Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKR-ingar á toppinn eftir
sigur á Skagamönnum / B2
Fyrsti sigur Íslendinga á Svíum
í handknattleik í 14 ár / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r25.
m a í ˜ 2 0 0 2
FRÉTTAÞJÓNUSTA verður veitt á
mbl.is á Netinu á kosninganótt og
munu birtast þar fréttir af talningu
og viðbrögðum frambjóðenda frá því
kjörfundi lýkur klukkan 22 og fram á
nótt.
Fréttirnar munu birtast á almenn-
um fréttasíðum vefjarins og á sér-
stökum kosningavef, en þar verður
einnig hægt að skoða stöðu mála í
einstökum sveitarfélögum eftir því
sem tölur berast.
Hægt verður að koma upplýsing-
um eða ábendingum á framfæri með
því að senda tölvupóst á netfangið
netfrett@mbl.is eða hringja í síma
861-7970.
Fréttaþjón-
usta mbl.is á
kosninganótt
HELGI Tómasson, stjórnandi San
Francisco-ballettsins, var meðal
þeirra sem sæmdir voru heið-
ursdoktorsnafnbót við Juilliard-
listaháskólann í New York í gær.
Mikið fjölmenni var viðstatt út-
skriftarathöfnina, en skólinn er
einn fremsti háskóli Bandaríkjanna
á sviði tónlistar, dans og leiklistar.
Auk Helga fengu heiðursdoktors-
nafnbót þau Edward Albee leik-
skáld, Jimmy Heath saxófónleikari,
Shirley Verret sópransöngkona og
leikarinn Bill Cosby.
Athöfnin hófst á því að allir við-
staddir vottuðu virðingu sína þeim
sem létu lífið í World Trade Center
hinn 11. september síðastliðinn, en í
opnunarávarpi sínu sagði Bruce
Kovner, formaður stjórnar stuðn-
ingsaðila skólans, að atburðurinn
hefði leitt New York-búum fyrir
sjónir hversu mikilvægt „samfélag
mannanna væri“.
Helgi Tómasson var fyrstur heið-
ursdoktorsefnanna til að verða
kallaður fram og fór Joseph W. Pol-
isi, rektor háskólans, afar lofsam-
legum orðum um framlag hans til
danslistarinnar. „Sem einn örfárra
dansara er sköruðu fram úr bæði í
ballettum Jeromes Robbins og
Georges Balanchines varðst þú þess
heiðurs aðnjótandi að báðir sköp-
uðu dansverk sérstaklega fyrir þig.
Fágun hreyfinga þinna og útfærsla
þeirra, tvinnuð saman við með-
fædda sköpunargáfu og tæran stíl,
komu þér á stall sem einum stór-
kostlegasta listamanni þinnar kyn-
slóðar. Og það er einmitt fyrir til-
stuðlan þessara listrænu gilda, og
staðfestu þinnar við að virða þau,
sem ferill þinn sem stjórnanda og
danshöfundar hefur einnig verið
jafn fullkominn og raun ber vitni,“
sagði Polisi meðal annars. Helga
var fagnað með dynjandi lófataki,
enda leyndi sér ekki hversu vel
áhorfendur voru kunnugir honum
og rúmlega fjörutíu ára dansferli
hans í Bandaríkjunum.
Það kom í hlut hins ástsæla Bills
Cosbys að ávarpa útskriftarnem-
endur fyrir hönd heiðursdoktor-
anna, en hann var mjög áberandi á
sviðinu, ekki síst fyrir þá sök að í
stað hinnar hefðbundnu rauðu
flauelshúfu doktoranna bar hann á
höfði ameríska derhúfu sem hann
hafði nælt í lítið silkiskott, eins og
það er útskriftarnemendur bera á
sínum höfuðfötum. Hann fleygði
ennfremur af sér heiðurskápunni
áður en hann tók til máls, enda mik-
ilvægt að skóli á borð við Juilliard
sýni fram á „breidd í túlkun og list-
rænum athöfnum“, eins og Polisi
orðaði það er hann hleypti Cosby í
pontu við mikinn fögnuð.
Í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins áður en athöfnin átti sér
stað sagðist Helgi Tómasson hreint
ekki hafa átt von á því að verða
þessa heiðurs aðnjótandi. Juilliard-
listaháskólinn hefur einkum lagt
áherslu á nútímadans og Helgi
sagði það því sérstaklega ánægju-
legt fyrir sig að þeir sýndu með
þessum afgerandi hætti mikilvægi
persónulegs framlags hans til nú-
tímadans. „Þeir eru í raun að við-
urkenna að ég sé ekki einungis að
vinna í anda Balanchines í klass-
ískum dansi, eins og allir bjuggust
við í upphafi þegar ég fór til San
Francisco, heldur að vinna mín þar
á sviði nútímadans hafi einnig vegið
það þungt að það hefur haft áhrif á
vinnuna í þeirra eigin skóla hér í
New York.“
Meðal íslenskra boðsgesta við út-
skriftarathöfnina voru forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, og
heitkona hans Dorrit Moussaieff og
sendiherrahjónin í Washington,
Bryndís Schram og Jón Baldvin
Hannibalsson. Þess má einnig geta
að ungur íslenskur fiðluleikari, Pál-
ína Árnadóttir, útskrifaðist með
framhaldsgráðu í tónlist við þessa
sömu athöfn, en í fyrra lauk hún
einnig meistaraprófi í fiðluleik frá
sama skóla.
Helgi Tómasson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Juilliard í New York
Meðfædd
sköpunargáfa
og tær stíll
Helgi Tómasson og kona hans Marlene, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, og heitkonu hans Dorrit Moussaieff í Lincoln Center í
gær, þar sem Helgi var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót.
New York. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Fríða Björk Ingvarsdóttir
HEIÐLÓAN sigraði í árlegu
Evrópufuglasöngkeppninni en
úrslit hennar voru kunngerð í
gær. Lóan var fulltrúi Íslands í
keppninni og hlaut hún rúm-
lega 3,6 stig að meðaltali en
hægt var að gefa fuglunum stig
frá 1 upp í 5. Blábrystingur,
sem var fulltrúi Belga, varð í
öðru sæti með rúmlega 3,4 stig
og tjaldurinn, sem var fulltrúi
Færeyinga, hreppti þriðja sæti.
Kosningin fór fram á Netinu,
á vefsíðu eistneska Fugla-
verndarfélagsins, og tóku um
30 þúsund manns þátt í henni.
Öllum gafst kostur á að kjósa
en eins og í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva var
einungis hægt að velja þátttak-
endur annarra landa.
Robert Oetjen, einn af skipu-
leggjendum keppninnar, segir
um þennan íslenska vorboða að
þótt lóan hafi ekki sérlega fal-
lega rödd og flauti frekar en
syngi sé söngur hennar áhuga-
verður og fjöldi fólks hafi gefið
henni atkvæði sitt.
Sérstök dómnefnd fjallaði
einnig um söngfuglana og
komst að þeirri niðurstöðu að
eistneski næturgalinn syngi
best af 21 fuglategund sem tók
þátt í keppninni. Dómnefndin
setti lóuna hins vegar í 15. sæti.
Ljósmynd/Jóhann Óli
Evrópufugla-
söngkeppnin
Heiðlóan
sigraði
fells ákváðu að opna félagið og dreifa eignaraðild
þess,“ segir Ólafur Ragnarsson, fráfarandi formað-
ur stjórnar Eddu. „Í kjölfar þeirrar ákvörðunar
keypti Fjárfestingarbanki atvinnulífsins helmings-
eignarhlut og í tengslum við þá breytingu hætti ég
afskiptum af daglegum rekstri fyrirtækisins, varð
stjórnarformaður og vann að uppbyggingu og út-
víkkun starfseminnar, meðal annars með kaupum
Vöku-Helgafells á útgáfufyrirtækinu Iceland Re-
view og stofnun nútímalegrar dreifingarmiðstöðvar
í samstarfi við Mál og menningu. Síðan tókst sam-
komulag um samruna Vöku-Helgafells og Máls og
menningar í nýtt miðlunar- og útgáfufyrirtæki
sumarið 2000. Þetta fyrirtæki hlaut nafnið Edda og
undanfarin tvö ár hef ég gegnt stjórnarformennsku
í því. Það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá hvern-
ig tekist hefur að auka enn fjölbreytni starfsem-
innar, meðal annars með stofnun tónlistardeildar,
sem þegar á fyrsta ári var orðin næststærsta tón-
listarútgáfa landsins.
Þegar Fjárfestingarbanki atvinnulífsins, sem síð-
ar sameinaðist Íslandsbanka, keypti helmingshlut-
inn í Vöku-Helgafelli var því lýst yfir að bæði bank-
inn og aðrir eigendur félagsins hygðust selja sína
hluti í fyllingu tímans. Þá var miðað við að fyr-
irtækið yrði skráð á Verðbréfaþing Íslands innan
fárra ára en aðstæður á hlutabréfamarkaði hafa síð-
an gjörbreyst. Þegar sá kostur bauðst að selja
EFTIR hluthafafund í Eddu – miðlun og útgáfu hf. í
gær er Björgólfur Guðmundsson orðinn meirihluta-
eigandi að fyrirtækinu. Hinn helsti eigandi fyrir-
tækisins er Mál og menning – Heimskringla.
Halldór Guðmundsson er forstjóri Eddu og mun
verða það áfram eftir þessar breytingar. „Ég fagna
því heilshugar,“ segir Halldór, „að það sé búið að
tryggja áframhaldandi rekstur Eddu, sem fyrir ut-
an ýmislegt annað er stærsta bókaútgáfa landsins.
Samstarfið við nýja hluthafa leggst mjög vel í mig.“
Í fréttatilkynningu frá Eddu segir að á hluthafa-
fundinum í gær hafi verið ákveðið að auka hlutafé
félagsins um 100 milljónir króna. Núverandi hlut-
hafar hafi fallið frá forkaupsrétti og Björgólfur
Guðmundsson hafi skráð sig fyrir hlutafjáraukning-
unni. Hann hafi jafnframt gert samkomulag við Ís-
landsbanka og Ólaf Ragnarsson og fjölskyldu hans
um kaup á öllum eignarhlutum þeirra í félaginu.
Í tengslum við þessa breytingu ganga Ólafur
Ragnarsson, Guðfinna Bjarnadóttir og Ólafur Jó-
hann Ólafsson úr stjórn. Á fundinum var kjörin ný
stjórn og hana skipa Páll Bragi Kristjónsson, Þröst-
ur Ólafsson, Ólafur B. Thors, Örnólfur Thorsson og
Þór Kristjánsson. Varamenn eru Þórunn Guð-
mundsdóttir og Daníel Helgason.
„Þessi niðurstaða er að því er mig snertir í raun
lokapunktur á ferli sem hófst fyrir tæpum fjórum
árum, þegar stofnendur og eigendur Vöku-Helga-
Björgólfi Guðmundssyni eignarhlut Íslandsbanka
og okkar, fyrrverandi eigenda Vöku-Helgafells, var
ákveðið að láta á það reyna. Niðurstaðan er nú orð-
in ljós og þar með hætti ég öllum afskiptum af fyr-
irtækinu eftir að bókaútgáfa hefur átt hug minn all-
an í rúma tvo áratugi, eða frá því bókaútgáfan Vaka
var stofnuð 1981.
Ég býð nýja eigendur Eddu velkomna á þennan
spennandi vettvang og óska þeim og fyrrum með-
eigendum okkar frá Máli og menningu alls góðs á
komandi tíð. Ég tel að nú hafi verið lagður nýr og
traustari grunnur að framtíðarþróun þessa fjöl-
þætta og mikilvæga miðlunar- og menningarfyr-
irtækis.“
Kaupverð ekki gefið upp
Spurður um fjárhæðir í sambandi við þessi við-
skipti sagði Ólafur að samkomulag hefði verið milli
kaupenda og seljenda um að ekkert yrði gefið upp í
þeim efnum.
Í fréttatilkynningu Eddu segir að sem fyrr verði
aðaláherslan lögð á bókaútgáfu og bóksölu, en undir
hatti fyrirtækisins starfi nú bókaforlögin Mál og
menning, Vaka-Helgafell, Forlagið, Almenna bóka-
félagið og Iceland Review. Að auki reki félagið sex
bókaverslanir undir nafni Bókabúða Máls og menn-
ingar, gefi út nokkur tímarit, starfræki tónlistar-
útgáfu og fjölda bóka- og áskriftarklúbba.
Björgólfur Guðmundsson
eignast meirihluta í Eddu