Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 34
AÐSTANDENDUR hádegistón-
leika Listahátíðar í kjallarasal Ráð-
húss Reykjavíkur á þriðjudaginn
sýndu tónleikagestum þann óvænta
sóma að hafa tiltækt tónleikaskrár-
blað með einhverjum viðbótarupplýs-
ingum um verk og flytjendur, þó að
viðfangsefnin að þessu sinni væru í
öllu léttari dúr en föstudaginn áður.
Flytjandi var Dean Ferrell, meðlimur
í Sinfóníuhljómsveit Íslands 1990-93
og síðan 1998, sem áður hefur starfað
í ýmsum sinfóníuhljómsveitum og óp-
eruhljómsveitum víða um heim.
Í boði voru fjögur sólóverk fyrir
kontrabassa. Fyrst var nokkurs kon-
ar melódrama, þ.e. hljómleikur með
tali. „Velkomin til Kontrabassalands-
ins“ eftir Barney Childs var í e.k.
rondóformi, með vaggandi rokkabillý
„vamp“-mynztri á milli útskota, þar
sem spilarinn spjallaði kumpánlega
við hlustendur meðan á leik stóð, líkt
og gestgjafi að sýna húsakynni. Því
miður var þónokkuð þrusk og ónæði
af óviðkomandi gestum og gangandi,
svo fjærst seztu hlustendur náðu
varla öllu sem sagt var. Þó mátti inn-
an um greina brandara sem látnir
voru flakka úr auðugum alþjóðasjóði
um þetta kannski úthúðaðasta allra
hljóðfæra þá músíkantar bregða á
glens – „kjallarahæð fiðlufjölskyld-
unnar“. Án þess að hafa séð Kontra-
bassinn mátti vel ímynda sér álíka
kersknikorn í því vinsæla leikriti. Af-
skipt ghettótilvera bassaleikara í eilíf-
um skugga hátíðnisenuþjófa kallar
enda óhjákvæmilega á huggun sam-
kenndar og stéttbundins gálgahúm-
ors.
Þríþætt „Persónulýsing kennara
minna“ (þ.e. kennara einleikarans)
var útsett af Ferrell. Fyrst alkunnug
Gymnopedía Eriks Satie, blíðlega
strokin við eigin undirleik plokkaðs
bæjarabassa og náttúruflaututónství-
hljóma, til lýsingar á Bertram Tur-
etzky. Þá kom innhverfur Söngur
fuglsins („um“ Bjørn Ianke) þar sem
glissandó-flaututónar lögðu til fuglsk-
vak líkt og úr fjarska, inn á milli hæg-
gengra laglínuhendinga. Loks var
„Excertium“, fótspilsæfing Bachs
fyrir orgel (BWV 598) og tileinkuð
skapgerð Davids Walters, sem kom
notalega út í ört kjagandi kontra-
bassaútfærslu undan þýtt stroknum
þýzkum boga Deans Ferrells.
Hugleiðing um Ives og Whittier
eftir Bertram Turetzky hefur vænt-
anlega átt við föður bandarískra mód-
ernista, Charles Ives. Um seinni höf-
undinn brestur undirritaðan hins
vegar alla þekkingu, og hefði tón-
leikaskrárblaðið gjarna mátt bæta í
þá eyðu. Verkið var hægvirkt en klið-
fagurt, stutt kontrabassaómum til
viðbótar af segulbandi og minnti mest
á gamalt púrítanskt sálmalag á hálf-
um hraða við undirleik dreymandi
hnúfubakasöngs í mínímalískri sí-
trekun – ef þá ekki á virðulegan útfar-
arsöng í fílakirkjugarði.
Ef semja skyldi freudíska sálgrein-
ingu fyrir hljóðfæri og leikara þess,
mætti líklega taka sér síðasta verk
dagsins að fyrirmynd. Failing eftir
Tom Johnson – með varnaðarorðin
„A very difficult piece for solo contra-
bass“ í undirtitli (sem leiddi hugann
að því hvað neytendavænar vörulýs-
ingar eru eiginlega fáséðar utan á nú-
tíma tónsmíðum) – var hin skopleg-
asta samsetning, þar sem spilarinn,
linnulaust og fjálglega þótt spilað
væri á fullu allan tímann, lýsti aðskilj-
anlegum fingurbrjótum verksins og
áhyggjum þess og höfundarins í garð
aumingja flytjandans, sem jafnframt
talaði fyrir munn beggja. Dean Fer-
rell fór hér á kostum sem n.k. óvenju-
málgefinn Victor Borge í uppistands-
ham með flórgígju í stað flygils, og
var honum afar hlýtt þakkað fyrir
þessa hámúsíkölsku lágtíðniskemmt-
un með ríkulegu lófataki viðstaddra
að lokum.
Hámúsíkalskt
lágtíðniskaup
TÓNLIST
Listahátíð
Ráðhús Reykjavíkur
Einleiksverk fyrir kontrabassa eftir
Childs, Turetzky og Johnson; útsetningar
á verkum eftir Satie og Bach eftir Dean
Ferrell. Dean Ferrell, kontrabassi. Þriðju-
daginn 21. maí kl. 12:30.
EINLEIKSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
LISTAHÁSKÓLI Íslands braut-
skráir nemendur frá skólanum á há-
tíðarsamkomu sem haldin verður í
Borgarleikhúsinu í dag kl. 14.
Með brautskráningu lýkur þriðja
starfsári Listaháskólans. Alls ljúka
að þessu sinni 69 nemendur BA-
prófi og BFA-prófi úr þremur deild-
um: 43 úr myndlistardeild, 18 úr
hönnunardeild og 8 úr leiklistar-
deild. Auk þess útskrifast 6 nem-
endur með lokapróf, diplóma, í
kennslufræðum á sviði myndlistar
og hönnunar.
Auk ávarps rektors og fulltrúa
nemenda verða á dagskránni tón-
listaratriði og upplestur. Miklós
Dalmay, píanóleikari, flytur verk
eftir Franz Liszt og Arnar Jónsson,
leikari, les úr verkum T.S. Eliot.
Kristín Jóhannesdóttir, kvikmynda-
leikstjóri, flytur hátíðarræðu. Kynn-
ir á samkomunni er Guðjón Davíð
Karlsson, leiklistarnemi.
Skólaárinu lýkur í Listaháskólanum
75 nemendur
útskrifast á
þriðja starfsári
Í RAUÐU stofu Gallerís Foldar opn-
ar Olga Pálsdóttir sýningu á grafík-
verkum í dag, laugardag, kl. 15 og í
Ljósfold opnar Emil Þór Sigurðsson
sýningu á ljósmyndum. Þetta er
þriðja einkasýning Olgu og hefur yf-
irskriftina Reykjavík. Auk einkasýn-
inga hefur Olga tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Olga er fædd árið 1962
í Norður-Rússlandi. Hún hefur búið á
Íslandi undanfarin ár. Hún útskrifað-
ist úr grafíkdeild Listaháskóla Ís-
lands árið 2001. Emil Þór er lærður
ljósmyndari. Hann hefur starfað sem
blaðaljósmyndari, en síðan 1984 hefur
hann starfað sjálfstætt í eigin fyrir-
tæki, Ljósmyndastofu Reykjavíkur.
Hann hefur haldið einkasýningar á
Íslandi og í Þýskalandi og tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Gallerí Fold er opið daglega frá kl.
10-18, laugardaga til kl. 17 og sunnu-
daga frá kl. 14-17. Sýningunum lýkur
9. júní.
Grafíkverk og
ljósmyndir í Fold
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALDA Ármanna Sveinsdóttir opn-
ar stuttsýningu, í Gallerí Reykja-
vík, Skólavörðustíg 16, í dag,
laugardag, kl. 16.
Yfirskrift sýningarinnar er
Konur í borginni og sýnir hún ol-
íumálverk unnin á árinu.
Viðfangsefnið er konur og eru
þær að stússa með ýmislegt úr
kvennamenningu, mat, ávexti,
blóm og ýmsa drauma, segir í
kynningu.
Sýningin stendur til mán-
aðamóta og er opin virka daga
kl. 12-18, laugardaga frá kl. 11-
16.
Verk eftir Öldu Ármönnu.
Alda Ármanna og
konur í borginni
GRAFÍKLISTAKONAN Asta
Rakauskaite frá Litháen opn-
ar sýningu í sal félagsins Ís-
lensk grafík, Tryggvagötu 17,
Hafnarhúsinu, í dag, laugar-
dag.
Asta er fædd 1974 í Vilnius,
Litháen, þar sem hún býr nú
og starfar. Hún útskrifaðist
með mastersgráður frá
Listaháskóla Vilnius 1998 með
aðaláherslu á grafík og hefur
síðan haldið fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt í samsýn-
ingum bæði erlendis og heima.
Listakonan hlaut Sleipnisstyrk
til mánaðardvalar á Íslandi.
Þau verk sem hún mun sýna
eru stórar tréristur þrykktar á
striga. Sýningin stendur yfir í
dag og á morgun kl. 14-18 og
verður listakonan á staðnum.
Grafík-
list frá
Litháen
Listamiðstöðin Straumi
Ljósmyndasýningin Lífið í
fókus er framlengd til 2. júní.
Það er Fókus, félag áhugaljós-
myndara, sem stendur fyrir
sýningunni í tilefni þriggja ára
afmælis félagsins.
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 17-21 en um helgar frá
kl. 13-21.
Félagsmenn kynna starfsemi
sína í Straumi.
Sýning
framlengd
RÚMENSKA sígaunahljóm-
sveitin Taraf de Haïdouks spil-
ar nokkur lög fyrir Kringlu-
gesti kl. 17 á þriðjudag.
Hljómsveitin kemur hingað til
lands á Listahátíð í Reykjavík
og heldur þrenna tónleika.
Sígauna-
tónlist í
Kringlunni
TILKYNNT var í
gær í Helsinki að
Mýrin eftir Arnald
Indriðason hefði hlot-
ið Glerlykilinn, Nor-
rænu glæpasagna-
verðlaunin í ár.
Tilnefnd voru verk
frá Danmörku, Nor-
egi, Finnlandi og Sví-
þjóð, auk Íslands, og
valdi dómnefnd skip-
uð fulltrúum allra
landanna fimm verð-
launabókina. Arnald-
ur veitti verðlaunun-
um viðtöku ytra í
gær.
Þetta er í annað
skiptið sem Ísland leggur fram
bók til Norrænu glæpasagnaverð-
launanna en Engin spor eftir
Viktor Arnar Ingólfsson var til-
nefnd í fyrra.
Hefur mikla
þýðingu fyrir mig
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með að Mýrin skuli vera valin
besta glæpasaga Norðurlanda ár-
ið 2001. Ég tel að þetta muni hafa
mikla þýðingu fyrir bæði mig sem
rithöfund og einnig
fyrir íslensku spennu-
söguna í framtíðinni,“
sagði Arnaldur Indr-
iðason í samtali við
Morgunblaðið í gær
en hann er staddur í
Helsinki þar sem
hann mun taka þátt í
ráðstefnu Samtaka
norrænna glæpa-
sagnahöfunda. „Þetta
kom mér mjög á
óvart og það eykur á
ánægjuna yfir úrslit-
unum að þetta var í
fyrsta sinn sem öll
Norðurlöndin fimm
hafa tilnefnt bækur í
keppnina.“
Glerlykillinn er orðinn eftirsótt-
ur meðal norænna spennusagna-
höfunda og Arnaldur kvaðst ekki
efast um að verðlaunin yrðu til að
vekja enn frekari athygli á bókum
hans en orðið er.
„Þetta stimplar Ísland inn sem
fullgildan þátttakanda í norrænni
spennusagnaritun og mun vafa-
laust hafa mjög jákvæð áhrif á
framgang íslensku spennusögunn-
ar.“
Arnaldur Indriðason hefur sent
frá sér fimm glæpasögur. Synir
duftsins kom út árið 1997, Dauða-
rósir 1998, Napóleonsskjölin 1999,
Mýrin árið 2000 og Grafarþögn í
fyrra. Bækur hans hafa notið mik-
illa vinsælda meðal íslenskra les-
enda og er þess skemmst að
minnast að þegar Morgunblaðið
birti á dögunum bóksölulista sinn
fyrir aprílmánuð röðuðu bækur
hans sér í þrjú efstu sætin yfir
skáldverk.
Tvær kvikmyndir
í undirbúningi
Bækur Arnaldar Indriðasonar
eru væntanlegar í Danmörku,
Finnlandi, Hollandi og Þýska-
landi. Hafa þekkt útgáfufyrirtæki
í þessum löndum keypt útgáfu-
réttinn á Mýrinni og fleiri bókum
Arnaldar.
Nú eru í undirbúningi tvær
kvikmyndir eftir bókum Arnaldar.
Baltasar Kormákur vinnur að
gerð bíómyndar eftir Mýrinni og
Snorri Þórisson stefnir að gerð al-
þjóðlegrar stórmyndar eftir
Napóleonsskjölunum.
Útgefandi bóka Arnaldar er
Vaka-Helgafell.
Tilkynnt um Norrænu glæpasagnaverðlaunin
Arnaldur Indriða-
son hlutskarpastur
Arnaldur
Indriðason