Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 1
AP Vladímír Pútín, forseti Rússlands, og George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, takast í hendur á fréttamannafundi í Moskvu í gær. GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, undirrituðu í gær tíma- mótasamning um kjarnorkuafvopn- un. Fögnuðu þeir þessum áfanga í samskiptum ríkjanna og sögðu hann mundu leiða til „ótrúlega mikils samstarfs“. Bush sagði að undirrituninni lok- inni, að gagnkvæmur ótti við kjarn- orkuárás væri nú úr sögunni, en samkvæmt samningnum munu ríkin fækka kjarnaoddum sínum um tvo þriðju á 10 árum, úr 6.000 til 7.000 í 1.700 til 2.200. Samningurinn um kjarnorku- vopnin og aðrir samstarfssamning- ar, sem nú hafa verið undirritaðir, sýna vel hvað samvinna ríkjanna hefur orðið náin eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september síð- astliðinn. Pútín hefur stutt Bush heilshugar í stríðinu gegn hryðju- verkamönnum og það hefur borið góðan ávöxt á mörgum öðrum svið- um. Eina eiginlega ágreiningsmálið í viðræðum þeirra Bush og Pútíns var aðstoð Rússa við smíði kjarn- orkuvers í Íran en Bush skipar Íran á bekk með Írak og Norður-Kóreu í „hinum illa öxli“. Kvaðst Bush hafa áhyggjur af, að klerkarnir misnot- uðu tæknina, en Pútín fullvissaði hann um, að á því væri engin hætta. Samstarf í orkumálum Bush olli reyndar Rússum von- brigðum með því að lýsa ekki yfir, að kaldastríðs-takmörkunum á við- skiptum við Rússland hefði verið af- létt, og enn er deilt um innflutning á bandarískum kjúklingum til Rúss- lands og tollana, sem Bandaríkja- menn hafa sett á stálinnflutning. Bush skýrði einnig frá því, að rík- in ætluðu að stórauka samstarf sitt í orkumálum, meðal annars með aukinni þátttöku bandarískra fyr- irtækja í olíuvinnslu Rússa, en fréttaskýrendur segja, að með því vilji Bandaríkjamenn verða óháðari olíunni frá Miðausturlöndum. Tímamótasamningur um fækkun kjarnavopna George W. Bush og Vladímír Pútín boða „mikið samstarf“ Moskvu. AP, AFP. 121. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 25. MAÍ 2002 MARTA Lovísa Noregsprinsessa og rithöfundurinn Ari Behn voru gefin saman í hjónaband í gær í dómkirkj- unni í Niðarósi. Kom prinsessan til vígslunnar ásamt föður sínum, Har- aldi konungi, sem leiddi hana upp að altarinu. Úti fyrir söfnuðust sam- an tugþúsundir manna til að fagna brúðhjónunum og létu ekkert á sig fá háðulegar umsagnir fjölmiðla um brúðgumann. Í könnun kemur fram, að 24% Norðmanna telja, að Behn sé slæm fyrirmynd fyrir norska æsku, og 43% álíta, að val þeirra systkina, Mörtu og Hákonar, á lífsförunaut hafi veikt norska konungdæmið. Reuters Hátíð í Niðarósi DEILUR Micks McCarthys, þjálfara írska landsliðsins í knattspyrnu, og Roys Kean- es, fyrirliða liðsins, rötuðu alla leið inn á borð Berties Aherns, forsætis- ráðherra Írlands, í fyrradag en The Irish Times segir frá því í gær að Ahern hafi verið reiðubúinn að blanda sér í deilurnar ef það mætti verða til að lægja öldur í herbúðum liðsins. Brotthvarf Keanes hefur vakið sterk viðbrögð á Írlandi en flestir eru sammála um að hann hafi verið eini leikmaður landsliðsins, sem hefði staðist þeim allra bestu á HM í knatt- spyrnu snúning. Mótið er haldið í Japan og S-Kóreu og hefst á föstudag. Síminn hjá Ahern mun ekki hafa stoppað eftir að þær fréttir bárust í fyrradag að McCarthy hefði rekið Keane úr landsliðinu. Munu bæði fulltrúar írska knattspyrnu- sambandsins og kunningjar Keanes hafa viljað að forsætis- ráðherrann skærist í leikinn. Segir The Irish Times að Ahern hafi lýst sig reiðubúinn til að miðla málum, teldu menn líklegt að það skilaði árangri. HM í knattspyrnu Ahern vill sættir Roy Keane ATAL Behari Vajpayee, forsætisráð- herra Indlands, hélt til fjalla í gær í stutt frí, er heldur dró úr ótta við að styrjöld milli Indverja og Pakistana væri yfirvofandi. Alþjóðlegur þrýst- ingur á báða aðila hefur verið mikill. Sú ákvörðun Vajpayees að fara í þriggja daga leyfi til ferðamannastað- arins Manali í Himalæjafjöllum er af fréttaskýrendum talin til marks um að stríð sé ekki yfirvofandi, þrátt fyrir að hart hafi verið lagt að indversku stjórninni innanlands að gera árás á samtök múslíma er hafa aðsetur í Pakistan. „Þetta eru greinilegustu merkin um friðarhorfur sem sést hafa lengi,“ sagði stjórnmálaskýrandinn Mahesh Rangarajan í Nýju-Delhí. „Forsætis- ráðherrann færi ekki í ferðalag ef Indland væri um það bil að lýsa stríði á hendur Pakistönum.“ Chris Patten, sem fer með utanrík- ismál í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins, átti í gær fund með Brajesh Mishra, sem er öryggisráð- gjafi indversku stjórnarinnar og einn helsti ráðgjafi Vajpayees, og Jaswant Singh, utanríkisráðherra Indlands. Patten er sá fyrsti af þremur þekktum vestrænum stjórnmála- mönnum sem heldur til S-Asíu í því augnamiði að reyna að stilla til friðar. Í næstu viku heldur Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, þangað, og Richard Armitage, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, fer þang- að í þarnæstu viku. Vajpayee forsætisráðherra farinn í frí Dregur úr stríðsótta Nýju-Delhí. AFP.  Pakistanar sæta/26 KJELL Inge Røkke, kunnasti kaup- sýslumaður í Noregi, hefur verið ákærður fyrir að múta sænskum embættismanni og verða sér þannig úti um réttindi til að stjórna stórri lystisnekkju. Røkke og þrír menn aðrir, Robert Matos vélstjóri, skipamiðlarinn Erik Øye og John Inge Valand, aðstoð- armaður Røkkes, eru sakaðir um að hafa mútað sænskum skipaeftirlits- manni til að fá réttindin án þess að gangast undir próf. Hámarksrefsing við því er árs fangelsi auk sekta. Røkke er einn af ríkustu mönnum í Noregi en hann kom á sínum tíma undir sig fótunum með ufsaveiðum við Alaska. Eftir að hann sneri heim á síðasta áratug náði hann undir sig Aker-samsteypunni og gekkst fyrir því að hún var sameinuð Kværner- samsteypunni á síðasta ári. Upphaf málsins er, að snekkja Røkkes strandaði við Svíþjóð í júlí í fyrra. Røkke ákærður fyrir mútur Ósló. AP. OTTO Schily, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði í gær, að verið væri að kanna fréttir um, að liðs- mönnum al-Qaeda-hryðjuverkasam- takanna og talibönum hefði verið smyglað til Evrópu þar sem þeir væru að undirbúa hryðjuverk. Frankfurter Allgemeine Zeitung sagði í gær, að 30 talibanar og al- Qaeda-liðar, sem horfið hefðu spor- laust í Slóvakíu fyrir tveimur mán- uðum, hefðu líklega ætlað til Bret- lands þar sem þeir hygðu á nýjar árásir. Staðfesti Schily, að fréttir um þetta hefðu borist, og hvatti almenn- ing til að vera vel á verði. Blaðið sagði, að mennirnir hefðu verið í búðum í Slóvakíu þar sem þeir hefðu beðið hælis. Það hefði þó vakið grunsemdir að þeir voru allir skil- ríkjalausir. Varað við árásum í Evrópu Frankfurt. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.