan þín þig miklu máli. Árin liðu og með hverjum degi sýndir þú okkur hvers þú varst megnugur. Þú hafðir mikinn metnað að koma þér áfram enda sýndi það sig í öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur. Betri fyrirmynd fyrir okkur hin var ekki hægt að hugsa sér. Sam- viskusamur, ósérhlífinn, duglegur, glaðlyndur, snyrtimenni mikið en umfram allt heiðarlegur einstakling- ur sem vildi hafa sína hluti á hreinu. Þú kynntist síðan elskunni þinni, henni Sigurrósu. Yndislegri stúlku var ekki hægt að hugsa sér. Síðan kom að því að þið eignuðust ykkar fyrstu íbúð og lagðir þú mikið upp úr því að hafa allt snyrtilegt, hreinlegt og í röð og reglu hvort sem um var að ræða heimili þitt eða þig sjálfan. Allt varð að vera fullkomið. Þrátt fyrir að eiga þessa frábæru íbúð stefndi hug- ur þinn lengra. Snemma lagðir þú á ráðin um eignast hús og svo kom að því að þið festuð kaup á raðhúsi rétt tæpri viku fyrir hinn örlagaríka dag þegar stóra kallið kom. Hamingjan og spenningurinn yfir nýju fjárfest- ingunni var mikill enda blasti fram- tíðin björt við. Amma þín hafði hringt í mig og sagt mér þessar góðu fréttir. Allir voru svo ánægðir og spenntir. Pabbi þinn talaði um að hann ætlaði mála fyrir ykkur. Elsku Óli, þú varst rétt að byrja og áttir svo mikið eftir. Elsku Sigurrós mín, ég bið Guð um að styrkja þig í sorg þinni en um leið vil ég þakka þér fyrir að hafa elskað frænda minn. Það að hann skyldi hafa átt þig að er það besta sem hægt er að hugsa sér. Ást ykkar var ósvik- in. Ég votta þér mína dýpstu samúð. Elsku Heiða, Hallur, Mummi, Lúlli og Viktor Freyr, mamma, pabbi og aðrir aðstandendur, ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð, missir okkar er mikill en minningin um yndislegan og fallegan dreng verður aldrei frá okkur tekin. Guð styrki okkur í sorg- inni. Með þessum orðum kveð ég þig nú, elsku frændi, með þakklæti og söknuði. Þú munt ávallt lifa í huga mér og vera mitt stolt og fyrirmynd. Þín frænka Linda Ósk Þórmundsdóttir. Elsku besta amma mín. Mikið er sárt að þú skulir vera farin. Þó svo að við höfum átt margar góðar stundir sem eru mér mikils virði er samt svo margt sem ég þarf að segja þér. Já hjá okkur var alltaf mikil kátína, hlegið og flissað. Og ef einhverjum finnst ég vera fyndinn þá kemur mín kímnigáfa frá þér, það er næsta víst. Mér þykir leiðinlegt að ófætt barn mitt muni ekki eiga kost á að kynnast þér, en það mun heyra ótal skemmti- legar sögur af „ömmu á Akureyri“ um ókomna tíð. Þessar stundir okkar eru ljóslifandi í huga mér, og þarf ég ekki annað en loka augunum til að upplifa þær aftur og aftur, ég meira að segja finn ilminn úr garðinum þínum. Garð- urinn þinn eða „Akureyrar-Eden“ eins og ég kýs að kalla hann er sá fal- legasti sem ég hef komið í, og er það mér óskiljanlegt hvernig kona á þín- um aldri gat haldið honum svona hreinum og fallegum. Ekki er ég mik- BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR ✝ BrynhildurBjörnsdóttir fæddist í Pálsgerði í Höfðahverfi 22. júlí 1918. Hún lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 16. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyrar- kirkju 25. mars. ill garðyrkjumaður en ég veit hvenær „snill- ingur“ er á ferð. Þú hafðir mikið dá- læti á tónlist, það er víst ábyggilegt, og ég mun seint gleyma þegar ég kom einu sinni í heim- sókn vopnaður kassettu með gargandi þunga- rokki, leyfði þér að heyra og þú sagðir: „Mikið er nú falleg mel- ódía í þessu.“ Það hefur mér alltaf þótt mjög fyndið, og það kæmi mér ekki á óvart ef þú værir núna með rafmagnsgítar í kjölt- unni að syngja lög eftir Tinu Turner. Þú hafðir sterka trú, og það er víst ábyggilegt að þínar bænir komu mér á lappir eftir mikil veikindi. Ég er þér ævinlega þakklátur fyrir það elsku amma mín. Ég sakna þín elsku amma og veit að það verður aldrei eins að koma til Akureyrar núna eftir að þú ert farin. En svona er víst lífið og ég verð bara að sætta mig við það, við munum nú hittast aftur einhvern tímann, og þá verður rokkað. En þangað til bið ég góðan Guð að geyma þig amma mín, og syngdu nú af lífs og sálarkröftum í sönghöllunum, svo hátt að ég heyri í þér og geti tekið undir. Megi Guð og Guðs englar vaka yfir þér elsku amma mín, og þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur gert fyrir mig. Bless bless. P.s. Ég bið að heilsa öllum þarna uppi. Kári Hallsson. ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina @  %        %  6     )   '6'      )                      .       +  ,($4   6( *  5&/ ;/   %    $    ;) ')3   (.    (( $*"-($$%&&  .% !    &$%&&  ,.% ! '(-($  /5 5 $%&& .% .% ! ,&& '( $%&& ?.% ! % //%$%&& 0+!, , 0+/ @   %        6   )   '6'      )                      M'7 N  ' 7  , 5,A> )%; 5!,/  !,(! %"5  !!   ,0+,%9 $%&& ,(( !! @,$* ,   $%&& ,9( !$%&& 2%G! ,# !!  (()&$%&& 0  0+!, ,+--(0+/ &  %  6    )  '    )    )   6#0, 5 0 &+$/ ;/    %      *     %  '  )    '      & $$(/ @  %      6  )  '6 '      )                ' 8 '78 7  7 ?(-9#5   & % * ? 5*/ & ?% ! ((# $%&& , +&$%&& ?% (&!  # &! 2( *&! 2?&%9 ! 6 %9 $%&& - 2?&! !,0  0  0+/  %      6  )  '6 '    )                  M7 2 8  '   7   $ / ;/    %   .     * /   A        @+ ($(./-%!  /! &$%&& ,*( /-%$%&& & 6@/ & !  $(-%$%&&  &/ !  (,/%$%&&   0  0+!,0  0  0+/ !  ;   >  . ;   +        " ##    =  !    3B30$53>C3>CDB>,A3>CDB8DAE;EFGGD>  &&&%* ? (-$"-/   %        6   )   '6'      )                        '78 7  @N'78 7    ( ,>> ? 5*/ ;/   %   .  ')   ' '  * ((  /        0 !   *!   @ ,(%$%&& 0+!, + ? $(/ - .   (6              2     0#E 2 0"  /   ) ') A !       1  !              $       1#  !  + "#  ,*-( '* ! 0+&,$ 0+!,0  0+/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.