Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 14

Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 14
AKUREYRI 14 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BESTA ráðið til að lífga upp á miðbæinn á Akureyri er að efna til kosninga einu sinni í mánuði. Þessi tillaga kom fram hjá ánægðum bæjarbúa síðdegis í gær, en þá iðaði miðbærinn af lífi. Frambjóðendur voru á ferð og flugi og deildu út barmmerkjum og blöðrum og veittu af miklum rausnarskap, grillaðar pylsur, grænmeti, pönnukökur og annað góðgæti sem kjósendur gerðu góð skil um leið og þeir fræddust dálítið um framboðin og kosti þeirra. Fullur bær af fólki Jakob Björnsson, efsti maður B-listans, sveiflar sinnepinu á Ráðhústorgi í gær. Vinstri grænir buðu gestum sínum upp á hljóð- færaleik og grillað grænmeti í göngugötunni. Páll Tómasson útdeilir blöðrum fyrir gesti og gangandi í göngugötunni. Morgunblaðið/Rúnar Þór JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra hefur ákveðið að skipa nefnd sem vera á til ráðgjafar varðandi skipulag á uppbyggingu húsnæðis- mála Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, verður formaður nefndarinnar, en auk hennar munu m.a. eiga í henni sæti fulltrúar frá FSA og Háskól- anum á Akureyri. Ráðherra greindi frá þessu á ársfundi FSA, sem haldinn var í gær. Halldór Jónsson, forstjóri FSA, gerði grein fyrir starfsemi liðins árs og horfum á næstu árum. Fram kom að heildarútgjöld vegna rekstrar námu 2.490 milljónum króna og hækkuðu þau um 15% frá fyrra ári. Rekstrarafkoman var að sögn Halldórs mun verri en upp- hafleg starfsemisáætlun gerði ráð fyrir, en gjöld umfram fjárveit- ingar og sértekjur námu um 111 milljónum króna. Ástæðuna kvað hann einkum mega rekja til auk- innar starfsemi, verðlagshækkana umfram forsendur fjárlaga, kostn- aðarauka vegna hvíldarákvæða EES-samnings og að einhverju leyti vegna launahækkana sem ekki fengust viðurkenndar á fjár- lögum. Kostnaðarhækkanir á al- mennum rekstrargjöldum, s.s. lyfj- um, urðu miklar vegna gengis- breytinga og taldi Halldór að ætla mætti að hækkunin hefði numið allt að 20%, en gert hafði verið ráð fyrir um 4% hækkun. Gripið var til aðhaldsaðgerða á haustdögum þegar ljóst var að stefndi í verulegan hallarekstur, ráðningar voru takmarkaðar, dregið var úr starfsemi og við- haldsframkvæmdum frestað. Hall- dór sagði síðasta ár hafa verið með erfiðari rekstrarárum sjúkrahúss- ins í seinni tíð. „Miklar verðlags- hækkanir og gengisbreytingar sem ekki fást bættar með fjárveit- ingum gera þennan rekstur mjög erfiðan. Föst fjárlög henta slíku rekstrarumhverfi illa þar sem sveiflur eru miklar, bæði í verðlagi og einnig í þjónustumagni og eðli- lega þeirri þjónustu sem veitt er. Það er því nauðsynlegt að tekj- urnar tengist að hluta til föstum grunni og að hluta til þeirri starf- semi og þeirri þjónustu sem innt er af hendi á hverjum tíma,“ sagði Halldór. Fjárveiting til nýbyggingar var óvænt lækkuð Framkvæmdir við nýbyggingu sjúkrahússins lágu að mestu niðri á síðasta ári. Fjármögnun fram- kvæmdanna hefur enn ekki verið afgreidd, þrátt fyrir mjög ákveð- inn vilja þar að lútandi í tengslum við undirritun á samningi FSA og Íslenskrar erfðagreiningar í des- ember 2000 að sögn Halldórs. „Nauðsynlegt er að niðurstaða fá- ist í fjármögnun þessara fram- kvæmda strax,“ sagði Halldór. Nefndi hann að fjárveiting til nýbyggingar hefði óvænt verið lækkuð úr 35 milljónum króna í 10 milljónir sem væri heldur ekki í samræmi við áðurnefnt samkomu- lag. Engar nýjar fjárveitingar voru til sjúkrahússins við afgreiðslu fjárlaga þessa árs og enn var flöt- um niðurskurði upp á 25 milljónir króna beitt. Þá voru verðlags- hækkanir á síðasta ári ekki bættar og sagði Halldór það í raun jafn- gilda enn frekari flötum niður- skurði. Mikill vandi á höndum Sjúkrahúsið hefði á undanförn- um árum staðið frammi fyrir vax- andi þörf fyrir þjónustu og aukna starfsemi að sögn Halldórs. „Okk- ur er því mikill vandi á höndum að stilla saman þá starfsemi sem samrýmist fjárveitingum,“ sagði hann. Aðhaldsaðgerðir eru enn í gangi og valda skerðingu á starf- seminni. Sagði Halldór það miður og rýrði það möguleika sjúkra- hússins til að standa við skyldur sínar sem sérgreinasjúkrahús við Norður- og Austurland og vara- sjúkrahús alls landsins. Heilbrigðisráðherra opnaði í lok ársfundarins nýja heimasíðu FSA. Liðið ár var eitt hið erfiðasta í rekstri Fjórðungssjúkrahússins Engar framkvæmdir við ný- byggingu og fjárveiting lækkuð NÝJAR sýningar hafa verið opn- aðar í Safnasafninu á Svalbarðs- strönd. Á jarðhæð eru einkasýningar á viðarverkum eftir Sæmund Valdi- marsson og Björn Guðmundsson. Í Brúðusafni sýnir Hlíf Ásgrímsdóttir litla innsetningu vatnslitamyndar og ljósmyndar til minningar um móður sína. Á annarri hæð er kyn- slóðabilið brúað með samsýningu pappírsverka eftir nemendur 1. og 2. bekkjar Valsárskóla á Svalbarðs- strönd og Laufeyjar Jónsdóttur í Sæbóli á Vatnsnesi auk útisögunar- verka eftir Eirík Guðmundsson og Friðrik Hansen. Þá er sýning á krítar- og vatnslitamyndum eftir Hrefnu Sigurðardóttur og smásýn- ing sem ber yfirskriftina Horft um öxl, þar sem litið er til klæðaburðar fyrri tíma. Allar þessar sýningar munu standa yfir í allt sumar ásamt úti- sýningu á höggmyndum eftir Ragn- ar Bjarnason. Í Hornstofu er einkasýning á út- saumsverkum og lágmyndum eftir Hildi Kristínu Jakobsdóttur, en henni lýkur 14. júní næstkomandi. Síðar í sumar verða opnaðar þrjár einkasýningar í Hornstofu, fyrst á verkum eftir Sigríði Ágústsdóttur, þá á verkum eftir Guðrúnu Erlu Geirsdóttur og loks Halldórs Ás- geirssonar. Menntamálaráðuneytið, Menn- ingarborgarsjóður, Safnasjóður og Barnamenningarsjóður styrkja sýn- ingarnar. Safnasafnið er opið alla daga frá kl. 10 til 18, en hægt er að panta tíma fyrir hópa kvölds og morgna. Fjölbreyttar sýningar í Safna- safninu AGLOW, kristileg samtök kvenna, halda fund í félagsmiðstöðinni Víði- lundi mánudagskvöldið 27. maí kl. 20. Ann Merethe Jacobsen flytur ræður kvöldsins, þá verður fjöl- breyttur söngur og fyrirbænaþjón- usta. Fundur hjá Aglow SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhugamanna efnir til tónleika í Dalvíkurkirkju á sunnudag, 26. maí, kl. 14. Þeir eru hluti af vígsluhátíð í tilefni þess að Sparisjóður Svarfdæla gaf Dalvíkingum nýjan flygil á dögunum. Efnisskráin er með óhefð- bundnu sniði en nefna má að flutt verða sönglög eftir Sig- fús Einarsson og Gershwin, m.a. Rhapsody in Blue þar sem Helga Bryndís Magnús- dóttir leikur einleik á flyg- ilinn. Þrír saxófónleikarar taka þátt í tónleikunum, Sig- urður Flosason, Jóel Pálsson og Ólafur Jónsson. Einsöngv- ari er Kristín Ragnhildur Sig- urðardóttir. Stjórnandi er Ingvar Jónsson, sem stjórnað hefur hljómsveitinni frá upp- hafi, árið 1990. Sparisjóður Svarfdæla býð- ur Dalvíkingum og nágrönn- um á tónleikana. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna Tónleikar í Dalvík- urkirkju DÚÓTÓNLEIKAR víólu og kontrabassa verða haldnir í Akur- eyrarkirkju á morgun, sunnudag- inn 26. maí, og hefjast þeir kl. 16. Flytjendur eru Guðmundur Krist- mundsson víóluleikari og Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari. Á efnisskránni eru létt og aðgengileg klassísk verk eftir Bach, Bartók, Dittersdorf, Gliere og Sperger. Verkin verða kynnt á tónleikunum og greint frá höfundum. Á tónleik- unum verða einnig leikin stutt verk á fiðlu og selló. Hluti af þessari efnisskrá var á dagskrá Listahátíð- ar í Reykjavík fyrr í þessum mán- uði. Tónleikarnir eru haldnir í sam- starfi við Tónlistarskólann á Ak- ureyri. Víóla og kontrabassi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.