Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐUSTU kannanir Félagsvís-
indastofnunar, Gallup, Talnakönn-
unar og DV gefa til kynna mjög
svipaða niðurstöðu. Samkvæmt
þeim fær R-listi 51–54 prósent
greiddra atkvæða, D-listi 41–45% og
F-listi 3–5%. Kannanir gefa einnig til
kynna að fylgi stærri fylkinga í
Reykjavík sé svipað og fyrir mánuði,
þrátt fyrir nokkrar sveiflur síðan þá.
Þannig mældi Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands R-lista með
51,7% fylgi og D-lista 43,4% í könn-
un sem hún gerði fyrir Morgun-
blaðið 19.–28. apríl. Könnun stofn-
unarinnar sem birt var í gær og
gerð var 18.–22. maí gaf til kynna að
R-listi hefði 51,6% fylgi, en D-listi
43,4%. Í könnun sem stofnunin gerði
í millitíðinni, 11. maí, dró hins vegar
frekar saman með stóru fylking-
unum. Munurinn á fylgi þeirra tald-
ist þá ekki tölfræðilega marktækur,
enda innan vikmarka. Svipaða sögu
má segja af könnunum Gallup, þótt
munurinn á milli stóru flokkanna
hafi heldur minnkað. Í lok apríl
mældist R-listi með rúmlega 56% og
D-listi rúmlega 39%. Könnun Gallup
sem framkvæmd var 22.–23. maí og
kynnt var í gærkvöldi gaf til kynna
að R-listi hefði 52,1% og D-listi
42,2%.
Kannanir Talnakönnunar fyrir
vefsvæðið heimur.is gefa svipaða
mynd. Fylgi R-listans er á bilinu 51–
54% allan maímánuð og D-lista á
bilinu 41 til rúmlega 44%. Síðasta
könnun Talnakönnunar fyrir kosn-
ingar, sem framkvæmd var 22.–23.
maí, gaf til kynna að D-listi hefði
44,4% og R-listi 51,2%. Í könnun sem
DV gerði 21. apríl kom fram að
Reykjavíkurlistinn hefði 42% at-
kvæða, en listi Sjálfstæðisflokksins
36,2%. 15. maí hafði dregið saman
með flokkunum, en þá mældist R-
listi með 48% fylgi og D-listi 46,4%.
Þá var munurinn á fylgi þeirra ekki
tölfræðilega marktækur. Í nýjustu
könnun DV, sem birtist í gær, hafði
munurinn hins vegar aukist á milli
stóru listanna. Þar sagðist 51,1 pró-
sent myndi kjósa R-listann og 42,6
prósent D-listann.
Fylgi stóru flokkanna nú er svipað og fyrir mánuði
Síðustu
kannanir
sam-
hljóma
!
!
Í SJÓNVARPSUMRÆÐUM
leiðtoga þriggja framboða fyrir
borgarstjórnarkosningarnar á
Stöð 2 í gærkvöldi var m.a. deilt
um þátttöku Orkuveitu Reykja-
víkur í risarækjueldi í Ölfusi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði þátttöku í
þróunarverkefnum af þessu tagi
eðlilega og hluta af samfélags-
skyldu fyrirtækisins. Björn
Bjarnason, borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins, sagði málið
hins vegar minna á þróunina í
Línu.Neti.
Orkuveitan sótti fyrr á þessu
ári um starfsleyfi fyrir eldisstöð
fyrir risarækju á Bakka í Ölfusi.
Í maí árið 2000 samþykkti
stjórn fyrirtækisins að leggja
allt að 10 milljónir króna til til-
raunaverkefnis með eldi fersk-
vatnsrækju í volgu vatni, en 30
milljónir króna áttu að koma frá
öðrum aðilum.
Orkuveitan er
mikilvæg atvinnulífinu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
sagði í sjónvarpsumræðunum að
Orkuveitan væri mikilvæg í at-
vinnulífi allt frá Borgarfirði
austur til Þorlákshafnar, þar
sem fyrirtækið hefur keypt
veitufyrirtæki. Orkuveitan hlyti
m.a. að koma að nýsköpunar-
verkefnum á ýmsum sviðum,
sem lytu að því hvernig menn
nýttu raforku og heitt vatn.
„Hún skoðar auðvitað ýmislegt í
því efni og þetta er bara eitt af
þeim verkefnum sem hún er að
skoða en er auðvitað algjör
aukageta hjá þessu fyrirtæki,
sem hefur fyrst og fremst því
hlutverki að gegna að framleiða
heitt vatn, kalt vatn og raforku
til að undirbyggja þau lífsgæði
sem við búum við hérna og öfl-
ugt atvinnulíf í borginni,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Hætta á að festast
í óviðráðanlegu ferli
„Það sem er í þessu máli
minnir mjög á þróunina í Línu.-
Neti,“ sagði Björn Bjarnason.
„Það er farið af stað og síðan
festast menn í einhverju ferli
sem menn ráða ekki við. Við
sjáum hvernig peningar hafa
streymt út úr Orkuveitunni í
það fyrirtæki og hættan er sú að
þetta fólk, sem einu sinni hefur
farið þannig með fjármuni
Orkuveitunnar muni gera það í
annað skipti og nú í risarækju-
eldi.“ Björn kallaði nýbyggingu
OR og risarækjueldið gæluverk-
efni.
Ingibjörg Sólrún svaraði m.a.
með því að bera OR saman við
Hitaveitu Suðurnesja, sem tæki
þátt í margvíslegum þróunar-
verkefnum og hefði miklu upp-
byggingarhlutverki að gegna á
Suðurnesjum. Þá sagði hún
rangt að gefa í skyn að OR
stæði illa. „Orkuveita Reykja-
víkur er með eiginfjárstöðu upp
á 60%, er með 36 milljarða í eig-
in fé, er fyrirtæki sem hefur
gríðarlega miklu hlutverki að
gegna hér í borginni og á auð-
vitað að sinna sinni samfélags-
skyldu með því að skoða ýmis
þróunarverkefni sem renna
styrkari stoðum undir atvinnu-
lífið í borginni.“
Ólafur F. Magnússon, efsti
maður á lista Frjálslyndra og
óháðra, sagðist telja að ef auka-
geta væri til hjá Orkuveitunni
ættu borgarbúar að njóta henn-
ar í lægri gjöldum eða með því
að henni yrði varið til brýnna
verkefna í velferðar- og öryggis-
málum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um þátt-
töku OR í risarækjueldi í Ölfusi
Hluti af sam-
félagsskyldu
Minnir á þróunina í Línu.Neti,
segir Björn Bjarnason
KRISTÍN Blöndal, formaður leik-
skólaráðs, segir að Reykjavíkurborg
hlutist ekki til um hvaða gjöld
einkareknir leikskólar í borginni
taki fyrir þjónustu sína, eða hvaða
afslætti skólarnir veita foreldrum
barna sem ganga í einkarekna leik-
skóla. Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að foreldrar barns í einkarekn-
um leikskóla hafi á tveggja ára
tímabili reynt að fá viðurkennt að
foreldrum barna í einkareknum
leikskólum og skólum á vegum
borgarinnar sé mismunað hvað
greiðslur styrkja varðar. Guðlaugur
Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, segir minnihlutann
hafa lagt áherslu á að samkeppn-
isstaða einkareknu leikskólanna
verði jöfnuð og styrkveitingar til
foreldra samræmdar.
Foreldrarnir skrifuðu, frá febrúar
árið 2000 til desember 2001, leik-
skólaráði, borgarlögmanni, fé-
lagsráðuneyti og loks umboðsmanni
Alþingis vegna þessa máls og í byrj-
un þessa mánaðar var fyrirkomulagi
styrkveitinga til einkarekinna leik-
skóla breytt. Gagnrýni foreldranna
beindist að því að í þeim tilvikum
sem annað foreldri væri í námi nytu
þeir foreldrar sem hefðu börn sín á
einkareknum leikskólum engra
sérstakra styrkja umfram það sem
almennt geriðst öfugt við foreldra
barna í leikskólum borgarinnar. Þar
nyti sami hópur um það bil 28%
afsláttar frá almennri gjaldskrá.
Kristín segir að styrkjafyrir-
komulagið hafi verið óbreytt í fjölda
ára en síðustu 8 ár hafi styrkir til
einkarekinna leikskóla hækkað tals-
vert. Þegar R-listinn tók við borg-
inni hafi foreldrar í sambúð eða
hjónabandi t.d. verið styrktir um 6
þúsund krónur á mánuði eða 66 þús-
und krónur á ári. Nú séu þessir
styrkir komnir upp í 400 þúsund
krónur á ári. Samkomulag hafi verið
gert við leikskólana um að þeir geti,
innan þessara marka, veitt alla þá
afslætti sem þeir kæri sig um.
Þannig hafi sumir skólar gefið
systkinaafslátt og aðrir styrkt for-
eldra þar sem annað foreldrið er í
námi. „Við hlutumst ekki til um
gjöldin sem skólarnir taka af for-
eldrum, við lítum á það sem sjálf-
stæði þeirra að taka þessar ákvarð-
anir,“ segir Kristín.
Ekki skylda sveitarfélaga að
styrkja einkarekna skóla
Hún segir að borgarlögmaður
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
borgin hafi sjálfsákvörðunarrétt um
hve háa rekstrarstyrki hún greiði til
einkarekinna leikskóla og hvort hún
greiði þá yfir höfuð. Ekkert skyldi
sveitarfélög til að styrkja einka-
rekna leikskóla. Borgarlögmaður
hafi aftur á móti litið þannig á að
eðlilegt væri að sömu reglur giltu
um styrkveitingar til einkarekinna
leikskóla og leikskóla borgarinnar.
Félagsmálaráðuneytið tók undir
þessi rök í áliti sínu og taldi eðli-
legra að Reykjavíkurborg beitti sér
fyrir því að foreldrar þar sem annað
væri í námi nytu einnig sérstakrar
fyrirgreiðslu á einkareknum leik-
skólum. Ráðuneytið taldi þó ekki að
fyrirkomulag styrkveitinga til
einkarekinna leikskóla bryti í bága
við ákvæði stjórnsýslu- eða sveit-
arstjórnarlaga.
Kristín segir ástæðu þess hversu
langan tíma það hefur tekið að fá
úrslausn í málið að langan tíma hafi
tekið að fara yfir þær forsendur
sem liggja að baki ákvarðana um
gjaldtöku, styrki og annað slíkt. Í
rauninni sé ekki búið að finna út úr
því enn þá, en til standi að fara í þá
vinnu. Reglum um styrkveitingar
hafi verið breytt 1. maí síðastliðinn
meðan þessi vinna stendur yfir.
Baráttumál Sjálfstæðis-
flokksins allt kjörtímabilið
Guðlaugur Þór segir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi barist fyrir
því allt kjörtímabilið að samkeppn-
isstaða einkareknu leikskólanna sé
jöfnuð og að samræmis verði gætt
við styrkveitingar. „Það hefur
hvorki rekið né gengið og þeir
[meirihlutinn] hafa fellt tillögur
okkar hvað eftir annað. Því miður
þurfa menn í þessu máli að fara alla
leið, einstaklingurinn þarf alltaf að
takast á við kerfið til að réttlætið
nái fram að ganga þar sem meiri-
hlutinn hefur ekki áhuga á því að
bæta úr,“ segir Guðlaugur.
Hann segir að m.a. hafi tillaga um
að borgarendurskoðun geri sam-
keppnisúttekt á þessum málum ver-
ið felld, sem og tillaga um að nið-
urgreiðsla til foreldra verði gerð
sambærileg í leikskólum borgarinn-
ar og einkareknum skólum, eftir að-
stæðum foreldranna. Öllu þessu hafi
verið hafnað á þeirri sérkennilegu
forsendu að meirihlutinn vilji ekki
miðstýra gjaldskrá einkareknu skól-
anna. „Þetta er ástæðan sem er gef-
in en það stenst enga skoðun.“
Kristín Blöndal, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur, um einkarekna leikskóla
Hlutast ekki til um
hvernig styrkveit-
ingum er háttað
Sjálfstæðismenn segja tillögur til úrbóta hafa verið felldar
EMBÆTTI yfir-
dýralæknis er nú
með til umsagnar
umsókn Húsavíkur-
bæjar á innflutningi
á krókódílum frá
Bandaríkjunum af
tegundinni Alligator
mississippiensis.
Að sögn Sigurðar
Arnar Hanssonar að-
stoðaryfirdýralæknis
hefur verið óskað
frekari gagna frá
innflytjandanum.
Fyrr verður umsögn
ekki skilað til landbúnaðarráðherra,
sem ætlað er að gefa leyfi fyrir inn-
flutningnum.
Eins og fram hef-
ur komið í Morgun-
blaðinu fellst Nátt-
úruvernd ríkisins á
innflutning krókó-
dílanna, sem Húsa-
víkurbær hyggst
nota sem nokkurs
konar lífrænar
sorpkvarnir sem taki
við matarúrgangi frá
fiskeldi, fiskvinnslu
og kjötvinnslu í bæn-
um. Eitt af því sem
embætti yfirdýra-
læknis er að kanna er
hvort sjúkdómar eða sníkjudýr geti
borist til landsins með krókódílun-
um.
Innflutningur á krókódílum
Yfirdýralæknir ósk-
ar frekari gagna
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson