Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 23
Auðveldaðu þér leikinn
– með hagstæðu bílaláni
Veittur er 1%
afsláttur af lán-
tökugjaldi ef
lántakandi
greiðir í lífeyris-
sparnað hjá
Kaupþingi
www.fr jals i . is
Bílalán er án efa þægilegasta leiðin til að eignast nýjan bíl. Hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum býðst þér 100% bílalán, án útborgunar. Lánið borgar þú
til baka á 96 mánuðum eða skemmri tíma. 1)
Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum.
Þú getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is og fengið
allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar.
1) Lánuð eru 100% af bílverði til allt að 96 mánaða ef bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar
með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar. Bílalán með veði í bifreið getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða.
Sjá nánari skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is.
Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr.
m.v. jafnar afborganir án verðbóta
Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir
1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr.
Ef þú kaupir t.d. nýjan
Toyota RAV 4WD, 2,0,
16v* og færð 75%
til 84 mánaða er
lánsupphæðin 1.694.250 kr. Meðalafborgun
á mánuði er þá 26.464 kr.
(1.694.250/1.000.000x15.620 = 26.464)
*Verð: 2.259.000 kr. skv. verðskrá P. Sam. hf. í apríl 2002
Ef þú kaupir t.d. nýjan
Toyota Corolla 1,4,
16v* og færð 100%
lánuð til 96 mánaða
er lánsupphæðin 1.599.000. Meðalafborgun
á mánuði er þá 22.587 kr.
(1.599.000/1.000.000x14.126 = 22.587)
*Verð: 1.599.000 kr. skv. verðskrá P. Sam. hf. í apríl 2002
A
B
X
/
S
ÍA
REKSTRARTAP Sláturfélags
Suðurlands á tímabilinu janúar
til mars 2002 var 8,5 milljónir,
en árið áður 36,1 milljón. Bætt
afkoma stafar fyrst og fremst af
lækkun fjármagnsgjalda vegna
gengishækkunar krónunnar.
Eigið fé Sláturfélagsins er 1.184
milljónir og 40% eiginfjárhlut-
fall. Rekstrartekjur Slátur-
félags Suðurlands voru 837
milljónir á fyrstu þremur mán-
uðum ársins 2002, en 689 millj-
ónir á sama tíma árið áður og
aukast um tæp 22%.
Rekstrargjöld án afskrifta
námu 811 milljónum samanbor-
ið við 668 milljónir árið áður og
aukast um rúm 21%. Afskriftir
rekstrarfjármuna voru 38 millj-
ónir en 34 milljónir árið 2001.
Rekstrartap var tæpar 12 millj-
ónir, en 14 milljónir króna árið
áður. Fjármagnsliðir voru já-
kvæðir um tæpar 12 milljónir en
neikvæðir á árinu á undan 19
milljónir. Lækkun fjármagns-
gjalda skýrist fyrst og fremst af
22 milljóna gengishagnaði en
gengistap var árið áður rúmar
10 milljónir. Hlutdeild í afkomu
hlutdeildarfélaga var neikvæð
um 6 milljónir og tap fyrir
skatta 6 milljónir en árið áður
34 milljónir. Skattar voru rúmar
2 milljónir. Tap af rekstri tíma-
bilsins var 8,5 milljónir en 36,1
milljón árið áður.
Veltufé frá rekstri var tæpar
17 milljónir fyrstu þrjá mánuði
ársins 2002, samanborið við 12
milljónir fyrir sama tímabil árið
2001.
Í lok mars 2002 voru heildar-
eignir Sláturfélags Suðurlands
2.954 milljónir og höfðu hækkað
um 501 milljónir frá fyrra ári.
Skammtímaskuldir voru 860
milljónir, langtímaskuldir voru
910 milljónir og eigið fé 1.184
milljónir. Eiginfjárhlutfall var
40% í lok mars sl. og veltufjár-
hlutfall 1,3 Sláturfélagið birtir í
fyrsta skipti 3 mánaða árshlut-
areikning með samanburði við
fyrra ár. Fylgt er sömu reikn-
ingsskilaaðferðum og í fyrra.
Bætt af-
koma Slát-
urfélagsins HRAÐFRYSTISTÖÐ Þórshafnar
skilaði 241 milljónar króna hagnaði
á fyrstu þremur mánuðum ársins,
en allt árið í fyrra var 23 milljóna
króna tap af rekstri félagsins. Ekki
liggja fyrir samanburðartölur fyrir
fyrstu þrjá mánuði ársins.
Rekstrartekjur námu 794 millj-
ónum króna á tímabilinu og hagn-
aður fyrir afskriftir nam 263 millj-
ónum króna, sem samsvarar 33,1%
framlegð. Fjármagnsliðir voru já-
kvæðir um 39 milljónir króna og
stafar það af gengismun vegna
áhrifa styrkingar gengis krónunn-
ar á erlend lán. Veltufé frá rekstri
nam 230 milljónum króna. Heildar-
eignir félagsins voru 2,3 milljarðar
króna og þar af voru viðskiptakröf-
ur 221 milljón króna og höfðu
hækkað um 168 milljónir króna frá
áramótum. Eigið fé nam 188 millj-
ónum króna, en hafði verið nei-
kvætt um 56 milljónir króna um
áramót. Skuldir námu 2,1 milljarði
króna og eiginfjárhlutfallið var
rúmlega 8%.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að árið fari vel af stað og að
rekstrarafkoman sé mjög viðun-
andi. Afkoman byggist aðallega á
veiðum og vinnslu uppsjávarfisks
og félagið hafi aldrei tekið á móti
jafn miklu magni af loðnu og á síð-
ustu vetrarvertíð. Afurðaverð á
lýsi og mjöli hafi verið mjög við-
unandi. Gengishækkun krónunnar
lækki framlegð félagsins en bæti
fjármagnsliðina. Þá er þess getið
að fyrstu þrír mánuðir ársins séu
yfirleitt bestu rekstrarmánuðirnir,
en samkvæmt fyrirliggjandi áætl-
unum fyrir árið 2002 sé gert ráð
fyrir að félagið verði rekið með
hagnaði á árinu.
Ársfjórðungsuppgjör Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
241 millj. kr. hagnaður
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ og
Útflutningsráð Íslands munu standa
fyrir morgunverðarfundi næstkom-
andi þriðjudag, 28. maí, þar sem
kynntir verða möguleikar íslenskra
fyrirtækja á þátttöku í verkum sem
styrkt eru af Þróunarsjóði EFTA.
Frá þessu er greint í fréttatilkynn-
ingu frá Útflutningsráði.
Per Bondesen, framkvæmdastjóri
Þróunarsjóðs EFTA, mun kynna
starfsemi þróunarsjóðs EFTA á
fundinum og möguleika íslenskra
fyrirtækja á verkefnum sem sjóður-
inn styrkir í Grikklandi. Einkum er
horft til verkefna á sviði jarðhita-
vinnslu og annarra verkefna á sviði
umhverfisverndar. Segir í tilkynn-
ingunni að einnig kunni að vera tæki-
færi á öðrum sviðum, svo sem á sviði
rannsókna og þróunar.
Benedikt Steingrímsson, yfirverk-
efnisstjóri á rannsóknasviði Orku-
stofnunar, fjallar á fundinum um
verkefni sem Orkustofnun hefur tek-
ið þátt í í Grikklandi.
Morgunverðarfundurinn verður
haldinn þriðjudaginn 28. maí kl.
8.30–10.30 í Háteigi, Grand hóteli,
Reykjavík. Þátttökugjald er 1.000
kr., morgunverður innifalinn. Nán-
ari upplýsingar og skráning á vef-
síðu Útflutningsráðs eða í síma
511 4000.
Fundur um
verk styrkt
af Þróunar-
sjóði EFTA
HRAÐFRYSTIHÚS Eski-
fjarðar hf. hefur skrifað undir
samning um sölu á meirihluta
í vélaverkstæði félagsins til
Hamars Kópavogi.
Stofnað hefur verið nýtt
hlutafélag, Hamar Austur-
land, um starfsemi hins nýja
verkstæðis. Eignarhlutur HE
í félaginu verður 49% á móti
51% eignarhlut Hamars
Kópavogi.
Í framhaldi hefur HE gert
fjögurra ára þjónustusamning
við Hamar Austurland.
Selja véla-
verkstæði