Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 9
Fullt af fallegum
fatnaði fyrir útskriftina
Frábær ferðafatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Stúdentadragtir
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið í dag kl. 10-14
Þýskur og danskur
gallafatnaður
Laugavegi 84, sími 551 0756
STEFÁN Thors skipulagsstjóri tel-
ur að ef framkvæmd Alcoa á álveri í
Reyðarfirði verður önnur en sú sem
Skipulagsstofnun úrskurðaði um
vegna álvers og rafskautaverk-
smiðju Reyðaráls þurfi að fara
fram nýtt mat á umhverfisáhrifum.
Með annarri framkvæmd segist
hann m.a. eiga við aðra stærð á ál-
veri og framleiðsluaðferð og enga
rafskautaverksmiðju. Það er ein-
mitt sá þáttur sem Alcoa er að
skoða sérstaklega en mun meiri
mengun er af framleiðslu rafskauta
en áls.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kemur til greina af hálfu
Alcoa að framleiða ekki rafskaut
við álverið heldur flytja þau inn,
líkt og Ísal og Norðurál gera þar
sem engin slík verksmiðja er starf-
andi hér á landi. Michael Baltzell,
aðalsamningamaður Alcoa í viðræð-
unum við íslensk stjórnvöld, stað-
festi í samtali við Morgunblaðið að
rafskautaverksmiðja væri einn af
þeim stóru þáttum sem fyrirtækið
væri að kanna sérstaklega. Þar
þyrfti að taka tillit til þátta eins og
mengunar, orkuöflunar og kostnað-
ar og of snemmt væri að segja til
um hvort Alcoa ætlaði að reisa slíka
verksmiðju eða ekki. Öllum mögu-
leikum yrði haldið opnum í könn-
unarviðræðum næstu vikurnar.
Baltzell sagði að í flestum tilvikum
væri Alcoa með rafskautaverk-
smiðjur við hlið sinna álvera en á
því væru nokkrar undantekningar.
Umhverfismat vegna
Reyðaráls tók rúmt ár
Skipulagsstofnun skilaði úrskurði
sínum í ágúst í fyrra um mat á um-
hverfisáhrifum fyrir allt að 420 þús-
und tonna álver og 223 þúsund
tonna rafskautaverksmiðju í Reyð-
arfirði, rúmu ári eftir að Reyðarál
lagði inn tillögur að matsáætlun.
Úrskurðurinn var kærður til um-
hverfisráðherra, sem síðan skilaði
sínum úrskurði í mars síðastliðnum,
eða 20 mánuðum eftir að mats-
skýrslan var fyrst lögð fram.
Athugun Skipulagsstofnunar
leiddi í ljós að starfsemi rafskauta-
verksmiðju myndi valda allt að fjór-
um sinnum meiri útblæstri brenni-
steinsdíoxíðs og tæplega 100
sinnum meiri útblæstri svokallaðra
PAH-efna en starfsemi álvers ein
og sér. Sú stærð af álveri sem Al-
coa hyggst einnig skoða er upp á
320 þúsund tonna ársframleiðslu og
yrði slíkt álver reist í einum áfanga.
Reyðarál hefur verið með áform um
að reisa allt að 280 þúsund tonna ál-
ver í fyrsta áfanga og stækka það í
öðrum áfanga upp í 420 þúsund
tonn. Hefur Reyðarál lagt áherslu á
að ekki sé hagkvæmt að reisa og
reka álver af fyrirhugaðri stærð án
rafskautaverksmiðju.
Stefán Thors segir að umhverf-
ismatið fyrir Reyðarál geti ekki gilt
fyrir aðra framkvæmd en hann tel-
ur jafnframt að ekki verði flókið að
fara í gegnum nýtt matsferli ef for-
sendur breytist í Reyðarfirði, ekki
síst ef álverið verði minna og engin
rafskautaverksmiðja til staðar.
Tímafrestir vegna matsskýrslu séu
þó bundnir í lög en öll vinna við um-
hverfismatið ætti að verða auðveld-
ari vegna þeirrar vinnu sem þegar
hafi farið fram.
Skipulagsstjóri um áform Alcoa um álver í Reyðarfirði
Þörf á nýju mati ef
framkvæmdin er
önnur en í úrskurði
Rafskautaverksmiðja
veldur mestri mengun
og óvíst er hvort Alcoa
reisir slíka verksmiðju
UPPLÝSINGAFULLTRÚI Norsk
Hydro, Thomas Knutzen, segir að
fyrirtækið hafi ennþá áhuga á að
reisa álver í Reyðarfirði þrátt fyrir
þann mikla áhuga sem Alcoa hafi
sýnt verkefninu, nú síðast með því að
framlengja könnunarviðræður við ís-
lensk stjórnvöld um sjö vikur. Hann
segir að Norsk Hydro muni fylgjast
vel með þeim viðræðum.
„Við sýnum því fullkominn skiln-
ing að íslensk stjórnvöld vilji ræða
við aðra samstarfsaðila. Við vitum
ekki nákvæmlega hvað Alcoa hyggst
fyrir en ef upp kemur áhugi á að
ræða við okkur um einhvers konar
samstarf þá erum við reiðubúnir til
þess. Þó að við höfum ekki getað
staðið við okkar tímasetningar þá
teljum við enn að Ísland sé góður
kostur til að framleiða ál á markaði í
Evrópu og Ameríku. Aðstæður hjá
okkur frá því í vetur hafa ekkert
breyst hvað það varðar að við þurf-
um lengri tíma en við höfðum ætlað
okkur samkvæmt viljayfirlýsingunni
frá síðasta ári,“ segir Knutzen.
John Pizzey, aðstoðarforstjóri Al-
coa, sagði á fundi með blaðamönnum
á fimmtudag að Alcoa ætlaði sér í
fyrstu að eiga álver í Reyðarfirði
100% en útilokaði ekki að síðar kæmi
samstarf við aðra fjárfesta til greina.
Spurður um þennan möguleika segir
Thomas Knutzen það þekkt að sam-
keppnisaðilar á álmarkaði starfi
saman, ekki síst í frumvinnslu áls.
Ekkert samstarf sé þó milli þessara
fyrirtækja í dag. „Við erum allir í
samkeppni en það stöðvar okkur
ekki í að eiga samstarf ef áhugi
beggja er fyrir því,“ segir Knutzen.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær er áhugi fyrir því að Al-
coa kaupi Reyðarál, sem er í eigu
Norsk Hydro og íslenskra fjárfesta í
Hæfi. Áhugi er fyrir þessum við-
skiptum meðal íslenskra fjárfesta en
spurður um þetta segir Knutzen að-
eins að Norsk Hydro vilji ekki úti-
loka neitt.
Ekki rætt við aðra
næstu sjö vikur
Finnur Ingólfsson, formaður við-
ræðunefndar stjórnvalda í álvers-
málum, segir það alveg ljóst að fram
að 18. júlí nk. verði ekki rætt við aðra
fjárfesta en Alcoa. Norsk Hydro sé
því ekki inni í myndinni á meðan, eða
eins og hann orðar það: „Norðmenn
eru einfaldlega ekki á viðræðu-
bekknum núna.“
Það hafi sömuleiðis komið skýrt
fram í viðræðunum við Alcoa að fyr-
irtækið ætli sér sjálft að eiga og reka
álverið í Reyðarfirði, taki það
ákvörðun um að ráðast í fram-
kvæmdina.
Thomas Knutzen, upplýsingafulltrúi Norsk Hydro
Höfum enn áhuga á
álveri í Reyðarfirði
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að enginn vafi sé á
því að bandaríska álfyrirtækið Al-
coa hafi mikinn áhuga á byggingu
álvers í Reyðarfirði. Hins vegar
hafi engar skuldbindingar verið
gerðar í þessum efnum, en málið sé
engu að síður lengra komið en bú-
ast hefði mátt við á svo stuttum
tíma.
Halldór sagði að þetta hefði
komið skýrt fram í samtölum hans
og meðráðherra við fulltrúa Alcoa.
„Ég tel að það hafi verið mjög
mikilvægt að ákveða að ljúka þessu
á sjö vikum, sem er einstakt. Það
ætti því að liggja fyrir eftir þann
tíma hvort af þessu verður, en allt
sem hefur komið fram er í rétta
átt, þó það eigi eftir að vinna úr
mörgum atriðum,“ sagði Halldór.
Aðspurður hvort hann væri von-
góður um að niðurstaða viðræðn-
anna yrði viðunandi fyrir Íslend-
inga sagði Halldór að hann teldi að
þetta álver yrði að veruleika. Það
væri aðeins spurning um hvenær
af því yrði og með hverjum og eins
og nú stæðu sakir væri langlíkleg-
ast að það yrði með Alcoa. Hins
vegar lægi fyrir að áhugi Norsk
Hydro væri enn fyrir hendi, en
þeir hefðu ekki verið reiðubúnir til
þess að gefa upp tímasetningar
sem hefði verið ófullnægjandi af
okkar hálfu.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Lengra komið en
búast hefði mátt við