Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BEINLAUSAR
svínakótilettur
á grillið
Tilboð
10
29
/
T
A
K
T
ÍK
2
5.
5´
02
BEINLAUSAR
1398
pr.
kg.
Ali kótilettur BBQ
Ali kótilettur léttreyktar
FRAMBJÓÐENDUR í Reykjavík
höfðu í nógu að snúast í gær á loka-
spretti kosningabaráttunnar.
Fulltrúar framboðslistanna drógu
hvergi af sér á þessum síðasta degi
fyrir kosningarnar og ræddu við
kjósendur víðs vegar um borgina,
heimsóttu vinnustaði, efndu til bar-
áttufunda og slógu á létta strengi í
blíðviðrinu, sem lék við borgarbúa.
Morgunblaðið/Golli
Björn Bjarnason, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins, heimsótti höf-
uðstöðvar Íslenskrar erfðagreiningar í gær og sést hér ávarpa starfsmenn.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sést hér í hópi stuðningsmanna Reykjavíkurlistans sem komu
saman á Ingólfstorgi síðdegis í gær og hlýddu á fjölbreytta skemmtidagskrá í blíðviðrinu.
Morgunblaðið/Þorkell
F-listi frjálslyndra og óháðra efndi til salsahátíðar við kosningaskrifstofu framboðsins í Fógetagarðinum
síðdegis í gær. Hér má sjá Ólaf F. Magnússon, efsta mann á F-listanum, í hópi stuðningsmanna.
Lokaspretturinn
HÚSNÆÐISVANDINN í Reykja-
vík var talsvert til umræðu í umræðu-
þætti með forystumönnum allra
framboða fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Ríkissjónvarpinu í gær-
kvöldi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði m.a. í umræðunum
að Félagsbústaðir hefðu aukið skuldir
sínar vegna þess að fyrirtækið keypti
100 íbúðir á ári til að reyna að ráða við
húsnæðisvandann. „Því miður hefur
það ekki tekizt, vegna þess að greini-
legt er í þessu samfélagi að eignalítið
fólk, með lágar tekjur, hefur setið eft-
ir í þessu góðæri og biðlistar eftir fé-
lagslegu húsnæði aukast,“ sagði Ingi-
björg Sólrún. Hún sagði að Félags-
bústaðir myndu áfram skuldsetja sig
á meðan þetta ástand ríkti.
Bágindi fólks sem
vantar húsnæði
Björn Bjarnason, borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins, sagði að það
sem hefði komið sér mest á óvart í
kosningabaráttunni væri að heyra um
þau bágindi, sem væru hjá mörgu
fólki sem þyrfti á félagslegu húsnæði
að halda, sérstaklega einstæðum
mæðrum með börn. „Þær koma og
leggja fram óskir um að komast inn í
þetta húsnæði og þurfa að bíða í fimm
ár. Það er sagt við þær: Það verður
engin úrlausn í ykkar málum fyrr en
eftir fimm ár. Þessi biðlisti hefur
lengzt úr 200 manns upp í 600 manns.
Það eru núna 300 manns sem menn
tala um að séu í raun og veru heim-
ilislausir hér. Þetta hefur allt gerzt á
undanförnum árum.“
Ingibjörg Sólrún sagði að árin 1991
og 1992 hefðu verið 590 manns á þess-
um biðlistum, en þessi ár hefðu sjálf-
stæðismenn samtals keypt 24 íbúðir.
Markmið R-listans um að leysa vand-
ann með íbúðakaupum hefði m.a. ekki
gengið eftir vegna þess að ríkið hefði
lokað félagslega íbúðakerfinu. „Það
eru 120–130 fjölskyldur, sem eiga
ekki í önnur hús að venda en til
Reykjavíkurborgar í félagslegt leigu-
húsnæði.“ Ingibjörg Sólrún nefndi að
nú væri komin áætlun frá félagsmála-
ráðherra um byggingu 600 almennra
leiguíbúða og borgin hefði úthlutað
100 lóðum til þeirra.
Björn Bjarnason gagnrýndi hins
vegar að R-listinn hefði fylgt
skömmtunarstefnu í lóðamálum, sem
hefði leitt af sér að íbúða- og lóðaverð
hefði hækkað og bæði verktakar og
húsbyggjendur væru í miklum vand-
ræðum, „í stað þess að opna þetta
kerfi og gefa ungu fólki tækifæri til að
fá lóðir og byggja sjálft ef það kýs,
þurfa ekki að fara í gegnum verktak-
ana og allt þetta uppboðskerfi.“
Björn gagnrýndi jafnframt að R-
listinn hefði horfið frá samstarfi við
einkaaðila um framleigu á leiguíbúð-
um. Ingibjörg Sólrún svaraði því til að
þvert á móti vildi Reykjavíkurlistinn
að þróaður yrði almennur leigumark-
aður, þannig að það væri ekki bara
borgin og samtök námsmanna og ör-
yrkja sem rækju leiguíbúðir.
Tekizt á um húsnæðisvandann í sjónvarpsumræðum
Félagsbústaðir verða
áfram skuldsettir
VERSLANIR ÁTVR verða
opnar í dag eins og aðra laug-
ardaga. Á kjördag við sveitar-
stjórnarkosningar fyrir fjórum
árum voru þær lokaðar vegna
ákvæðis í kosningalögum þess
efnis, að ekki væri heimilt að
selja áfengi á kjördag. Það
ákvæði er ekki lengur fyrir
hendi.
Opið í ÁTVR
í dag